Morgunblaðið - 03.06.1998, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 C 5
Framarar og Skagamenn í botnsætunum að loknum fjórum umferðum
Það er
af sem
áður var
Framarar voru sigursælastir
allra liða í íslensku knattspyrn-
unni á níunda áratugnum og
Skagamenn hafa verið í sér-
flokki lengst af á líðandi áratug
en nú er öldin önnur. Að fjórum
umferðum loknum á íslands-
mótinu verma þessi lið botn-
sætin en þau gerðu jafntefli,
1:1, á Laugardalsvelli í fyrra-
kvöld.
Leikurinn var ekki vel leikinn en
þó bjartar hliðar sæjust af og til
ættu jafnvel bestu sölumenn í erfið-
leikum með að dásama
Steinþór viðureignina. Skaga-
Guðbjartsson menn voru ákveðnari í
skrifar fyrri hálfleik en
Framarar tóku af skar-
ið eftir hlé og voru nær sigri ef eitt-
hvað var þó jafnt hafi verið á öllum
tölum. Liðin áttu sín 10 markskotin
hvort, hvort lið fékk fjórar hom-
spymur og jafn oft vora þau dæmd
rangstæð.
Bæði mörkin komu eftir varnar-
mistök. Steinar Adolfsson og Ragnar
Hauksson fengu að athafna sig að vild
í teignum eftir homspyrnu Jóhannes-
ar á 12. mínútu. Steinar skallaði að
marki, Ámi Ingi Pjetursson bjargaði
á línu en Sigurður Ragnar Eyjólfsson
fylgdi vel á eftir. 20 mínútum síðar
gerði Þorbjöm Atli Sveinsson fyrsta
mark Fram í deildinni í ár eftir að
hafa fengið boltann frá mótherja.
Þorbjöm Atli gerði líka síðasta mark
Fram í fyrra, skoraði úr vítaspymu á
38. mínútu í 4:2 tapi á móti KR í 18.
umferð. Því liðu um 355 mínútur á
milli marka Fram í efstu deild.
Skagamenn fengu tvö góð tæki-
færi til að innsigla sigurinn áður en
Framarar jöfnuðu. Fyrst skaut Sig-
m-ður Ragnar naumlega framhjá og
síðan átti Heimir Guðjónsson
þramuskot í slá af löngu færi.
Framarar vora varla með í fyn-i
hálfleik en þeir tóku ágæta rispu eft-
ir hlé og voru í raun óheppnir að
bæta ekki við marki eða mörkum.
Anton Björn var til dæmis í dauða-
færi eftir vamarmistök IA snemma i
hálfleiknum en skaut í Þorbjörn
Atla, samherja sinn, og þar með
Skaga-
menn leita
tyrir sér í
Júgóslavíu
SKAGAMENN róa nú öllum
árum að því að fá til sín er-
lendan framherja í stað Mih-
ajlo Bibercic, sem var sendur
heim á dögunum. Örn Gunn-
arsson, varaformaður knatt-
spyrnudeildar ÍA, fór til Jú-
góslavíu í gær til að skoða
leikmenn ásamt Uros
Ivanovic, sem hefur verið
umboðsmaður júgóslav-
neskra leikmanna hér á
laiuli. Logi Ólafsson, þjálfari
ÍA, sagði að liðið vantaði til-
finnanlega sterksm fram-
herja og væri auðveldast að
finna þá í
Júgóslavíu.
Oa tM Jóhannes Harðarson
■ ■ tók homspymu frá
hægri á 12. mínútu og sendi á
fjærstöng. Þar stökk fyrirliðinn
Steinar Adolfsson hæst og
skallaði að marki. Árni Ingi
Pjetursson bjargaði á línu en
Skagamaðurinn Sigurður
Rapiar Eyjólfsson fylgdi vel á
eftir og ýtti boltanum yfir lín-
una með vinstri fæti.
