Morgunblaðið - 31.03.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1998 B 5
Haukar leiddust
ATHYGLI vakti þegar leik-
menn Hauka komu hlaupandi
inn á leikvöllinn áður en leik-
urinn höfst að þeir leiddust.
SÓKNARNÝTING
9 23 39 F.h 9 24 38
11 21 52 S.h 11 20 55
6 9 67 Framl. 4 9 44
5 Langskot 7
6 Gegnumbrot 9
5 Hraðaupphlaup 0
1 Horn 4
3 Lína 1 I
6 Vfti 3
Gífurleg spenna og darraðardans í uppgjöri Hafnarfjarðarbræðranna í 8-liða úrslitunum í Kaplakrika
ðji leikur liðanna í 8 liða úrslitum,
iikinn í Kapiakrika 29. mars 1998
Haukar
Mörk Sóknir
FH
örk Sóknir %
Enginn er
annars
bróðir
ÞAÐ var sannkallaður Hafnarfjarðarslagur með stímabraki og
flestu öðru sem honum fylgir er Haukar sóttu FH-inga heim í
Kaplakrika í 3. og síðasta leik liðanna í átta liða úrslitum. Jafnt
var á nær öllum tölum í leiknum og vart mátti á milli sjá fyrr en
leiknar höfðu verið 70 mínútur. Þá voru það FH-ingar sem
hrósuðu sigri enda enginn annars bróðir í leik. Þeir unnu með
tveimur mörkum, 26:24, eftir að hafa verið skarpari á lokakafl-
anum. En það var svo sannarlega spenna og fjör sem á þriðja
þúsund áhorfendur fengu að vera vitni að og flestir þeirra tóku
eins ríkan þátt í og þeim var heimilt. Haukar eru þar með komnir
í sumarleyfi ásamt Aftureldingu og Stjörnunni, en FH getur hald-
ið stuðningsmönnum sínum í spennu um sinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STUÐNINGSMENN FH-liðsins voru vel með á nótunum og
fögnuðu vel og lengi þegar þeirra menn voru búnir að
leggja Hauka að velli.
Eftir að tvær fyrri viðureignir
liðanna í úrslitakeppninni
höfðu verið heldur ójafnar, FH
huft yfirburði í fyrsta
/var og Haukar í þeim
Benediktsson öðrum var allt annað
skrifar Upp á teningum að
þessu sinni. Strax frá
fyrstu sókn var Ijóst að leikmenn
ætluðu að halda áhorfendum og
sjálfum sér í spennu. Ekkert yrði
gefíð eftir fyrr en í fulla hnefana
enda ekki vaninn þegar þessir
hafnfirsku bræður mætast. Strax í
upphafi gaf Suik Hyung Lee,
markvörður FH, tóninn með því að
veija vítakast en náði ekki að halda
knettinum og Haukar sóttu að hon-
um á ný og Halldór Ingólfsson
skoraði fyrsta mark leiksins eftir
1,20 mín. Guðmundur Pedersen
svaraði að bragði með marki af línu
hinum megin vallarins. FH-ingar
voru beittari á upphafskaflanum, 5-
1 vörnin var sterk og yfirvegun réð
ríkjum í sókninni. Eftir 13,10 mín.
voru þeir komnir með 5:2 forystu
og ýmislegt benti til að þeir væru
að endurtaka leikinn frá sl. mið-
vikudag. En Haukar voru á öðru
máli og Sigurður Gunnarsson,
þjálfari þeiri’a tók leikhlé, endur-
skipulagði sóknarðagerðimar sem
vom fálmkendar. Og viti menn, að-
gerðir hans bám árangur, aðeins
hálfri fjórðu mínútu síðar vom
Haukar búnir að jafna, 6:6, og eftir
það var jafnt á öllum tölum til
leiksloka að undanskildu því að
Haukar komust í 13:11 í síðari hálf-
leik.
Mikill darraðardans var stiginn
undir lok venjulegs leiktíma og í
framlengingunni er við tók. Þegar
tæpar þrjár mínútur vom eftir af
hefðbundnum leiktíma var Páli
Ólafssyni, aðstoðarþjálfara Hauka,
vikið af leikvelli fyrir að hlaupa inn
á leikvöllinn og mótmæla dómi.
Var það seigur biti að kyngja fyrir
Hauka sem þegar vora einum
færri og urðu að sjá á bak öðram
leikmanni til að taka út refsingu
Páls. Hálfri mínútu síðar kom
fimmti sóknarmaðurinn inn á og
Haukum tókst að
halda sjó uns
Gústaf Bjarnason
kom til skjalanna
þegar 57 sek. vom
eftir. Þá höfðu
FH-ingar misst
gullið tækifæri til
að tryggja sér sig-
ur er Sigurjón
Sigurðsson komst
í hraðaupphlaup
en fékk á sig
dæmdan raðning.
mestu um að sigurinn lenti okkar
megin að við nýttum betur okkar
færi í framlengingunni. Við lékum
UPP á góð færi og Lee markvörður
okkar varði mikilvæg skot. Eftir
það fóra Haukar að reyna erfiðari
skot, en þetta var munurinn, skyn-
semin réð ferðinni hjá okkur.“
Guðjón sagði að útreiðin í öðrum
leiknum hafi ekki setið lengi í FH-
ingum. „Við höfum verið að búa
okkur undir úrslitakeppnina um
tíma og inni í því reiknum við með
að útileikimir tapist svo það má
ekki taka það of alvarlega. Nú var
nýr leikur á heimavelli og nú sann-
aðist það enn einu sinni hversu mik-
ilvægur heimavöllurinn er og deild-
arkeppnin þar vegur þyngra en
margir hafa viljað meina.“
23. markið gerði útslagið
„Þetta var svakaleg barátta frá
upphafi til enda,“ sagði Kristján
Arason, þjálfari FH, og var að von-
um brosmildur, enda ástæða til. En
hvað lagði hann fyrir sína menn
þegar út í framlenginu var komið?
