Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1998
fplwðisiifdattfr
■ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
BLAÐ
Guðjón Þórðarson hefur valið landsliðshópinn sem mætir Suður-Afríku í Stuttgart
Fimm nýliðar
Guðjón Þórðarson, landsliðs-
þjálfari í knattspymu, valdi í
gær fimm nýliða í landsliðshóp sinn
sem mætir Suður-Afríku í æfinga-
leik í Stuttgart á laugardaginn. Það
eru þeir Steingrímur Jóhannesson,
ÍBV, Gunnar Einarsson, Roda,
Haukur Ingi Guðnason, Liverpool,
Stefán Þór Þórðarson, Öster, og
Ólafur Örn Bjarnason, Maimö.
Leikreyndasti leikmaður liðsins
er Birkir Kristinsson, markvörður
hjá Norrköping, sem hefur leikið 50
landsleiki. Hinn markvörðurinn er
Kristján Finnbogason, KR, sem
hefur leikið 19 leiki. Tveir aðrir KR-
ingar eru í hópnum, Einar Þór Dan-
íelsson, 13 leikir, og Sigurður Örn
Jónsson, tveir leikir.
Aðrir leikmenn era Hermann
Hreiðarsson, Crystal Palace (12),
Brynjar Björn Gunnarsson, Váler-
engen (11), Sverrir Sverrisson, Mal-
mö (7), Steinar Afdolfsson, ÍA (6),
Óskar Hrafn Þorvaldsson, Ströms-
godset (3), Jóhann B. Guðmunds-
son, Watford (2), og Sigurvin Ólafs-
son, ÍBV (1).
Suður-Afríkumenn, sem eru að
undirbúa sig fyrir heimsmeistara-
keppnina í Frakklandi, léku tvo æf-
ingaleiki í Stuttgart um helgina.
1.200 áhorfendur sáu þá gera jafn-
tefli við Stuttgart Kickers, 1:1, á
laugardaginn og í gær unnu þeir úr-
valslið Stuttgarts, 5:0, fyrir framan
700 áhorfendur. Shawn Bartlett
skoraði þrjú mörk og Jerry Sikhos-
ana tvö.
Það má ekki reikna með að marg-
ir áhorfendur mæti á leik Islend-
inga og Suður-Afríkumanna.
Vala Flosadóttir endurheimti
Norðurlandamet sitt í stangar-
stökki utanhúss er hún stökk 4,20 m á
alþjóðlegu móti í Hengelo í Hollandi á
sunnudaginn. Hún bætti þar með
fjögurra daga gamalt met Þóreyjar
Eddu Elísdóttur um tvo cm.
„Þetta var fyrsta alvöramót sum-
arsins hjá mér og ég er nokkuð
ánægð með árangurinn þar sem
keppnistímabilið er að byrja. Ég
stefni að því að ná hámarki eftir tvo
mánuði. Eg á mikið inni, en þarf að
bæta tæknina og auka hraðann
meira í lok atrennunar," sagði Vala,
sem tekur þátt í móti í Prag í Tékk-
landi um næstu helgi, síðan þremur
öðrum mótum á sex dögum - í
Ostrava í Tékklandi, Bratislava í
Slóvakíu og Sopoto í Póllandi.
Vala stökk yfir 4,20 m í fjórðu til-
raun í Hengelo og varð í fjórða sæti.
Bandaríska stúlkan Stacey Dragila
stökk 4,30 m og vann en næstar
komu Tanja Gregorjeva frá Rúss-
landi og Daniela Kopernick frá
Þýskalandi, sem stukku sömu hæð
og Vala, en notuðu færri tilraunir.
Evrópumeistarinn innanhúss, An-
ela Balakhonova, frá Ukraínu stökk
aðeins 4,10 m og heimsmethafmn
Emma George felldi byrjunarhæð
sína, 4,30 m. Þetta var því í fyrsta
skipti sem Vala ber sigurorð af
Emmu.
VALA Flosadóttir stökk yfir 4,20 m i Hollandi.
Vala endur-
heimti
Norður-
landametið
unglingamet i
Jón setti
JÓN Ásgrímsson, FH, setti ung-
lingamet í spjótkasti er hann
kastaði 67,64 m á vormóti Breiða-
bliks í Kópavogi á mánudaginn.
Gamla metið átti Sigmar Vil-
hjálmsson - 66,24 m. Jón missti aft-
ur á móti drengjamet sitt til Sig-
urðar Karlssonar, UMSS, sem
kastaði 60,58 m. Jón er 20 ára og
1,94 m. „Ég hef ekki séð eins mikið
efni í langan tíma. Jón hefur bætt
sig um átta metra á einu ári,“ sagði
Eggert Bogason, þjálfari FH-inga.
„Það liggur vel fyrir Jóni að kasta.
Hann er einnig góður í kúluvarpi
og kringhikasti, en þar sem spjót-
spjótkasti
kast liggur vel fyrir honum mun
hann leggja áherslu á það.
Hinn gamalkunni spjótkastari
Sigurður Einarsson hefur gengið
til liðs við okkur. Þegar Jón er
búinn í skólanum, mun ég senda
hann í skóla til Siguröar," sagði
Eggert.
TUGÞRAUT: JÓN ARNAR MEÐ GLÆSILEGT ÍSLANDSMET / C12
VINNINGSTOLUR
LAUGARDAGINN
I 30.05.1998 I
12 ( 14 (16
24128
; Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
1. 5 af 5 0 4.661.925
2. 4 af S+'&i 3 135.460
3. 4 af 5 90 7.780
4. 3 af 5 2.707 600
Jókertölur vikunnar
O 3 6 4 0
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæö á mann
5 tölur 0 1.000.000
4 síðustu 3 100.000
3 síðustu 26 10.000
2 síðustu 186 1.000
VINNINGSTÖLUR
WUÐVIKUDAGINN
27.05.1998 ]
AÐALTÖLUR
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 6 af 6 2 44.003.760
2. 5 af 6+bónus 1 5.192.280
3. 5 af 6 8 41.850
4. 4 af 6 189 2.810
3. 3 af 6+ búííus 532 420
Miðinn með bónusvinning-
num í Víkingalótti sl. mið-
vikudag var seldur í KEA,
Byggðavegi 98, Akureyri.
Upplýsingar:
Miðarnir með bónusvinningunum
sl. iaugardag voru seldir hjá
Söluturninum Iðufelli 14, Reykja-
vík, Söluturninum JL húsinu,
Hringbraut 121, Reykjavík og
Shellskálanum, Hásteinsvegi 4,
Stokkseyri.
Endurtekinn aukaútdráttur
Tölurnar í aukaútdrættinum voru:
7—11—14—26—38. Þar sem
enginn var með þær réttar verður
hann endurtekinn á laugardaginn
kemur.
Upplýsingar í síma:
568-1511
Textavarp:
451, 453 og 454
í þágu öryrkja, ungmenna og íþrótta
éfámÖfytíTvamumpmrtvliltír y ^