Morgunblaðið - 29.07.1998, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
mrtmwM,
Morgunblaðið/Golli
LEIKSKÓLASTJÓRI Kvistaborgar hefur hengt upp skilaboð til for-
eldra þar sem þeir eru varaðir við að láta börn leika sér án eftirlits.
Foreldrar í Fossvogi óttaslegnir vegna atburða að undanförnu
Stofnun samtaka
foreldra til umræðu
FORELDRAR í Fossvogi eru mjög
slegnir yfír atburðinum á mánu-
dagskvöld þegar maður veittist að
tveimur sjö ára stúlkum og ógnaði
þeim með hnífí.
í kjölfar atburða mánudags-
kvölds segir Sigríður M. Ornólfs-
dóttir aðstoðarleikskólastjóri í
Kvistaborg í Fossvogi, að foreldrar
hafí talað mikið saman og upp sé
komin sú hugmynd að stofna form-
leg samtök foreldra í Fossvogi. Fyr-
ir þremur árum störfuðu óformleg
samtök foreldra í Fossvogi sem
stofnuð voru í kjölfar þess að böm í
Fossvogi urðu fyrir kynferðislegri
áreitni. Aðilar úr þeim samtökum
era enn vakandi og tilbúnir að miðla
af reynslu sinni og byrjaðir að vinna
í þessum málum.
Að sögn lögreglu er unnið að
rannsókn málsins og verður gripið
til aðgerða eins fljótt og auðið er.
Mál sem þessi séu hins vegar sein-
unnin. Lögregla segir að verið sé að
skoða þessi mál í heild sinni með
það fyrir augum að reyna að komast
að því hver var að verki á mánu-
dagskvöld.
Viðvörunar-
tilkynningar
hengdar upp í
leikskólum
Á Kvistaborg hangir uppi til-
kynning sem sett var upp um miðj-
an mánuðinn þar sem foreldrar
eru beðnir að láta börn sín ekki
leika sér án eftirlits. Tilkynningin
var sett upp eftir að maður hafði
verið með kynferðislega tilburði
við sex ára gamlar stúlkur í Foss-
voginum.
Ætti að vara foreldra við
Margrét Gísladóttir býr í Foss-
vogi og rak augun í tilkynninguna
þegar hún kom með barn sitt á
leikskóla eftir sumarfrí. Margrét
segir sér hafa verið mjög brugðið,
sérstaklega vegna þess að hún
vissi ekki að þessi atburður hefði
átt sér stað. „Mér fínnst yfírvöld
skyldug til að upplýsa foreldra vel
og rækilega um mál sem þessi og
vara við. Við kyrrsetjum börn okk-
ar ekki heima við hús nema rík
ástæða sé til og foreldrar sem búa
nálægt skólanum leyfa börnum
sínum að fara þangað til að leika
sér ef þeir frétta ekki af þessum
málum.“
Tuttugu tilkynningar til
lögreglu
Alls hafa um tuttugu tilkynningar
um ósæmilega tilburði við böm
borist lögreglu nú í ár og af lýsing-
um að dæma er um nokkra aðila að
ræða. Atburðurinn á mánudag er
hins vegar sá eini þar sem börnum
hefur verið ógnað með vopni. I
fyrra bárast alls 17 tilkynningar til
lögreglu.
Að sögn lögreglu má m.a. skýra
aukninguna með góðu veðri og því
að fólk er meira vakandi fyrir þess-
um málum og tilkynnir þau frekar
lögreglu nú en fyrir nokkrum árum.
Lögregla beinir þeim tilmælum til
foreldra að tilkynna lögreglu ef
börn þeirra verða vitni að einhverju
afbrigðilegu.
Setti nýtt heimsmet í lundaveiði í Ystakletti
Veiddi 1.420 fagla
Vestinannaeyjum. Morgnnblaðiö.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SLÖKKVILIÐIÐ spraut-
aði vatni upp undir þakið
til að kæfa eldinn.
Hafnarfjörður
Eldur í ný-
byggingu
10-11
SLÖKKVILIÐ Hafnarfjarðar
var kallað að nýbyggingu við
Suðurbraut klukkan 21.45 í
gærkvöldi.
Logaði þar töluverður eldur
upp úr miðju þaki og í ein-
angran. Mikill reykur mynd-
aðist og var nærliggjandi göt-
um lokað. Fljótlega tókst að
ráða niðurlögum eldsins en
talið er að kveikt hafi verið í
stafla af einangranarplötum.
Skipta þarf um allt þakefni
Að sögn Magnúsar Jó-
hannssonar hjá Fjarðarmót-
um ehf., byggingaraðila húss-
ins, er tjónið töluvert en
skipta þarf um allt þakefni.
Ráðgert var að opna þarna
hverfisvershin 10-11 íyrir
næstu jól. Óvíst er hvort þær
áætlanir standast.
JÓN Kristinn Jónsson, veiðimað-
ur í Ystakletti í Vestmannaeyjum,
setti nýtt met í lundaveiði á laug-
ardaginn þegar hann veiddi 1.420
fugla í Lögmannssæti sem er í
austurbrún Ystakletts. Ekki er
vitað til að einn maður hafl áður
veitt slíkan fjölda lunda í háf á
einum degi og er því hér eflaust
um heimsmet að ræða.