1m tM Kristófer Sigurgeirs-
■ I son gaf fyrir mark ÍA
frá hægri á 32. mínútu. Þor-
bjöm Atli Sveiusson skallaði til
baka en Reynir Leósson skall-
aði aftur til Framarans sem
þakkaði fyrii- sig og skoraði
með föstu skoti úr vítateignum.
rann það færið út í sandinn. Skömmu
síðar virtist sem Baldri Bjarnasyni
væri bragðið innan teigs en dómar-
inn lét sem ekkert væri. Á sömu
mínútu fékk Jóhannes Harðarson
ámóta meðferð innan teigs Fram, en
ekkert dæmt. Skömmu fyiir leikslok
skaut Kristófer Sigurgeirsson yfir
mark IA þegar auðveldara virtist að
koma tuðrunni í netið og þremur
mínútum síðar var Þorbjöm Atli
felldur innan teigs en dómarinn lét
leikinn halda áfram.
„Þetta var með skásta móti en
sjálfstraust vantar í liðið,“ sagði Ás-
geir Elíasson, þjálfari Fram, við
Morgunblaðið, spurður um áíit á
leiknum. „Þetta lagaðist í seinni hálf-
leik hjá okkur en var samt ekki
nærri nógu gott og það er ergilegt að
hafa ekki gert út um leikinn í lokin.“
Ásgeir, sem gerði tvær breytingar
á liði sínu frá síðasta leik, sagðist
ekki hafa miklar áhyggjur af stöðu
liðsins. „Þetta eru allt erfiðir leikir
og þó ég hafi ekki endilega átt von á
að vera í botnsætinu eftir fjórar um-
ferðir vissi ég að það gæti gerst því
það er léttara að tapa en vinna. Ég
hef ekki miklai- áhyggjur af því að
vera á botninum. Aðalatriðið er að
bæta liðið og ef það tekst verður það
ekki lengi neðst.“
Logi Ólafsson, þjálfari ÍA, var
ekki ánægður. „Ég er ekki sáttur við
stöðu okkar. Ég er sáttur við stóran
hluta fyrri hálfleiks en þegar við vor-
um yfir og með leikinn í höndum
okkar hleyptum við þeim að og Fram
er með of gott lið til að þiggja slíkt
ekki. Við áttum að gera út um þetta
en hvorki við né Fram erum á stað
sem geta okkar segir til um. Við
gengum út frá því að við væram með
gott lið en okkur hefur ekki tekist að
sýna hvað í því býr. Við sköpum okk-
ur ekki mörg sóknarfæri, nýtum
ekki færin og sofnum á verðinum
með þeim afleiðingum að við fáum á
okkur mörk. Við vorum reyndar í
ágætum málum á móti Val, fengum
þá mörg marktækifæri en nýttum
þau ekki. Það alvarlegasta er að ná
ekki að sigra eftir að hafa hleypt
mótherjunum inn í leikinn."
Logi sagði að staðan virtist hafa
áhrif á leikmennina. „Við misstum
taktinn í þvi sem við voram að gera
og urðum óþolinmóðir. Við ætluðum
að loka svæðum og vorum í fínum
málum í fyrri hálfleik en svo hættu
menn þessu og fóru að gera eitthvað
annað. Óþolinmæði er um að kenna.
Menn þyrstir í sigur og missa sjónar
á því sem er best að gera í stöðunni,
að bíða og vera þolinmóðir “
Morgunblaðið/Golli
ÞORBJORN Atli Sveinsson lætur skotið ríða af á mark Skagamanna. Stuttu síðar hafnaði knötturinn
í netinu, fyrsta mark Fram í sumar var staðreynd.
Þróttur sótti sig
ur til Grindavíkur
mmK
ÞRÓTTARAR hafa farið vel af stað í deildinni og eru taplausir
eftir fyrstu fjórar umferðirnar, þrjú jafntefli og síðan kom fyrsti
sigurinn í Grindavík á mánudagskvöld. Páll Einarsson skoraði
þá eina mark leiksins stundarfjórðungi fyrir leikslok og þar
með var fyrsti tapleikur Grindvíkinga í sumar staðreynd, 0:1.
Leikurinn í Grindavík var slakur
og mikið um slæmar sendingar
milli leikmanna. Hann var því ekki
mikið fyrir augað.
