Morgunblaðið - 29.07.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 1 5
VIÐSKIPTI
Bell Atlantic kaupir GTE
fyrir 53 milljarða dollara
New York. Reuters.
BELL Atlantic Corp., stærsta
landshlutasímafélag Bandaríkj-
anna, hefur samþykkt að kaupa
GTE Corp., stærsta óháða svæðis-
og langlínufélagið, fyrir 52,8 millj-
arða Bandaríkjadala í hlutabréfum,
að sögn talsmanna fyrirtækjanna.
Samruninn er síðasti liðurinn í
örri samþjöppun í fjarskiptaiðnaði
Bandaríkjanna. Með honum verður
stofnað tröllaukið símafélag, sem
mun ráða lögum og lofum á einum
þriðja svæðisbundna símamarkað-
arins í Bandaríkjunum og starfa í 41
ríki.
Tilkynningin staðfestir orðróm,
sem hefur verið á kreiki í nokkra
daga og kemur í kjölfar tilkynning-
Frú Murdoch
sækir um
skilnað
New York. Reuters.
ANNA Murdoch hefiir sótt um
skilnað frá stjómarformanni News
Corp., Rupert Murdoch, og verið
getur að hann glati hluta þess sem
fjölskylda hans á í fjölmiðlafyrir-
tækinu.
Þrír mánuðir eru síðan hermt var
í slúðurdálki New York Post að
Murdoch hjónin væru skilin að
borði og sæng eftir 31 árs hjóna-
band. Anna Murdoch gegnir
ábyrgðarstöðu í News Corp. og
kann að fá allt að 50% af 9 milljarða
dollara hlut fjölskyldunnar í fyrir-
tækinu. Hvort hún fer fram á slíkt
er óljóst.
ar um stofnun 10 miiljarða dollara
símabandalags AT&T Corp.,
stærsta langlínufélags Bandaríkj-
anna, og British Telecommun-
ications Plc.
Fyrir átta vikum samþykktu tvö
önnur „Baby Bell“ landshlutasíma-
félög, SBC Communications Inc.
og Ameritech Corp 61 milljarðs
dollara samruna. Sjálft var Bell
Atlantic keypt af Nynex Corp.,
sem gerði félagið að voldugasta
svæðisbundna símafélaginu frá
Maine til Virginíu.
Fram úr keppinautum
„Þar með fær Bell Atlantic álíka
mikið umfang og SBC stefnir að og
skýtur öllum öðrum aftur fyrir sig,“
sagði sérfræðingur ráðgjafarfyrir-
tækisins TeleChoice Inc.
Með samningnum fær Bell Atl-
antic aðgang að hluta langlínuþjón-
ustu GTE og færi á að auka gagna-
flutninga og alnetsviðskipti um
kerfi GTE.
Lögum samkvæmt geta Baby
Bell félögin fjögur ekki boðið lang-
línuþjónustu í landshlutum sínum
nema þau opni markaði sína fyrir
samkeppni. Hingað til hafa alrflds-
yfirvöld hafnað umsóknum allra Ba-
by Bell-félaganna um að halda uppi
langlínuþjónustu, þar sem þau hafi
ekki enn opnað markaði sína.
Með samningnum fær GTE að-
gang að hinum ábatasama markaði
á austurströndinni og tengist hnatt-
rænu ljósþráðaneti Bell Atlantic.
Hlutabréf í GTE lækkuðu um
3,75 dollara, í 52 dollara, og bréf í
Bell Atlantic lækkuðu um 75 sent, í
44,25 dollara.
SAMRUNl BELL ATLANTIC OG GTE
Bell Atlantic hefur samþykkt að kaupa GTE fyrir 55 milljarða
dollara í hlutabréfum. Þar með sameinast stærsta
landshlutasímafélag Bandaríkjanna og stærsta óháða,
innsvæða- og langiínusímafélag landsins
Yfirráð yfir svæðisbundum símamarkaði
Bell Atlantic Corp
©BeJJAtlantic
53,9 milljaröa $ Heildarfjármunir
30,5 milljarða $ Rekstrartekjur
29.sæti 1998 Fortune-listi
142.000 Starfsmenn
7,3 milljón Viðskiptavinir
Hawaii
Til samans munu
félögin halda uppi
þjónustu á einum
þriðja innansvæða-
og langlínumarkaðar
Bandaríkjanna.
Eftirlitsyfirvöld munu
taka málið til
rækilegrar athugunar
42,14 milljaröa;
23 milljarða $
49. sæti
114.000
8 milljón
fJFJ!' »
ílOIIL"!
www.mbl.is
ALOE VERA
Ga i
98% hreint
ALOE VERA húðgel.
Nærandi, styrkjandi
og rakagefandi
Naturlægemiddel
MT nr. 6145493
Útsölustaðír:
Stella Bankastræti, Hygea Kringlunni,
Laugavegi og Austurstræti, Kaupf.
Skagfirðinga, Stjörnuapótek Akureyri,
Vestmannaeyjaapótek, Laugarnes-
apótek, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ.
Einnig fæst ALOE VERA
sjampó fyrir hár og húð, krem,
lotion, varasalvar, 2 gerðir og
sólkrem.
NÝTT NÝTT
a) Fljótandi sápa með pumpu.
b) *Creme Xtreme* dag og
næturkrem.
c) Lotion 500 ml brúsi með
pumpu.
dStella
Bankastræti 3, sími 551 3635.
Póstkröfusendum
Ef þú drekkur og keyrir ekki ertu algjör
láttu ekki UUgnflblÍks kæruleysi eyðileggja lífþitt
Q
Ui
2
iD
ÍSLANDSBANKI
®TOYOTA
Tákn um gceði
UMFERÐAR >
RÁÐ