Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 11

Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 D 11 v VIÐSKIPTI Markaðs- torg hug- myndanna Tölvur Mörgum kom á óvart að Netscape skyldi gefa kóðann að helstu framleiðslu- vöru sinni, Navigator. Að mati Árna Matthíassonar er fyrirtækið einfaldlega að bregðast við nýjum straumum í hugbúnað- argerð; að svara kalli tímans. SÚ YFIRLÝSING Netscape að framvegis verði forrit- skóði helstu framleiðslu- vöru fyrirtækisins, Na- vigator-vafrans, ókeypis og hverj- um sem er leyfilegt að fást við hann, vakti eðlilega mikla athygli í tölvu- heimum. Sumir tóku þann pól í hæðina að með þessu væri Netscape að viðurkenna ósigur sinn í vafraslagnum við Microsoft, en aðrir sögðu þessa ákvörðun fyrir- tækisins ekki skipta miklu; það væri ekki nema fyrir lítinn hóp sérvitr- inga sem slíkt væri gert. Þeir voru og til sem sögðu, réttilega, að með þessu væri Netscape aðeins að svara kalli tímans. Á netinu má fmna bráðfróðlega grein eftir Eric S. Raymond sem heitir Dómkirkjan og markaðstorg- ið. Sjá slóðina http:/Avww.ccil.org/IesrAvritings/cat hedral.html. Þar rekur Raymond hvemig Linux-ævintýrið hefur breytt viðteknum skoðunum manna á hugbúnaðarþróun. Rétt er að rekja lítillega inntak greinar Ra- ymonds, enda hafði hún sitt að segja um ákvörðun Netscape-stjóra. Eric S. Raymond á sér langa sögu í forritun og hefur meðal ann- ars tekið þátt í að þróa sum helstu verkfæri Unix-manna, þar á meðal ritþórinn magnaða Emacs. Hann tók þátt í átaki í Unix-heimum sem kallast FSF og hefur áður verið getið í pistlum þessum. Raymond segir þá FSF-menn hafa talið hug- búnaðarsmíði greinast í tvo megin- strauma; svonefnda dómkirkjuað- ferð, sem byggist á því að hópur sérfræðinga vinnur hver að litlum hluta hins mikla verks sem þeir stefna að, prufuútgáfur eru fáar og uppfærslur sjaldgæfar. Á móti sé svo markaðstorgsaðferðin, sem byggist á því að þar sé hver að hrópa upp í annan, útgáfur örar og uppfærslur ekki síður. Raymond segist hafa talið að dómkirkjuað- ferðin henti betur til að setja saman og viðhalda flóknum og umfangs- miklum hugbúnaði, en aftur á móti henti markaðstorgið betur fyrir veigaminni hugbúnað sem þrífíst á nálægð við notendur og sífelldum endurbótum. Þá sendi Linus Thor- valds inn á Minix-net grunn að stýrikerfi sem hann hafði skrifað, sagðist ekki telja merkilegt og vinur hans nefndi Linux. Eins og Raymond rekur í grein sinni hefur saga Linux bylt þeirri viðteknu skoðun að ekki sé hægt að þróa stöðug flókin hugbúnaðarkerfi nema með dómkirkjuaðferðinni, Dr. Jón Þór Þórhallsson, fyrrum forstjóri Skýrr Valinn formaður Evrópusam- taka skýrslutæknifélaga DR. Jón Þór Þórhallsson, fyrrum forstjóri Skýrr hf., hefur tekið við formennsku í Evrópusamtökum skýrslutæknifélaga CECUA. Fyrir frumkvæði íslendinga verður í apríl haldin ráðstefna í Brassel þar sem fjallað verður eingöngu um notand- ann og hlutverk hans í alþjóðlegu upplýsingasamfélagi. Ráðstefnan er styrkt af ESB. Samkvæmt upplýsingum Jóns Þórs eru inn vébanda samtakanna, CECUA, 16 skýrslutæknifélög víðs- vegar í Evrópu með um hálfa millj- ón félagsmanna. CECUA lætur til sín taka í málum er snerta hags- muni notenda tölvu- og fjarskipta- tækni. Á undanförnum árum hefur CECUA látið frá sér fara margar veigamiklar álitsgerðir um mál er snerta notendur og hagsmuni þeirra. SÍTF, Samstarfsvettvangur ís- lenskra tölvu- og fjarskiptanotenda er félagi í CECUA, en að SÍTF standa fjölmörg félög í upplýsinga- tækni og fjarskiptum, bæði hags- munasamtök framleiðenda og selj- enda og fagfélög í greininni. Félag- ar í SITF hafa tekið virkan þátt í stai’fi CECUA og ritstýrt og samið sumar af