Morgunblaðið - 31.03.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.03.1998, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1998 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Edwin Rögnvaldsson skrifar frá Englandi Her- mann ekki í náðinni Var í banni þegar Lombardo tók við og hann heldur sig við sömu leikmenn Hermann Hreiðarsson kom inná sem varamaður fyrir Crystal Palace á 61. mínútu þegar liðið tap- aði enn og aftur á heimavelli í ensku úr- valsdeildinni, í þetta sinn fyrir Tottenham, 3:1, en bæði lið berj- ast nú fyrir að halda sæti sínu í efstu deild. Tottenham hefur þó lyft sér af hættusvæðinu um stund- arsakir, en Crystal Palace er í neðsta sæti. Nicola Berti kom Tottenham yfir á 56. mínútu með kraftlitlum skalla sem Kevin Miller, markvörður Palaee, reyndi ekki að verja, en hann átti vissulega möguleika á því. Chris Armstrong og Jiirgen Klinsmann, framherjar gestanna, bættu hinum tveimur mörkunum við eftir að Crystal Palace hafði lagt meiri áherslu á sóknarleik - á kostnað vamarinnar. Neil Shipp- erley, markahæsti leikmaður Palace, kom inná eftir langa fjar- veru vegna meiðsla á 67. mínútu og skoraði er um átta mínútur lifðu leiks. Hermann skipti við júgóslav- neska landsliðsmanninn Sasa Curcic er Tottenham hafði eins marks forskot og tók stöðu vinstri útherja. Eyjamaðurinn gerði tvær góðar tilraunir til að skora, þá fyrri aðeins fjórum mínútum eftir að hann kom inná, en Ian Walker varði skalla hans glæsilega. Curcic lék í fyrsta sinn í byijunarliði Palace eftir að hann kom frá Aston Villa ekki alls fyrir löngu. Júgósla- vinn var sprækur framan af, líkt og flestir leikmenn Palace fyrstu þrjá- tíu mínútumar. Hermann hefur verið varamaður síðan ítalinn Attilio Lombardo tók við stöðu knattspymustjóra Crys- tal Palace um miðjan mars. Morg- unblaðið spurði hann hvers vegna. „Þegar ég tók við ákvað ég að skipta um leikaðferð. Áður lékum við 5-3-2, en ég kýs að leika 4-4-2. Við lékum vel í síðari hálfleik gegn Aston Villa og unnum Newcastle. Hermann var í leikbanni í fyrsta leik mínum sem stjóra [gegn Aston Villa] og ég hef haldið mig við sömu vamarmennina og léku þann leik [Jamie Smith - Valerien Ism- ael - Marc Edworthy - Dean Gor- don]. Þannig er hún skipuð um þessar mundir,“ sagði Lombardo. Morgunblaðið/Reuters SPARIKLÆDDUR Gianluca Vialli, knattspyrnustjóri Chelsea með fyrstu sigurlaun sín frá því hann kom til liðs við enska knattspyrnu. Mistök Gazza komu Chelsea á bragðið í annað sinn á tæpu ári vann Chelsea lið Middlesbrough í úr- slitaleik á Wembley og í þriðja sinn á einu ári tapaði síðar- nefnda liðið úrslitaleik. Enn um sinn verður þetta 122 ára gamla félag að bíða eftir að fá einhvern af bikurunum þremur í safn sitt. En liðsmenn Chelsea þurftu að hafa meira fyrir 2:0 sigri sínum nú í deildarbikarnum en í maí í fyrra er félögin áttust við í bikarúrslitunum. Mörkin tvö sem tryggðu sigur voru gerð í framlengingu og það fyrra eftir að nýliðanum hjá Middlesbrough, Paul Gascoigne, höfðu orðið á mistök. Fyrra markið gerði Frank Sinclair með skalla á 95. mínútu og tólf mínútum síðar innsiglaði Roberto di Matteo sigurinn með hörkuskoti af stuttu færi eftir homspymu Gianfranco Zola. Þetta var í fyrsta sinn sem Chelsea stendur uppi sem sigurvegari í keppninni síðan 1965 og vann um leið rétt til að leika í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð. Hins vegar tekur Boro sæti þeirra vinni Chelsea Evrópukeppni bikarhafa þar sem liðið hefur tryggt sér sæti í undanúrslitum. Þrátt fyrir hpurleg tilþrif gekk leikmönnum illa að skora í venju- legum leiktíma. Er komið var fram í framlengingu varð misskilningur á milli Gascoigne og Paul Merson á miðjum vellinum til þess að leik- menn Chelsea snera vöm í sókn og Sinelair skoraði eftir undirbúning Zola og Dennis Wise. Gianluca Vialli, knattspymu- stjóri Chelsea, Iék ekki með sínum mönnum að þessu sinni heldur fylgdist með leiknum frá hliðarlín- unni spariklæddur og leiddi sína menn upp í heiðursstúkuna til þess að taka á móti bikamum í leikslok. „Ég taldi að Mark Hughes, Ro- berto di Matteo og Zola gætu leyst hlutverk mitt betur og því taldi ég að kröftum mínum væri best varið í að stjóma liðinu frá bekknum," sagði Vialli sigurreifur í leikslok. Hann undirstrikaði hins vegar að sigurinn væri góðu starfi forvera sína, Ruuds Gullits, að þakka. „Gullit á veralegan hlut í sigrin- um.