Morgunblaðið - 29.07.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
q
w
>
V
!
i
>
i
I
>
I
I
I
I
>
>
h
9
>
>
i
>
>
>
>
AÐSENDAR GREINAR
Ef þú ert foreldri ung-
lings á ég erindi við þig
í HÖND fer mesta
ferðahelgi ársins.
Margar freistandi úti-
skemmtanir eru í boði
fyrir unglinga. I eyr-
um margra foreldra
hljómar: Allir vinir
mínir fá að fara, af
hverju ekki ég? Ekki
er víst að þetta sé
sannleikanum sam-
kvæmt. Og þó að vin-
imir fari er ástæða til
að þú leyfír þínum
unglingi að fara? Ef
þú ert í vafa hvet ég
þig til að láta ekki
undan þrýstingnum.
Unglingar vilja um-
hyggju og þú sýnir hana best með
því að vera ábyrgt foreldri. Ein
besta vöm gegn neyslu áfengis og
annarra vímuefna er eftirlit og að-
hald foreldra. Því stærri hlut sem
fjölskyldan á í lífí unglings, þeim
mun færari er hann um að standa
gegn þrýsting umhverfísins á að
hefja neyslu.
Nokkrar staðreyndir
Á útisamkomum er áfengi og
önnur vímuefni höfð um hönd. Arið
1996 komu 34 unglingar 16 ára og
yngri til meðferðar á Vogi. I ný-
legri könnun kemur fram að rúm-
lega 80% 15 ára unglinga hafa
neytt áfengis og 20% 13 ára.
Einnig segjast nokkrir nemendur í
8. bekk (14 ára) hafa reynt hass,
amfetamín, LSD, kókaín og E-töfl-
una. Langvarandi notkun á
hassi/grasi veldur þunglyndi og
rekja má nokkur sjálfsvíg hér á
landi til eftirkasta E-töflunnar.
Rannsóknir sýna að því meiri tíma
sem fjölskylda ver
saman því minni líkur
em á að unglingurinn
leiðist út í vímuefna-
neyslu. Flestir ung-
hngar byrja að drekka
yfír sumatímann. Á
hverju sumri verða
margar ótímabærar
þunganir eftir slíkar
„helgarskemmtanir“.
Nauðganir era kærðar
og vitað er um fleiri.
Sumar stúlkurnar
treysta sér ekki til
þess að kæra því þær
vora ölvaðar þegar
misþyrmingin átti sér
stað.
Hvað er til ráða?
Fjölskylda sem veitir unglingn-
um gott eftirlit og mikinn stuðning
vinnur á sinn hátt að forvömum.
Rannsóknir sýna, segir
G. Erla Geirsdóttir,
að þvi meiri tíma sem
fjölskylda ver saman
því minni líkur eru á
að unglingurinn leiðist
út í vímuefni.
Umhyggja felst m.a. í því að for-
eldrar hafi vit fyrir börnum sínum.
Fylgist með hvar þau era í frítíma
sínum, sérstaklega á kvöldin. Setj-
ið unglingum skýrar reglur og sjá-
ið til að þeim sé framfylgt. Hafið
samband við foreldra vina þeirra,
til að sammælast um útivistartíma
og önnur boð og bönn. Unglingur á
grunnskólaaldri hefur ekkert að
gera án eftirlits foreldris á útihátíð.
Eyðum öllum þeim tíma sem við
getum með bömunum okkar, sam-
verastundirnar þurfa ekki að vera
skipulögð skemmtidagskrá. Bíó-
ferð eða að horfa á sjónvarp saman
gerir sitt gagn. Höfum í huga að
unglingar sem taka þátt í íþróttum
og öðra skipulögðu tómstunda-
starfí era mun ólíklegri til að lenda
í vímuefnaneyslu enn hinir.
Vinnuskólinn og forvamir
Góður árangur í forvömum næst
ef allir sem koma að uppeldi ung-
linga vinna að þvi sama markmiði.
