Morgunblaðið - 31.03.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflvíkingar bestir
Anna María
Sveinsdóttir, þjálfari
og ieikmaður
Tileinkum
Gunnhildi
sigurínn
„ÞAÐ er erfítt að spila hér en
við höfðum sigur, þannig að
ég er himinlifandi," sagði
Anna María Sveinsdóttir,
þjálfari og leikmaður Kefla-
víkurliðsins, sigri hrósandi
eftir að íslandsmeistaratitill-
inn var í höfn.
„Við vissum að KR-stelp-
umar kæmu brjálaðar í
þennan leik, þær eru með
góðan hóp - landsliðsmann í
nánast hverri stöðu, og það
er auðvitað hrikalega svekkj-
andi að missa erlenda leik-
manninn sinn vegna meiðsla í
úrslitakeppninni eins og þær
urðu fyrir. En mér fannst
þær spila vel.“
Keflvíkingar sigruðu
einnig í bikarkeppninni í vet-
ur þannig að uppskeran er
glæsileg á íyrsta vetri Önnu
Maríu sem þjálfara. „Ég er
með mjög góðan hóp - og
við vitum allar hvað þarf
til að vinna. Við leggjum
okkur alltaf allar fram,
bæði á æfingum og í leikj-
um. En það hefur mikið
gengið á í vetur og þetta
hefur ekki verið auðvelt;
ein úr hópnum, Gunnhild-
ur Líndal, lést í bílslysi fyrir
mánuði; það var auðvitað gíf-
urlegt áfall og við tileinkum
henni sigurinn í dag. Við fór-
um rólega eftir slysið en vor-
um mjög samstilltar. Vorum
mikið saman, þær sem voru
tilbúnar að æfa áfram á fullu
gerðu það og hinar komu svo
hægt og rólega. Við erum all-
ar úr Keflavík, þekkjumst því
allar mjög vel og samstaðan
var mikil. Við vissum að þrátt
fyrir þetta áfall yrðum við að
halda áfram, og gerðum það.“
■ Árangur Önnu / B2
Boucek ánægð með dvölina í Keflavík
„Frábært lið“
„ÞAÐ er líklega besta lífsreynsla
sem ég hef orðið fyrir að koma til
Keflavíkur og leika með þessum
stelpum. Liðið er frábært og stelp-
umar mjög skemmtilegar,“ sagði
bandaríska stúlkan Jennifer
Boucek, leikmaður Keflavíkurliðs-
ins, við Morgunblaðið eftir að hún
var orðin íslandsmeistari.
Boucek, sem lék í bandarísku
atvinnumannadeildinni, WNBA, á
síðasta keppnistímabili heldur
áfram þar sem frá var horfíð þeg-
ar keppni hefst á þeim vettvangi á
ný í sumar. „Ég á að vera mætt á
æfíngu aftur í byrjun maí.“ Hún
heldur af landi brott í dag, þriðju-
dag, og kvað allsendis óvíst hvort
hún léki hér á landi næsta vetur.
„Ég get ekki skipulagt svo langt
fram í tímann, ég á meira að segja
í erfiðleikjum með hverja viku í
senn!“ sagði hún. Bandaríska
stúlkan, sem leikið hefur geysi-
lega vel í vetur, sagðist jafnvel
hafa verið tilbúin að tapa leiknum
á laugardag - til að geta spilað
einu sinni enn með Keflavíkurlið-
inu, sér fyndist það svo skemmti-
legt. Hefði KR sigrað um helgina
hefðu liðin mæst aftur í Keflavík í
gærkvöldi, í fímmta og síðasta
leik. „En KR-liðið er of gott til að
við gætum tekið einhverja
áhættu," sagði Boucek. Hún kvað
Keflvíkingum þykja erfítt að leika
í íþróttahúsi Hagaskóla; „líklega
vegna þess að við viljum leika
mjög hratt, beita hraðaupphlaup-
um, en húsið hér er þröngt og við
þær aðstæður reynist það erfíð-
ara. Við vissum fyrirfram að til að
sigra yrðum við að komast yfir
ákveðinn andlegan þröskuld, og
gerðum það“.
