Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.09.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Brýnustu nauðsynjar á þrotum í Rússlandi „Ottast að hungr- að fólk brjótist inn í verslanir“ Moskvu. Reuters. VÖRUBIRGÐIR í versl- unum eru á þrotum, farið er að skorta brýnustu lífs- nauðsynjar og reiði og ör- vænting einkenna við- brögð rússnesks almenn- ings, allt frá Eystrasalti í vestri til Kyrrahafsstrand- arinnar í austri. Kemur þetta meðal annars fram í könnun, sem fréttaritarar Reuteí's-fréttastofunnar í Rússlandi hafa gert. I Moskvu rífast stjóm- málamennirnir um það hver skuli vera næsti for- sætisráðherra en á götum borganna bíður örvænt- ingarfullt fólk í löngum röðum í von um að komast yfír síðustu matarögnina í verslununum. Verð á sykri hefur viða þrefaldast, hveitiverð tvöfaldast og síðustu flöskurnar af mat- arolíu fóru á fimmfóldu verði. Bókhveiti, sem Rússar nota mikið, fæst ekki lengur í versl- unum en hægt er að fá það í 30 og 40 kílóa sekkjum á götunni. Kaffi er ekki til en eitt- hvað eftir af dýrustu tetegundunum. „Hér slógust tvær konur í morgun um síð- asta smjörlíkisstykkið," sagði afgreiðslukona í einni verslananna. Lyfín búin Níkolaj Akenkev, læknir á slysavarðstofu sjúkrahúss í Novísíbírsk, sagði, að lyfin væm á þrotum, aðeins hægt að taka á móti 20 manns í viðbót, og sjúklingar fá ekki lengur neina mjólk. Sagði hann, að birgðir af bók- hveiti, sykri, smjöri og kjöti myndu endast enn í fimm daga. Embættismaður í Vladívostok, stærstu höfninni við Japanshaf, kvaðst óttast, að upp úr syði. „í Moskvu eru menn búnir að gleyma okkur fyrir löngu enda ráðalausir í sínum eigin málum. Ég óttast, að þess verði ekki lengi að bíða, að hungrað fólk brjótist inn í verslanirnar og jafnvel hengi okkur embættis- mennina," sagði hann. I Vladívostok hafa yfir- völd bannað verðhækkanir en verslunareigendur segja, að vörurnar verði þeir að kaupa í öðrum hér- uðum og megi þeir ekki miða við raunverulegt inn- kaupsverð, geti þeir ein- faldlega lokað búðunum. Þetta er sama sagan alls staðar í Rússlandi og í Ka- líníngrad, rússneskum landskika milli Póllands og Litháens, lýsti ríkisstjór- inn, Leoníd Gorbenko, yfir „neyðarástandi" fyrr í vikunni. Svipaði orða- laginu svo til yfirlýsinga um „hemaðará- stand“, að yfirvöldin í Moskvu sáu ástæðu til að mótmæla því. Efnislega var þó aðeins ver- ið að biðja framleiðendur að hækka ekki vöruverð. Jeltsín burt! I Jeleseivskí-versluninni í Pétursborg var allt kjöt uppurið nema grísafætur og í mjólk- urdeildinni aðeins dýr, innfluttur ostur. Éinn verslunarstjóranna var önnum kafinn við að útbúa nýja verðmiða og hann sagði, að morgnamir færa að mestu í það verk. Sagði hann ómögulegt að kaupa erlenda vöra vegna þess, að bankakerfið væri stopp og innflytjendur heimtuðu staðgreiðslu. „Það er kominn tími til að reka Jeltsín út úr Kreml,“ sagði hann. Reuters GOMUL kona í Moskvu biður vegfarendur að sjá aumur á sér og gefa sér peninga fyrir mat. Reuters ÞOTT gripið hafi verið til þess í surnuin rússnesku héraðanna að banna verðhækkanir er hætt við, að það komi fyrir lítið þar sem vörur em almennt á þrotum. Hér er verið að setja það, sem eftir er, upp í hillur í verslun í Kozíno, Iitlum bæ skammt frá Moskvu. Gliðnar Rússland í sundur? UPPLAUSNIN í rússneskum efnahagsmál- um og algert stjórnleysi í málefnum ríkis- ins hefur valdið því, að í sumum sjálfstjórn- arlýðveldanna hafa yfirvöldin tekið málin í sínar eigin hendur. Varla er unnt að tala lengur um einhver tengsl á milli Moskvu- valdsins og íjarlægustu héraðanna og sum- ir ríkisstjóranna hafa á orði, að haldist þetta ástand miklu lengur muni rússnesku lýðveldin, einhver þeirra að minnsta kosti, reyna að bjargast upp á eigin spýtur. Ringulreiðin í Moskvu hefúr kynt undir þeim kröftum, sem toga