Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ ■S. Málverk/laxveiðar Bragi Asgeirsson C.W. ECKERSBERG: Vanne vatnsstokkurinn, Aqueduc de la Vanne, olía á léreft, París 1812. Seldist á fjórfóldu matsverði 22. aprfl sl. þ.e. 50 millj. ísl. kr. , MARGT undarleg kemur upp þegar l myndlist, listiðnaður, hönnun og almennar íðir eru annars vegar. Má vera eðlilegt í ljósi ! þess að sjónmennta- saga hefur lengstum engin verið í íslenska menntakerfínu. En sjaldan hefur rýnirinn orðið jafn hissa og þeg- ar hann las pistil Leifs Sveinssonar lögfræð- ings á dögunum v „Listaverk, laxveiðar og verðbréfaþing", þar sem hann leggur að jöfnu umdeilanlegar laxveiðar bankastjóra og kaup á myndlistarverkum. Ekki síst vegna þess að um er að ræða valinkunnan mann, sem verið hefur fastagestur á mikils háttar myndlistarsýningum um árabil, kaupandi listaverka og mun eiga dágott safn í heimahúsum, að auk náfrændi Júlíönu Sveins- dóttur listmálara. Eitt augnablik leiddu skrifín hugann helst að pistl- um öfgasinnaðra ungliða yst til hægri eða vinstri. Leiði hjá mér alla umræðu um verðbréf, þar sem ég er fullkomlega úti að aka í þesslags A pappírsverðmætum. Það má í sumum tilvikum nefna það lúxus, að hafa ráð á að kaupa dýr listaverk, en ekki minnist ég að hafa á jafn frumlegan hátt séð sett jafnaðarmerki milli bruðls og fjár- festingar í andlegum verðmætum og hugviti. Listir hafa frá upphafí vega skipað stóran sess í tilurð ríkja og samfélaga, en seint geri ég því skóna, að vægi laxveiða á vegum op- inberra stofnana hafi gegnt viðlíka hlutverki. Fengu landsmenn dæmi um hlutverk lista beint í æð í átta þáttum listsagnfræðingsins Roberts Hughes, Bandaríkin í nýju ljósi, sem nýlokið er að sýna í Ríkissjónvarpinu. Frábærum þáttum sem þyrfti að endursýna, skólakerfíð að tryggja sér til uppfræðslu unga fólksins, einkum í ljósi þess að um voldugasta ríki veraldar er að ræða. Þar skipa listir stóran sess ekki síst myndlist, sem óvíða ber í sér jafn sterk þjóðareinkenni, jafnvel naum- hyggjuna, minimalismann, álítur Listir hafa skipað stór- an sess í tilurð ríkja og samfélaga, en Bragi Ásgeirsson gerir seint því skóna, að vægi lax- veiða á vegum opin- berra stofnana hafí gegnt viðlíka hlutverki. Hughes síðasta mikla afrek Banda- ríkjamanna í núlistum á þessari öld og rennir sterkum stoðum undir þá fullyrðingu. Naumhyggju má út- leggja sem kaldhamraðan einfald- leika, eins konar hreintrúarstefnu í myndlist, gjörsneydda tilfinningum. Þá má enn einu sinni vísa til og minna á, að verðgildi listaverka þykja spegla styrk þjóða og hvergi í heiminum eru verk núlifandi lista- manna í jafn háu verði og Banda- ríkjunum, og engri þjóð er jafn annt um menningarleg landamæri sín. Þá þykja myndlistarverk öruggustu hlutabréfin og bankar gegna miklu hlutverki í ferlinu, hafa jafnvel lán- að einstaklingum hundruð milljóna dollara til kaupa á mikilvægum listaverkum. Það mundu þeir naum- ast gera í sambandi við laxveiðar opinberra fyrirtækja né aðra for- gengilega hluti, hismi og hjóm, en þar hafa vanþróuð ríki ótvirætt for- ystu, auk vanmats á andlegu at- gervi, hugverkum og mannauði. Síður skyldu menn tapa heilli hugsun, þótt myndlistarverk hafí fallið í verði hér á landi á undan- fömum árum, markaðurinn mgl og hefur lengi verið. Spyrja frekar hvað valdi og hvaða meinsemd í þjóðarlíkamanum það spegli. Þá hafði það minnst með gildi mynd- listar í sjálfu sér að gera, þótt óprúttnir kaupahéðnar spenntu upp verðgildi myndverka á níunda ára- tugnum og jafnframt verðbréfa ým- iss konar. Málverkið í sinni hreinustu mynd hefur risið úr öskustó, en hins vegar hafa ýmsir tilbúnir meistarar list- húsa og sýningarstjóra horfíð af sjónarsviðinu og