Morgunblaðið - 29.07.1998, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 29.07.1998, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 21 LISTIR Undrun vekur hvað hægt er að gera úr timbrinu f PERLUNNI lýkur á fóstudag- inn sýningu Magnúsar Th. Magnússonar, Tedda, en und- anfarnar vikur hefur staðið yf- ir sýning hans á tréhöggmynd- um, sem unnar eru úr margvís- legum efnivið. Yrkisefni sín sækir Teddi til sjómennskunn- ar og annarra sviða mannlifsins og segist hann hafa nóg að gera við að svara forvitnum ferðalöngum, sem spyrji sig mikið út í verkin. „Þeir eru hissa yfír því hvað hægt sé að gera úr timbrinu og mér sýnist Þjóðverjarnir hafa gleggsta augað fyrir formi verkanna, hvernig sem á því stendur,“ segir Teddi. Hann vinnur jöfn- um höndum í harðvið og mýkri við og segir auðveldast að vinna í rauðviðinn og sýpru- sviðinn auk íslenska birkisins og reynisins. Úr ísólfsskála í Grindavík hefur Tedda áskotn- ast timbur úr gömlum sfldarbát og er verkið Tvíeyki meðal annars unnið úr því. „Sýrurnar sem láku úr nöglunum í viðinn á löngum tíma hafa litað hann og gefið honum skemmtilega áferð og sumir trúa því ekki þegar ég segi þeim að ég hafi ekki litað hann sjálfur.“ Vinnslutími verkanna er mis- langur eftir efniviðnum og seg- ir Teddi að tegundirnar séu mismunandi kröfuharðar. „Járnviðurinn er til að mynda erfiður sökum hörkunnar og á hann þarf keðjusagir og önnur áþekk verkfæri. Harðviðurinn er allur eins í forminu og því ræður það ekki eins miklu um endanlega útkomu verksins í samanburði við mýkri viðinn. Oft er er ég búinn að sjá hvað kemur út úr mjúkum viðarbút áður en ég byrja að vinna með hann og dreg aðeins út lögun hans og línur, en læt form hans ráða sér að mestu sjálft." Á þessu ári tók Teddi þátt í tveim samsýningum erlendis og er annarri þeirra nýlokið á Aruka á Kanaríeyjum en hinni lauk í aprfl í Þýskalandi. „Ég tek mér nú frí fram til hausts- ins og byija þá aftur af fullum krafti, enda er ég gamall mað- ur á uppleið," segir Teddi að lokum. Morgunblaðið/Jim Smart MÓÐIR I eftir Tedda. Morðið á bókasafninu ERLEIVDAR BÆKUR Spennu.saga Lawrence Block: Þjófurinn á bóka- safninu „The Burglar in the Libr- ary“. Signet 1998. 358 síður. ÞEIR eru ófáir sakamálahöfund- arnir sem gengið hafa í smiðju drottningar glæpasagnanna, Agöt- hu Christie. Eitt af því sem hún hafði hvað mest gaman af að gera var að safna saman skrautlegum einstaklingum á afvikinn stað og láta einn eða fleiri týna lífi með vo- veiflegum hætti svo ljóst varð að morðingi væri í hópnum og jafnvel morðingjar. Var það síðan verkefni viðstaddra að hafa uppi á morðingj- anum en svo heppilega vildi til að oft var Belgi að nafni Poirot að þvælast um þessa staði og safnaði hópnum saman í setustofunni eða matarvagninum (einu sinni var hann um borð í lest) og benti af sín- um kurteislega hofmóði á hver væri morðinginn. í smiðju Agöthu Christie Bandaríski spennusagnahöfund- urinn Lawrence Block gerir ná- kvæmlega þetta í nýjustu bók sinni, Þjófnum í bókasafninu eða „The Burglar in the Library", sem gefin var út í vasabroti í sumar. Block hefur skrifað eitthvað á fjórða tug Hádegistón- leikar Dóm- kirkjunnar KÁRI Þormar nýráðinn org- anisti við Kópavogskirkju heldur há- degistónleika í Dómkirkj- unni í Reykjavík í dag, miðviku- dag, frá kl. 11.30-12 og verður bæna- stund í lokin. A efnis- skránni eru verk eftir Bach og Pál ísólfsson. Kári Þonnar hefur stundað nám í Dússeldorf í Þýskalandi sl. ár. bóka og er verðlaunaður höfundur. I þessari sögu fer hann svo ná- kvæmlega eftir uppskrift Agöthu að það verður fyndið, enda gerir hann sér auðvitað fullkomlega grein fyrir hvert hann sækir efniviðinn og er með ófáar beinar tilvísanir 1 glæpa- sagnadrottninguna; á einum stað leggur Block jafnvel til að saga hans sé eins konar sambland af Músagildrunni og Tíu litlum