Morgunblaðið - 29.07.1998, Qupperneq 38
'38 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Nesti um verslun-
armannahelgina
Nú þegar verslunarmannahelgin er framund-
an gefur Kristín Gestsddttir lesendum sírmrn
uppskriftir að fylltum brauðum í ferðalagið.
1 msk. sykur
1 msk. þurrger
3 dl fingurvolgt vatn
(alls ekki heitara)
þykkur álpappír og sleif með
sveru skafti, einhvers konar ost-
ur til að fylla brauðið með eða
smjör, olía og ferskur hvítlaukur
1. Setjið þurrefni í skál og
hrærið vatnið út í. Hnoðið síðan
saman.
2. Vefjið álpappír þétt utan um
enda sleifarskaftsins og penslið
vel með matarolíu.
3. Skiptið deiginu í bita og
þrýstið utan um álpappírinn.
Takið svo sleifina úr. Gætið þess
að þrýsta brauðinu ekki saman,
holan má ekki lokast.
4. Hitið grillið og bakið brauð-
ið við góðan hita. Snúið við svo
að það bakist á öllum hliðum.
5. Takið brauðið af grillinu,
fjarlægið álpappírinn, stingið
strax mjóum ræmum af osti inn í
það, eða smjöri, olíu og mjóum
ræmum af hvítlauk. Vefjið
brauðið í álpappír og leggið ofar-
lega á grillið svo að það haldist
heitt en hiti má ekki vera mikill,
þá brennur brauðið.
Grunnuppskrift fyrir
fyllt brauð
1 kg hveiti
4 tsk. salt
2 msk. þurrger
2 'A dl matarolía
4 dl fingurvolgt vatn
1. Hrærið og hnoðið deig.
Leggið stykki yfír og látið bíða
meðan þið búið til þá eða þær
fyllingar sem ykkur hentar.
Fylling 1: 1 tsk. hreinn rjóma-
ostur og Vt sneið skinka á hvem
deigbút. Líka má setja smábita
af ananas með.
Fylling 2: V4 tsk. sinnep, 1 tsk.
tómatsósa og u.þ.b. 1/6 biti pylsa
á hvern deigbút.
Fylling 3: 1 tsk. pizzumauk, 1
sneið pepperónípylsa og smáost-
sneið á hvem deigbút.
2. Fletjið deigið frekar þunnt
út. Skerið síðan í ferkantaða
búta 5x6 sm. Út þessu magni
eiga að nást 90-100 bútar.
3. Setjið fyllingu á miðju hvers
deigbúts, vefjið upp og brjótið
upp á hliðarnar. Raðið á bökun-
arpappír.
4. Hitið bakarofn í 210°C,
blástursofn í 190° C, setjið í miðj-
an ofninn og bakið í um 12-15
mínútur.
HÉR á árum áður fór ég alltaf í
ferðalag um verslunarmanna-
helgina, enda vann ég á skrif-
stofu og átti þá alltaf frí. Breyt-
ing varð á þegar ég gifti mig, en
bóndi minn átti ekki frí á versl-
unarmannafrídaginn. Örfá ár eru
síðan sá dagur varð löglegur frí-
dagur en nú er þetta einn af fjór-
um dögum ársins sem verslanir
hafa lokað, en hinir þrír eru jóla-
dagur, páskadagur og föstudag-
urinn langi. Mikil breyting er
orðin á síðan við hjónin og börn
okkar hristumst í blöðraskódan-
um á holóttum þjóðvegum þeirra
tíma. Þegar í bæinn kom var bíll-
inn meira og minna í skralli. Það
brást varla að púströrið hryndi,
Ijóskerin sömuleiðis eitt eða
íleiri. Eitt sinn á veginum yfír
Reynisfjall rifnaði bensíntankur-
inn úr festingunum og datt niður
á veginn. Nú vora góð ráð dýr,
farið var í skottið og náð í hönk
af rafmagnsvír, sem alltaf var
hafður með, og honum brugðið
utan um tankinn sem hífður var
upp um lítið gat í boddíinu fyrir
ofan. Það var eins og gert hefði
verið ráð fyrir þessum mögu-
leika. Þarna hékk bensíntankur-
inn á skiptilykli í bæinn. Oft
sprakk á bílnum og stundum
þurfti að bæta, þegar varadekkið
sprakk líka. Ferðinni var oftast
heitið í Landbrotið og voram við
átta tíma á leiðinni. Við áttum
okkar fóstu staði til að stoppa á,
borða nestið og hvflast. Einu
sinn á heimleið úr Landbrotinu
var ennþá meira ryk á veginum
en oftast áður og bfllinn óþéttur.
Við vorum bókstaflega eins og
svertingjar þegar heim kom, en
alltaf skiiaði Skódinn okkur
heim. Nú er öldin önnur, skot-
vegur í Landbrotið sem fleiri
staði, enda margir á ferðinni
þessa mestu ferðahelgi ársins.
