Morgunblaðið - 29.07.1998, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Lóðamál rædd á fundi þriggja nefnda
47 lóðir und-
ir 172 íbúðir
eru lausar
TIL stendur að boða til fundar með
fulltrúum bygginganefndar, skipu-
lagsnefndar og umhverfisnefndar
um lóðaframboð á Akureyri og
tengdum málum.
Byggingafulltrúi lagði fyrir
skömmu fram yfirlit yfir lausar lóð-
ir á Akureyri en þar kemur fram að
alls eru 47 lóðir lausar undir bygg-
ingar 172 íbúða. Skiptingin er
þannig að um er að ræða 37 lóðir
fyrir einbýlishús, ein lóð með 5
íbúðum í rað- og parhúsum og 130
íbúðir á 9 fjölbýlishúsalóðum. Þá
eru lausar 4 lóðir fyrir iðnað/þjón-
ustu/verslun í Nesjahverfi, 1 lóð
fyrir verslun/íbúðir í Kiðagili og lóð-
ir fyrir verbúðir í Sandgerðisbót.
Skipulagsnefnd hefur óskað eftir
því við byggingafulltrúa að tekin
verði saman listi yfir lóðir sem þeg-
ar hefur verið úthlutað og ekki verið
Söngvaka
SÖNGVAKA verður í Minja-
safnskirkjunni á Akureyyri í
kvöld, fimmtudagksvöldið 30.
júlí. Flutt verða sýnishom úr
íslenskri tónlistarsögu, s.s.
rímur, tvíundarsöngur, sálm-
ar og eldri og yngri sönglög.
Flytjendur eru Kristjana
Arngrímsdóttir og Hjörleifur
Hjartarson. Dagskráin hefst
kl. 21 og stendur í klukku-
stund. Söngvökur ena öll
þriðjudags- og fimmtudags-
kvöld í Minjasafnskirkjunni í
júlí og ágúst.
Nornaseyður
í Deig'lunni
NORNASEYÐUR er nafn
djasshljómsveitar sem leikur
á heitum fimmtudegi í Deigl-
unni á fimmtudagskvöld, 30.
júlí, en hún hefur leikinn kl.
21.30.
Það eru þeir Hilmar Jens-
son, gítar, Óskar Guðjóns-
son, saxófón, Eyþór Gunn-
arsson, píanó, Snorri Sig-
urðsson, trompet, Guðni
Finnsson, bassa, og Ólafur
Björn Ólafsson, trommur,
sem skipa Nornaseyð. Nafn-
ið er fengið að láni af plötu
hins heimsþekkta djassleik-
ara Miles Davis, Bitches
Brew, en nær 30 ár eru nú
liðin frá því hún sló í gegn.
Sú plata ásamt „In a Silent
Way“, sem hann hljóðritaði
ári áður, markaði upphaf
þess tímabils sem oft er
kennt við djassrokk. Hljóm-
sveitin ætlar að halda upp á
30 ára afmælið með því að
bjóða til djassveislu í Deigl-
unni og rifja upp stemmn-
ingu með lögum úr þessari
smiðju.
lokið byggingu á og hver staða
framkvæmda á þessum lóðum sé.
Einnig vill nefndin að kannaðir
verði nýir byggingamöguleikar í
þegar byggðum hverfum.
Úrvalið þarf að
vera fjölbreytt
Knútur Karlsson, formaður
bygginganefndar, sagði að þær lóðir
sem væru lausar væru aðallega í
Gilja- og Síðuhverfi. Hann sagði
nauðsynlegt að bjóða upp á fjöl-
breytt úrval lóða fyrir allar gerðir
húsa. Staðan væri svo nú að vantaði
lóðir fyrir einnar hæðar raðhús, en
á næstunni rennur út frestur til að
gera athugasemdir við nýtt skipu-
lag byggingahverfis á Eyrarlands-
holti, sunnan Verkmenntaskólans.
Þar munu bjóðast lóðir fyrir slíka
húsagerð.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Dyttað að prinsessunni
FARÞEGARNIR á skemmtiferðaskipinu Royal
Princess þustu upp í rútur og skoðuðu Mývatn og
Goðafoss og sumir brugðu sér í miðbæ Akureyrar
og keyptu sér kaffi og minjagripi, en á meðan not-
uðu starfsmennirnir túnann og dyttuðu svolítið að
prinsessunni.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Ungir þyrlusmiðir
BÖRNIN sem sækja smíðavöllinn
í Innbænum eru afar ánægð, en
þar er smíðað af kappi tímunum
saman. Flestir eru að smiða sér
þak yfir höfuðið og rísa nú kof-
arnir hver á fætur öðrum, en
þessir ungu drengir höfðu aðeins
háleitari hugmyndir og réðust í
það stórverkefni að smíða sér
þyrlu.
Áfengis- og vímuvarnanefnd og foreldravaktin
Vakt öll kvöld um
verslunarmannahelgina
ÁFENGIS- og vímuvamanefnd
Akureyrar og foreldravaktin á
Akureyri vilja hvetja foreldra til
að fylgja börnum sínum og ung-
mennum eftir á ferðalögum og
skemmtunum um verslunar-
mannahelgina.
