Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 E 11 Hólmavíkurhreppur auglýsir laus störf við grunn- skólann á Hólmavík Lausar eru kennarastöður við grunnskólann á Hólmavík. Um er að ræða almenna bekkjar- kennslu, sérgreinakennslu í 8.—10. bekk, hand- mennt í 1.—10. bekk, íþróttakennslu o.fl. Einnig vantar stuðningsfulltrúa í um 50% starf, starfsmann í ræstingar og gæslu í um 60% starf og bókavörð við héraðs- og skólabóka- safn í um 50% starf. Nánari upplýsingar veita skólastjóri og aðstoð- arskólastjóri í símum 451 3129 og 3430. Umsóknir skulu hafa borist skólastjóra fyrir 15. júní nk. Hólmavík er stærsti þéttbýlisstaður í Strandasýslu og stendur við Steingrímsfjörð u.þ.b. 320 km frá Reykjavík. I Hólmavíkurhreppi búa um 500 manns. Á Hólmavik er gott mannlíf og öll nauðsynleg þjón- usta. Samgöngur við höfuðborgarsvæðið eru yfirleitt greiðar. I grunnskólanum, sem er einsetinn heildstæður skóli með 1. —10. bekk, verða um 95 nemendur næsta skólaár í 8—9 bekkjardeildum. Að jafnaði eru um 10 nemendur í hverri bekkjardeild. MENNTASKÓLINN VIÐ SUND Framhaldsskóla- kennarar Næsta skólaár eru lausar stöður í eðlisfræði (u.þ.b. 1 Vástaða), efnafræði (u.þ.b. V2—1 staða) og tölvufræði og netumsjón (u.þ.b. 1 staða). Þá er laus stundakennsla i matreiðslu (valgrein u.þ.b. 12 st.) og félagsfræði (4-8 st.). Ráðið er í heilar stöður frá 1. ágúst næst- komandi en í stundakennslu frá 1. september. Starfskjör eru skv. kjarasamningum ríkisins við stéttarfélög kennara. Umsóknarfrestur ertil 16. júní 1998. í umsókn skal greina frá menntun og fym störfum. Ekki þarf að nota sérstök eyðublöð. Umsóknir sendist í Menntaskólann við Sund, Gnoðarvogi 49,104 Reykjavík. Öllum umsókn- um verður svarað. Nánari upplýsingar veita rektor og konrektor í síma 553 7300. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar við grunnskóla Hafnarfjarðar: Vídistadaskóli: 1.—10. bekkur Skólastjóri: Sigurður Björgvinsson vs. 555 2912. Kennsla: Myndmennt, sérkennsla. Önnur störf: Gangavarsla. Setbergsskóli: 1.—10. bekkur Skólastjóri: Loftur Magnússon vs. 565 1011. Störf: Gangavarsla. Hvaleyrarskóli: 1. —10. bekkur. Skólastjóri: Helga Friðfinnsdóttir vs. 565 0200. Störf: Gangavarsla: Umsóknareyðublöö liggja frammi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31, en nánari upplýsingar um störfin gefa skólastjórar. Umsóknarfrestur er til 10. júní 1998. Framkvæmdastjóri fræðslusviðs, Hafnarfirði. Skrifstofustarf — bókhald Fyrirtæki í ferðaþjónustu óskar eftir að ráða starfsmann til bókhalds- og skrifstofustarfa. Um er að ræða hálfsdagsstarf, vinnutími getur verið sveigjanlegur. Starfið er fjölbreytt og við- komandi þarf að geta starfað sjálfstætt auk þess að hafa þekkingu og reynslu af tölvubók- haldi. Umsókniróskastsendarafgreiðslu Mbl. fyrir 10. júní merktar „Bókhald — 2000". Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar Búðahreppur Fáskrúðsfirði auglýsir eftirtaldar stöður lausar til umsóknar við Grunnskóla Fá- skrúðsfjarðar fyrir næsta skólaár: Stöður kennara í eftirtöldum greinum: Kennslu yngri barna, almennri kennslu, dönsku, íþróttum, mynd- og hand- mennt. Skólinn er einsetinn með 140 nemendum í 1,—10. bekk. Útvegað er ódýrt húsnæði og flutningsstyrkur greiddur. Nýtt veglegt íþróttahús var tekið í notkun sl. haust og skólinn er vel settur með tæki og að- búnað. Búðahreppur er um 630 manna þéttbýlisstaður með allri almennri þjónustu s.s. góðum leikskóla, heilsugæslu og sundlaug. Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og KÍ og HÍK. Skriflegar umsóknir sendist skrifstofu Búðar- hrepps, Hafnargötu 12, 750 Fáskrúðsfirði. Umsóknarfrestur ertil 12. júní 1998. Nánari upplýsingarveitirskólastjóri í síma 475 1224 eða 475 1159, aðstoðarskólastjóri ísíma475 1211 og formaður skólanefndar í síma 475 1293. Sveitarstjóri. