Morgunblaðið - 21.07.1998, Síða 22
22 C ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Furuhlíð. Aðeins 1 hús eftir af þess-
um fallegu 130 fm einbýlum á einni hæð
auk 33 fm bílskúrs. Húsin eru klædd að
utan með Steni og gólf vélslípuð. Verð
9,7 millj.
Háaberg I sölu tvíbýlishús á góðum
stað í Setberginu. Neðri hæð seld Efri
hæð 5 herb. verð 9,3 millj. Tilbúnar undir
málningu að utan og fokheldar að innan.
Teikningar á Hóli Hafnarfirði.
m ||í;||||íjm ■Hgjl,
JSn F® Œö ffl,ŒL :
Byggðin í hrauninu. Mjög faiiegt
4ra íbúða hús á nýja byggingarsvæðinu á
holtinu. Allar íbúðir eru 115 fm 4ra herb.
ibúðir og mjög vandaðar. Verð 9,4 á 1.
hæð og 9,7 á efri hæð. Allar nánari uppl.
og teikningar á skrifstofu Hóls.
Lindarberg. Mjög skemmtilegt og
vandað fjórbýli á þessum frábæra stað.
Neðri hæð 80 fm, efri hæð 181 fm. Af-
hendast fullb. að utan, tilb. undir tréverk
að innan. Nánari uppl. og teikn. á Hóli
Hafnarf.
Vörðuberg. Glæsileg raðhús á tveim
hæðum alls168,6 fm. á góðum stað í Set-
berginu. Húsin afhendast fullbúin að utan
en fokheld að innan á kr. 9,3 millj.
Núpalind. Mjög glæsilegt hús I
smíðum á frábærum stað I Lindunum.
2ja til 4ra herb. íbúðir, skilast full-
kláraðar fyrir utan gólfefni. Þrefalt gler
og húsið klætt að utan. Allar uppl. og
teikningar á skrifstofu. Húsið verður til-
búið í april '99
Vesturtún: I smíðum glæsileg raðhús
eftir Vífill Magnússon. Einstaklega vel
hönnuð 178 og 162 fm raðhús á þessum
kyrrláta stað. Allar teikningar og uppl. á
Hóli Hafnarfirði.
Einbýli, rað- og parhús
Aragerði, Vogum. Skemmtil. eldra
einb. á 2 hæðum, alls 146 fm. 5 svefn-
herb., stór lóð. Hús sem býður upp á
mikla mögul. Verð 8,2 millj.
Alfaskeið. Fallegt og vel með farið
300 fm einbýli á þrem hæðum á þessum
vinsæla stað. Húsið skiptist í kjallara og
tvær góðar hæðir. Sólrikur garður og
stórar svalir. Möguleiki á auka íbúð í
kjallara.
Borgarvegur, Njarðvík. Vorum
að fá í einkas. stórt hús með íb. á efri
hæð og verslunarrými á neðri ásamt góð-
um bíls., alls 270 fm. Mjög góð staðsetn.
Verð 15,8 millj.
Hjallabraut. Vorum að fá í einkas.
þetta glæsilega tvílyfta endaraðhús á ein-
um besta stað í Hf. Alls 316 fm með innb.
bílskúr. Mjög góð gólfefni, innr., arinn og
sauna í kjallara. Verð kr. 16 millj.
Jófríðarstaðavegur. í söiu giæsi-
legt tvílyft hús m. tveim íbúðum og 39 fm
bilskúr. Góð gólfefni og innr. Glæsilegur
garður m. fallegu garðhúsi. Frábær stað-
setning. Verð 18,5 millj.
Lækjarberg - stórgiæsilegt.
Vorum að fá 310 fm stórglæsilegt og
vandað tvílyft einb. Möguleiki á aukaíb.
Frágengin afgirt lóð. Frábær staðsetn. í
rólegum botnlanga. 5-7 svefnherb. Stofa,
sólstofa, sjónvarpshol. Rúmgóður bílsk.
Vönöúð eign í sárflpkki. Verð 21 millj.
Tjarnargata, Vogum. Mjög gott
einb., 157 fm auk 37 fm bílsk. 4 svefn-
herb. Stór sólstofa. Skipti mögul. á minni
eign á höfuðb. sv. Verð 9,2 millj.
Hæðir
Amarhraun. í einkasölu 4 herb. 132
fm. íbúð á 1. hæð með sérinng. í þríbýli.