Jón Kristinn sló með þessari
veiði veiðimet Sigurgeirs Jónas-
sonar sem veiddi 1.204 fugla í
Árnabring í Álsey 13. júlí 1977.
Jón Kristinn var 12 tíma að veiða
þessa 1.420 fugla þannig að veiði
hjá honum hefur verið 1,97 fuglar
á mínútu að meðaltali yfír daginn.
Sigurgeir veiddi sína fugla á 8,5
í SKRÁNINGARLÝSINGU ís-
lenska járnblendifélagsins á Verð-
bréfaþingi er ekki getið um hættu á
raforkuskerðingu. I þeim kafla lýsing-
arinnai- sem fjallar um áhættu er
minnst á heimsmarkaðsverð á kísii-
jámi, reglur um vemdartolla og hugs-
anlega bilun í ofnum félagsins. Ekki
er minnst á hugsanlega raforkuskerð-
ingu líkt og þá sem nú hefur orðið og
hefiir mikil áhrif á rekstur félagsins.
I gær sendi Islenska járnblendifé-
lagið frá sér afkomuviðvöran vegna
orkuskerðingar Landsvirkjunar, en
tímum þannig að meðalveiði hjá
honum var 2,36 fuglar á mfnútu.
Morgunblaðið náði sambandi
við Jón Kristin þar sem hann var
við veiðar í Ystakletti á mánu-
dagskvöld. Hann sagði að þetta
hefði verið grimmdarveiði sem
hefði staðið samfellt allan daginn.
Hann hefði byijað veiðar klukkan
átta á laugardagsmorgun og hætt
klukkan níu um kvöldið en um
miðjan daginn hefði hann tekið
sér klukkutíma matarhlé.
Bestu mögulegar aðstæður
„Allar aðstæður voru eins og
best varð á kosið. Góð átt, hægur
austanvindur og óhemju mikill
fugl. Svo var skemmtiferðaskip ut-
alvarlegt ástand ríkir nú í vatnsbú-
skap Landsvirkjunar.
Nýr viðauki 1. apríl
Bjarni Bjarnason, framkvæmda-
stjóri íslenska járnblendifélagsins,
féllst á að raforkuframboð væri
áhættuþáttur í rekstri félagsins. „1.
apríl á næsta ári tekur hins vegar
gildi nýr viðauki við raforkusamning
milli Landsvirkjunar og Islenska
járnblendifélagsins. Þá mun heimild
Landsvirkjunar til skerðingar orku
minnka til muna. Ætli þessi nýi
an við Eiðið og léttbátar frá því
voru á sífelldri ferð inn og út úr
höfninni þannig að lundinn flaug
mikið upp af sjónum sem auðvitað
hjálpaði til við að halda stanslausu
lífi í þessu,“ sagði Jón Kristinn.
Hann sagðist hafa gert sér grein
fyrir um miðjan dag að hann ætti
möguleika á að slá met Sigurgeirs.
„Ég var að veiða þetta 80 til 140
fugla á klukkutúnann og siðasta
klukkutímann sem ég var að
veiddi ég 120 fugla. Ég hefði alveg
getað hahlið áfram því nægur var
fuglinn en ég hugsaði með mér að
best væri að hætta þarna því þá
gæti ég átt möguleika á að slá
þetta met einhvern túnann síðar,“
sagði Jón Kristinn.
samningur hafí ekki verið hafður í
huga við samningu skráningarlýs-
ingarinnar," segir hann.
Davíð Björnsson, forstöðumaður
fyrirtækja- og stofnanasviðs Lands-
banka íslands, telur að framsetning
efnis í útboðslýsingunni hafi ekki
verið villandi, en Viðskiptastofa
Landsbankans sá um gerð skráning-
arlýsingarinnar.
,Auðvitað er aldrei hægt að gera
tæmandi yfirlit yfíi' alla þætti sem
mögulega gætu haft áhrif, þannig að
það er leitast við að fara yfír stærstu
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
JÓN Kristinn Jónsson, heims-
meistari í lundaveiði, kemur til
hafnar í gær með veiði eftir að
hafa verið við veiðar í Ysta-
kletti undanfarna daga.
áhættuþættina. Ég held að þeir
áhættuþættir sem minnst er á í
skráningarlýsingunni séu langsam-
lega stærstir og stærri en hugsanleg
raforkuskerðing. Raforkuskerðing af
því tagi sem nú á sér stað hefur ekki
orðið í 17 ár auk þess sem raforku-
samningur við Landsvirkjun breytist
í apríl á næsta ári. Væntanlega er það
þess vegna sem þessi möguleiki hefur
ekki verið mönnum ofarlega í huga
þegar sala bréfanna var undirbúin."
■ Skerðing á orku/16
fslenska járnblendifélagið hf. sendir frá sér afkomuviðvörun
Hættu á raforkuskerðingu
ekki getið í skráningarlýsingu