Morgunblaðið - 03.06.1998, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JIJNÍ 1998 C 3
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Ásdís
KEFLVIKINGURINN Olafur Ingólfsson fékk litla aðstoð frá samherjum sínum f fyrri hálfleík en Valsmennirnir Stefán Ómarsson, Ólafur
Stígsson, Sigurbjörn Hrefðarsson og Ingóifur Ingólfsson höfðu þeim mun betri gætur á honum.
Keflvíkingar í baráttu efstu liða en Valsmenn án sigurs
Herbragð Sigurðar gaf
sigur á Hlíðarenda
Knattspyman er einföld. Snýst
um að skora og það lið spm ger-
ir fleiri mörk sigrar. Árangur
ggm mælist í stigum en
Steinþúr ekki mínútum með
Guðbjartsson boltann eða mark-
skrifar tækifærum. Keflvík-
ingar gerðu það sem
til þurfti á Hlíðarenda í gærkvöld,
unnu 1:0 og eru í hópi efstu liða með
sjö stig að loknum fjórum umferð-
um Landssímadeildar fslandsmóts-
ins en Valsmenn, sem voru meira
með boltann og sköpuðu sér fleiri
marktækifæri, eru í þriðja neðsta
sæti með þrjú stig eins og Skaga-
menn en hafa fengið einu marki
minna á sig.
Valsmenn mættu ákveðnir til
leiks og fengu frið til að sækja, það
er að segja að vítateig mótherjanna,
en þar var yfirleitt sagt hingað og
ekki lengra. Þeir náðu tveimur al-
mennilegum skotum að marki Kefl-
víkinga í fyrri hálfleik. Fyrirliðinn
Kristinn Guðbrandsson var réttur
maður á réttum stað eftir tilraun
Jóns Þ. Stefánssonar til að skora
upp úr miðjum hálfleiknum og síðan
skaut miðherjinn naumlega framhjá
undir lok hálfleiksins. Á milli þess-
ara færa skallaði Georg Birgisson
naumlega yfir mark Vals eftir horn-
spymu.
I seinni hálfleik fengu Valsmenn
nokkur góð færi en lánið lék ekki
við þá. Jón var mikill klaufi eftir að
hafa komist á auðan sjó á 54. mín-
útu og 10 mínútum síðar varði
Bjarki Guðmundsson í horn eftir
skot frá Sigurbimi Hreiðarssyni
sem fékk boltann í kjölfar horn-
spyrnu og hamagang í teignum. Jón
var aftur á ferðinni stundarfjórð-
ungi fyrir leikslok en fór illa að ráði
sínu sem fyrr.
„Við fengum færi til að tryggja
okkur sigur, sóttum stíft en þeir
skoruðu og þar með var þetta búið,“
sagði Kristinn Bjömsson, þjálfari
Vals, við Morgunblaðið. „Þetta eru
vonbrigði. Ég er ekki ánægður með
mína menn því þeir eiga að geta
gert betur, eiga að vinna betur sam-
an, skapa betri færi fyrir framherj-
ana, halda boltanum betur og sýna
meira öryggi. Þegar gengur illa að
skora verða menn að gæta sín á að
fá ekki á sig mark.“
Kristinn sagði að áttunda sætið
segði ekki mikið um stöðuna því öll
liðin væru nánast í hnapp og stutt á
milli efsta og neðsta liðs. „Hins veg-
ar er þetta fyrsti leikur okkar sem
mér fannst að við ættum að vinna
því hinir vom mun jafnari."
Keflvíkingar voru yfirvegaðir og
reynslunni ríkari frá síðasta leik. Þá
voru þeir lengstum með boltann og
sköpuðu sér færi en töpuðu 3:0 fyrir
Eyjamönnum. Reynslunni ríkari
tóku þeir enga áhættu; spiluðu
trausta vörn og um miðjan seinni
hálfleik setti þjálfarinn Guðmund
Steinarsson inná til að fríska upp á
sóknina. Herbragðið bar árangur,
samspil varnar og sóknar skilaði
markinu sem réð úrslitum.