Rússland í sundur, og í mörgum héraðanna eru ríkisstjórarnir farnir að haga sér sem væru þau sjálfstætt ríki. Þeir hafa gefið út tilskipanir um bann við verðhækkunum og jafnvel lagt fram sínar eigin neyðaráætlun í efnahags- málunum. Fréttaskýrendur segja, að ringulreiðin í efnahagsmálunum og stjórnmálunum valdi því, að sjálfstæði héraðanna, sjálfstjórnar- lýðveldanna 89, aukist dag frá degi. Sér- staklega eigi þetta þó við um ríkustu hér- uðin, níu talsins, sem haldi í raun hinum uppi. Hugsanlegt er, að þau kæri sig ekki um það lengur, telji sig ekki vera aflögu- fær, en það gæti aukið enn á sundrunguna í landinu. Héruðin bjargi sér sjálf Að minnsta kosti fimm ríkisstjórar hafa reynt að banna verðhækkanir á sínu svæði og yfirvöld í hinni gullauðugu Jakútíu hafa takmarkað verulega sölu á gulli til banka og alríkisstjórnarinnar. Aman Túlejev, rík- isstjóri í Kemerovo, sagði í viðtali við bandaríska dagblaðið The Christian Sci- ence Monitor, að breyttist ástandið ekki til batnaðar væri ekki annað fyrir sjálfsijórn- arlýðveldin að gera en rífa sig laus og bjarga sér sjálf. Þess má geta, að í Kemer- ovo er helmingurinn af kolaframleiðslunni í Rússlandi. Vangaveltur um framtíð rússneska alrík- isins voru byrjaðar löngu áður en Tsjetsjenar reyndu og tókst kannski í raun að rífa sig lausa og varla er hægt að segja, að nágrannaríki Tsjetsjníju, Dagestan, lúti stjórninni í Moskvu nema að nafninu til. Þá hafa til dæmis sjálfstjórnarlýðveldin við Volgu, Tatarstan, Samara og Nízhní Novgorod, lengi séð um sín fjármál sjálf og oft komið sér hjá skattgreiðslum til alríkis- stjórnarinnar. Þótt efnahagshrunið nái til alls landsins er ástandið verst í íjarlægustu héruðunum, til dæmis við Kyrrahafið. Þar hefur fólk orðið að reiða sig á innflutning á flestum nauðsynjum en nú hefur algerlega tekið fyrir hann. Sama er uppi á teningnum í þeim sjálfstjórnarlýðveldum, sem fá obbann af fjárlögunum, allt að 70%, beint frá alríkinu. Allsheijarverkfall 7. október Alexander Lebed, fyrrverandi hershöfð- ingi og núverandi ríkissljóri í Krasnojarsk í Síberíu, sagði í gær, að Borís Jeltsín yrði að segja af sér sem forseti til að greiða fyr- ir sljórnarmyndun í landinu. Ella væri hætta á almennri uppreisn. „Ástandið versnar með degi hverjum. Gengi rúblunnar lækkar, verðlagið hækkar og verslanirnar eru tómar,“ sagði hann. „7. október hefst allsherjarverkfall í landinu og fimm mínútum síðar verður allt komið úr böndunum." Forsætisráðherra Dana til Færeyja Kallsberg hyggst lesa yfír Nyrup Þórshöfn. Morgunblaðiö. POUL Nyrap Rasmussen, forsæt- isráðherra Dana, á von á reiðilestri frá færeyskum stjómmálamönnum er hann kemur í vinnuheimsókn til Færeyja í dag. Heimsókn Nyraps stendur í fjóra daga og auk óska landstjórnarinnar um sjálfstæði er búist við því að ræddar verði ýms- ar yfirlýsingar danskra ráðamanna sem vakið hafa reiði á Færeyjum, m.a. í tengslum við uppgjör banka- málsins og hugsanlegrar olíu- vinnslu í færeyskri lögsögu. Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja, hefur lýst því yfir að hann hyggist mótmæla yfirlýsing- um Svend Auken, umhverfismála- ráðherra Danmerkur, um væntan- legar viðræður Færeyinga og Breta um landhelgismörk vegna ol- íuleitar. Þá er Kallsberg einnig af- ar ósáttur við yfirlýsingar Ame Larsen, formanns ráðgjafanefndar danska forsætisráðuneytisins, um Færeyjar, en Kallsberg telur þær vinna gegn efnahagsstefnu fær- eyskra stjómvalda. í viðtali við færeyska útvarpið á nýlegri olíuráðstefnu í Stavanger í Noregi lét Auken þau orð falla að sér hefði skilist að Færeyingar væra reiðubúnir að slaka á kröfum sínum í deilum sem staðið hafa við bresk stjómvöld um hvar mörk lögsaga landanna liggi. Hefur Hel- ena Dam á Neystabp, sem sæti á í landsstjóminni, sagt slíkar yfirlýs- ingar skaða