Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 1
fttorjpniHfifrfö ATVINNU/RAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 31. MAÍ1998 BLAÐ JOj ATVINNUAUGL ÝSINGAR Gluggakerfísforritun í Danmörku TVÆR stöður við gluggakerfisforritun í Umhverfisupplýs- ingadeild verkfræðistofnunarinnar Danish Hydraulic Institute í Danmörku eru lausar til umsóknar. Verksvið deildarinnar er hönnun og þróun notendaviðmóts og ann- ars hugbúnaðar til meðhöndlunar gagna fyrir reiknilíkön DHI. Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í tölvunar- fræði eða verkfræði og/eða þekkingu og reynslu á viðkom- andi sviðum. Verkfræðingur og hjúkrunarkona VARNARLIÐIÐ auglýsir eftir byggingaverkfræðingi til starfa á verkfræðideild. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. Þá leitar Varnarliðið að hjúkrunarfræð- j ingi til starfa við heilsuverndardeild sjúkrahússins á Kefla- ■ víkurflugvelli. í báðum tilvikum þurfa umsækjendur að búa yfir mjög góðri enskukunnáttu. Sérkennarar við fjölbrautaskóla MARGIR skólar auglýsa innritun fyrir næsta ár í blaðinu í dag og aðrir leita starfsmanna. Fjölbrautaskólinn í Garða- bæ óskar eftir tveimur sérkennurum og einum aðstoðar- manni til að kenna næsta skólaár fjórum nemendum með miklar sérþarfir. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti auglýsir einnig eftir tveimur sérkennurum, til að hafa umsjón með sérdeild fyrir fatlaða nemendur skólans. RAÐAUGL ÝSINGAR Hross á Hólum HÓLASKÓLI, Hólum í Hjaltadal, auglýsir starfsnám á ferðamálabraut, fiskeldisbraut og hrossabraut. Umsækj- endur þurfa að vera 18 ára, með 65 einingar úr framhalds- skóla, góða starfsreynslu og verkhæfni, eða 25 ára með góða starfsreynslu og verkhæfni. Þá auglýsir skólinn þjálf- ara- og reiðkennaranám, sem er framhaldsnám fyrir þá sem hafa frumtamningapróf og búfræðipróf og fullnægja færnikröfum. Heimavist er á nemendagörðum. Föndur í Reykjavík ' HOLL, fyrirtækjasala, auglýsir til sölu fóndurverslun mið- svæðis í Reykjavík. Hóll segir að fyrirtækið henti vel fjár- K sterku og hugmyndaríku fólki og frábær sölutími sé framundan. Ibúð í París og Jarna í Svíþjóð AUGLÝST er til leigu vistleg, lítil íbúð í hjarta Parísar, í ágústmánuði. Þá óskast íbúð í Reykjavík í skiptum í júlí íyrir raðhús í bænum Járna í Svíþjóð, sem er lýst sem kyrrlátum bæ suður af Stokkhólmi. SMÁAUGL ÝSINGAR Samkoma á hvítasunnu SAMKOMA verður á annan í hvítasunnu í íslensku Krists- kirkjunni, Bfldshöfða 10, kl. 20. Unga fólkið í kirkjunni hefur umsjón með samkomunni og vöfflur með rjóma verða seldar með kaffinu á eftir. Samanburðarkönnun á launum starfsmanna Reykjavíkur Ríki og önnur sveitar- félög borga hærri laun MEÐALLAUN starfsmanna Reykjavíkurborgar eru lægri en starfsmanna annarra sveitarfélaga. Mestur er munurinn hjá starfsmönnum sem falla undir flokkinn „tæknihópur". Þar hafa landsbyggðarstarfs- menn 13,1% hærri laun en borgarstarfsmenn og í flokknum „fræðslumál" hafa starfsmenn sveitarfé- laga á landsbyggðinni 12,5% hærri laun en borgar- starfsmenn. Laun borgarstarfsmanna eru hins vegar í sumum tilvikum hærri en laun ríkisstarfsmanna í sambærilegum störfum. Þar munar mestu á vélfræð- ingum, sem hafa 7,6% hærri laun í Reykjavík en hjá ríkinu. Að meðaltali hafa starfsmenn sveitarfélaga á landsbyggðinni 7,1% hærri laun en kollegar þeirra í Reykjavík og ríkisstarfsmenn hafa að meðaltali 6,7% hærri laun, sé litið á öll