„Við verðum að trúa á það sem
Om A Fyrirliðinn Kristinn
■ ■ Guðbrandsson hóf
gagnsókn á 78. mínútu með því
að senda fram á Gunnar Odds-
son. Hann sendi fram og til
vinstri þar sem Kristinn var
kominn og hann gaf þegar til
baka á þjálfarann. Gunnar
stakk inn í vítateig Vals þar
sem varamaðurinn Guðmund-
ur Steinarsson var tilbúinn;
miðherjinn lagði boltann fyrir
sig og skoraði af öryggi með
hægri fótar spyrnu.
við erum að gera,“ sagði Sigurður
Björgvinsson, annar þjálfari Kefla-
víkur, við Morgunblaðið eftir leik.
„Við ætluðum að loka svæðum, vor-
um ákveðnir í því að spila sterka
vöm og beita skyndisóknum. Við
vorum meira með boltann á móti
Vestmannaeyjum og töpuðum með
stæl en þetta var spurning um að
spila agað.“
Keflvíkingar gerðu breytingar á
byrjunarliðinu frá síðasta leik. Karl
Finnbogason var vinstri bakvörður í
staðinn fyrir Gest Gylfason sem var
miðvörður og stóð sig vel en Guð-
mundur Oddsson byrjaði á bekkn-
um. Georg Birgisson lék vel á miðj-
unni, fyrsti heili leikur hans í tvö ár,
og ýtti Eysteini Haukssyni út. Þá
var Vilberg Jónasson frammi í stað
Guðmundar Steinarssonar en sá
síðarnefndi kom inná og áréttaði að
þar vildi hann vera. „Við höfum
marga menn og verðum að nota
mannskapinn því þetta er löng og
erfið keppni," sagði Sigurður.
„Samkeppnin er af hinu góða því
hún heldur mönnum á tánum en
þetta er skrýtið mót. Við sigruðum
og erum í toppbaráttunni en ef við
hefðum tapað værum við í áttunda
sæti.“
Pylkir stöðvar Skallagrím
Fylkismenn stimpluðu sig inn í
toppbaráttu 1. deildarinnar þeg-
ar liðið lagði Skallagrím að velli, 2:1,
í Árbænum. Sigurinn
Frosti var sanngjarn,
Eiðsson heimamenn voru
skrifar mun betri aðilinn,
sérstaklega í síðari
hálfleiknum.
„Ég er mjög ánægður, því það er
alltaf erfitt að leika gegn Skalla-
grímsmönnum og fjórir til fimm af
okkar leikmönnum eru enn ekki
búnir að ná sér af meiðslum. Þessi
sigur lofar góðu, en það getur
margt gerst, það eru sex til sjö lið í
deildinni sem eru svipuð að getu,“
sagði Aðalsteinn Víglundsson, að-
stoðarþjálfari Fylkis.
Skallagrímsmenn voru á undan
að skora. Hjörtur Hjartarson skor-
aði frá vítapunktinum á 9. mínútu,
en vítaspyrnudómurinn var æði um-
deildur. Sigurður Þórisson dómari
taldi að boltinn hefði farið í hendi
eins Fylkismannsins, en kannski
Sigurður hafi betri sjón en allflestir
áhorfendur á leiknum, sem töldu að
Garðar hefði skallað knöttinn, en
kannski átti sterk kvöldsólin þátt í
þeirri tálsýn mannanna í brekkunni.
Ómar Bendtsen jafnaði leikinn með
fallegum tilburðum á 40. mínútu eft-
ir stórsókn Fylkismanna. Markið
sem réð úrslitum kom rétt undir
miðbik fyrri hálfleiksins og verður
að skrifast sem sjálfsmark á Unnar
Sigurðsson. Unnar hafði betur í
kapphlaupi við Ómar, en skalli hans
hafnaði í Skallagrímsmarkinu, eftir
viðkomu á annarri markstönginni.
Það var engan bilbug að finna á
Fylkisliðinu á lokamínútunum, liðið
sótti oft stíft, skyndisóknir gest-
anna skiluðu hins vegar ekki tilætl-
uðum árangri.
„Ég er með góðan hóp í höndun-
um, en því miður var hann ekki til-
búinn í þennan leik. Það var hægt
að sjá það frá fyrstu mínútu að eitt-
hvað vantaði," sagði Sigurður Hall-
dórsson, þjálfari Skallagríms.
