Morgunblaðið - 29.07.1998, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 3
Hrein íslensk
náttúruafurð
Verði ykkur að góðu
Takk fyrir mig
Ég er alltaf að rekast á tvífara
mína, hvert sem ég fer.
Það er greinilega léttara yfir
mannskapnum.
Minn tími er kominn, haldið
áfram að greiða mér atkvæði
með því að borða mikið
grænmeti.
íslenska greenmetisbrosið
Þetta sumarið hafa íslenskir garðyrkjubændur laumað léttum grænmetisáróðri að
landsmönnum. Við reynum að mestu að sleppa föðurlega áminningartóninum, en
höldum okkur þess í stað við einföld og skýr skilaboð um að grænmetisneysla auki
vellíðan til líkama og sálar og hver og einn verði að finna þessa tilfinningu hjá
sjálfum sér. Þetta virðist falla landanum vel í geð því neysla á íslensku grænmeti er
að snaraukast og er nú orðin með því mesta sem þekkist á Norðurlöndum. Verðlag á
íslensku grænmeti er nú fyllilega sambærilegt við hin Norðurlöndin, nýjar tegundir
líta dagsins Ijós og framtíð garðyrkju í landinu ætti að vera björt, jafnvel í dimmasta
skammdeginu, ef vel er hlúð að greininni. íslenskir garðyrkjubændur eru neytendum
afar þakklátir, mikil sala á íslensku grænmeti verður okkur að góðu, en ekki síður
ykkur. Það er það skemmtilegasta við íslenska grænmetið.
ÍSLENSK GARÐYRKJA
£aLtu/ |xc/i/ Etáa/ 'icX