“ „Hundleiður á því að tapa“ Wise sagðist hafa átt von á að Vialli yrði með því hann hefði að- eins leildð með í tvær mínútur í bikarúrslitunum sl. vor. „Hann kaus að fara íyrir okkur upp og taka á móti bikamum - það verð- skuldaði hann svo sannarlega.“ „Ég er hundleiður á því að tapa úrslitaleikjum,“ sagði Bryan Rob- son, knattspymustjóri Middles- brough. „Ég er hins vegar stoltur af leikmönnunum, þeir áttu í fullu tré við Chelsea allan tímann. Stundum þarf smá heppni í úrslita- leikjum.“ Fótboltaáhorfandi myrtur á Englandi MAÐUR var myrtur eftir knatt- spymuleik í Englandi á laugar- dag en víða um landið bratust út átök í kjölfar íþróttaviðburða. Maðurinn sem lést var 24 ára og áhangandi liðsins Fulham sem mætti liði Gillingham á útivelli í 2. deildarkeppninni. Hann var stunginn með hnífí í átökum sem brutust út í Kent á Priestfield- leikvanginum í bænum Gilling- ham í suðausturhluta Englands. Fleiri voru fluttir á sjúkrahús eft- ir átökin. Þá brutust út átök með- al áhorfenda á leik Bamsley og Liverpool og leik Everton og Aston Villa. Samtök áhangenda knatt- spymufélaga lýstu miklum áhyggjum af ofbeldinu og óttast að það kunni að leiða til þess að færri aðgöngumiðar að HM í knattspymu í Frakklandi í sumar komi í hlut breskra áhorfenda. Guðni Bergs- son fékk rautt BOLTON hlaut þrjú dýrmæt stig í botnbaráttu ensku úrvalsdeildar- innar er liðið sigraði Leicester, 2:0, á heimavelli á laugardag. Alan Thompson gerði bæði mörk heima- manna í síðari hálfleik. Guðni Bergsson, fyrirliði Bolton, fékk rautt spjald strax á 26. mínútu fýrir að toga Emile Heskey niður er sá síðarnefndi var kominn inn fyrir vömina. Robert Ullathome, leik- maður Leicester, hlaut síðar sömu örlög og Guðni. Bolton er nú í næstneðsta sæti með 30 stig, einu stigi á eftir Bams- ley og þremur á eftir Everton. Crystal Palace, lið Hermanns Hreiðarssonar, er neðst með 26 stig. Bolton og Bamsley eiga átta leiki eftir, einum fleiri en Everton og Palace. Staðan óbreytt á toppnum EFSTU Iiðin I ensku úrvals- deildinni, Manchester United og Arsenal, sigruðu bæði um helgina og staðan á toppnum er því óbreytt. Meistarar United gerðu tvö mörk á síðustu sjö mmútun- um og það dugði til sigurs gegn Wimbledon og Dennis Bergkamp skoraði eina mark leiks Arsenal og Sheffield Wednesday. Því er ljóst að einvígi liðanna um meistaratitilinn verður æsispennandi; United á eftir sex leiki og Arsenal níu og er sex stigum á eftir meist- urunum. Arsenal mætir Bolton á útivelli og gæti þá minnkað forskot meistar- anna niður í þijú stig. „Við sýndum í dag að við erum tilbúnir í bardaga," sagði Alex Ferguson, knatt- spymustjóri Manchester United, eftir sigurinn á Wimbledon. „Ég er augljós- lega mjög feginn," bætti hann við, í kjölfar þessa fyrsta sigurs United í mán- uð. Lengi vel leit út fyrir að Arsenal minnkaði muninn niður í fjögur stig en sjö mín. fyrir leikslok skoraði norski varnarmaðurinn Ronny Johnsen fyrir Man. Utd; knötturinn hrökk fyrir fætur hans eftir homspymu og Johnsen þram- aði í netið frá vítapunkti. Enski landsliðsmaðurinn Paul Scholes gulltryggði svo sigurinn á 90. mín. með skalla. Arsenal hefur nú leikið níu leiki í röð án þess að tapa og þrengir mjög að meisturam United. Mark Bergkamps í sigri liðsins á Sheffíeld Wednesday var af- rakstur hollenskrar sam- vinnu eips og hún gerist best. Marc Overmars gaf hárnákvæma sendingu frá vinstri, framhjá nær öllum varnarmönnum gestanna, og tímasetning Bergkamps var með eindæmum - hann þurfti aðeins að stýra bolt- anum inn fyrir marklínu gestanna. Arsenal nýtur ekki krafta Bergkamps í næstu þremur leikjum, því þá tekur hann út leikbann vegna refsistiga. „Við verð- um að vera hugmyndaríkir án Bergkamps. Við verðum að finna leið til að tengja miðju og sókn. Ég hef þegar fengið góða hugmynd..." sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Liverpool komst í hann krappan á heimavelli Barns- Iey, Oakwell Park, en hafði sigur, 3:2 eftir sigurmark Steves McManamans á lokamínútunni. Þrír leik- menn Barnsley fengu rautt spjald í leiknum og áhan- gendur heimamanna vora mjög óhressir með það. Nokkrir þeirra veittust að dómara leiksins, sem var fylgt í skjól. Karlheinz Riedle gerði tvö fyrstu mörk Liverpool, en Neil Redfearn jafnaði, 2:2, úr vítaspyrnu er heimamenn vora tveimur færri. Þriðji leikmaður Barnsley fékk reisupassann eftir sigurmark gestanna undir Iokin. Liverpool er nú í þriðja sæti með 54 stig, níu stigum á eftir Man. Utd., en á einn leik til góða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.