samningastöðu Éærey- inga gagnvart Bretum þar sem vel væri fylgst með orðum manns á borð við Auken. Vísar Dam því á bug að Færeyingar séu reiðubúnir að gefa eftir og minnir jafnframt á að Auken sé bundinn trúnaði hvað varðaði viðræður um landhelgis- mörk, en dönsk og færeysk stjórn- völd hafa starfað saman að þeim. Arne Larsens reitti Færeyinga til reiði með orðum sem hann lét falla í viðtali við Berlingske Tidende um að efnahagsástand væri nú svo gott í Færeyjum að ekki hefði verið þörf á því að greiða Færeyingum sem svarar til 15 milljarða ísl. kr. í bætur vegna Færeyjabanka. „Við hyggjumst framfylgja varkárri stefnu í efna- hagsmálum. Með ummælum sínum um að hér sé rífandi uppgangur grefur Larsen undan áætlunum okkar. Þetta hyggst ég ræða við danska forsætisráðherrann," segir Kallsberg. Auk áðurnefndra atriða verða óskir Færeyinga um sjálfstæði vafalaust ræddar, þótt áætlanir færeysku stjómarinnar í málinu séu enn skammt á veg komnar. Ný rannsókn á fjármögnun kosningabaráttu Clintons 1996 Afangi í átt að skipan nýs óháðs saksóknara Washington. Reuters. JANET Reno, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, fyrirskip- aði í gær 90 daga forrannsókn á því hvort Bill Clinton forseti braut kosn- ingalög í bar- áttunni fyrir endurkjöri sínu árið 1996. Þessi ákvörð- un Reno fylgdi í kjölfar 30 daga lögfræði- legrar könn- unar á því hvort forsetinn hefði gerzt brotlegur við gddandi laga- reglur um fjármögnun kosninga- baráttu, og felur í sér áfanga í þá átt að dómsmálaráðherrann íhugi að skipa óháðan saksókn- ara til að fylgja málinu eftir. Málið snýst um það, hvort Clinton hafi reynt að fara á svig við lagalegt hámark útgjalda til kosningabaráttu með auglýs- ingaherferð sem kostaði 40 millj- ónir dollara, um 2,9 milljarða króna, sem rekin var fyrir reikn- ing Demókrataílokksins en var sniðin að baráttunni fyrir endur- kjöri Clintons. Sérstakur dómur, skipaður þremur dómuram úr áfrýjunar- dómstól Bandaríkjanna sem hafa yfirumsjón með túlkun lag- anna um óháða saksóknara, heimilaði Reno að opinbera ákvörðun sína um að hefja rann- sóknina. Þessi ákvörðun hennar fylgir í kjölfar fyrri ákvarðana sem miða í sömu átt, þ.e. rann- sókn á fjármögnun kosningabar- áttu Clintons og varaforsetans Als Gores 1996, og teknar hafa verið á síðustu vikum. Þriðja rannsóknin Reno hafði áður fyrirskipað rannsókn á því hvort Gore varð uppvís að lygum þegar hann var í fyrra spurður út í símtöl í fjáröfl- unarskyni sem hann er sagður hafa átt úr skrifstofusíma Hvíta hússins. Auk þess hafði hún fyr- irskipað rannsókn á því hvort Harold Ickes, fyrrverandi emb- ættismaður í Hvíta húsinu, hefði gerzt sekur um meinsæri er hann bar vitni um mál Gores fyr- ir rannsóknarnefnd öldunga- deildar Bandaríkjaþings. Það gildir um allar þrjár rannsóknir, sem hér með era komnar í gang, að Reno getur tekið ákvörðun um hvort skipa skuli óháða saksóknara í hverju máli fyrir sig þegar 90 daga fresturinn rennur út, en hún hefur líka kost á því að fram- lengja frestinn um 60 daga til viðbótar. Reno hóf að skoða aftur kosn- ingaauglýsingamálið eftir að henni barst óformleg skýrsla endurskoðenda yfirkjörstjómar Bandaríkjanna, sem hefur um- sjón með túlkun laga um fjár- mögnun kosningabaráttu. Mun niðurstaða skýrslunnar ganga út á að það fé sem eytt var í auglýs- ingaherferðina í nafni Demókra- taflokksins ætti að reiknast sem fé eytt í kosningabaráttu Clint- ons sjálfs. Það þýðir, að í þá bar- áttu hafi verið eytt meira fé en lög leyfa. Demókratar hafa kvartað yfir því að í kosningabaráttu Roberts Doles, forsetaefnis Repúblikana- flokksins, hefði verið beitt ná- kvæmlega sambærilegum að- ferðum til að fara á svig við hið lagalega hámark fjárútláta til kosningabaráttunnar. Bill Clinton
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.