Sér þvottah. Stór og gróin lóð. Möguleg
skipti á minni eign. Verð 8,9 millj.
Heiðarhjalli, Kópav. í söiu 122 fm
efri sérhæð ásamt sérbyggðum 26 fm
bílskúr. Ibúðin afhendist nánast tilbúin til
innréttingar að innan en fullfrágengin að
utan og máluð. Glæsilegt útsýni. Verð kr.
9,8 millj. Eign í eigu banka.
Hringbraut. Vorum að fá mjög rúm-
góða 90 fm hæð á góðum stað með
sjálfstæðum 25 fm bílskúr. Björt og
skemmtileg íbúð m. tveim stofum. Sér-
inng. Verð 7,6 millj.
Klukkuberg. Mjög falleg og vönduð
íb. á 2 hæðum í góðu fjölb. sem hlotið
hefur viðurkenn. fyrir snyrtil. og barnvænt
umhverfi. Merbau parket á neðri hæð.
Bílskúr. Stórkostlegt útsýni. Verð 10,5
millj. Möguleiki á að taka minni íbúð.
Lynghvammur. í einkas. rúm-
góð efri sérhæð og ris á þessum ró-
lega og barnvæna stað. Nýl. parket og
flísar. 4-5 svefnherb. Mjög góð sól-
stofa. Stór bílskúr. Verð 12,5 millj.
4-5 herb.
Alfaskeið. I einkas. mjög rúmg.
endaíb. á 1. hæð I góðu fjölb. 3-4 svefn-
herb. Allt nýtt á baðherb. Tvennar svalir.
Verð 7,6 millj.
Alfaskeið. Mjög rúmgóð og björt 110
fm endaíb. i góðu fjölbýli. Góð gólfefni,
nýir gluggar, þak nýgegnumtekið og
húsið nýmálað að utan. Möguleiki að
taka minni íbúð uppi. Verð 8,0 millj.
Ásbraut, Kópav. I söiu góð 91 fm
4ra herb. íbúð við miðbæ Kópavogs.
Tvær stofur og tvö herb. m. parketi. Mjög
hagstætt verð. Eign í eigu banka. Verð
kr. 6,2 millj.
Breiðvangur. 5 herb. 112 fm íbúð
á 2. hæð í góðu fjölbýli. Þrjú bama-
herb., þvottahús innaf eldhúsi, parket á
stofu og göngum, suðursvalir. Mjög
falleg og björt íbúð á góðum stað.
Breiðvangur. Rúmgóð og björt 120
fm íb. á 3. hæð í góðu fjölb. 24 fm bílsk.
Nýyfirfamir gluggar og gler. Verð 9,4
millj.
Breiðvangur. I einkas. góð 119 fm
íbúð m. parketi og flísum og góðum 24
fm. bílskúr. Stutt í skóla og alla þjónustu.
Verð kr. 9,2 millj.
Hvammabraut - laus strax.
Opin og björt 104 fm íbúð á 2 hæðum.
Gott parket. Stórar suðursvalir. Bíla-
geymsla. Verð 8,5 millj.
Sjávargrund, Gbæ. vomm að fá
mjög góða 191 fm íbúð á tveim hæðum á
þessum fallega stað. 4 góð svefnherb. og
góðar innr. Verð kr. 11,9 millj. Eign í eigu
banka
3ja herb.
Ekkert greiðslumat
Álfaheiði, Kópav. Vorum að fá í
einkas. mjög góða 77 fm íbúð á þess-
um vinsæla stað. Sameiginlegur inng.
með einni íbúð. Rúmgóð herb. Áhv. 4,8
millj. í Bygg.sj.láni.
Breiðvangur. Vorum að fá í einka-
sölu fallega 87 fm íbúð á fyrstu hæð í
góðu fjölbýli. Stutt í alla (íjónustu og
skóla. Verð 6,8 millj.
Hjallavegur, Keflavík. Góð 82
fm íbúð á 2. hæð I góðu fjölbýli. Áhv.
byggingarsj. lán kr. 1,2 millj. Verö kr. 5,2
millj.
Hjallabraut. Góð 86 fm íbúð með
góðu útsýni. Fjölbýliö allt klætt að utan
og yfirbyggðar svalir. Verð kr. 6,9 millj.
Hraunstígur. Skemmtil. risíb. I
hjarta Hfj. Þak og lagnir í toppstandi.
