Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 E 7 dLeikskólar Reykjavíkurborgar óska að ráða eftirtalið starfsfólk í neðangreinda leikskóla: Álftaborg v/Safamýri Leikskólakennari í deildarstjórastarf á deild fyrir 3—6 ára börn. Fullt starf. Leikskólakennari í deildarstjórastarf á deild fyrir 1—3 ára börn, 50% starf eftir hádegi. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Ingibjörg Kristjánsdóttir í síma 581 2488. Engjaborg v/Reyrengi Leikskólakennari, leikskólasérkennari eða þroskaþjálfi í stuðningsstarf frá 1. júní. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Auður Jónsdóttir í síma 587 9130. Funaborg v/Funafold Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað starfsfólkfrá 1. ágúst. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sigríður Jónsdóttir í síma 587 9160 Grandaborg v/Boðagranda Þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða leikskóla- kennari í stuðningsstarf. Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað starfsfólk. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Guðrún María Harðardóttir í síma 562 1855. Gullborg v/Rekagranda Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað starfsfólk í fullt starf. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Rannveig Bjarnadóttir í síma 562 2455. Hulduheimar v/Vættaborgir Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað starfsfólkfrá 1. september. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Bryndís Markúsdóttir í síma 586 1870. Matreiðslumaður Óskast í leikskólann Laufskála v/Laufrima frál.júní. Upplýsingargefurleikskólastjóri, Lilja Ólafs- dóttir í síma 587 1140. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 563 5800. ÓLAFSFJÖRÐUR Kennarar — Kennarar Barnaskóla Ólafsfjarðar vantar á næsta skólaári a.m.k. tvo eldhressa kennara þar sem tveir eru nú að yfirgefa okkur. Um er að ræða almenna bekkjarkennslu í yngri árgöngum. Einnig vant- ar kennara í mynd- og handmennt. Þá vantar og sérkennara í hlutastarf. (Þroskaþjálfi kæmi til greina). Við bjóðum þeim sem koma til starfa hjá okkur: • ókeypis flutning til Ólafsfjarðar • ókeypis flutning frá Ólafsfirði starfi þeir í fjögur ár. • 50% niðurgreiðslu húsaleigu fyrstu tvö árin. • 25% niðurgreiðslu húsaleigu þriðja árið. • ódýra hitaveitu. • aðstoð við að útvega barnagæslu (leikskóli, dagmamma). Barnaskóli Ólafsfjarðar er einsetinn skóli, nem- endur um 150 og 15—22 nemendur í bekkjar- deild. Vinnuaðstaða kennara er góð, þ.m.t. tölvur bæði PC og Mac. Auk þess er tölvuver með 10 PC tölvum fyrir nemendur. Samstarf og samvinna kennara mikil og áhersla er lögð á endur- og símenntun. Ólafsfjörður er öflugur útgerðarbær í um 60 km fjarlægð frá Akureyri og samgöngur greiðar allan ársins hring. Á staðnum er öll nauðsynleg þjónusta; heilsugæslustöð, tannlæknir, sjúkraþjálfun, góðar verslanir, hótel, sparisjóður, pósthús og bensínstöðvar. Þá er góður leikskóli á staðnum og öflugur tónskóli. Nýja íþróttamiðstöðin er mjög vel búin enda áhugi á íþróttum mikill. Aðstaða til skiðaiðkunar og vélsleðaferða er mjög góð. Þá eru knatt- spyrnuvellir skammtfrá skólanum og tennisvöllur á skólalóðinni. í tveggja km fjarlægð frá Ólafsfjarðarbæ er skemmtilegur 9 holu golfvöllur. Ólafsfjörður er rómaður fyrir náttúrufegurð jafnt sumar sem vetur og þar er tekið vel á móti fólki. Ágæti kennari ef þú hefur áhuga á að taka þátt í líflegu skólastarfi með jákvæðum kennurum þá hafðu samband við mig sem fyrst og fáðu nánari upplýsingar. Vinnusími er466 2245 — heimasími er 466 2461. