Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Reynt að skemma fyrir alþjóðlegum rannsóknum á landbreytingum á fslandi
Skemmdarverk unnin á
speglum vísindamannanna
UNNAR hafa verið skemmdir á
nokkrum speglum sem alþjóðlegur
hópur vísindamanna setti upp á
Suðurlandi fyrir þremur árum, en
speglamir eru hluti af rannsóknar-
verkefni sem miðar að því að mæla
náttúrulegar breytingar á yfirborði
landsins. Dr. Ulrich Múnzer, sem
stýrir rannsóknarhópnum, segir
engu líkara en sá eða þeir sem
skemmdarverkin unnu hafi gert
það beinlínis til að eyðileggja fyrir
rannsóknunum því sams konar
skemmdir séu unnar á öllum spegl-
unum.
Dr. Múnzer hefur í nokkur ár
unnið að rannsóknum á breyting-
um á yfirborði jarðar og skrifaði
m.a. doktorsritgerð um jarðfræði
Islands og jarðskorpuhreyfingar.
Hann segir að ísland sé einstak-
lega áhugavert rannsóknarsvæði
því óvíða í heiminum eigi sér stað
jafnmiklar náttúrulegar breyting-
ar á yfirborði jarðar. Auk þess sé
lítill gróður á Islandi sem sé kost-
ur þegar verið sé að gera rann-
sóknir á landbreytingum með
þeirri tækni sem notuð er í þessu
verkefni.
Alþjóðlegt verkefni
fjármagnað af ESB
Rannsóknarverkefnið, sem hófst
árið 1995, er unnið í samvinnu vís-
indamanna frá Þyskalandi, Austur-
ríki, Póllandi, Islandi og Japan.
Verkefnið kostar nokkra tugi millj-
óna og kemur langstærstur hluti
fjármagnsins frá rannsóknarsjóð-
um á vegum Evrópusambandsins.
Verkefnið fer þannig fram að þrír
gervihnettir, ERS-1 og ERS-2,
sem eru í eigu Geimrannsóknar-
stofnunar Evrópu, og JERS-1, sem
er í eigu Geimrannsóknarstofnunar
Japan, taka myndir af íslandi. Not-
uð er ný tækni sem gerir það að
verkum að hægt er að taka myndir
af jörðinni óháð skýjafari.
Til að hægt sé að gera hæðar-
mælingar þurfa visindamennimir
að hafa fasta viðmiðunarpunkta og
þess vegna hafa þeir sett upp 30
spegla á Suðurlandi, en þeir endur-
kasta ljósi sem sést á gervihnatta-
myndunum. Speglamir gera þeim
kleift að mæla breytingar á yfir-
borði jarðar svo ekki skakkar
nema örfáum sentímetmm. Stað-
setning speglanna er hins vegar
mikið nákvæmnisverk og þeir
ÞAÐ er mikil nákvæmnisvinna að staðselja speglana og koma þeim fyrir. Kostnaður við byggingu og upp-
setningu allra speglanna er um 4 milljónir króna.
SÁ sem vann skemmdarverkið
hefur fjarla'gt skrúfurnar sem
halda speglunum í réttri stöðu,
en það gerir það að verkum að
skekkja kemur í mælingar vís-
indamannanna.
mega ekki haggast um sentímetra
ef þeir eiga að koma að notum.
Hver spegill er mældur nákvæm-
lega og festur kyrfilega niður.
Fjórir speglar
skrúfaðir lausir
Múnzer segir að í sumar hafi
komið í ljós að skemmdir hafi ver-
ið unnar á nokkrum speglum. Búið
sé að finna fjóra spegla þar sem
skrúfur, sem haldi speglunum
föstum í réttri stöðu, hafi verið
fjarlægðar. Þetta geri það að
verkum að mikið af mælingum
hafi verið gerðar út frá röngum
forsendum og séu því rangar. Að
auki hafi merki Landmælinga rík-
isins verið fjarlægt af speglunum
og jarðvegi kastað yfir þá. Múnzer
segist enga skýringu hafa á þess-
um skemmdarverkum. Engu lík-
ara sé en viðkomandi hafi vísvit-
andi reynt að eyðileggja fýrir
rannsóknunum. Litlu máli hafi
skipt þótt aðrar skrúfur hefðu
verið fjarlægðar, en svo virtist
sem viðkomandi hafi lagt sig fram
um að fjarlægja þessar tilteknu
stilliskrúfur og þar með að
skekkja stöðu speglanna. Múnzer
segir að nú sé verið að kanna
hvort fleiri speglar hafi verið
skemmdir.