Baðherb. nýl. tekið í gegn. Nýtt parket
á stofu. Verð 5,8 millj.
Lautasmári, Kópav. Ný 69 fm
íbúð í hjarta Kópavogs. Stutt í alla þjón-
ustu. Innréttingar frá Fit. Ibúðin skilast
fullkláruð fyrir utan gólfefni. Verð kr. 7,5
millj. Eign í eigu banka.
Suðurvangur. Falleg, 94 fm íb. á 2.
hæð i góðu r.fjölb. Ný innrétt. og gólfdúk-
ur I eldhúsi. Góð sameign. Verð 7,0 millj.
2ja herb.
Álfaheiði, KÓpav. Vorum að fá í
einkasölu mjög góða 62 fm. íbúð á
þessum vinsæla og bamvæna stað.
Rúmgóð íbúð m. góðri lofthæð. Verð
kr. 6,9 millj.
Fagrahlíð. Einstaklega falleg 68 fm
íbúð í nýlegu fjölbýli í Mosahlíðinni.
Sérsmíðaðar innr. og glæsileg gólfefni.
Þetta er eian sem verður að skoða. Verð
7 millj. áhv. 4,2 millj. húsbréf.
Grænakinn. Mjög falleg risíbúð með
Merbau parketi og 32 fm bílskúr og
aukaherb. í kjallara. fbúð á góðum stað
og í góðu standi. Verð 6,2 millj.
Lyngmóar, Gbæ. Faiieg 60 fm
íbúð m. bílskúr. Parket á góflum, góðar
innr. og yfirbyggðar svalir. Góð lofthæð í
stofu og herbergi. Laus strax. Verð kr. 6,8
millj. Eign í eigu banka.
Norðurbraut. Vorum að fá í einkas.
góða 73 fm hæð með sérinng. Góð stað-
setning í gamla bænum. Verð kr. 4,8 millj.
Hvaleyrarbraut. Mjög gott og ný-
legt atvinnuhúsnæði alls 459 fm að
stærð. Góðar innkeyrsludyr og öll leyfi frá
Fiskistofu. Mjög gott húsnæði á frábær-
um stað. Verð kr. 22 millj.
Sumarbústaðir
Sumarbústaðalóðir í Gríms-
nesi Vorum að fá tvær samliggjandi
lóðir [ Laugardalshreppi. Hver um sig ca.
2.800 fm. auk sameignarióðar 580 fm.
Kalt vatn og rafmagn. Verðtilboð óskast.
Perlan:
Svo er það besta blanda í heimi;
Hafnfirsk ljóska fór til læknis af því
að henni fannst henni líða eitthvað
furðulega. Eftir ítarlega skoðun
fræðir læknirinn hana á því að hún
sé ófrísk. Smá hik kemur á ljóskuna
sem spyr síðan: „En á ég það?”
}
Endurnýjað einbýlishús við Sogaveg
FASTEIGNASALAN Kjöreign
hefur nú til sölu mikið endurnýjað
einbýlishús að Sogavegi 90. Þetta er
steinhús, byggt 1962 og er alls 157
ferm. að stærð. Bílskúr fylgir eign-
inni, sem er 31,8 ferm.
„Þetta er gott hús og mikið end-
urnýjað," segir Olafur Guðmunds-
son hjá Kjöreign. „Húsið er kjallari,
hæð og ris ásamt viðbyggðum bíl-
skúr. Það stendur ofan við götu með
lóð í suður og skiptist þannig að á
miðhæð er anddyri, snyrting, tvær
samliggjandi stofur og eldhús.
I risi er gott fjölskylduherbergi,
snyrting og gott svefnherbergi með
svölum út af. I kjallara er sérinn-
gangur og einnig innangengt í eíri
hæðir. Þar eru tvö rúmgóð her-
bergi, geymsla og þvottahús með
sturtuklefa. Eldhúsið er með viðar-
innréttingum og parketi á gólfí.
Snyrtingar eru með ljósum tækjum
og flísar á gólfum.
Helstu gólfefni eru flísar á for-
stofu og parket á stofum. I bílskúr
er gönguhurð út á lóð og hurðar-
opnari. Lóðin er falleg og útsýni er
yfir í Grafarvog. Ásett verð er 13,6
millj. kr.“
SOGAVEGUR
90 er til sölu
hjá Kjöreign.