Vonandi koma allir heilir heim
og á heilu farartæki.
Þær uppskriftir sem hér birt-
ast að fyiltu brauði era allar úr
sama grunndeigi. Aðeins breytt
um fyllingu að vild. Næstum allt
má setja í brauðin. Ef farið er í
ferðalag er best að blanda þurr-
efnum í sleifarbrauðið heima og
taka með sér í plastpoka og setja
síðan volgt vatn í mjölblönduna á
staðnum.
Ef sleifin gleymist heima má
nota trjágrein í staðinn.
Sleifarbrauð á grillið
'k kg hveiti
2 tsk. salt
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hvar er gert við
rokka?
GUNNLAUGUR hafði
samband við Velvakanda
og vildi hann fá upplýsing-
ar um hvar hægt væri að
fá gert við rokka og fá
smíðaða hluti sem vantar á
þá. Gunnlaugur er 1 síma
563 2491.
Orðsending
til kartöflubænda
HÆTTIÐ að eyðileggja
kartöflurnar með því að
þvo þær. Ef kartöflur eru
þurrkaðar með moldinni
eru þær næstum hreinar.
Þannig geymast þær næst-
um óskemmdar. Nýjar
kartöflur sem verið er að
selja í verslunum geymast
ekki nema nokkra daga
vegna þess að þær eru
þvegnar og eru rennblaut-
ar. Og hvers vegna er
kartöflunum ekki pakkað
inn í netpoka í stað plast-
poka? Þannig geymast
þær miklu betur.
Viðskiptavinur.
Tapað/fundið
Philips-Fizz
GSM-sími týndist
GSM-sími, Philips-Fizz,
rauður, týndist sl. fóstu-
dag, annaðhvort í Holta-
seli, Raufarseli eða
Rangárseli. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
557 3439.
Fannst í Bankastræti
UNG stúlka í ljósbrúnni
peysu á stóru, vínrauðu
hjóli missti hluti úr vasa
sínum í Bankastræti sl.
mánudag. Hún getur nálg-
ast þá með þvi að hafa
samband í síma 552 2201.
Gleraugu týndust
GLERAUGU, Titan, týnd-
ust í Seljahverfi í byrjun
júlí. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 567 0443.
Lyklar týndust
í Hamrahverfí
FIMM lyklar á blárn
Nissan-lyklakippu týndust
i Hamrahverfi í Grafar-
vogi. Finnandi vinsamlega
hafi samband við Sigurð G.
í sima 588 9798 hjá Still-
ingu.
Dýrahald
Kanína týndist
frá Skógarhlíð
HVIT kanína með svört
eyra, svart trýni, rauð
augu, gráa fætur og grátt
skott, týndist frá Skógar-
hlíð 12 sl. fimmtudag. Þeir
sem hafa orðið hennar var-
ir hafi samband í síma
562 9232.
Óska eftir gárapari
ÓSKA eftir ókeypis gárap-
ari. Upplýsingar í síma
555 3041.
Þessar duglegu stelpm' Bryndís Pétursdóttir, Hildur
Hlöðversdóttir, Kristín Hlöðversdóttir, Guðrún Ýr
Eðvaldsdóttir og Vigdfs Sigmarsdóttir héldu hlutaveltu og
söfnuðu kr. 1.226 og létu þær renna til Rauða kross íslands.
SKAK
llmsjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp á stóra
opnu móti í Pardubice í
Tékklandi í sumar. Þjóð-
verjinn Frank Lamprecht
(2.395) hafði
hvítt og átti
leik gegn N.
Poljakovu
(2.215), sem
lék síðast 20.
_ g7_g5?? í
ágætri stöðu.
Rússnesku
skákkonunni
hafði orðið á
hræðileg yf-
irsjón.
2L
og svartur
gaf því 21. _
bxc6 22. Ba6
er mát!
Jafnir og
efstir á mótinu urðu Tékk-
arnir Hracek, Zurek og
Stocek, Gyimesi, Ungverja-
landi, Pavasovic, Slóveníu
og Manik, Slóvakíu með 7
vinninga af 9 mögulegum.
Helgi Áss Grétarsson var á
meðal keppenda á mótinu
og varð í 34._61. sæti með
5!4 vinning. Keppendur í
efsta flokki voru 234 talsins.
MORGUNBLAÐIÐ birtfr til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sinum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningai' þmía að
berast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt i sima 569-1100, Sent
í bréfsíma 569-1329, sent á
netfangið ritslj@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík.
Víkverji skrifar...
