Morgunblaðið - 11.09.1998, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstiréttur
staðfesti
dóma vegna
fíkniefna-
brota
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm héraðsdóms vegna fíkniefna-
brota tveggja manna sem dæmdir
voru í fimm ára og fjögurra og
hálfs árs fangelsi. Akæruvaldið
hafði farið fram á að refsingar
beggja yrðu þyngdar.
Akærðu, Arni Sigurðsson og
Emil Anton Sveinsson, voru sak-
felldir fyrir að hafa staðið að inn-
flutningi á fyrir að hafa staðið sam-
an að skipulagningu og innflutningi
á um 1000 E-töflum um miðjan
desember siðastliðinn.
Ásamt þeim hlutu dóma vegna
málsins sænsk kona og norskur
eiginmaður hennar. Þau áfrýjuðu
ekki til Hæstaréttar fjögurra og
fímm ára fangelsisdómum sínum.
Hæstiréttur staðfesti í gær nið-
urstöðu héraðsdóms varðandi refs-
ingu mannanna tveggja með
skírskotun til forsendna héraðs-
dóms. I héraðsdómi kom m.a. fram
að fíkniefnin sem fólkið fluttí inn
væni mjög hættuleg og geti valdið
varanlegu heilsutjóni eða jafnvel
dauða. Þá hafí brotið verið skipu-
lagt og undirbúningur þess staðið
mánuðum saman.
Ámi neitaði sök en Emil Anton
áfrýjaði í því skyni að fá fjögurra
og hálfs árs dóm yfir sér mildaðan.
Hæstiréttur féllst ekki á kröfur
þeirra og staðfesti niðurstöðu hér-
aðsdóms og dæmdi mennina auk
þess til að greiða málsvarnarlaun
og saksóknarkostnað.
---------------
Eldur í sorpi
í Alfsnesi
MIKINN og svai-tan reyk lagði
upp af urðunarstað Sorpu við Álfs-
nes snemma í gærmorgun er eldur
kom þar upp í sorpi. Slökkviliðið í
Reykjavík var kallað á staðinn um
klukkan 5.30 og um sjöleytið hafði
að mestu tekist að slökkva. Ekkert
tjón varð vegna eldsins.
Talið er að kviknað hafi sjálf-
krafa í rusli á urðunarstaðnum
sem oftlega getur hitnað vel í. Eld-
ur komst meðal annars í hjólbarða
og lagði mikinn reyk yfír nágrenn-
ið en strekkingsgjóstur var af
norðri. Þegar slökkvistarfí var lok-
ið tóku starfsmenn Sorpu til við að
aka jarðvegi yfir staðinn til að
tryggja enn frekar að eldur brytist
ekki út á ný. Stóð það verk fram
eftir degi.
. . , . Morgunblaðið/Arnaldur
SELIRNIR í Húsdýragarðmum eru aftur kommr til sms heima.
Keikó var ekki sá eini sem nutti í gær
HÁHYRNINGURINN Keikó var ekki eina sjávardýr-
ið sem snerí til sinna fyrri heimkynna í gær. Það
gerðu einnig selirnir fímm sem eiga heima í Hús-
dýragarðinum en þeir dvöldu í fiskeldiskeri suður í
Vogum á Vatnsleysuströnd í rúma viku á meðan gert
var við selalaugina í Laugardal.
í gær voru þeir svo fluttir til baka í nýstandsetta
laugina, ekki í herflugvél eins og Keikó, frændi
þeirra, heldur í fiskikerum á flutningabíl. Þó að sel-
irnir Snorri, Særún, Kobba, Hringur og ónefndi kóp-
urinn hafi ekki farið til Hollywood, stefnir allt í það
að þeir verði líka frægir, því á meðan þeir voru í ker-
inu suður með sjó léku þeir í kvikmynd Páls Stein-
grímssonar um seli og stóðu sig með mikilli prýði.
Þó að vel hafi farið um selina í Vogunum var
greinilegt að þeir voru yfir sig ánægðir með að kom-
ast aftur í laugina sína og fengu þeir sér vænan
sundsprett þegar þangað var komið.