álitsgerðum CECUA. Á innlendum vettvangi hefur SÍTF sérstaklega beitt sér fyrir því að mótuð væri framtíðarsýn fyrir ís- lenska upplýsingasamfélagið og seint á árinu 1996 leit svo skýrsla um framtíðarsýn ríkisstjórnar ís- lands fyrir upplýsingasamfélagið dagsins ljós. Formaður SÍTF er Dr. Jón Þór Þórhallsson. Ráðstefna um málefni notandans 21. og 22. apríl á þessu ári stend- ur CECUA fyrir ráðstefnu í Brus- sel um málefni notandans í alþjóð- legu upplýsingasamfélagi, „The Cit- izen and the Global Information Society". í miðpunkti umfjöllunar- innar á ráðstefnunni er notandinn, bæði einstaklingar og fyrirtæki, tækifærin sem honum bjóðast, væntingar hans og beygurinn sem enn er í mörgum. Þetta er fyrsta ráðstefnan af þessu tagi sem haldin er. Aðrar ráðstefnur hafa verið um tæknina sjálfa en ekki þolandann í upplýsingasamfélaginu: notandann sjálfan. Ráðstefnan verður haldin á Palace Hotel í Brassel og er styrkt af Evrópusambandinu. Búist er við 400 til 500 manns taki þátt í ráð- stefnunni. Dr. Jón Þór Þórhallsson verður ráðstefnustjóri. José Maria Gil Dobles Gil Delgato, forseti Evrópu- þingsins mun ávarpa ráðstefnu- gesti og bjóða þá velkomna. Aðalerindin halda Dr. Martin Bangemann, sem fer með upplýs- inga- og fjarskiptamál í fram- kvæmdastjórn ESB. Hann fjallar um upplýsingasamfélagið og sér- evrópskar áherslur. Dr. Bangemann er Þjóðverji og heim- sótti ísland fyrir nokkrum árum í boði Iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytisins. Þá fjallar Lone Dybkjær, þingmaður fyrir Danmörku á Evr- ópuþinginu, um félagslegu hliðina á upplýsingasamfélaginu. Lone er Is- lendingum vel kunnug en hún kom fyrir nokkru hingað í heimsókn með manni sínum, Poul Nyrup Rassmussen forsætisráðherra Danmerkur. Ennfremur fjallar Rolf Skoglund framkvæmdastjóri hjá Ericsson um áhrif tækninnar á hvernig við lifum lífi okkar. Áður en Rolf hóf störf hjá Ericsson var hann framkvæmdastjóri Microsoft í Evrópu. Auk þremenninganna halda fjölmargir aðrir erindi á ráð- stefnunni: stjórnmálamenn, fræði- menn og vísindamenn. I niðurstöð- um ráðstefnunnar má vænta margra ábendinga og tillagna um hvernig sé best að tryggja hags- muni og hag notenda. Þessar ábendingar og tillögur verða ESB að leiðarljósi við mótun á stefnu í málum upplýsingasamfélagsins. Málefni notenda skipa æ hærra sess í umræðunni um notendasam- félagið. Lögð er áhersla á að tryggja hagsmuni þeirra og gefa þeim tækifæri til að taka þátt í mótun upplýsingasamfélagsins. Sama er upp á teningnum í áætlun- um ESB, t.d. 5. Rammaáætluninni, sem íslendingar taka þátt í, en þar er lögð áhersla á að gera upplýs- ingasamfélagið notendavingjarn- legt. aukinheldur sem hin öra þróun stýri- kerfisins, sem hófst frá því að vera Minix-eft- irherma í að standa jafnfæt- is eða framar helstu Unix- gerðum öðrum, er kannski eft- irtektarverðust í því ljósi að stýrikerfið er ókeypis. Framboð ræður eftir- spurn Netscape hefur tapað markaðshlut- deild í hendur Microsoft. Á sínum tíma hrínti Netscape af stað nýrri hugs- un í viðskiptum; fyrirtækið gaf helstu framleiðsluvöru sína til að ná að vinna markaðinn og skapaði um leið eftirspurn. Víst era til fyrirtæki sem hafa gefið eða nánast gefið framleiðslu sína með það fyrir aug- um að ná inn hagnaði á öðrum svið- um; nægir að nefna HP og prentara fyrirtækisins, en þrátt fyrir lágt verð á prentaradufti og -bleki kem- ur merkilega stór hluti hagnaðar fyrirtækisins af sölu á því. Ekkert fyrirtæki hefur þó náð öðram eins árangiá og Netscape á eins skömm- um tíma og segja má að hin ósýni- lega hönd markaðarins hafi fengið nýtt hlutverk; í stað reglunnar um að eftirspurn ráði framboði - aukin eftirspum kalli á