Morgunblaðið - 29.07.1998, Page 34

Morgunblaðið - 29.07.1998, Page 34
34 MIÐVTKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VINNINGSHAFAR í HM 98 leik Islensku Internetþjónustunnar og Intranets. Verðlaunaafhending Galsa Fj ölsky ldudagar í Lónkoti um verslunar- mannahelgina MARGT verður um að vera í Lón- koti í Skagafirði, sem er 12 km norðan við Hofsós, næstkomandi laujgardag. I Lónkoti er tjaldstæði með snyrtiaðstöðu. Við tjaldstæðið er grill sem tjaldgestir geta notað en einnig er í Lónkoti bar og veitinga- staður þar sem boðið er upp á rétt dagsins og úrval af sérréttum. Boð- ið er upp á golf og veiði rétt við tjaldstæðið og fallegar gönguleiðir eru um nágrennið. I stærsta hringtjaldi landsins verður bama- og fjölskylduball kl. www.mbl.is 16 til 18 á laugardeginum. Það er hljómsveitin Fjörkarlar sem sér um fjörið og er dagskráin, dans, leikir og hreyfisöngvar, sniðin að fjölskyldufólki og börnum allt nið- ur að þriggja ára aldri. Aðgangs- eyrir er 600 kr. Um kvöldið verður dansleikur í hringtjaldinu. Það er hljómsveitin Leyniþjónustan sem leikur fyrir dansi frá kl. 23-3. A dagskráinni er fjölbreytt tónlist fyrir alla ald- urshópa og er aðgangseyrir 1.500 kr. Gengið út á Seltjarnarnes HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur í kvöld, miðvikudagskvöld, fyrir gönguferð frá Hafnarhúsinu að austanverðu kl. 20. Farið verður með höfninni vest- ur í Ananaust og síðan ströndinni út í Snoppu við Gróttu. Val um að ganga til baka eða fara með SVR. Allir eru velkomnir. Fj ölskyldudagur í skóla- görðum FJÖLSKYLDUDAGUR er mið- vikudaginn 29. júlí í Skólagörðum Reylgavíkur. Fjölskyldur þeirra bama, sem eiga garð í skólagörðunum, era hvattar til að koma í heimsókn og kynna sér starfsemina. Starfsmenn skólagarðanna veita upplýsingar um það grænmeti sem bömin era að rækta. Uppskriftum verður dreift og upplýsingum um geymslu og frystingu á grænmetinu. Síðasta skógar- gangan TÍUNDA og jafníramt síðasta skógarganga sumarsins á höfuð- borgarsvæðinu á vegum Skógrækt- arfélags Mosfellsbæjar verður fimmtudaignn 30. júlí. Mæting er kl. 20.30 við gróðrar- stöðina Grásteina í Mosfellsdal. Gengið verður um gróðrarstöðina og skógrækt Laugamesskóla í Katlagili, leiðsögumenn verða Bjöm Sigurbjömsson garðyrkju- maður og Jón Freyr Þórarinsson, skólastjóri Laugamesskóla. Að venju er boðið upp á rútuferð frá Ferðafélagi Islands, Mörkinni 6, kl. 20 og er gjaldið 500 kr. Göngumar eru skipulagðar í samvinnu við Ferðafélag Islands og era hluti af fræðsluverkefni Skógræktarfélags Islands og Bún- aðarbanka Islands. Minnt skal á að þeir sem taka þátt í öllum skógar- göngum sumarsins fá að launum fallegt jólatré. VERÐLAUN í HM 98 leik íslensku Intemetþjónustunnar og Intranets voru afhent miðvikudaginn 22. júlí sl. Leikurinn var settur upp á vef- slóðinni galsiás í samvinnu við Flugleiðir, Opin kerfi hf., Lands- bankann, Teymi og visir.is. Vefur- inn fékk að meðaltali um þúsund heimsóknir á dag en tvö þúsund manns tóku þátt í leiknum á með- an heimsmeistarakeppnin í fót- bolta stóð yfir. Það var Arnar Bragason sem fékk flest stig í heildarkeppninni og hlaut að launum Palmtop tölvu frá Hewlett-Packard. Amar varð einnig hæstur í úrslitakeppninni og vann sér inn flugmiða fyrir tvo með Flugleiðum ásamt Sólrúnu Dalkvist, sem varð í öðm sæti. Aðrir vinningshafar vom Kol- brún Reinholdsdóttir og Bjöm Jó- hannesson, sem unnu bleksprautu- prentara frá Hewlett-Packard, auk 150 annarra vinningshafa sem unnu ýmsa smærri vinninga. Bú- ast má við fleiri uppákomum á galsi.is í framtíðinni og stendur fyrirtækjum til boða að vera með ýmsa leiki eða uppákomur á vefn- um sem hægt er að setja upp með skömmum fyrirvara. ATVINNUAUGLÝSINGAR Staða framkvæmdastjóra Staða framkvæmdastjóra hjá skrifstofu Norð- ur-Atlantshafssjávarspendýraráðsins, (NAMM- CO) Tromsö í Noregi, er laus til umsóknar. NAMMCO er alþjóðastofnun sem stofnsett var árið 1992. Tilgangur hennar er að vinna með svæðisbundnu samráði og samvinnu að verndun, skynsamlegri stjórnun og rannsókn- um á sjávarspendýrum í Norður-Atlantshafi. Aðilar ráðsins eru Noregur, ísland, Grænland og Færeyjar. Nú starfa þrír á skrifstofu stofnun- arinnar. Enska er opinbert mál NAMMCO. Gagnvart aðilum ráðsins ber framkvæmda- stjóri m.a. ábyrgð á að skipuleggja