ÍSLANDSMEISTARAR Keflvíkinga í körfuknattleik kvenna eftir sigurinn á KR ásamt nokkrum fylgifiskum. Aftari röð frá vinstri: Björg
Hafsteinsdóttir liðsstjóri, Anna María Sveinsdóttir, leikmaður og þjálfari, Harpa Magnúsdóttir, Kristín Þórarinsdóttir, Erla Þorsteinsdótt-
ir, Birna Guðmundsdóttir, Lóa Björg Gestsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir, systir Maríönnu vatnsbera. Fremri röð frá vinstri: Ingi-
mundur Guðjónsson, Hafliði Már Brynjarsson, sonur Önnu Maríu þjálfara, Anna Pála Magnúsdóttir, Marín Rós Karlsdóttir, Erla Reynis-
dóttir fyrirliði, Jennifer Boucek, Kristín Blöndal og Maríanna Guðmundsdóttir, vatnsberi liðsins.
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
Keflvíkingar eiga besta kvennalið
landsins í körfuknattleik. Þeir
fógnuðu sigri í bikarkeppninni fyrr í
vetur og á laugardag
hömpuðu Keflvíkingar
einnig íslandsbikamum,
eftir þriðja sigurinn á
KR í fjórum úrslitaleikj-
um. Sigur Keflvíkinga, 61:50, var
sanngjam en KR-ingar gáfust þó ekki
upp fyrr en í fulla hnefana; börðust
eins og Ijón til síðustu mínútu, stað-
ráðnir í að tryggja sér fimmta leikinn,
en án erlends leikmanns mættu KR-
ingaj- einfaldlega ofjarli sínum þar
sem hið sterka lið KeflvQdnga er.
Heimamenn í KR byrjuðu betur og
komust í 6:2 eftir fimm mínútur en þá
fór Keflavíkurvélin í gang, gerði 17
stig í röð og breytti stöðunni í 19:6. Þá
voru um tólf mínútur liðnar þannig að
KR hafði ekki skorað í um sjö mínút-
ur og þegar þarna var komið sögu var
vitað mál að gífui-lega erfitt yrði fyrir
heimamenn að snúa leiknum sér í hag.
Staðan í leikhléi var 24:33.
Keflvíkingar bættu við forskotið í
upphafi seinni hálfleiksins og voru
komnir 15 stig yfír um hálfleikinn
miðjan. Því má segja að sigurinn hafi
verið í höfn en með mikilli baráttu
tókst heimamönnum að minnka
muninn í átta stig á tímabili. En þeir
ógnuðu aldrei sigri meistaranna.
Keflvíkingarnir eru með valinn
mann í hverju rúmi og liðsheildin var
mjög sterk.
KR-ingar urðu fyrir þeirri blóð-
töku í næstsíðasta leiknum gegn
Keflvíkingum að bandaríska stúlkan
Tara Williams, sem verið hefur lið-
inu mjög mikilvæg, meiddist illa og
var því fjarri góðu gamni á laugar-
daginn. Þar er snjall leikmaður á
ferðinni, sem er samningsbundinn
liði í kvennadeild NBA, eins og
Boucek hjá Keflvíkingum, en þrátt
fyrir fjarveru hennar gáfu KR-ingar
ekkert eftir. Tvíefldust við mótlætið,
lögðu sig fram af fremsta megni en
það dugði ekki til.