negra- strákum. Að vísu hefur hann engan belgískan snuðrara með sér en hann hefur bókelskan innbrotsþjóf að nafni Bernie Rhodenbarr, sem verður að duga. Hann er talsvert lunkinn áhugaspæjari eins og hann segir sjálfur og ástæðan fyrir því að hann er á morðstaðnum til þess að byrja með er fágætt eintak af Svefninum langa eða „The Big Sleep“ eftir Raymond Chandler. Rhodenbarr selur bækur á milli þess sem hann fer í innbrotsleið- angra og hann hefur komist að því að til er eintak af Svefninum langa sem Chandler áritaði til kollega síns, Dashiells Hammetts. Eintakið er einstaklega verðmætt því Chandler var ekkert mikið að árita bækur sínar og sérstaklega ekki fyrir Hammett og þjófurinn og bók- salinn Rhodenbarr telur upplagt að næla sér í eintakið. Hann hefur komist að því að það er niðurkomið á bókasafni gamals sveitaseturs á austurströnd Bandaríkjanna sem • Erotisches Island er eftir Gu- drun M.H. Kloes. Petta er fjórða Islandsbók höfundar og kemur samtímis útí enskri þýðingu undir heitinu Erotic Iceland. Gudrun, sem skrifar á móður- máli sínu, þýsku, hefur búið á ís- landi síðan 1982. Kynni hennar af landinu leiddu til bókar með rúmlega 140 blaðsíðum og ótelj- andi „fýsnum milli línanna" sem vilja láta uppgötva sig. I kynningu segir m.a.: „Bókin lýsir ferð um djúp og grynningar mannlegra samskipta, um fyrir- heit ástleitninnar þar sem snark- ar í samdrættinum, vonbrigðun- um og fækkandi fötum. Hvernig athöfnuðu hetjur fornsagnanna sig? Hverju lofa ævintýrin? Hvernig lýsa íslenskir nútímahöf- undar rúmsenum, draumórum og kynferðislegum tómagangi? ... gert hefur verið upp og breytt í hót- el og hann fer þangað með vinkonu sinni. Á hótelinu eru nokkrir gestir, langt er til mannabyggða, snjórinn fellur sem aldrei fyrr og áður en Rhodenbarr getur svo mikið sem tekið upp úr töskunum hefur þrennt gerst sem kemur honum illa: Maður finnst myrtur á bókasafninu, stað- urinn verður símasambandslaus og það er engin leið að komast til byggða því mikilvæg brú hefur ver- ið eyðilögð. Rétta andrúmsloftið Þrátt fyrir alla Christie-eftirlík- inguna fær Rhodenbarr þá tilfinn- ingu að málið sé meira í líkingu við þau sem Philip Marlowe fékkst við. Það er þó aðeins sýndarmennska. Þjófurinn í bókasafninu er Christie- saga út í gegn og nokkuð skemmti- lega samin af Lawrence Block. Helsti gallinn er sá að hún er of löng. Það fer alltof langur tími í kjaftæði sem óhætt hefði verið að stytta um helming. Auk þess eru eitt eða tvö hliðarplott fulllangsótt. En það er gamansamur og léttur tónn í sögunni og Block tekst að ná þessu andrúmslofti sem Christie skapaði með skemmtilegu sögu- sviði, persónum er hafa sitthvað að fela og morðgátu sem hæfilega gaman er að sjá leysta. Þetta er for- múla út í gegn en Block tekst að vinna með hana á viðunandi hátt. Arnaldur Indriðason. Hvenær var fyrsti fatafellu- staðurinn opnað- ur í Reykjavík og hvað á þetta ís- lenska reðasafn að þýða? Og hvað þótti ósæmilegt sautjánhund- ruðogsúrkál?" Julian Thorsteinson þýddi bókina á ensku. Þorbjörg Höskuldsdóttir myndskreytti bæði þýsku og ensku útgáfuna. Ljósmynd á kápu er eftir Pál Stefánsson. Bækurnar (Erot- isches Island, 143 bls. og Erotic Iceland, 141 bls.) eru prentaðar í Steinholti. Prentþjónustan sá um filmuvinnu og Flatey bókband. Verð er 1.490 krónur. Útgefandi er Ormstunga. Kári Þormar Nýjar bækur Kalt kryddstnjör í sneiðum á laxinn Brætt kryddsmjör penslað á kjúklinginn Rjóntaostur í pylsubrauðið undir heita grillaða pylsu Rifinn maribo á hamborgarann Sneið af 26% osti á hamborgarann Bræddur og grillaður, sneiddur eða rifinn ostur, rjómaostur, gráðaostur - fáðu þér ost og notaðu hugmyndaflugið. Ostur er toppurinn á grillmatnum í sumar! Ostur í allt sumar ÍSLENSKIR - OSTAK í wfm •T Sl www.ostur.is iBBTCBBli HVlTA HÚSIÐ / SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.