ENGINN vafi er á því að Hval-
fjarðargöngin era frábær sam-
göngubót. Ekki þarf fleiri orð um
það, en eitt undraðist Víkverji á leið
sinni suður um göngin á dögunum;
tveir bflar voru á undan honum er
kom að því að reiða fram þær eitt
þúsund krónur sem keisaranum ber
til að komast í gegn. Greitt var með
greiðslukorti í báðum tilfellum og
tók ótrúlega langan tíma að ganga
frá þeim viðskiptum. Tekið skal
fram að alls ekki var um annatíma
að ræða, en engu að síður höfðu sex
bílar safnast í röð að baki Víkverja
þegar hann loks gat rétt þúsund-
kallinn sinn inn út um gluggann. Er
til of mikils mælst að fólk hafi þús-
und króna seðil til reiðu þegar að
göngunum kemur? Það yrði a.m.k.
til þess að umferðin gengi fljótar
fyrir sig en þarna var.
xxx
HELDUR þykir Víkverja sorg-
legt að sjá hvemig komið er
fyrir knattspyrnuliðum íþróttafé-
laganna tveggja á Akureyri, KA og
Þórs. Níu ár eru nú síðan KA-menn
urðu Islandsmeistarar og ekki
miklu lengra síðan Þórsarar áttu
einu allra besta liði landsins á að
skipa. Þórsarar róa nú lífróður til að
halda sæti sínu í næstefstu deild og
KA-menn eru þar skammt fyrir of-
an; löguðu reyndar stöðu sína á
dögunum með naumum sigri á ná-
grönnum sínum.
xxx
SEM knattspyrnuáhugamanni
fínnst Víkverja tilhlýðilegt að
bæjarfélag eins og Akureyri eigi lið
í efstu deild. Eins og það tilheyri
hreinlega. En hvað er til ráða?
Hvernig stendur á því að þetta
15.000 manna samfélag er ekki
fært um að bjóða upp á nema tvö
slök lið í næstefstu deild? Akureyr-
ingar léku lengi vel undir merki
íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA)
en þegar liðið féll úr efstu deild
haustið 1974 var því hætt og Þór og
KA hófu að leika undir eigin
merkjum í gömlu 3. deildinni sum-
arið eftir. Leiðin lá strax upp á við
og lengstum síðan hafa þau verið
ýmist við topp næstefstu deildar
eða í þeirri efstu - jafnvel á eða við
toppinn þar - allt þar til fyrir fáein-
um árum að verulega fór að halla
undan fæti.
Hvað er til ráða? spyr Víkverji
aftur. Hann veit að það var mikið
framfaraspor þegar félögin hófu að
leika undir eigin merkjum á sínum
tíma, einkum vegna þess hve gífur-
leg uppbygging átti sér stað á fé-
lagssvæðunum báðum í framhaldi af
því og hversu unglingastarfið
blómstraði. En nú virðist hins vegar
komið að tímamótum á ný; getur
verið að fjárhagslega sé það Akur-
eyringum ómögulegt að reka tvo
meistaraflokka karla í knattspyrnu,
svo vel fari? Slík „útgerð" er fjár-
frek, að ekki sé nú talað um ef á að
ná árangri. Vitað mál er að greiða
þarf leikmönnum eitthvert fé,
a.m.k. ef markmiðið er að ná ár-
angri, sem það hlýtur alltaf að vera,
og mergurinn málsins er einmitt sá
að nú til dags er knattspyman eina
íþróttagreinin sem hérlend íþrótta-
félög ættu að geta hagnast á. Að því
tilskildu auðvitað að liðin séu góð,
taki þátt í Evrópukeppni, selji jafn-
vel einn og einn leikmann til er-
lendra liða annað veifið. Og ætli
Akureyringar sér að komast í
fremstu röð á ný virðist aðeins eitt
ráð duga; að þeir tefli fram einu „al-
vöru“ liði, hvort sem það verður
sameinað lið eða að annað félagið
sjái um rekstur meistaraflokks í
þessari grein.
xxx
SÚ verkaskipting hefur þegar
verið tekin upp á Akureyri að
Þór sér um knattspyrnu kvenna og
KA hefur umsjón með handknatt-
leik kvenna. Hvort sem samkomu-
lag næst hins vegar um álíka fyrir-
komulag varðandi íþróttir karla í
bænum verður fróðlegt að sjá, en
segja má að nú þegar sjái KA um
handboltann - þó svo Þórsarar séu
með lið í 2. deild - því flestir bestu
Þórsaramir hafa leikið með KA
undanfarin ár. Forráðamenn félag-
anna ættu að ræða þetta mál í fullri
alvöru. Það er nefnilega dýrt að
vera fátækur. Og það er slæmt fyrir
höfuðstað Norðurlands þegar liðum
bæjarins gengur jafnilla og raun
ber vitni. Því er jafnvel spurning
hvort bæjarfélagið ætti ekki að taka
þátt í að endurskipuleggja starfið í
samráði við félögin og reynt verði
að hagnast á öllu saman. Bæjarfé-
lög grípa gjaman inn í rekstur fyr-
irtækja sem þykja mikilvæg og að-
stoða við að koma þeim á réttan
kjöl. Hvers vegna ekki þessa „fyrir-
tækis“?