VaiurB. Völlurinn var ósléttur
Jónatansson 0g jaus f sgr þannig að
ekki bætti það úr
skák. Heimamenn
voru snarpari í sóknartilburðum
sínum í fyrri hálfleik, en Fjalar
Þorgeirsson markvörður Þróttara
varði oft vel.
Þórarinn Ólafsson fékk fyrsta
færið á upphafsmínútunum, en
Fjalar varði vel. Ramsey átti síðan
gott skot úr vítateignum en aftur
var Fjalar á réttum stað eins og
þegar hann varði skalla frá Óla
Stefáni Flóventssyni. Besta færi
Grindvíkinga í fyrri hálfleik fékk
Sinisa Kekic er hann átti skot hátt
yfir af markteig. Þróttarar fengu
ekki eitt einasta opið færi í fyrri
hálfleik.
Om gM Þróttarar sóttu upp
m I vinstri kantinn. Ingv-
ar Ólofsson sendi boltann með
jörðinni fyrir markið frá hægri.
Páll Einarsson náði boltanum á
vítateignum miðjum, lagði
hann fyrir sig og skaut honum
með hægri fæti neðst í hægra
markhornið á 76. mínútu.
Þegar tíu mínútur lifðu af síðari
hálfleik fengu Grindvíkingar besta
færi sitt í leiknum. Sinisa Kekic
snéri þá á vörn Þróttar á vítateigs-
línu og fékk opið færi, en Fjalar
varði gott skot hans meistaralega.
Grindvíkingar sóttu meira og voru
líklegri til að skora en þá kom rot-
höggið er Páll skoraði sigurmarkið.
Eftir það lögðust Þróttarar í vöm
og heimamenn komust ekkert
áleiðis og urðu að játa sig sigraða.
Uppskárum eins og
við sáðum
„Það var frábært að næla í
fyrsta sigurinn í deildinni og það
var ekki verra að ná að skora þetta
þýðingarmikla mark,“ sagði Páll
Einarsson markaskorari Þróttara
eftir leikinn. „Þetta var mjög erfið-
ur leikur enda eru Grindvíkingar
mjög sterkir. Við börðumst hins
vegar eins og ljón og uppskáram
eins og við sáðum. Nú erum við
komnir í toppbaráttuna og ég held
að sjálfstraustið sé komið í ágætt
lag. Heppnin hefur ekki verið með
okkur í undanfórnum leikjum, en
nú kom að því að hún var okkar
megin,“ sagði Páll sem skoraði
einnig á móti Val í 3:3 jafnteflis-
leiknum í 2. umferð.
■Úrslit/ C10
■Staðan/C10
FOLK
■ PAUL McShane, skoski knatt-
spymumaðurinn sem kom til Gr-
indavíkur í síðustu viku, gat ekki
leikið með liðinu á móti Þrótti á
mánudagskvöld. Hann tognaði á
fæti á æfingu á sunnudag. Hann
lék fyrsta leikinn með Grindavík
er liðið mætti KR sl. fimmtudag, en
þá kom hann inn á sem varamaður.
■ JÓHANNES Valgeirsson sem
dæmdi leik Grindavíkur og Þrótt-
ar var að dæma fyrsta leik sinn í
efstu deild. Jóhannes er Akureyr-
ingur, kemur frá KA.
■ GARÐAR Örn Hinriksson
dæmdi einnig sinn fyrsta leik_ í
efstu deild, er hann dæmdi leik ÍR
og ÍBV. Hann kemur frá Þrótti R.
■ BÁÐIR þessir nýju dómarar í
efstu deild dæmdu vel í sínum
fyrsta leik.
■ GYLFI Orrason hefur lyft 20
gulum spjöldum á loft í þremur
leikjum, en í fyrra lyfti hann 39
gulum spjöldum í fjórtán leikjum
sem hann dæmdi.
■ SIGURÐUR Elí Haraldsson,
unglingalandslisðmaður úr Fram,
hefur gengið til liðs við FH. Sig-
urður Elí leikur sem varnarleik-
maður.