Morgunblaðið - 29.07.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.07.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 33 HELGISTEINAR JÓHANNESSON + Helgi Steinar Jóhannesson fæddist í Vest- mannaeyjum 5. mars 1995. Hann lést í Landspítalan- um 22. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Svandís Ge- orgsdóttir, fædd í Vestmannaeyjum 21. ágúst 1965, bú- sett í Reykjavík, sambýlismaður hennar er Ögmund- ur G. Matthíasson, fæddur í Reykjavík 10. janúar 1968, og Jóhannes Harðarson, fæddur í Reykjavík 9. feb. 1967, ólst upp í Hvera- gerði, búsettur í Reykjavík. Bróðir Helga Steinars er Hörð- ur Jóhannesson fæddur 7. nóv- ember 1990. Útför Helga Steinars fer fram frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Kveðja frá mömmu Pótt örlaganornin fast þér héldi þú lést ei bugast, þú áfram stefndir að þínu marki sem þú einn vissir, hreyfigetan var þér enginn missir. Þú brást eins og hetja við hindranir háar pestir og flensurnar vor’ ekki fáar. Mikið var lagt á svo lítinn mann. „Nú er nóg komið.“ Hvað þolir hann? Enn efinn er hindrun, það segir sig sjálft, er trúin var sterkust, þá ekkert brást ófáum lærdómi á okkur hlóðst, allar þær prófraunir sem að þú stóðst. fyrir mér og honum, því frá þeim degi hafið þið átt ykkar fasta sess í hjarta mínu. Þú varst aðeins 5-6 mánaða þegar ljóst varð að þín ævi yrði ekki löng. Það er erfitt fyrir foreldra að fá slíkan úrskurð en dugnaður mömmu þinnar var einstakur og fyrir það hve vel hún og Oddi og Jói pabbi þinn og Fjóla amma þín hugsuðu um þig fengum við að hafa þig heldur lengur en upphaflega var reiknað með. Þessi rúmlega þrjú ár sem við fengum með þér hafa gert okkur miklu ríkari en áð- ur, því þú varst svo einstakur. Þú varst alltaf glaður og kátur þrátt fyrir þína miklu líkamlegu fötlun og það var alveg ótrálegt hvað þú varst laginn við að nota þennan litla mátt sem þú hafðir. Svo hafðir þú alveg einstaka persónutöfra, þú heillaðir alla upp úr skónum strax við fyrstu kynni. Það er erfitt til þess að hugsa að ég heyri ekki oft- ar kallað: „Ita amma, íta amma, kondu, sjáðu.“ Yndislegi sólargeislinn minn, þakka þér fyrir samveruna og þá birtu er þú veittir inn í líf mitt og minnar fjölskyldu. Ég veit að nú hleypur þú um frískur og sterkur og fjötrarnir er bundu þig hér há þér ekki lengur. Megi góður Guð blessa og styrkja foreldra þína, Ödda fóstra þinn, Hörð bróður þinn og alla þá er nú syrgja þig. Astarkveðja, amma Inga. Þinn dugnaður harða skel veikti, þín blíða og festa þín glettni og greind stöðugt í hjarta mér kveikti. Þú komst með þinn tilgang, þú einn vissir hann hér vars’t ekki „heima" það stundum ég fann. Gömul er sál, sem skilur sitt vamm, ég ávallt mun elska „litla“ sigurvegarann. Astarkveðja, mamma. Helgi Steinar, mig langar til að segja fólki aðeins frá okkar kynn- um sem stóðu í stuttan en góðan tíma. Þú varst mjög ungur er við kynntumst og þá grunaði engan hvað þú áttir eftir að ganga í gegn- um og verða sú persóna sem þú varst. Þú greindist með þennan sjúkdóm fimm mánaða gamall sem leiddi þig þennan veg sem þú fórst. Þessi 3 ár sem við þekktumst fylltir þú líf mitt gleði, hamingju og ást. Ég hef aldrei kynnst barni jafn sterku og lífsglöðu og þú varst þrátt fyrir veikindin. Margar stundir voiu þér erfiðar í veikind- unum og mótuðu pei'sónuleika þinn sem varð mjög sterkur og heillaði fólk hvar sem þú komst. Aldrei hef ég kynnst jafn miklum dellukarli og þér, þú vildir vita nöfn á öllum bíl- um og tækjum sem þú sást og helst vildir þú fá að prófa allt. Minningin um þig lifir í hjarta margra sem þér kynntust. Sú stund sem situr