Morgunblaðið - 27.01.1998, Side 16
Einn sá allra besti,
ef ekki sá besti
Bryantsá
yngsti í
„stjörnuliðið“
Þó að bakvörðuiTnn Kobe
Bryant sé ekki í byijunarliði Los
Angeles kom það ekki í veg fyrir
að hann yrði yngsti Ieikmaður-
inn sem valinn er til þátttöku 1
árlegum stjörnuleik liða austur-
og vesturstrandarinnar. Þar með
skráði Bryant nafn sitt í sögu-
bækur NBA-deildarinnar en
hann verður 19 ára og 5 mánaða
gamall er 48. stjörnuleikurinn
fer fram í Madison Square Gard-
en í New York 8. febrúar. Áður
var það ekki ómerkari maður en
Magic Johnson seni var yngsti
leikmaðurinn til þess að vera
valinn til þátttöku í leiknum, en
hann var 20 ára og 5 mánaða er
hann tók þátt árið 1980.
MEISTARI Ameríkudeildar
sigraði loks í úrslitaleik amer-
íska fótboltans eftir 14 ára
bið þegar Denver Broncos
hafði betur í viðureign við
Green Bay Packers, 31:24 á
sunnudag. Þetta var 32. úr-
slitaleikurinn í NFL-deildinni
(sem kallaður er Super Bowl
vestra) og einn sá allra besti,
ef ekki sá besti.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
Denver Broncos kom flestum á
óvart á sunnudag og sigraði
sjálfa meistara Green Bay með
sömu leikaðferð og lið
Landsdeildarinnar
hafa notað undanfarin
13 ár. Hún byggist á
því að ryðjast með
boltann fram völlinn, þ.e. að hlaupa
með boltann í stað þess að kasta
honum, þar til vörn andstæðing-
anna þreytist og kasta honum að-
eins þegar vömin fer að einbeita sér
að ruðningnum. Ruðningur liðsins
úr Landsdeildinni hefur verið mun
kröftugri í flestum þessara þrettán
úrslitaleikja, en nú var það liðið úr
Ameríkudeildinni sem sneri dæm-
inu við.
Frábær leikur
Veðrið í San Diego var ákjósan-
legt og 68.912 áhorfendur skemmtu
sér konunglega. Leikurinn var mjög
góður og liðin skiptust á að skora
allan tímann. Green Bay skoraði
strax snertimark í fyrstu sókn sinni,
en Denver svaraði með 17 stigum í
röð en Green Bay skoraði 12 sek-
úndum fyrir hálfleik og staðan þá
17:14 fyrir Denver.
Besti leikmaður Denver, ruðn-
ingsleikmaðurinn
Terrell Davis,
lenti í slæmu sam-
stuði um miðjan
fyrri hálfleik og
fékk slæmt
mígrenikast.
Hann var óhæfur
til að spila annan
leikhluta, en hóf
leik að nýju strax í
seinni hálfleik.
„Ég tók lyf í hálf-
leik og var hepp-
inn að hann var
tvisvar sinnum
lengri en venju-
lega. Þegar seinni
hálfleikurinn loks-
ins hófst var mesti
höfuðverkurinn
horfínn," sagði
Davis á éftir.
Liðin skiptust
enn á að skora í
seinni hálfleik,
sem var frábær,
og staðan var jöfn
24:24, tæpum fjór-
um mínútum fyrir
leikslok eftir
snertimark Green
Bay. Denver fékk
boltann, fór fram
völlinn og það var
Reuters
TERRELL Davis, ruðningsleikmaður Denver, lék frábærlega og var kjörinn maður úrslitaleiksins.
Davis skoraði þrjú snertimörk og ruddist 157 stikur með boltann.
Terrell Davis sem skoraði síðustu
stigin fyrir liðið tæpum tveimur
mín. fyrir leikslok, 31:24 fyrir Den-
ver. Green Bay reyndi allt til að
jafna í síðustu tilraun sinni, en loka-
Reuter
JOHN Elway, leikstjórnandi Denver, með sig-
urlaunin. Elway, sem er 37 ára, sagði sigurinn
ákaflega sætan, enda hefur hann þrívegis ver-
ið í tapliði í úrslitaleik NFL-deildarinnar.
tilraun leikstjórnandans, Brett
Favre, rann út í sandinn þegar um
hálf mín. var eftir.
Sanngjarn
sigur
Sigur Denver var sanngjarn.
Þetta var besti leikur liðsins á
keppnistímabilinu, bæði í sókn og
vörn. Fæstir sérfræðingar höfðu
gert sér grein fyrir því hve góður
ruðningsleikur liðsins er, þrátt fyrir
að það hefði unnið tvo útileiki með
því að beita sömu leikaðferð, gegn
Kansas City Chiefs og Pittsburgh
Steelers, í úrslitakeppninni, en bæði
þessi lið eru með góðar varnir gegn
ruðningsleik. Annars var það vörn
liðsins sem kom e.t.v. mest á óvart.
Hún setti mikla pressu á Brett
Favre allan leikinn og hann virtist
alltaf vera að flýta sér þegar hann
kastaði boltanum.