starfsemi stofnunarinnar, þ.m.t. að undirbúa ársfundi og gefa út ársskýrslu og að viðhalda samskipt- um við viðeigandi alþjóðastofnanir og stjórn- völd ríkja með áheyrnaraðild að NAMMCO. Starfinu fylgja a.m.k. þriggja vikna ferðalög erlendis á ári í tengslum við fundi og aðra við- burði. Umsækjendur skulu vera með próf á háskóla- stigi á viðeigandi fræðasviði, reynslu og ágæt- an skiining á verndun og stjórnun náttúruauð- linda, mjög gott vald á ritaðri og talaðri ensku og reynslu af undirbúningi og útgáfu skýrslna og annarra rita á ensku, sem og af stjórnun. Gott vald á dönsku, norsku eða sænsku væri kostur. Staðan er veitt til fjögurra ára í senn með möguleika á framlengingu. Laun eru í sam- ræmi við kröfurtil umsækjenda og samsvara launum fyrir sambærileg störf hjá öðrum alþjóðlegum stofnunum. Skriflegar umsóknir með æviágripi ásamt nöfnum, heimilisföngum og símanúmerum þriggja meðmælenda skulu póstsendartil for- manns ráðsins, NAMMCO c/- University of Tromsp, N-9037 Tromsp, Noregi og póst- stimplaðar eigi síðar en 28. ágúst 1998. Fráfarandi framkvæmdastjóri ráðsins, Kate Sanderson (sími +47 77 64 59 08, tölvupóst- fang: nammco-sec@nammco.no), og formaður þess, Arnór Halldórsson, sjávarútvegsráðu- neyti (sími 560 9670, tölvupóstfang arnor@haf- ro.is) veita frekari upplýsingar um stöðuna. NAMMCO, c/-University of Tromso, N-9037 Tromso, Noreg. Sími: + 47 77645908, fax: + 47 7764 5905. Félagsmálaráðuneytið Embætti framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu máiefna fatlaðra í Reykjavík Laust ertil umsóknar embætti framkvæmda- stjóra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, samkvæmt 12. gr. laga nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, sbr. 2. gr. laga nr. 161/ 1996. Framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofunnar erfulltrúi félagsmálaráðuneytisins um málefni fatlaðra í Reykjavík og starfar samkvæmt fyrir- mælum laga, reglugerða og erindisbréfs. Embættið veitist frá 15. september nk. Á veg- um félagsmálaráðuneytisins er nú unnið að yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga, sbr. lög nr. 161/1996, og er gert ráð fyrir því að skipunartíminn í embættið renni út um leið og málaflokkurinn færist til sveitarfélaganna. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi haldgóða menntun og starfsreynslu á sviði rekstrar og stjórnunar og þekkingu á málefnum fatlaðra. Um launakjörfersamkvæmtákvörðun kjara- nefndar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og störf skulu berast félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, fyrir 21. ágúst nk. Nánari upplýsingar veitir Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri. Félagsmálaráðuneytlð 27. júlí 1998. Gistiheimili til leigu Verbúðir ehf. á Höfn í Hornafirði auglýsa eftir rekstraraðila til að annast rekstur gistiheimilis- ins Ásgarðs. Ásgarður, Ránarslóð 3 á Höfn, er nýlegt gisti- heimili með 36 2ja og 3ja manna herbergjum sem öll eru með baðherbergi. Setustofa er á efri og neðri hæð. Einnig er húsvarðaríbúð á neðri hæð. Ásgarður er rekinn sem verbúð fyrir starfsfólk fyrirtækja, jafnframt sem gisti- heimili fyrir ferðamenn yfir sumartímann. Áhugasamir vinsamlegast sendið upplýsingar fyrir 5. ágúst til Arnar Gylfasonar, Borgey hf., Krossey, 780 Höfn, sem jafnframt veitir allar upplýsingar í síma 478 2255. Þórs/iafnarhreppur Skólastjóri Spennandi starf í góðum skóla Laus ertil umsóknar staða skólastjóra við Grunnskólann á Þórshöfn. Um er að ræða spennandi starf þar sem unnið er markvisst og af metnaði að innra starfi skól- ans. í skólanum, sem er einsetinn, eru 65 nem- endurog hlutfall réttindakennara erhátt. Hús- næði og búnaður er í besta lagi. Við skólann starfar öflugt og áhugasamt fólk. í boði er flutningsstyrkur og húsnæði. Ef þetta er eitthvað fyrir þig hafðu þá samband við: Hilmar Þór Hilmarsson, formann skólamála- ráðs, í símum 460 8100 og 468 1213 eða Henrý Má Ásgrímsson, oddvita, í símum 468 1275 og 468 1220. Við óskum eftir að ráða matreiðslumann og þjón í framtíðarstarf. Upplýsingar eru veittar hjá La Primavera, Austurstræti 9. Sími 561 8555. La Primavera er leiðandi og nútímalegur veitingastaður sem leggur áherslu á ítalska matargerð af bestu gerð. www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.