Blóðtaka
fyrir KA
SÆNSKI vamarmaðurinn
Patrek Feltendal, sem KA fékk
til liðs rið sig á dögunum, mun
ekki leika með liðinu í sumar.
Hann varð fyrir því óhappi að
meiðast á æfingu fyrir helgi og
í gær kom í ljós að liðband á
hné var slitið.
Garðbæ-
ingar rétta
úr kútnum
Garðbæingar virðast vera að
rétta úr kútnum eftir 2:1 sigur
á FH í Kaplakrika í gærkvöldi.
Garðbæingar náðu
Stefán fljótlega tökum á
Stefánsson miðjunni án þess að
skrifar komast lengra en
FH-ingar sættu færis
og á 17. mínútu skoraði Brynjar Þ.
Gestsson með skalla eftir skemmti-
legan sprett Davíðs Ólafssonar upp
hægri kantinn. Síðan bar lítið til tíð-
inda fram að upphafi síðari hálfleiks
þegar Valdimar jafnaði 1:1 eftir
góða fyrirgjöf frá hægri. Sex mínút-
um síðar björguðu Stjörnumenn af
línu en Hafnfirðingar voru varla
búnir að ná andanum þegar Kristján
Másson kom Garðbæingum yfir,
2:1. „Við erum sjálfum okkur verst-
ir og það vantaði alla græðgi í leik
okkar,“ sagði Pétur Ormslev þjálfari
FH eftir leikinn. „Menn eiga að vita
að sigur kemur ekki af sjálfu sér og
kannski hefur góð spá fyrir mótið
sett menn útaf laginu en þetta getur
ekki versnað." Davíð og Róbert
Magnússon voru bestir.
Garðbæingar geta vel við unað
með stigin þrjú. Baráttan var líka í
lagi hjá þeim en markið færði þeim
aukinn þrótt og sjálfstraustið. Ragn-
ar Árnason, Sigurður Friðriksson
og Valdimar voru bestir.
Maður leiksins: Sigurður Friðriks-
son, Stjörnunni.
---------------
Jóhann af-
greiddi HK
Þórsarar tryggðu sér sín fyrstu
stig í sumar með góðum sigri á
HK-mönnum á iðjagrænum Kópa-
gmH vogsvellinum. Leiks-
Stefán ins verður þó einkum
Pálsson minnst fyrir stórleik
skrifar hins bráðefnilega 18
ára framherja Þórs,
Jóhanns Þórhallssonar, sem skoraði
þrjú mörk í leiknum. Það tók Jó-
hann aðeins rétt rúma mínútu að
finna leiðina fram hjá slakri vörn
HK, þegar hann vippaði knettinum í
markið af löngu færi eftir misheppn-
að úthlaup markvarðarins.
Kópavogsbúar létu ekki bugast
við mótlætið, heldur sóttu af krafti
eftir markið. Stundarfjórðungi síðar
uppskáru þeir laun erfiðisins, þegar
Guðmundur Páll Gíslason jafnaði
með föstu skoti eftir góðan undir-
búning Danny Browns, besta manns
HK í leiknum.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks
fengu bæði lið nokkur góð mark-
tækifæri, en einungis eitt mark leit
dagsins ljós. Það gerði títtnefndur
Jóhann á 36. mínútu eftir klaufa-
gang í vöm HK. í síðari hálfleik var
sem mjög væri af heimamönnum
dregið og Akureyringar gengu á
lagið. Á 59. mínútu tók varamaður-
inn Kristján Örnólfsson á sprett,
hristi af sér varnarmann og skoraði
með föstu skoti í bláhomið.
Rúmum tíu mínútum síðar var
Þórsaranum Inga Heimissyni vikið
af leikvelli fyrir gróft brot. Ekki var
að sjá að það hefði mikil áhrif á leik
norðanmanna, því þegar stundar-
fjórðungur var eftir gerði Jóhann
sitt þriðja mark eftir skemmtilega
sókn og kórónaði þannig sannfær-
andi en fullstóran sigur gestanna.
Maður leiksins:
Jóhann Þórhallsson, Þór.