hærra vöraverð og meira framboð, ef eftirspurnin minnkar lækkar verð og framboð dregst saman í kjölfarið - kemur ný regla um að framboð ráði eftir- spum; aukið framboð lækkar verð sem eykur eftirspum. Microsoft lærði af fordæminu; maldaði í mó- inn og gerði lítið úr netinu á meðan leitað var að vænlegu vopni til að berja á Netscape og fannst í Ex- plorer. Microsoft beitti síðan sömu reglu og Netscape; gaf hugbúnað- inn sem Netscape var tekið að selja, og náði með því og öðrum aðferðum að sölsa undir sig rúman þriðjung af vaframarkaðnum. Netscape kom þá með krók á móti bragði, eins og áð- ur er getið; gaf grunnkóða vafrans, dreifði honum á markaðstorgi hug- myndanna. Bestu lausnirnar verða ofaná Eins og dæmið með Linux sannar er hægt að þróa flókinn og traustan hugbúnað á markaðstorgi og ekld að efa að þróun á Netscape Na- vigator eigi eftir að taka mikinn kipp. Bæði er að hvatir þeirra sem taka þátt í slíku verki, til að mynda Linux-forritara sem skipta þúsund- um, eru aðrar en þeirra sem era launaðir starfsmenn fyrirtækisins sem á allt sem þeir gera, og svo hitt að á markaðstorginu ræður sú ein- falda regla að bestu lausnirnar verða ofaná. Fleira má tína til til að rökstyðja að þessi ákvörðun Netscape-manna var ekki tekin út í bláinn og ekki í neinni örvæntingu (ekki má gleyma því að tekjur fyrir- tæksins af sölu vafra vora innan við 18% af heildartekjunum). Einnig kom fram í yfirlýsingunni að Netscape áskilur sér allan rétt til að taka upp í opinberar útgáfur Na- vigator, sem halda áfram og verða ■ seldar, allar endurbætur sem fram kunna að koma. Slíkt kalla menn copyleft, til aðgreiningar frá copyright, og er algengt, en nokkur fyrirtæki hagnast einmittt af því að taka Linux og pakka inn, stundum með viðbótarhugbúnaði, handbók- um og ýmissi þjónustu. Það er því viðbúið að Navigator eigi eftir að taka stórstígum framförum á næstu misseram og þá vafalaust stærri stökk en Explorer. Að lokum: Einn samstarfsmanna minna keyrir RedHat Linux á sinni vél en ég Windows 95. Báðir keyr- um við grúa forrita á hverjum degi og jafnan með mörg og stór í gangi í einu; sækjum hugbúnað og gögn á netið í gríð og erg og reynum á þol- rif tölvanna sem mest við megum. Yfirleitt byrja ég hvern dag á að endurræsa tölvuna til að tryggja að ég lendi ekki í vandræðum þegar líða tekur á daginn, eftir því sem minnislekinn ágerist, en hann hefur keyrt sína tölvu í nítján daga sam- fleytt án þess að slá slöku við og á vafalaust eftir að keyra hana í marga mánuði enn. Sér hver í hendi sér að glíma Windows NT við Linux getur aðeins farið á einn veg. Athugasemdum og tillögum um efni má koma til arnimÞ Lagermál eru okkar sérgrein Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vörugeymsluhús sem minni lagera. Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar. Aðeins vönduð vara úr sænsku gæðastáli. Mjög gott verð. Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki. Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma. Þjónusta - þehhing - raðgjöl. flraluga reynsla. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 1, RVK • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305 Við notum íslensk ímÚRefni Flotmúr í gólf íbúðarflot • Iðnaðarflot • Útiflot Flotmúr er steypa sem ætluð er til ílagnar í gólf og kemur þá í staðinn fyrir hina hefðbundnu ílögn með sandi og sementi og/eða í staðinn fyrir vélslípun gólfa. Jafnvel má lagfæra illa farin gólf þótt þau séu máluð. Nýjung! Nú er hægt að fá litaðan flotmúr sem hentar vel t.d. í iðnaðar-, lager- og fiskvinnsluhús. VIÐ-REISN ehf. Hermann Ragnarsson, múrarameistari Uppl. í síma 894-2054

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.