Fylgst með Gríms-
vötnum og Kötlu
Múnzer segist vona að ekki verði
framhald á þessum skemmdar-
verkum. Sér hafi tekist að fá fjár-
magn í framhaldsrannsókn sem
standa eigi frá 1999-2005. Við
þetta verkefni verði notaður nýr
gervihnöttur sem skotið verður á
braut um jörðu á næsta ári, en
hann er í eigu Geimrannsóknar-
stofnunar Kanada.
Múnzer segir að mjög spenn-
andi sé að fýlgjast með breyting-
um sem orðið hafi á Grímsvötnum,
Bárðarbungu og Skeiðarársandi
frá síðasta Skeiðarárhlaupi. Mjög
áhugavert sé einnig að fylgjast
með Mýrdalsjökli og Kötlu, en
hann vonast eftir að þær upplýs-
ingar sem safnað er í rannsóknun-
um geri vísindamönnum kleift að
spá fyrir um náttúruhamfarir á ís-
landi. Allt byggist þetta þó á því að
rannsóknargögnin, speglamir 30,
fái að vera algerlega í friði til árs-
ins 2005.
Reykjaneskjördæmi
Kristján
stefnir á
2. sætið
KRISTJÁN Pálsson, alþingis-
maður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi, hefur
ákveðið að stefna að því að ná
kjöri í annað sætið í prófkjöri
flokksins, sem reiknað er með
að verði haldið um miðjan nóv-
ember.
„Ég hef ákveðið að óska eftir
stuðningi í annað sætið. Ég tel
að með því að setja markið á
ákveðið sæti þá verði skilaboð-
in til kjósenda skýr og ákveðin.
Mér finnst mikilvægt að menn
viti nákvæmlega hverjar mínar
óskir eru. Annað sætið er mik-
ilvægt sæti og gefur þeim sem
það skipar mikilvæg tækifæri á
þinginu og innan flokksins,"
sagði Kristján.
Kristján skipaði fimmta sæti
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins á Reykjanesi í síð-
ustu kosningum, en hann kom
þá nýr inn í landsmálapólitík-
ina. Hann hafði áður unnið að
sveitarstjómarmálum frá ár-
inu 1979 og stundað útgerð.
Kristján sagði að sú reynsla
sem hann hefði aflað sér með
þátttöku í atvinnulífi, sveitar-
stjóm og með setu á Alþingi í
fjögur ár gæfi honum góða
möguleika á að skipa annað
sætið með sóma.
A
I varðhaldi
vegna
gruns um
íkveikju
MAÐUR hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 15.
september vegna gmns um
aðild að íkveikju á Vatnsstíg 3
í Reykjavík. Éldur kom þrí-
vegis upp í húsinu um síðustu
helgi.
Málið hefur verið rannsakað
sem íkveikjumál af rannsókna-
deild lögreglunnar í Reykja-
vík. Skemmdir urðu talsverðar
á húsnæðinu og tveir íbúar
vora fluttir á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur
vegna reykeitranar. Fyrst
kviknaði í húsinu tvívegis að-
faranótt laugardags og síðan
um miðnætti á sunnudags-
kvöld.
íslensk stúlka slasaðist alvarlega þegar henni var ýtt yfír brúarhandrið í Lúxemborg
Liggur á gjörgæslu
eftir 15 metra fall
UNG íslensk stúlka, Sara Theo-
dórsdóttir, liggur á gjörgæslu
sjúkrahúss í Lúxemborg eftir að
hafa fallið 15 metra fram af brú
yfir akveg snemma á sunnudags-
morgun. Theodór Júlíusson, faðir
Söru, segir að dóttir sín hafi ver-
ið á gangi eftir brúnni á leið
heim frá vinkonu sinni þegar
maður, nokkuð eldri en hún, vék
sér að henni.
„Hún er á göngu þegar að
henni kemur maður. Þau eiga
einhver orðaskipti og síðan gerii;
hún sig líklega til þess að fara.