að þeim lítil eftir- sjá. I Bandaríkjunum hafa myndir nokkurra nafnkenndra myndlistar- manna hækkað úr einni og allt upp í fímm milljónir dollara á fáum árum og hafa aldrei verið á hærra verði. í Evrópu er markaðurinn á uppleið, og svo við lítum okkur nær skal hermt af uppboði í Kaupmannahöfn 22. apríl sl., en þá var málverk eftir gullaldarmálarann C.W. Eckers- berg (1783-1853) slegið á fjórföldu matsverði, eða tæpar 50 milljónir ísl. kr. Lófastór teikning eftir Christen Köbke (1810-1848), 9.5 x 12 sm. metin á-10.000 d.kr. var á sama uppboði slegin á 149.000! Bann er á útflutningi beggja myndanna nema að safn standi að kaupunum, og má geta þess að málverk eftir Vilhelm Mar- strand (1810-1873), metið á 400.000 d.kr. keypt til Lundúna á 900.000, var kallað heim aftur. Nei, síst skyldi kaupum á lista- verkum líkt við laxveiðar, og hér hafa íslenskir bankar ólíkt hreinni skjöld þótt deila megi um innkaup hvers íyrir sig. Gefur augaleið að Búnaðarbankinn, sem hefur verið sterkasti bankinn um árabil, mun eiga besta og verðmætasta safnið. Auðvelt að vera því hjartanlega sammála, að bankarnir eigi að sýna söfn sín sérstaklega, en þá er sá hængurinn á að Búnaðarbankinn hefur þegar gert það með veglegri sýningu í Austursal og gangi Kjar- valsstaða fyrir nokkrum árum. Loks skal þess getið, að Þýska- landsbanki gaf út stóra bók um kaup sín á verkum samtímalista- manna á sl. ári, en hann hefur lengi stutt einarðlega við bakið á nýsköp- un í myndlist. Væri kannski lag að draga dám hér af. Höfundur er myndlistargagnrýn- andi. Stjórntækniskóli íslands Höfðabakka 9 Sími 567 1466 MARKAÐSFRÆÐI Stjórntækniskóli Islands gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í markaðsfræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki, sem vill bæta við sig þekkingu og fá innsýn í heim markaðsfræðanna. Markmið namsins er meðal annars að þátttakendur tileinki sér markaðshugsun í íslensku viðskipta- og athafnalífi og nái þannig betri árangri. er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin e próf í einstökum greinum. eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góð reynslu við kennslu og í viðskiptalífinu. Námsgreinar Markaðsfræði. Sölustjórnun og sölutækni. Vöruþróun. Vörustjórnun. Stjórnun og sjálfstyrking. Auglýsingar. Tölvunotkun í áætlanagerð. Viðskiptasiðferði. „Ég mæli með náminu fyrir alla þá, er starfa við markaðs- og sölustörf. Ég hef verið í sölumennsku í 6 ár og námskeiðið hefur nýst mér vel í starfi. Fjölbreytt og áhugaverð námskeið." Elísabet Ólafsdóttir Eggert Kristjánsson hf. „Eg mæli tvímælalaust með þessu námi fyrir alla þá sem eitthvað eru tengdir markaðs-, sölu- upplýsinga-, skipulags- og/eða framleiðslumálum sinna fyrirtækja." Hendricus Bjarnason, Skýrr Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar. Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00. SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur Qhrntv tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 5611680 Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði SafOavörðustíg 21, Re^cjavík, sími 551 4050 Háþrýstidæluf DieseL bensín og rafdrifnar. Tllboðsverðfrá kr. 17.900 @Dælwv7G]0 ehf Ármúla 34, 108 Reykjavík Sími: 533 4747 Fax: 533 4740 VOlQ Blöndunartæki Vola blöndunartæki hafa verið margverðlaunuð fyrir sérstakan stfl og fágun, en hönnuðurinn er hinn þekkti danski arkitekt Arnejacobsen, sem öðlaðist heimsfrægð fyrir framúrskarandi arkitektúr. Tækin eru fáanleg í litum, krómuð og í burstuðu stáli. Heildsöludreifing: Smiðjuvegi II.Kópavogi TEflGlehí Sími564 1088.fax564 1089 Fæst í byggingavdrui/erslynum tim land allt. www.mbl l.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.