Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Félag eldri borg- ara opnar nýtt félagsheimili MERKILEG tímamót eru nú að ganga í garð hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni því um helgina verður formlega opnað nýtt og glæsi- legt félagsheimili í Álfheimum 74 (Glæsibæ) sem hlotið hefur nafnið Ásgarður. Félagið hefur nú flutt alla starfsemi sína bæði skrifstofu og félagsstarf, frá Hverílsgötu 105 í Álfheima 74, en þar var orðið mjög þröngt fyrir félags- starfíð. Félagar í FEB eru nú um 7.100 og þörfín fyrir aukið fé- lagslíf er vaxandi. Eldri borg- urum fer sífellt fjölgandi og því var nauðsynlegt að fá aukið húsrými fyrir þennan aldurs- hóp. Það hefur verið unnið undanfarna 3 mánuði að breyt- ingum á þessu nýja húsnæði. Um er að ræða sali sem eru u.þ.b. 500 fm sem hægt er að skipta niður í 2 eða 3 sali með hljóðeinangrandi færanlegum skilrúmum, eftir þörfum. FEB hefur á undanförnum árum verið með öflugt félagsstarf sem varðar bæði afþreyingar- mál og hagsmuna- og kjara- mál. Á opnunarhátíð sem haldin verður um helgina verða kynnt- ir um 25 málaflokkar sem FEB stendur fyrir. „Flestir eru sam- mála um að þörf eldra fólks fyr- ir afþreyingu og félagsskap sín á milli er nauðsynleg og er fyr- irbyggjandi gagnvart ýmsuin sjúkdómum bæði andlegum og Iíkamlegum. Það hefur stund- um borið á því, að þessir þættir eru ekki metnir að verðleikum því erfitt er að setja fram ein- hverja tölfræði til sönnunar um það, hve gott félagslíf með dansi, söng, leiklist, spila- mennsku o.m.fl. spara mikið í heilbrigðisþjónustu,“ segir í frétt frá FEB. Morgunblaðið/Ámi Sæberg RAGNAR Jörundsson framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavfk í hinu nýja félagsheimili. Opið hús um helgina Laugardaginn 12. sept. og sunnudaginn 13. sept. verður opið hús frá kl. 14 til 17 báða dagana þar sem starfsemi FEB verður kynnt og að auki verða ýmis skemmtiatriði og veiting- ar á vægu verði. Þangað er öll- um boðið sem vilja skoða hið nýja félagsheimiíi og sjá og heyra hvað Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni stend- ur fyrir. 17 punda sj<5- birtingur úr Litluá MARTEINN Gunnarsson tann- smíðameistari veiddi 17 punda ný- genginn sjóbirting í Litluá í Kelduhvei-fi á þriðjudaginn. Birt- ingurinn, sem var 90 sentímetra langur og akfeitur, er stærsti sil- ungur sem Morgunblaðið hefur haft spumir af á þessari vertíð. Litlaá er einmitt fræg fyrir sína stóru sjóbirtinga og það eru aðeins tvör ár síðan Marteinn veiddi 18 punda birting í ánni og veiðifélagi hans, Skarphéðinn Asbjömsson, veiddi annan jafn stóran þann dag. „Eg fékk fiskinn á maðk og þetta var stutt en snörp viðureign og hann tók vel í. Glíman byrjaði á því að hann festi línuna í botni og var svo að stökkva um alla breiðu á meðan ég reyndi að losa. Maður áttar sig ekkert á þyngd- inni á meðan veitt er, mér sýndist þetta geta verið 6-8 punda fiskur, en svo náði veiðifélaginn ekki ut- an um stirtlustæðið er komið var að því að landa tröllinu. Þetta reyndist svo vera 17 punda hængur," sagði Marteinn í sam- tali við Morgunblaðið. Þeir félag- arnir veiddu annars „lítið“ að sögn Marteins, fjóra laxa sem vora 4-5 pund hver og eina litla bleikju. „Það er ekki mikið að hafa þarna orðið en samt var þetta eitthvað betra í ánni í sum- ar heldur en í fyrra,“ bætti Mar- teinn við. Alls veiddust á sjötta hundrað físka í Litluá í sumar. Stórfiskinn veiddi Marteinn á efsta svæði árinnar. Lifnar yfir Þverá í Fljótshlíð Alls hafa 110 laxar veiðst í Þverá í Fljótshlíð að sögn Hans Magnússonar í Kirkjulækjarkoti. Hann sagði mikinn lax í ánni, sér- staklega í henni ofanverðri og meira hefði ugglaust veiðst ef áin væri betur nýtt. „Það vantar enn MARTEINN Gunnarsson með risabirtinginn, 17 punda. tiltrú á Þverá og svo erum við alltaf að læra betur og betur á hana. Það er ekki alveg rétt sem margur heldur að það komi bara lax í hana seint og um síðir. Sjálf- ur veiddi ég fyrstu laxana í byrj- un júlí. Auk laxanna hefur veiðst slatti af sjóbirtingi og samkvæmt hefð eigum við von á sjóbirtings- göngum á næstunni. Það verður veitt hjá okkur til 10. október," sagði Hans enn fremur. Þetta er annað sumarið sem Þverá fær endurheimtur af gönguseiða- sleppingum, en að sögn Hans gera menn sér vonir um að Þverá geti verið laxveiðiá af eigin rammleik. „Það er að minnsta kosti