Með það í huga ákváðu borgaryfir-
völd fyrir þremur áram að veita
veralegt fé til forvamarstarfs inn-
an Vinnuskóla Reykjavíkur. Allir
unglingar sem þar vinna fá eins
dags vímuefnafræðslu á sumri. Til
þess era ráðnir unglingar á vegum
Jafningjafræðslunnar. Unglingarn-
ir beina kröftum að jafnöldram sín-
um til að hafa áhrif á viðhorf þeirra
til vímuefnaneyslu, gera neysluna
neikvæða og hallærislega og draga
upp jákvæða mynd þess að
skemmta sér án vímuefna. Þetta er
eitt af úrræðum borgarinnar til að
vinna að markmiðinu Evrópuborg-
ir án eiturlyfja 2002 sem Reykja-
víkurborg, ríkisstjómin og samtök
Evrópuborga standa saman að.
Að lokum vona ég að þú eigir
margar ánægjulegar stundir með
unglingnum þínum í framtíðinni.
Höfundur er myndmenntakennari
og stjórnarformaður Vinnuskóla
Reykjavíkur.
G. Erla
Geirsdóttir
Tilhugalíf
LAUGARDAGINN
4. júK sl. birtist við-
talsgrein í Morgun-
blaðinu með upplýs-
ingum höfðum eftir
settum ráðuneytis-
stjóra í iðnaðarráðu-
neytinu, sem er jafn-
framt forsvarsmaður
Islands í viðræðum við
Norsk Hydro. Greinin
nefnist „Búist við
ákvörðun um fram-
haldið í lok septem-
ber“. Þar segir að við-
ræður „vegna hugsan-
legs álvers norska fyr-
irtækisins Norsk
Hydro hér á landi séu
enn í gangi í fullri alvöra ...“ Síðan
er fjallað um kostnað og „að baki
sé sú hugsun að þessar fram-
kvæmdir verði algjörlega á við-
skiptalegum granni...“ Síðan segir
forsvarsmaður Islands um viðræð-
umar: „Eg hef stundum líkt þessu
við það þegar ungt fólk er að draga
sig saman. I sjálfu sér veit enginn í
byrjun hvort eitthvað verður úr en
eftir því sem lengra líður fá menn
skýrari mynd af því hvort um
framhald verður að ræða eða
ekki... Ef halda mætti þessari
samlíkingu áfram yrði eitthvað,
sem mætti líkja við trúlofun, á fyrri
hluta næsta árs, ef niðurstöður úr
öllum þessum athugunum verða já-
kvæðar - þ.e. fjármögnunarmögu-
leikar og eignaraðild að orkulind-
um og væntanlegu álveri -. En það
er aðeins lengra í giftinguna,"
sagði Þórður Friðjónsson. For-
svarsmaðurinn lýkur viðtalinu:
„Báðir aðilar era að vinna af heil-
um hug, með það markmið að leið-
arljósi"; þ.e. að „nýta“ kvóta ís-
lands samkvæmt Kyoto- samkomu-
laginu til þessa verkefnis. Sumir
telja að sá kvóti sé svo til þegar
nýttur, eins og marka
má af síendurteknu
kvaki formanns Fram-
sóknarflokksins eftir
meiri eiturkvóta fyrir
Island á málþingum og
fundum sem hann
sækir sem utanríkis-
ráðherra og réttlætir
þetta bónarkvak sitt
með því sem hann
nefnir nauðsyn f slands
vegna „lítils hagkerfís"
en það einkennilega
hugtak virðist mega
rekja til takmarkaðs
skilnings utanríkisráð-
herra á hagfræðihug-
tökum í enskri tungu.
En eins og málin standa nú sam-
kvæmt upplýsingum forsvars-
manna íslands við viðræðunum við
Norsk Hydro, sem er að meiri
hluta eign norska ríkisins, benda
allar líkur til að vænta megi bráð-
lega tilkynningar um „opinberun
íslenska ríkisins og Norsk Hydro“.
