Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 25
ERLENT
Drög að
samningi í
Kosovo
SAMNINGAMENN Banda-
ríkjastjórnar hafa lagt drög að
friðarsamkomulagi fyrir stjóm-
völd í Júgóslavíu og leiðtoga
aðskilnaðarsinna í Kosovo-
héraði. I drögunum er lagt til að
haldnar verði frjálsar kosningar
í héraðinu og stjórnsýsla þess
færð aftur til Pristina. Vestræn-
ir stjórnarerindrekar segja
deilendur hafa samþykkt að
fresta ákvörðun um endanlega
stöðu Kosovo innan sambands-
ríkisins Júgóslavíu í þrjú ár, en
einbeita sér hins vegar að því að
ná tímabundnu samkomulagi
strax.
Þaggað niður í
andófsmanni
KÍNVERSKA lögi-eglan dró í
gær á brott andófsmann sem
hugðist reyna að ná fundi Mary
Robinson, yfirmanns mannrétt-
indamála hjá Sameinuðu
þjóðunum. Hún er stödd í Pek-
ing til að kynna sér ástand
þeirra mála hjá Kínverjum og
kom lögregla í veg fyrir að
andófsmaðurinn hitti hana á
hóteli í borginni.
Varað við árás
í Líbanon
BANDARÍSKA sendiráðið í Lí-
banon hvatti í gær bandaríska
þegna í landinu til að sýna ýtr-
ustu varkárni eftir að send-
iráðinu barst hótun um að gerð
yrði árás á það, líkt og í Austur-
Afríku í síðasta mánuði. Telur
sendiráðið ástæðu til að ætla að
Bandraíkjamönnum sé hætta
búin í Líbanon.
Þefa uppi
lífefnavopn
VÍSINDAMENN í Bandaríkj-
unum hafa þróað fjarstýrðar
flugvélar í leikfangastærð til að
„þefa uppi“ lífefnvopn, að því er
segir í New Scientist. Vélarnar
safna loftsýnum frá eftirlits-
svæðum en vatni er síðan
blandað saman við þau. Nemar í
vélunum kanna síðan hvort agn-
ir úr lífefnavopnum hafa borist í
vatnið.
Veðjað á
N-Irland
og Havel
MESTAR líkur eru taldar á því
að þeir sem stóðu að friðarsam-
komulaginu á Norður-írlandi
eða Vaclav Havel Tékklandsfor-
seti, hljóti friðarverðlaun
Nóbels árið 1998. Alls bárust
139 tilnefningar, sem er mesti
fjöldi frá upphafi en tilkynnt
verður um verðlaunahafann
þann 16. október.
Dregur úr
fylgi Nyrups
FYLGI dönsku stjórnarinnar
hefur hrapað frá því í sumar-
byrjun, ef marka má skoðana-
kannanir. Samkvæmt könnun
sem gerð var fyrir Aktuelt telja
aðeins 31% Dana að stjórnin
geti tekist á við þau vandamál
sem við blasa. Fyrir þremur
mánuðum voru 52% hins vegar
þeirrar skoðunar.
Utan
Reuters
Blendnar
móttökur
MJOG hefur dregið úr líkuni á árangri
af ferð Dennis Ross, sérlegs samninga-
manns Bandarfkjastjórnar, til Mið-Aust-
urlanda, vegna veikinda Benjamins
Netanyahu, forsætisráðherra ísraels.
Netanyahu fékk flensu og hætti við ferð
sína til Georgíu, sem ráðgerð var í gær.
Þá er talin lítil von til þess að hann geti
fundað með Ross í dag eins til stóð.
Fjórir mánuðir eru frá því að Ross
var síðast í Mið-Austurlönduni til að
reyna að miðla málum milli Israela og
Palestínumanna. Ljóst er að ekki eru
allir jafnhrifnir af komu hans, um það
bera þessi veggspjöld í Jerúsalem vitni,
en á þeim er Ross hvattur til að snúa
aftur til síns heima.
Með Marmofloor velur þú umhverfisvænt og sterkt gólfefni.
Auðvelt að leggja.
Marmofloor má leggja á næstum hvaða viðargólf eða steingólf sem er.
Engin þörf er fyrir límingu.
Þar sem plöturnar eru „fljótandi“ þarf ekki að hafa áhyggjur
af minniháttar ójöfnum.
MARMOFLOOR er fáanlegt í fjölmörgum
heillandi litum sem hæfa hverskyns húsakynnum.
KROMMENIE
Marmofloor,
það nýjasta
í náttúrulegum
gólfefnum
KJARAN
GOLFBUNAOUR
SlÐUMÚLI 14 • 108 REYKJAVIK • SÍMAR 510 5500 • 510 5510
OPIÐ: VIRKA DAGA KL. 8-18, LAUGARDAGA KL. 10-13
LINOLEUM PARKET
BEINT A GOLFIÐ