mikið að sjá af smáum seið- um í ánni. Við látum rafveiða ána og könnum málið. Eg hef þá trú að áin sé hlýrri að eðlisfari heldur en Rangárnar og við vitum að það era víða á svæðinu heppileg hrygningarsvæði," bætti hans við. Stórir urriðar... Það er ekki aðeins Litlaá sem gefið hefur feiknastóra uri-iða að undanfórnu. Fyrir skemmstu veiddist til dæmis 11 punda urriði í Bjallalækjarósi í Ytri-Rangá. Talið er að sami fiskur hafi veiðst nokkrum vikum fyrr, en þá verið sleppt. Þá veiddist fyrir skömmu 10 punda sjóbirtingur í Laxá í Að- aldal. Að sögn Orra Vigfússonar er yfirleitt slangur af birtingi í Laxá í ágúst og byrjun septem- ber, en sjaldgæft að um stæiri fiska en 4-5 punda sé að ræða. Skógarás — sérinng. — laus strax Nýkomin í sölu glæsileg 75 fm íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli á frábærum stað í Ásum. íbúðin skartar fallegum innrétttingum. Allt sér. Hér getur þú flutt inn strax. Áhvílandi 3 millj. Verð aðeins 6,3 millj. Langholtsvegur — 100fm Vorum að fá í einkasölu glæsilega 100 fm 3ja herb. íbúð í kjallara rétt við Álfheima. Örstutt í góða þjónustu og ísbúðina. Stór herbergi, stórt eld- hús. Góðar rinnréttingar. Eign sem fer strax. Áhvílandi 4,6 millj. Verð 7,2 millj. Ný íbúð í Smáranum — sérinng. Ný glæsileg 2ja herb. íbúð á 1. hæð í nýlegu'húsi. Hús fullfrág. sem og lóð og bílastæði. Góðar innréttingar. Allt sér. Áhvílandi 4 millj. Vantar strax — vantar strax Vantar strax einbýli, raðhús og parhús á allt að 20 millj. í Reykjavík eða Kópavogi. Mjög fjársterkur kaupandi. Allt að því staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign. ValKöll fasteigxiasala, Síðumúla 27, sími 588 4477 111 RAUÐALÆKUR 3 146 fm góö neðri sérhæð í fjórbýli ásamt 34 fm bíl- skúr. 3 rúmgóð svefnherb- ergi auk forstofuherbergis, 2 stórar stofur, nýtt eld- hús. Til afhendingar strax. Verð 12,8 millj. (ph FASTEIGNA [ IP MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMAR 551 1540 og 552 1700, FAX 562 0540. Sjálfstæð- isflokkur- inn eykur fylgi sitt Sjálfsstæðisflokkurinn eykur fylgi sitt samkvæmt nýná skoðanakönnun Gallup. Fylgi flokksins nú er 47,1%, en var fyrir mánuði 42,9%. Litlar breytingar verða á fylgi ann- arra flokka. Fylgi Framsókn- arflokksins mælist 12,9%, en fylgi flokksins hefur verið lágt i síðustu tveimur mælingum miðað við fyrri mælingar. Sameiginlegt framboð félags- hyggjufólks fær 15% fylgi, Al- þýðubandalagið 8,5%, Alþýðu- flokkurinn 7,6%, Kvennalist- inn 2,7% og framboð kennt við Svem Hermannsson 4,5%. Fylgi við ríkisstjórnina er samkvæmt könnuninni 66,1%, en samanlagt fylgi ríkisstjórn- arflokkanna er 60,1%. I könnuninni var spurt hvaða lista fólk myndi kjósa ef þrír listar væru í boði, Sjálf- stæðisflokkur, Framsóknar- flokkur og framboð félags- hyggjufólks. 52,5% sögðust ætla að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn, 15,3% Framsóknar- flokkinn og 32,2% lista félags- hyggjufólks. Könnunin var gerð 25. ágúst til 6. september. 1.138 einstaklingar á aldrinum 18-75 ára vora spurðir og var svarhlutfall 71,3%. I hvaða landi er best að búa? Island í fímmta sæti ÍSLAND er í fimmta sæti á lista Sameinuðu þjóðanna yfir þau lönd þar sem best er að búa í heiminum. Listinn bygg- ist á mælingum sem byggjast á heilsufari, menntunará- standi, lífslíkum og meðaltekj- um á hvern íbúa í löndum heims. í efsta sæti listans er Kanada, í öðra sæti Frakk- land, Noregur í þriðja og Bandaríkin í fjórða. Finnland er í sjötta sæti, Holland í 7., Japan í 8., Nýja Sjáland í 9. og Svíþjóð í 10. sæti. I frétt sem Reuters frétta- stofan birtir um könnunina segir að könnunin byggist á tölum frá 1995. Henni sé ætlað að sýna fram á að lífsgæði verði ekki aðeins mæld á efna- hagslegan mælikvarða. Til dæmis séu lágtekjulönd á borð við Tanzaníu og Ví- etnam ofar á listanum en ef eingöngu væri miðað við efna- hag. Á hinn bóginn eru lönd á borð við Branei og Kúveit neðar en sem svarar til þjóð- artekna, sem gefur til kynna að þar hafi mistekist að búa þjóðinni betra líf þrátt fyrir efnahagslega velgengni. I fréttinni er einnig greint frá sérstakri mælingu sem gerð var þar sem einnig var litið til jafnréttis kynjanna. Þá fer ísland upp í fjórða sæti listans, á eftir Kanada, Noregi og Svíþjóð en á undan Finn- landi, Bandaríkjunum og Frakklandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.