Foreldravakt verður á Akur-
eyri föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld og verður farið
frá lögreglustöðinni á miðnætti öll
kvöldin Kristín Sigfúsdóttir, for-
maður áfengis- og vímuvarna-
nefndar, og Vigdís Steinþórsdótt-
ir, forstöðumaður foreldravaktar-
innar, vilja hvetja foreldra og for-
ráðamenn til að taka þátt í vakt-
inni eitthvert kvöldið en hægt er
að skrá þátttöku hjá lögreglunni
en einnig er hægt að koma á stöð-
ina skömmu fyrir miðnætti og
bjóða fram krafta sína. Bjóða þær
fólk úr nærliggjandi sveitarfélög-
um sérstaklega velkomið til sam-
starfs.
Nauðsynlegur hlekkur
Foreldravaktin er nauðsynlegur
hlekkur milli lögreglu og bama-
vemdarstarfs, við að hindra slys,
aðstoða illa stödd ungmenni og
fylgja útivistarreglum eftir. Úti-
vistarreglur á Akureyri heimila
þeim sem ekki era orðnir 16 ára að
vera úti til miðnættis nema þeir
séu í fylgd með fullorðnum eða á
viðurkenndum skemmtunum fyrir
börn og unglinga.
Þrjár sýningar
KRAUMANDI listalíf verður á
Akureyri frá fimmtudegi og sam-
fellt næstu daga.
Listadagar ungs fólks hefjast í
Deiglunni á fóstudag en á döfinni
era m.a. myndlistarsýningar, tón-
listaratriði og fleira.
Þrjár myndlistarsýningar verða
opnaðar á laugardag, Krossgötur í
Ketilhúsinu, en þar er um að ræða
samsýningu Sólveigar Baldursdótt-
ur, Guðrúnar Pálínu og Hrefnu
Harðardóttur. Jónas Viðar opnar
sýningu í Galleríi Svartfugli og Guð-
brandur Siglaugsson opnar í Ljós-
myndakompunni.
Aksjón
Miðvikudagur 29. júlí
21 .OOÞSumarlandið Þáttur fyrir
ferðafólk á Akureyri og Akureyringa í
ferðahug.
Fullbókað í sýningarbása á Handverki ‘98 á Hrafnagili
Fjögurra daga hátíð
haldin á Hrafnagili
FJÖGURRA daga handverkssýn-
ing, Handverk ‘98, verður sett á
Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit 13.
ágúst næstkomandi og er þetta
sjötta árið í röð sem efnt er til hand-
verkssýningar síðsumars á Hrafna-
gili. Fullbókað er í alla sýningar-
bása. Að jafnaði hafa á bilinu sex til
átta þúsund manns sótt sýningam-
ar.
Handverk ‘98 er sölusýning á
handverki en þar er að finna á ein-
um stað framleiðslu handverksfólks
ails staðar að af landinu. Framþró-
un í handverki er hröð og er hand-
verk óðum að sækja sig sem at-
vinnugrein hér á landi, líkt og í öðr-
um löndum. Til að kynnast hand-
verld í nágrannalöndunum mun
sýningargestum einmitt gefast
tækifæri á að hlýða á fyrirlestur og
sjá myndasýningu Guðrúnar Höddu
Bjarnadóttur sem nýkomin er af
handverkssýningu í Gautaborg í
Svíþjóð.
Tileinkað íslenska hestinum
Sýningin nú verður tileinkuð ís-
lenska hestinum en sú nýbreytni er
nú teldn upp að tengja sýninguna
hverju sinni tilteknum atburði eða
öðru úr íslensku mannlífi. Þótti vel
við hæfi á þessu sumri sem Lands-
mót hestamanna var haldið í Eyja-
fjarðarsveit að undirstrika hversu
snar þáttur íslenski hesturinn hefur
verið í þjóðfélaginu um aldir og
tengja hann handverki um leið.
Fullbókað er í aðalsýningarsalinn
í íþróttahúsinu á Hrafnagili, en að
auki verður settur upp útigarður
þar sem heimilisframleiðsla af ýmsu
tagi verður seld. Enn era til lausir
básar á útisvæðinu. Þar verður
einnig veitingatjald sem jafnframt
verður vettvangur ýmissa viðburða.
Auka veg og virðingu handverks
Handverk ‘98 verður sett síðdegis
á fimmtudag, 13. ágúst og verður
sýningin opin til kl. 21. Valgerður
Sverrisdóttir alþingismaður setur
sýninguna. Guðrún Hadda Bjama-
dóttir flytur fyrirlestur og sýnir
myndir kl. 10.30 á föstudag um
handverkssýningu í Gautaborg.
Sýningin verður opin frá kl. 12 til 21
á föstudag og sama tíma á laugar-
dag, en á sunnudag verður opið frá
kl. 12 til 19. Grillveislur verða alla
sýningardagana kl. 17.30 við veit-
ingatjaldið og á laugardagkvöld
verður haldin þar uppskerahátíð
þar sem veittar verða viðurkenning-
ar til þeirra handverksframleiðenda
sem dómnefnd telur skara fram út.
Handverkshátíðin sem fyrst var
haldin 1993 er afsprengi átaksverk-
efnis í atvinnumálum sem Eyja-
fjarðarsveit tók þátt í ásamt þremur
öðrum sveitarfélögum við austan-
verðan Eyjafjörð, en frá upphafi
hefur verið lögð rík áhersla á að
auka veg og virðingu handverkssýn-
inganna.