Þetta er ein-
býlishús, sem
hefur verið
mikið endur-
nýjað og er
ásett verð
13,6 millj. kr.
MHaSBLW
SELJENDUR
■ SÖLUUMBOÐ - Áður en fast-
eignasala er heimilt að bjóða eign
til sölu, ber honum að hafa sér-
stakt söluumboð frá eiganda og
skal það vera á stöðluðu formi
sem dómsmálaráðuneytið stað-
festir. Eigandi eignar og fast-
eignasali staðfesta ákvæði sölu-
umboðsins með undirritun sinni á
það. Allar breytingar á söluum-
boði skulu vera skriflegar. I sölu-
umboði skal eftirfarandi koma
fram:
■ TILHÖGUN SÖLU - Koma
skal fram, hvort eignin er í einka-
sölu eða almennri sölu, svo og
hver söluþóknun er. Sé eign sett í
einkasölu, skuldbindur eigandi
eignarinnar sig til þess að bjóða
eignina aðeins til sölu hjá einum
fasteignasala og á hann rétt til
umsaminnar söluþóknunar úr
hendi seljanda, jafnvel þótt eignin
sé seld annars staðar. Einkasala á
einnig við, þegar eignin er boðin
fram í makaskiptum. - Sé eign í
almennri sölu má bjóða hana til
sölu hjá fleiri fasteignasölum en
einum. Söluþóknun greiðist þeim
fasteignasala, sem selur eignina.
■ AUGLÝSINGAR - Aðilar skulu
semja um hvort og hvemig eign
sé auglýst, þ.e. á venjulegan hátt í
eindálki eða með sérauglýsingu.
Fyrsta venjulega auglýsing í ein-
dálki er á kostnað fasteignasalans
en auglýsingakostnaður skal síðan
greiddur mánaðarlega skv. gjald-
skrá dagblaðs. Öll þjónusta fast-
eignasala þ.m.t. auglýsing er virð-
isaukaskattsskyld.
■ ÖFLUN GAGNA/SÖLU-
YFIRLIT - Áður en eignin er boð-
in til sölu, verður að útbúa söluyf-
irlit yfir hana. Seljandi skal leggja
fram upplýsingar um eignina, en í
mörgum tilvikum getur fasteigna-
sali veitt aðstoð við útvegun
þeirra skjala sem nauðsynleg eru.
Fyrir þá þjónustu þarf að greiða,
auk beins útlagðs kostnaðar fast-
eignasalans við útvegun skjal-
anna. I þessum tilgangi þarf eftir-
farandi skjöl:
■ VEÐBÓKARV OTTORÐ-Þau
kosta nú 900 kr. og fást hjá sýslu-
mannsembættum. Opnunartíminn
er yfirleitt milli kl. 10.00 og 15.00.
Á veðbókarvottorði sést hvaða
skuldir (veðbönd) hvíla á eigninni
og hvaða þinglýstar kvaðir eru á
henni.
■ GREIÐSLUR - Hér er átt við
kvittanir allra áhvílandi lána, jafnt
þeirra sem eiga að fylgja eigninni
og þeirra, sem á að aflýsa.
■ FASTEIGNAMAT - Hér er um
að ræða matsseðil, sem Fast-
eignamat ríkisins sendir öllum
fasteignaeigendum í upphafi árs
og menn nota m.a. við gerð skatt-
framtals. Fasteignamat ríkisins er
til húsa að Borgartúni 21, Reykja-
vík sími 5614211.
■ FASTEIGNAGJÖLD - Sveitar-
félög eða gjaldheimtur senda seðil
með álagningu fasteignagjalda í
upphafi árs og er hann yfirleitt
jafnframt greiðsluseðill fyrir
fyrsta gjalddaga fasteignagjalda
ár hvert. Kvittanir þarf vegna
greiðslu fasteignagjaldanna.
■ BRUNABÓTAMATS-
VOTTORÐ - Vottorðin fást hjá
því tryggingafélagi, sem eignin er
brunatryggð hjá. Vottorðin eru
ókeypis. Einnig þarf kvittanir um
greiðslu brunaiðgjalda. Sé eign í
Reykjavík brunatryggð hjá Húsa-
tryggingum Reykjavíkur eru
brunaiðgjöld innheimt með fast-
eignagjöldum og þá duga kvittan-
ir vegna þeirra. Ánnars þaif kvitt-
anir viðkomandi tryggingarfélags.