mest í mér í dag er þegar við hjóluðum upp að Hafravatni og áttum góða kvöldstund saman og horfðum á fólkið veiða. Með hjartað fullt af ást og eftirsjá kveð ég þig, þú lifir í minningunni. Þinn fósturfaðir og vinur, Ögmundur Matthíasson. Elsku Helgi Steinar minn, þú varst aðeins þriggja mánaða er þú komst í fyrsta sinn til mín með mömmu þinni og Herði bróður þín- um. Það var þegar Öddi minn kom með ykkur í fyrsta sinn í heimsókn og kynnti mig, stoltur, fj'rh- þessari litlu fjölskyldu sem hann hafði fallið svo algerlega fyrir og það fór eins Elsku Helgi Steinar! Þegar þú byrjaðir á leikskólanum Asborg varstu aðeins 1 árs, það tók þig ekki langan tíma að heilla mig og annað starfsfólk leikskólans með fallegu augunum þínum og blíða brosinu. Þú varst óspar á fingur- kossa sem þú sendir frá þér eftir pöntunum. Þú varst vinsæll meðal barna og starfsfólks og þau spurðu iðulega um þig ef þú varst ekki mættur á réttum tíma. Þú varst mikill áhugamaður um allt sem gekk fyrir mótor, eins og er svo oft um fróðleiksfúsa drengi og oftar en ekki komstu með eitthvert smádót í litlu höndinni þinni, eins og bíla og vélhjólakalla. Þú varst mikill tölvu- kall og leikni þín með tölvumúsina var undraverð, þú varst ákveðinn strákur og vildir gera hlutina sjálf- ur og það gerðir þú að því marki sem þér var mögulegt. Síðasta daginn þinn á leikskólan- um, daginn áður en þú kvaddir hið jarðneska líf, fórum við á Dyngj- unni, deildinni þinni, í gönguferð niðm- í Grasa- og fjölskyldugarðinn, þú sast glaður í bragði í kerru og skoðaðir umhverfið með áhuga barnsins sem vill sífellt skoða og kanna. Við sáum hund á leiðinni sem kom þér til að brosa og þegar við fórum um grasagarðinn teygðir þú litlu höndina þína út fyrir kerruna til að snerta lauf runnana. Við settumst í sandinn í fjölskyldu- garðinum og þú lékst þér af áhuga með lítið sandmót innan um vini þína á deildinni. Við enduðum þennan góða dag á því að borða nestið okkar við litla tjörn í Laug- ardalnum meðan við horfðum á endurnar synda með ungunum sín- um. Þú lést eftir afganginn af brauðinu þínu og endurnar fengu að njóta þess. Það flaug um huga minn um leið og ég horfði á þig, þegar við vorum á leiðinni í leikskólann, að þrátt fyr- ir þá miklu fjötra sem líkami þinn var bundinn í þá værir þú ham- ingjusamur og nytir lífsins sem þér var gefið enda er ekki annað hægt þegar maður á bestu mömmu í heimi, mömmu sem vildi allt fyrir þig gera. Kæra Svandís og fjölskylda, um leið og við kveðjum Helga Steinar með miklum söknuði biðjum við al- góðan Guð að styrkja ykkur og hugga og blessa góða og bjarta minningu okkar um dásamlegan dreng. Fyrir hönd starfsfólks Dyngj- unnar, Hugborg Erlendsdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður míns, tengdaföður okkar, afa og langafa, ÓLAFS JÓNSSONAR skipasmiðs frá Nýhöfn, Skólavegi 23, Vestmannaeyjum, Sérstakar þakkir til sr. Gísla H. Kolbeins, Guðrúnar Jónu Gunnarsdóttur, hjúkrunarfræðings og starfsfólks dvalarheimilis aldraðra í Vestmanna- eyjum, Hraunbúða. Margrét Ólafsdóttir, Guðmundur Valdimarsson, Ingunn Hofdís Bjarnadóttir, Jón Valtýsson, Þórhildur Guðmundsdóttir, Jóna Björg Guðmundsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Ólafur Ólason, Hrefna Valdís Guðmundsdóttir, Sigurður Árni Ólason, Gunnar Ólason, Ólafur, Einar Jóhann, Guðmundur, Sigríður Ósk, Magnús Þór og Ármann Halldór. Jens K.M. Jóhannesson, Jón Garðar Einarsson, Fanney Snorradóttir, Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir, + Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐMUNDAR JÓNSSONAR, Skeljagranda 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir fá þeir sem önnuðust hann og hlúðu að honum í veikindum hans. Lovísa Jóhannesdóttir, börn og tengdabörn. ISLEIFUR SIGURÐSSON + ísleifur Sigurðsson fæddist í Hafnarfírði 13. janúar 1935. Hann lést í Reykjavík 19. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá títskálakirkju í Garði 25. júlí. Mig langar að kveðja hann Leifa tengdaföður minn og vin í örfáum línum. Ég kom inn í líf hans þegar ég kynntist Sigurði syni hans árið 1981, það er eins og það hafi gerst í gær. Okkur Leifa varð strax mjög vel til vina. Það var alltaf gaman að vera kringum Leifa og hann þreyttist aldrei á að stríða mér, honum fannst afskaplega gaman að því hve trágjörn ég var. En eftir því sem árin liðu lærði ég meira inn á stríðnina og ósjaldan þegar hann sagði mér eitthvað sagði ég á móti „sannaðu það“ og þá var honum skemmt. Mér fannst alltaf gaman að vita til þess hvað Leifi hafði mikinn áhuga á því sem drengirnir hans og við tengdadæturnar vorum að gera, hvort sem það var að laga til í húsum okkar eða á ferð og flugi í sumarfríum. Bamabörnin skipuðu stóran sess hjá honum, enda var hann alltaf ákaflega bamgóður, ég man þegar Bergný Ösp, eldri dótt- ir mín og Sigga, fæddist, þá var ljósmóðirin alltaf að koma með kveðju frá honum. Honum fannst nefnilega ganga heldur seint að koma einu barni í heiminn, en nú era liðin rám 14 ár síðan. Mér fannst svo yndislegt hvað hann var áhugasamur um bamabörnin, og spurði oft og mikið um þau. Hann Siggi vann með Leifa í 13 ár og eft- ir á að hyggja finnst mér ég lánsöm að svo skyldi hafa verið því tengsl- in og vináttan urðu sennilega mun meiri við það en ella. Fyrir nokkram áram fór sjúk- dómurinn hans Leifa að segja meira og meira til sín og dró hann að lokum á vit skapara síns. Mér verður á þessari stundu hugsað til þess og dáist að því að hann Leifi gat látið alla í návist sinni gleyma því hvað hann í raun var veikur, því ekki missti hann sjónar á góða skapinu og stutt var í glettnina og stríðnina. Leifi minn, ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar og bið góðan guð að geyma þig. Guðbjörg (Gugga). Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. IJað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Elskuleg móöir mín, ÞÓRDÍS ÓLAFSDÓTTIR, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, andaðist á Landspítalanum mánudaginn 27. júlí. Bragi Sigurþórsson. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANGANTÝR HJÖRVAR HJÁLMARSSON, Vallartröð 5, Eyjafjarðarsveit, verður jarðsunginn frá Grundarkirkju föstu- daginn 31. júlí kl. 13.30. Jarðsett verður í kirkjugarðinum á Hólum. Þeir, sem vildu minnast hans, láti líknarstofn- anir njóta þess. Sigfríður L. Angantýsdóttir, Pétur Brynjólfsson, Ingibjörg Angantýsdóttir, Haukur Karlsson, Elínborg Angantýsdóttir, barnabörn og langafabörn. Viðþökkum af alhug öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og vindttu vegna andldts Hannesar Þórðar Hafitein, fyrrverandi forsljóra Slysavarnafélags Islands. Hlýjar kveðjur, bótnir og vinarþel hofa veitt okkur styrk og huggun. Við metum mikils þd sœmd sem minningu Hannesar Þórðar Hafetein hefur verið sýnd. Sérstakar þakkir til björgunarsveita Slysavamafélags íslands sem stóðufyrir einstakri minningarathöfn dytri höfninni í Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Sigrún S. Hafitein Stefdn Jón Hafitein Þórunn Júníana Hafitein Sigrún SoJJia Hafitein Hildur Björg Hafetein Hannes Júlíus Hafitein og bamaböm Guðrún Kristín Sigurðardóttir Snæbjöm Jónsson Stefán Benkovic Mikaelsson Hrafnhildur Björg Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.