Þessi opinberan er vel undirbúin
Siglaugur
Brynleifsson
og hefur undirbúningur gengið
hratt fyrir sig, með samþykkt
þriggja lagabálka um hálendi ís-
lands og tillögur forsætisráðherra
um 12 ára framkvæmdaáætlun
fyrir þá aumu landsbyggð og svo
er nægilegt fjármagn í stærsta
banka landsmanna, sem er ríkis-
eign.
Má vænta, spyr Sig-
laugur Brynleifsson,
opinberunar íslenzka
ríkisins og Norsk
Hydro?
Það er því eðlilegt að forsvars-
maðurinn sé bjartsýnn ekki aðeins
á opinberunina heldur einnig á
giftinguna. Og með þeim ráðahag
má sjá fram á að stærstu og ein-
stökustu víðerni Evrópu, vesturör-
æfí, verði „nýtt“ til eflingar því
„litla hagkerfi" sem skuldbundnum
staðgengli forsætisráðherra verður
svo tíðrætt um, ekki síst ef beiðn-
um hans um aukinn eiturkvóta ís-
lands verður sinnt.
Höfundur er rithöfundur
PABBI/MAMMA
allt fyrir nýfædda barnið
ÞUMALÍNAs. 551 2136
Fákafeni 9
sími 5682866
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1998 29
Þakka heimsóknir, gjafir, blóm og heilla-
skeyti á 90 ára afmæli mínu.
Jóhann Gunnar Stefánsson,
Aragötu 6.
^Oðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanlr—tðnleikar—sýningar—kynningar og í. og fl. og fl.
tofipsð - ws88Ö6J5f©yM .
og ýmsir fylgihlutir
staðinn - það mörg borgór sig.
Tjöid af öllum stœröum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
fjaldhitarar.
'®Mm sBsáía
..méð skátum á !'.oimavelli
sM 562 1390 • rax 552 6377
Stórútsala í Sportbúð Kópavogs
næstu daga
Hamraborg 20a, sími 554 1000
SÍÐAN 1972 ÍSLENSKAR GÆÐA MÚRVÖRUR Á GÓÐU VERÐI
EÐALPÚSSNING
MARGIR LITIR
■1 1 1 ■ ■ m mm m stempryði STANGARHYL 7, SÍMI 567 2777
BORGARBYGGÐ
Aðalskipulag Borgarbyggðar
1997-2017
Tiliaga að aðalskipulagi Borgarbyggðar 1997-2017 var
auglýst samkvæmt ákvæðum skipulagslaga 14. mars
1998 og rann frestur til að skila athugasemdum út 29.
maí 1998. Alls bárust átta athugasemdir við skipulags-
tillöguna.
Vegna athugasemdanna gerði Skipulags- og bygginga-
nefnd nokkrar minniháttar breytingar á skipulagstillög-
unni. Vegna athugasemdar um að merkingu vantaði á
núverandi tjaldsvæði var sú merking sett inn á skipulags-
uppdrátt enda brýtur hún ekki í bága við það skipulag
sem sýnt er á uppdráttunum. Vegna athugasemdar um
að landamerki jarðarinnar Bjargs í Borgarnesi séu ekki að
fullu sýnd á skipulagstillögunni var Skipulags- og bygg-
inganefnd sammála um að þau yrðu sýnd að fullu m.t.t.
heildarsamræmis í skipulagstillögunni .
Bæjarstjórn Borgarbyggðar tók tillögu að aðalskipulagi
Borgarbyggðar 1997-2017 með ofannefndum breyting-
um til lokaumræðu á fundi sínum 13. júlí sl. og var hún
samþykkt með 5 atkvæðum en fjórir sátu hjá. Tillagan
hefur verið send skipulagsstofnun og umhverfisráðherra
til staðfestingar.
Bókun bæjarstjórnar um athugasemdir og afgreiðslu
þeirra hefur verið send þeim sem gerðu athugasemdir við
skipulagstillöguna.
Bæjarstjóri Borgarbyggðar
*