stöðugildi. Þetta kemur fram í samanburði Helgu Jónsdóttur, hagfræðings Reykjavíkurborgar og Rannveigar Sigurðardóttur, hagfræðings BSRB. Aðdragandi samanburðar- ins var sá, að í bókun í kjarasamn- ingi Starfsmannafélags Reykjavík- ur og Reykjavíkurborgar frá 30. aprfl á síðasta ári var tekið fram að halda skyldi áfram vinnu við sam- anburð á launum starfsmanna Reykjavíkurborgar og starfsmanna annarra sveitarfélaga í sambæri- legum störfum, auk þess sem slík könnun skyldi einnig ná til starfs- manna í sambærilegum störfum hjá ríkinu. Samanburðarsveitarfélögin voru Akureyri, Garðabær, Hafnarfjörð- ur, Kópavogur, Selfoss og Vest- mannaeyjar. Starfsheiti voru valin út frá þeim starfsheitum sem St- arfsmannafélag Reykjavíkurborgar semur um við Reykjavíkurborg og kannaðir eftirtaldir hópar: Skrif- stofuhópur, skólaritarar, tæknihóp- ur, mötuneyti, vagnstjórar, verk- stjórn, umsjón fasteigna, gæslu- menn leikvalla, heilbrigðishópur, leikskólahópur, æskulýðsmál og fræðslumál, en nokkrir þessara hópa innihalda mjög mörg starfs- heiti og taka höfundar fram í skýrslu sinni að ekki sé hægt að túlka niðurstöður einstakra yfir- hópa yfir á einstök starfsheiti innan hópsins. Mismikill munur Starfsfólk innan skrifstofuhóps hefur 11,9% hærri laun hjá saman- burðarsveitarfélögunum en Reykja- víkurborg, en laun ríkisstarfsmanna í þessum hópi eru 1,4% hæm en borgarstarfsmanna. Skólaritarar í Reykjavík hafa 11,3% lægri laun en kollegar þeirra hjá sveitarfélögum og 4,4% lægri en ríkisstarfsmenn, bókaverðir í Reykjavík 11,9% lægri laun en hjá hinum sveitarfélögun- um, en 4,2% hærri laun en starfs- menn rfldsins. Hjá tæknihópi eru landsbyggðarstarfsmenn betur settir svo munar 13,1%, en ríkis- starfsmenn innan þessa hóps hafa aðeins 2,5% forskot á borgarstarfs- menn. Reykjavík borgar 9,9% betri laun fýrir störf i mötuneytum en hin sveitarfélögin og 14,5% hærri en ríkið. Verkstjórar fá 8,7% minna í sinn hlut í Reykjavík en hinum sveitarfélögunum, en þó 8,5% meira en ríkisstarfsmenn við verkstjórn. Starfsmenn við umsjón fasteigna fá 3,3% hæiTi iaun utan Reykjavíkur, nema þeir starfi hjá ríkinu, því þar eru launin 6,7% lægri en í Reykja- vík. Aðeins munar hálfu prósenti á launum starfsmanna Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga í æsku- lýðsmálum, Reykjavík í vil, bað- og klefaverðir eru nánast á sömu laun- um alls staðar, þó með 1,7% betri laun utan Reykjavíkur og sama tala fyrir gangaverði er 1,9%. Munur á launum innan hópsins sem fellur undir „fræðslumál" er hins vegar 12,5%, samanburðarsveitarfélögun- um í vil. l-Vf ’nB - > ' R ys * m \; *|ÍB| - t ** * AV |j - w \ - ** (1. Up yi Nfi JS j V Wxsf ~ - í# aL” ; w 1 s* y ViKfiv 1 V-JSflaraíœÍ; ' \ 'íwMÍk ' ■ r ' FRAMLEIÐENDUR úrvalsmjólkur með verðlaunagripina. Morgunblaðið/Atli Verðlaun fyrir úrvalsmjólk Laxamýri - Verðlaunaafhending fyrir úr- valsmjólk sem lögð var inn hjá Mjólkur- samlagi Kaupfélags Þingeyinga á sl. ári, fór fram á aðalfundi samlagsins nú í vik- unni. Fram kom að frumutala er lægst hjá þingeyskum mjólkurframleiðendum yfir landið, en á undanfórnum árum hafa bændur unnið mjög mikið að þvi að bæta framleiðslu sína og heilbrigði kúa. Það var Kristín Halldórsdóttir gæða- stjóri sem afhenti verðlaunin, en Hlífar Karlsson samlagsstjóri ávarpaði bændur og þakkaði þeim fyrir gott hráefni til mjólkurvinnslunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.