Green Bay lék einnig vel, þrátt
fyrir tapið. Favre kastaði alls 256
stikur (jarda) og átti þrjú snerti-
mörk, en hann tapaði boltanum
tvisvar á mikilvægum augnablik-
um. Ruðningsleikmaðurinn Dorsey
Levins ruddist 146 stikur og kant-
maðurinn Antonio Freeman skor-
aði tvö snertimörk. Þetta dugði þó
ekki; vörn Denver sá til þess í lok-
in.
Leikstjórnandi Denver, John
Elway, vann loks meistaratitilinn
eftir 14 ára bið og þrjú töp í úrslita-
leikjum. „Töpin þrjú fyrr á ferlinum
gera sigurinn enn sætari en ella fyr-
ir mig. Það er ólýsanleg tilfinning
að vita að eftir allt erfíðið skuli mað-
ur loksins geta andað léttar. Leið
okkar í úrslitaleikinn var erfíð svo
við vissum alveg hvað við þurftum
að gera,“ sagði Elway eftir leikinn.
Hann þurfti ekki að kasta boltanum
mikið, en var mjög traustur þegar
mest lá við og skoraði sjálfur eitt
snei-timarkanna.
Það var fyrst og fremst frábær
leikur Davis, sem skoraði þrjú
snertimörk og ruddist 157 stikur
með boltann, sem lagði gi'unninn að
sigri Denver. Hann var kosinn
„maður leiksins" af fréttamönnum.
„Ég er hálf dofínn núna,“ sagði
hann að leikslokum. „Ég var búinn
að spila leikinn í huganum alla vik-
una og hann endaði alltaf með sigri
okkar - því var aldrei spurning í
mínum huga hvernig hann færi,“
sagði Davis.
Þjálfari Denver, Mike Shanahan,
var að vonum ánægður eftir leikinn.
„Lykillinn að sigrinum var að við
gáfumst aldrei upp þótt við hefðum
tapað knettinum eða eftir að við
lentum undir í fyrri hálfleiknum.
Baráttan var ótrúleg hjá strákunum
í dag og við fundum leið til að vinna
í lokin.“ Þjálfari Green Bay, Mike
Holmgren, virtist taka tapinu með
ró. „Okkur vantaði örlítið í viðbót í
lokin til að jafna, en Denver er vel
að sigrinum komið. Ruðningsleikur
þeirra var mun betri en við höfðum
gert okkur grein fyrir og okkur
tókst ekki að bregðast eins vel við
því og við hefðum átt að gera,“
sagði hann.
HANDBOLTI
KA
átti
aldrei
mögu-
leika
KA tapaði fimmta leik sínum í
Meistaradeild Evrópu á laug-
ardaginn þegar það sótti heim
efsta lið A-riðils, Celje Lasko frá
Slóveníu. Þrátt fyrir hetjulega bar-
áttu að sögn Atla Hilmarsson,
þjálfara KA, þá höfðu norðanmenn
ekki möguleika á að halda í við
gestgjafa sína að þessu sinni og er
upp var staðið munaði 13 mörkum,
31:18.
„Við héldum aðeins í við þá í
upphafi og eftir rúmar 20 mínútur
var staðan 12:8 fyrir þá, en þar
með var sagan öU,“ sagði Atli. „Þá
skoruðu þeir fimm mörk í röð og
voru 17:8 yfír í hálfleik. Eftir
þetta áttum við aldrei möguleika
gegn þessu frábæra liði sem ef-
laust er í hópi fjöguiTa bestu í
Evrópu.“
Leikmenn Celje léku feikisterka
flata 6-0 vörn og fyrir aftan var
Dejan Peric landsliðsmarkvörður
Júgóslavíu og líkt og íslenska
landsliðið fékk að reyna í haust er
hann einstakur í sinni röð. „Þeir
unnu boltann oft í vörninni eða
Peric var að verja og í framhaldinu
notuðu þeir óspart hraðaupphlaup
og við fengum ekki við neitt ráðið.
Mínir menn voru ekki að leika sinn
besta leik, en langt frá því að leika
sinn versta leik. Lið Celje er frá-
bært og hefur ekki tapað leik í
Meistaradeildinni."
Atli sagði KA hafa reynt að leika
vörnina framarlega til þess að
freista þess að stöðva leikmenn
slóvenska liðsins, en illa hefði
gengið. Eigi að síður hefði Sig-
tryggur Albertsson varið vel eða
alls 18 skot.
„Leikirnir í deildinni er góð
reynsla fyrir strákana sem þeir
eiga eftir að búa að næstu árin. Um
næstu helgi er síðasti leikurinn
heima gegn Generali Trieste og
hann ætlum við að vinna.“
Mork KA gerðu: Leó Örn Þorleifsson 4,
Björgvin Björgvinsson 3, Halldór Sigfússon
2, Sævar Amason 2, Karim Yala 2, Halldór
Arnason 2, Jóhann G. Jóhannsson 2, Sverrir
Bjömsson 1.
ENGLAND: 121 11X2XX11X2
ITALIA: X 2 X 111 111 1X1X