Jennifer Boucek er liði Keflvíkinga
gríðarlega mikilvæg. Hún gerði níu af
fyrstu 12 stigum liðsins í leiknum og
alls 13 stig í fyiri hálfleik, en aðeins
eitt í þeim síðari. „Ég gerði ekki mikið
í dag, þetta var fyrst og fremst sigur
liðsheildarinnar,“ sagði hún og var
hógvær að leikslokum, en bandaríska
stúlkan var geysigóð í vöminni og
stjómaði sóknarleik liðs síns einnig af
röggsemi. Hún leggur aðaláherslu á
að leika fyrir liðið en ekki að stela sen-
unni. Erla Þorsteinsdóttir var einnig
mjög góð, bæði í vöm og sókn, og
sömu sögu er að segja af Önnu Maríu
Sveinsdóttur. Þegar þessar þijár
stúlkur em saman komnar ásamt
Erlu fyrirliða Reynisdóttur og Krist-
ínu Blöndal em þær illviðráðanlegar.
Hanna Kjartansdóttir var besti
leikmaður KR. Hanna - sem sleit
einmitt fyrstu körfuboltaskónum í
Keflavík - lék frábærlega; gerði ríf-
lega helming stiga vesturbæjarliðs-
ins og var síógnandi.
Linda Stefánsdóttir var drjúg í
KR-liðinu eins og svo oft áður en
Guðbjörg Norðfjörð, sem er liðinu
mjög mikilvæg, var mjög óheppin
með skotin að þessu sinni; braut ekki
ísinn fyrr en með þriggja stiga körfu
þegar rúm ein mínúta var eftir og
gerði alls fjögur stig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bestar!
ERLA Reynisdóttir fyrirliði
Keflavíkurliðsins hefur ís-
landsbikarinn á loft eftir sig-
urinn á KR-ingum á laugar-
dag. Erla og stöllur hennar
frá Keflavík skipa óumdeil-
anlega besta lið landsins.
Afhent
þríðja áríð í
röð í Haga-
skólanum
ÍSLANDSBIKARINN var af-
hentur í íþi'óttahúsi Hagaskóla
þriðja árið í röð á laugardag.
Erla Reynisdóttir, fyrii-liði
Keflvíkinga, tók þá við bikam-
um úr höndum Ólafs Rafnsson-
ar, formanns KKÍ. í fyrra
fengu Grindvíkingar bikarinn
afhentan á sama stað eftir sigur
á KR-ingum og í hitteðfyrra
tryggðu Keflavíkurstúlkui' sér
meistaratign í Hagaskólanum,
einnig eftir sigur á KR. Stúlk-
urnar í Vesturbæjarliðinu hafa
því verið í úrslitum þrjú ár í röð
og alltaf þui-ft að horfa á eftir
bikarnum á heimavelli.
200 þúsund
ELLERT Eh-íksson, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ, tilkynnti
eftir verðlaunaafhendinguna að
íþróttai'áð bæjarins hefði sam-
þykkt að veita Keflavíkurliðinu
200 þúsund króna styrk í tilefni
íslandsmeistaratitilsins.
Guðbjörg er
með þeim
skemmtilegri
ELLERT bæjarstjóri sagði
einnig eftir leikinn að Guðbjörg
Norðfjörð, leikmaður KR, væri
einn „skemmtilegasti leikmaður
sem ég sé í körfubolta". Leik-
menn og stuðningsmenn Kefla-
víkm' klöppuðu fyrir þessum
orðum bæjarsfjórans. KR-stúlk-
ur voru hins vegar farnar inn í
búningsklefa þegar Ellert lét
þau falla en hann kvaðst vona að
Guðbjörg heyrði af þeim. Guð-
björg gefur aldrei þumlung eftir
og barðist að vanda eins og ljón
í leiknum á laugardag, var
reyndar óheppin með skot og
gerði aðeins fjögur stig í leikn-
um, en var eitilhörð og barðist
fram á síðustu sekúndu.
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1998
Fjórði leikur kvennaliðarma i úrslitum,
leikinn í iþr.húsi Hagaskóla 28. mars
KR KEFLAVÍK
50 Skoruð stig 61
7/16 Vítahittni 5/7
1/7 3ja stiga skot 4/9
20/60 2ja stiga skot 22/46
21 Varnarfráköst 29
10 Sóknarfráköst 12
22 Bolta náð 7
14 Bolta tapað 12
4 Stoðsendingar 10
15 Villur 20