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Sérkennarar og aðstoðarmaður Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir tveim- ursérkennurum og einum aðstoðarmanni til að kenna næsta skólaár fjórum nemendum með miklar sérþarfir (2 greindarskertum og 2 einhverfum). Launakjörfara eftir kjarasamningum kennara- samtakanna. Umsóknir um starf skulu sendar til Fjölbrauta- skólans í Garðabæ við Skólabraut, 210 Garða- bæ. Umsóknarfrestur er til 10. júní nk. Allar nánari upplýsingar veita skólameistari og aðstoðarskólameistari í síma 520 1600. Skólameistari. Sjúkrahúsið á Akranesi Yfirlæknir Staða yfirlæknis á lyflækningadeild er laus til umsóknar. Stöðunni tengjast klinisk störf og stjórnun á lyflækninga- og öldrunardeild, svo og kennsla aðstoðarlækna. Staðan veitistfrá 1. sept. 1998. Sérfræðingur Staða sérfræðings á lyflækningadeild er laus til umsóknar. Á lyflækningadeild er mjög fjöl- breytt starfsemi. Góð vinnuaðstaða og starfs- kjör eru í boði. Nánari upplýsingar veitir Ari Jóhannesson, yfirlæknir, s. 432 2311. Umsókn- ir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra fyrir 15. júlí nk. Meinatæknar Staða meinatæknis er laustil umsóknar. Stað- an veitist frá 1. sept. nk. eða eftir nánara sam- komulagi. Upplýsingar um stöðuna veitiryfir- meinatæknir í síma 431 2311. Sjúkrahús Akraness. Flensborgarskólinn í Hafnarfirði Starfsfólk óskast í framhaldsskóla Flensborgarskólinn óskar að ráða starfsmenn í eftirtalin störf: 1. Starf skólaritara (75% starf) 2. Starf aðstoðarmanns á skólasafni (50% starf) 3. Starf matráðs í mötuneyti starfsmanna (75% starf) Umsóknir um störfin ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendartil Flens- borgarskólans í Hafnarfirði. Umsóknarfrestur er til 15. júní 1998. Allar nánari upplýsingar veitir aðstoðarskóla- meistari í síma 565 0400 eða 899 0012. Skólameistari Varnarliðið Sölumaður Rótgróið þjónustufyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu á sviði rekstrarvara leitar að fyrsta flokks sölumanni. Starfið felst í heimsóknum til fyrirtækja og stofnana, öflun nýrra viðskiptasambanda, til- boðsgerð o.fl. Einnig að hluta til sölumennsku í verslun og í síma, útskrift reikninga, móttöku og afgreiðslu pantana, símsvörun og öðru. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu af sölumennsku og tölvunotkun. Umsækjandi þarf að vera skipulagður, heiðarlegur, lipur og samviskusamur, geta starfað sjálfstætt og haft frumkvæði. Æskilegt að umsækjandi hafi bíl til umráða. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Um framtíðarstarf er að ræða. Reyklaus vinnu- staður. Umsækjendur riti umsóknir með eigin hendi og sendi til afgreiðslu Mbl. merktar: „A-4791" fyrir 5. júní nk. Skrifstofa/ gagnaskráning Opinber stofnun óskar eftir að ráða starfskraft til skrifstofustarfa. Starfið felst einkum í tölu- skráningu, flokkun og öflun gagna, símavörslu og ýmis önnurtilfallandi skrifstofustörf. Krafist er mjög góðrar kunnáttu í Word og Excel, leikni í notkun tölva, nákvæmni í vinnubrögðum, greiðvikni og miklum afköstum. Verkefni eru áhugaverð en krefjandi. Reyklaus vinnustaður og góð starfsaðstaða miðsvæðis í Reykjavík. ítarlegar starfsumsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. í síðasta lagi 4. júní nk., merktar: „Afköst - 4816" Laust starf hjá verkfræðideild Verkfræðideild varnarliðsins óskar að ráða byggingarverkfræðing til starfa. Umsækjandi þarf að hafa löggild réttindi til starfa á íslandi. Krafist er góðrar þekkingar á notkun tölva og algengustu forrita, svo sem Auto-Cad o.fl. Krafist er mjög góðrar kunnáttu í ensku og hæfni til mannlegra samskipta. Um er að ræða fast starf og æskilegt að við- komandi geti byrjað sem fyrst. Boðið er upp á góða starfsaðstöðu. Umsókn skal fyigja staðfesting starfsréttinda. Umsóknir berist til ráðningardeildar Varnar- málaskrifstofu, Brekkustíg 39, 260 Reykja- nesbæ, ekki síðar en 10. júní. Sími 421 1973. Símbréf 421 5711. Starfslýsing fyrir starfið ligg- urframmi á sama stað sem nauðsynlegt er að umsækjendur kynni sér. Rétt orðalag ræður úrslítum um erlend viðskipti INCIPIT >Í^AF$TAt>! KONSEPT • HÖNNUN____ ORÐASMIÐJA Á ENSKU OG ÞÝSKU Lynghagi 10 -107 Rvk ■ incipitOartifox.com ■simi 551 8249 Okkar móðurmál er okkar fag Bæklingar, vefsíðugerð, erlendar kynningar... Hafðu samband við INCIPIT • AF STAÐ! www.artifox.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.