„Þá fórum við að leika tvö leikk-
erfi þar sem allir leikmenn komu
nærri, þannig náðum við að virkja
alla sóknarmennina og enginn var
staður. I vörninni var mikilvægt að
fá engan brottrekstur dæmdan á sig
því því slíkt getur reynst dýrkeypt
á svona stuttum tíma. Vömin hélt
velli og Lee varði vel auk þess að
eiga írábæra sendingu fram á
Gunnar (Beinteinsson) í upphafi síð-
ari hluta framlengingarinnar sem
skilaði 23. marki okkar, það gerði
útslagið."
Kristján sagði að hann hefði lagt
áherslu á að sínir menn mættu
Haukum af festu til þess að koma í
veg fyrir Haukar næðu að leika af
sömu hörku og í öðrum leik liðanna
þar sem Haukar sigraðu.
„Næstu leikir verða í svipuðum
dúr, hvort sem við mætum IBV eða
Fram, og heimavöllurinn gæti ráðið
úrslitum hvort liðanna kemst alla
leið.“
SIGURINN hefði geta lent hvor-
um megin sem var, bæði lið léku
vel,“ sagði Guðjón Amason, fyrirliði
FH. „Eg held að það hafi munað
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
. . . og leikmenn FH-liðsins stigu tryiltan sigurdans á vellinum.
Rúnar Sigtryggsson jafnaði, 20:20,
50 sekúndum fyrir leikslok. Það
sem eftir lifði nægði FH-ingum
ekki til að knýja fram sigur þrátt
fyrir ákafar tilraunir.
I framlengingunni vora FH-ing-
ar yfirvegaðri, Guðjón Arnason
skoraði strax en Haukar náðu ekki
að jafna fyrr en 50. sek vora eftir
af fyrri hluta. Valur Arnarson svar-
aði að bragði og FH var marki yfir
er skipt var um leikhluta. Haukar
byrjuðu með boltann í síðari hlut-
anum og glopraðu honum eftir 20
sekúndur og Lee markvörður nýtti
sér það með því að senda glæsilega
sendingu upp völlinn þar sem
Gunnar Beinteinsson var réttur
maður á réttum stað og kom FH í
tveggja marka forystu. Og Lee
hélt áfram, hann varði boltann í
tveimur næstu sóknum FH og það
nýtti Knútur Sigurðssonar sér til
hins ýtrasta er hann kom FH í
24:21 með marki úr gegnumbroti
eftir 2,30 mín. í síðari hluta. Þar
með var björninn unninn fyrir FH
þrátt fyrir að Haukar reyndu hvað
þeir gátu, þá dugði það ekki til.
Haukar léku lengst af flata 6-0
vörn og bratu hana ekki upp nema
í þau skipti sem þeir urðu manni
fleiri. Hún var sterk en það var
ekki sama grimmdin í þeim og í
leiknum í Strandgötu á föstudag-
inn enda vart hægt að óska eftir að
hægt sé að endurtaka þann leik.
Bjarni Frostason markvörður
varði vel, einkum setti hann strik í
reikning FH er hann varði fjögur
hraðaupphlaup í fyrri hálfleik.
Sóknin var allsæmileg, en líkt og
hjá FH áttu menn til að velja lak-
ari kostinn ellegar fyrsta kost. Víst
er hins vegar að það er enginn
hægðarleikur að finna saumsprett-
ur á vörn FH um þessar mundir.
Eftirtektarvert er að sjá leikmenn
Hauka ekki skora neitt mark eftir
hraðaupphlaup í leiknum og aðeins
eitt af línu. Þrátt fyrir að Lee verji
13 langskot í marki FH skora
Haukar sjö mörk með langskotum.
Eins og áður var vörnin og
markvarslan aðal FH, sóknarleik-
urinn var e.t.v. með skásta móti og
munaði mikið um að Valur Arnar-
son var í miklum ham, gaf Hauka-
vörninni aldrei stundarfrið. Þá var
Guðjón öflugur að vanda en
reynsla hans og yfirvegun nýtist
vel í leikjum sem þessum. Minna
fór fyrir Gunnari Beinteinssyni í
sókninni en oft áður.
Við nýttum
okkarfærí
500. leikur Gunnars
GUNNAR Beinteinsson lék sinn 500. leik með
meistaraflokki FH gegn Haukum á sunnudag-
inn og fékk fyrir leikinn blómvönd frá hand-
knattleiksdeild FH. Eftir leikinn var síðan
leikmönnum og velunnurum boðið upp á kaffi
og kökur í tilefni áfangans.
Stefán Guðmundsson fékk blómvönd í sama
leik fyrir leikinn fyrir að hafa leikið 100 leiki
fyrir meistaraflokk FH.
Þannig vörðu þeir
Suik Hyung Lee, FH: 2SV1 (8/1):
13(4) langskot, 2(2) eftir gegn-
umbrot, 3(0) eftir hraðaupp-
hlaup, 2 (1) úr homi, 1 af línu,
1(1) vítakast.
Bjarni Frostason, Haukum:
14/1 (8): 5(2) langskot, 2(2) eftir
gegnumbrot, 4(3) eftir hraða-
upphlaup, 1(0) úr hroni, 1(1) af
línu, 1(0) vítakast.
í leik