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Gunnar Lúðvík Jóhannsson, skólastjóri. Störf hjá Sjónvarpinu Starf útsendingarstjóra frétta sem vinnur að gerð og útsendingu fréttatíma Sjónvarpsins og starf útsendingarstjóra í tæknideild sem annast útsendingu dagskrár. Við leitum að fólki • sem hefur menntun og/eða mikla reynslu í dagskrárgerð fyrir sjónvarp eða sjónvarps- tækni • Sem er reiðubúið að vinna óreglulega og á vöktum • sem er reiðubúið að vinna undir miklu álagi • sem hefur mikla skipulagshæfileika • sem er samviskusamt og á auðvelt með að vinna með öðrum. í starfi útsendingarstjóra frétta reynir mikið á hæfni og hygmyndaauðgi til að útfæra frétta- efni á myndrænan og skilmerkilegan hátt. Umsækjendur um þetta starf gangast undir hæfnispróf í raunhæfum verkefnum. Einnig er lausttil umsóknar starf tækni- manns við útsendingu dagskrár og starf dag- skrárklippara á tæknideild. Menntun eða reynsla í sjónvarpstækni, rafeindavirkjun eða sambærilegu er nauðsynleg. Vaktavinna. Miðað er við að ráðið verði í öll störfin sem fyrst. Starfskjör eru samkvæmt kjarasamning- um opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 515 3900. Umsóknarfresturertil 16. júní nk. og ber að skila umsóknumtil Sjónvarpsins, Laugavegi 176 eða í Útvarpshúsið við Efstaleiti, á eyðu- blöðum sem þar fást á báðum stöðum. © RÍKISÚTVARPIÐ ® ■—WURTHf w Wúrth afslandi ehf. Wurth verslar með rekstrarvöru og verkfæri fyrir fagmenn. Vörunúmer á lager skipta þúsundum. Sölu- og afgreiðslumaður óskast Við óskum eftir að ráða sölu- og afgreiðslumann. Ábyrgð og verklýsing: • Sala og afgreiðsla í verslun á Bíldshöfða. Eiginleikar: • Iðnmenntun, verslunarskólamenntun eða sambærileg menntun. • Vilji til að ná árangri. • Samstarfsvilji og jákvæð viðhorf. • Reynsla við sölu er æskileg en ekki nauðsyn- leg. Starfið gefur góða möguleika, bæði fag- lega og persónulega fyrir viðkomandi aðila hjá fyrirtæki í örri þróun. Það verður veitt kerfisbundin kennsla og þjálfun. Athuqið: Revklaus vinnustaður. Viljir þú vita meira um þetta starf þá getur þú hringt í síma 587 74 70, innanhússlína 114 á milli klukkan 12.30 og 17 og talað við Jóhann eða Björn og fengið frekari upplýsingar um starfið. Ef þú hefur áhuga á slíku starfi, sendu þá skriflega umsókn fyrir 12 júní nk. til: jrth á íslandi ehf. Bíldshöfða 10 112 Reykjavík Sími: 587-7470-114 Fax: 567-8717 LÍNUHÖNNUN VERKFRÆÐISTOFA Starfsmaður óskast í afleysingar á skrifstofu Línuhönnunar hf. Línuhönnun hf. -verkfræöistofa auglýsir eftir starfsmanni í afleysingar í a.m.k. 9 mánuöi á skrifstofu fyrirtækisins. Um er aö ræða fjölbreytt starf, en aöalstarf starfsmannsins er fjárhags- og launabókhald í tölvubókhaldskerfinu Fjölni Áríðandi er aö umsækjandi geti hafiö störf sem allra fyrst og er reynsla á ofangreindu sviöi nauðsynleg. Verkfræðistofan Línuhönnun hf. var stofnuð áriö 1979. Fyrirtækið veitir alhliða verkfræöiráðgjöf á sviði mannvirkjahönnunar, viöhaldsverkefna, jarötækni og umhverfismála. Hjá fyrirtækinu og systurfyrirtækjum þess, LH-tækni ehf., Forverk ehf. og Rekstri og Ráögjöf ehf. starfa nú um 60 starfsmenn. Skrifstofa Línuhönnunar hf. sinnir bókhaldi, launaútreikningi og öðrum almennum skrifstofustörfum fyrir fyrirtækin fjögur. Nánari upplýsingar veitir Þröstur Sigurðsson kl. 14-17 á skrifstofu Reksturs og Ráögjafar ehf. og skal umsóknum skilað þangað eigi síðar en 8. júní nk. REKSTUR & RÁÐGJÖF EHF. Rekstrar- og stjórnunarráögjöf, áætlanagerð, ráöningarþjónusta o.fl. Suðurlandsbraut 4a Slmi 568-2100 108 Reykjavík. Bréfsími 568-0681 LEIKFÉLAG <Jj<* REYKJAVÍKUR M Leikfélag Reykjavíkur auglýsir eftir starfsfólki til að sinna eftir- töldum störfum: ♦> Starfsmaður í bókhald. Óskað er eftir starfsmanni til að annast færslu bókhalds, merkingu fylgiskjala og innslátt í tölvukerfi. Starfsmaðurinn annast einnig útreikning launa og frágang í launabókhald. ❖ Starfsmaður í miðasölu. Óskað er eftir starfsmanni til að annast miðasölu. Meðal þess sem starfsmaðurinn annast er móttaka pantana og sala miða. ♦> Sviösstjóri. Sviðsstjóri skipuleggur og stjórnar allri vinnu á sviði. Hann þarf að hafa þekkingu á sviðsbúnaði og tækni þar að lútandi. Leikfélag Reykjavíkur var stofnað árið 1897 og er elsta starfandi leikfélag á íslandi. LR hefur árlega sett upp að jaínaði 5 leikrit á stóra sviðinu og 4 á því litla auk samstarfsverkefna með öðrum leikhópum. Nánari upplýsingar veitir Þröstur Sigurðsson kl. 14-17 á skrifstofu Reksturs og Ráðgjafar ehf. og skal umsóknum skilað þangað eigi síðar en 8. júní nk. REKSTUR & RÁÐGJÖF EHF. Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf, áætlanagerð, ráðningarþjónusta o.fl. Suðurlandsbraut 4a Sími 568-2100 108 Reykjavík.Bréfsími 568-0681

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.