Tekur maðurinn þá utan um
hana og reynir að kyssa hana.
Hún streitist á móti svo maður-
inn tekur undir handarkrikann á
henni og lyftir henni upp á brú-
arhandriðið. Hún reynir að
spyrna á móti og fellur aftur yfír
sig. Að sögn lögreglu er þetta um
15 metra fall,“ segir Theodór.
Sara er 23 ára og hefur starfað
sem „au-pair“ í Lúxemborg síðan
í byijun júní. Segir Theodór að
hún hafí legið í nokkurn tíma þar
sem hún kom niður, á hörðum
grasbletti, áður en vegfarandi
kom að og kallaði lögreglu á
vettvang. Liggur hún nú illa
brotin á gjörgæslu ytra. „Hún er
illa mjaðmagrindarbrotin og með
sprunginn og brákaðan
hryggjarlið. Annað Iungað á
henni féll saman og safnast hefur
mikill vökvi við lungun sem hef-
ur þurft að tappa af... Þetta er
ekki gott,“ segir Theodór.
Missti mikið blóð
Theodór og kona hans, Guðrún
Stefánsdóttir, flugu til Lúxem-
borgar strax á mánudag til þess
að hitta dóttur sína og segir
Theodór viðbúið að hún þurfi að
vera á spítala næstu vikur.
Dvelja þau hjónin hjá fjölskyld-
unni sem Sara hefur starfað hjá í
sumar. „Það stóð til að hún færi í
uppskurð en við það var hætt af
einhveijum ástæðum [í fyrra-
dag]. Hún missti mikið blóð og er
afar bólgin. Mjaðmagrindin er
hins vegar það illa útleikin að
læknunum fannst að þeir þyrftu
að komast að henni og spengja
en urðu að hætta við. Þeir vilja
bíða og sjá til en eru bjartsýnir á
batann. Þetta tekur allt sinn tíma
og ekkert er hægt að segja í
raun fyrr en eftir 3-4 vikur
hvernig hún kemur til með að
koma út úr þessu. Einn læknirinn
gerði mér samt fyllilega grein
fyrir því [í fyrradag] að afleið-
ingarnar gætu orðið varanlegar
að einhveiju leyti því erfitt er að
gera við mjaðmagrindina. Við
getum ekki annað gert en að
vona það besta,“ segir hann.
Theodór segir ennfremur að
þau hjónin hafi velt fyrir sér
þeim möguleika að láta fiytja
dóttur sína til Islands en að þeim
hafi verið ráðlagt að hugsa ekki
um slíkt. „Hún er í mjög góðum
liöndum hér. Hið eina sem okkur
finnst óþægilegt er að geta lítið
verið hjá henni. Hún er enn á
gjörgæslu þar sem henni er hald-
ið sofandi."
Gaf nákvæma lýsingu en
maðurinn er ófundinn
Theodór segir að Sara hafi get-
að lýst manninum mjög nákvæm-
lega fyrir lögreglunni, bæði
klæðnaði hans og útliti, en að
ekki sé búið að hafa upp á honum
enn. „Hún telur að maðurinn hafi
verið talsvert eldri en hún en satt
að segja hef ég ekki viljað ergja
hana mikið með því að ræða
þessa atburði. Lögreglan hefur
talað mikið við hana um það sem
gerðist. Við höfum frekar viljað
reyna að byggja hana upp og
beðið hana um að hugsa um einn
dag í einu. Þetta er auðvitað mik-
ið áfall og erfitt fyrir manneskju
að gera sér grein fyrir því að hún
eigi eftir að vera á spítala næstu
vikurnar. Þetta er bæði andlegt
og líkamlegt áfall. Þó verð ég að
segja það að við foreldrarnir er-
um þakklátir fyrir það, að þetta
skyldi ekki fara verr. Þetta er
það hátt fall og hörð lending að
fyrst að þetta þurfti að gerast má
segja að hún hafi sloppið tiltölu-
lega vel. Hún hefði getað lent á
malbiki. Hún hlaut ekki alvarleg
höfuðmeiðsl en er haldið sofandi í
augnablikinu vegna þess hvað
hún er illa brotin," segir Theodór
Júlíusson að siðustu.