Sfldveiðar Islendinga
við Noreg
Auglýst
eftir um-
sóknum
ÍSLENZK skip hafa leyfi til veiða
á 9.000 tonnum af sfld í norskri lög-
sögu norðan 62. gráðu norður á
þessu ári, samkvæmt samkomulagi
norskra og íslenzkra stjórnvalda.
Sjávai'útvegsráðuneytið auglýsir
eftir umsóknum um leyfí til þess-
ara veiða og setur jafnframt ýmis
skilyrði fyrir þeim.
Umsóknir um veiðileyfi skulu
hafa borizt Fiskistofu fyrir 15.
september næstkomandi. Aðeins
þau skip sem hafa veitt 90% af út-
hlutuðum veiðiheimildum sínum úr
norsk-íslenzka sfldarstofninum
eiga kost á því að taka þátt í veið-
unum. Þá koma ekki til greina skip
sem fengu leyfi til veiða í norskri
fiskveiðilandhelgi á síðustu vertíð.
Miðað er við að hvert skip fari
eina veiðiferð. Berist það margar
umsóknir að hvert skip geti vegna
leyfílegs heildarmagns ekki komið
með fullfermi að landi, verður
dregið úr umsóknum unz sameigin-
leg burðargeta þeirra skipa, sem
dregin eru út, nemur sem næst
9.000 tonnum. Þau skip, sem
þannig eru dregin út, fá leyfi en
önnur ekki.
/ . Hrafntínnusker
Rauðufossafjöll ^ - forfa'
Laufafcll
30 km
FOSS í Ljósá í miðri litadýrðinni
en svæðið er jafnframt stærsta
ljósgrýtissvæði landsins.
Morgunblaðið/Hallur Þorsteinsson
GUÐMUNDUR Ómar Friðleifsson jarðfræðingur að
störfum uppi á Hrafntinnuskeri.
Torfajökulseldstöð rannsökuð og kortlögð
Háhitasvæðið eldra og
stærra en áður var talið
Laugavegl 18 • Síml 515 2500 • Siðumúla 7 • Slml 510 2500
Hér er fjallað um þær 23 tegundir hvala
sem sést hafa við Islandsstrendur og helstu
einkennum þeirra lýst í máli og myndum.
Glæsilega myndskreytt og litprentuð.
Fæst á íslenshu, ensku og þýsku
♦>
FORLAGIÐ
RANNSÓKNIR Orkustofnunar á
Torfajökulseldstöð eru langt
komnar en þær hafa staðið með
hléum síðastliðin sex ár. Verið er
að skoða megineldstöð sem kennd
hefur verið við Torfajökul og er
þetta eitt stærsta háhitasvæði
landsins. Það hefur ekki verið
rannsakað í heild áður né verið
kortlagt með tilliti til jarðfræði og
jarðhita.
„Við viljum þekkja þetta háhita-
svæði sem er eitt það stærsta á
landinu vegna þekkingarinnar og
lærdómsins sem við getum dregið
af því. Þessar rannsóknir eru ekki
til að undirbúa virkjanir á svæðinu.
Ef það hins vegar kæmi til álita þá
liggja fyrir nauðsynlegar grunn-
upplýsingar til að leggja mat á
stærð og gerð svæðisins þannig að
hægt væri að bera það saman við
aðra virkjanakosti," sagði Ragna
Karlsdóttir, jarðeðlisfræðingur og
verkefnisstjóri hjá Orkustofnun, í
samtali við Morgunblaðið.
Svæðið erfitt yfirferðar
„Svæðið hefúr hingað til verið
talið um 130.000 ára en kortlagning
jarðlagastafla bendir til að það sé
mun eldra eða þrjú- til fimmhund-
ruð þúsund ára. Viðnámsmælingar
sýna svo fram á að háhitasvæðið er
útbreiddara en áður hefur verið
ljóst og jafnframt hafa sjóðandi
hverir víða verið að koma í ljós t.d.
undan Torfajökli," segir Guðmund-
ur Ómar Friðleifsson, jarðfræðing-
ur hjá Orkustofnun.
Svæðið sem verið er að rannsaka
er milli fimm og sexhundruð fer-
kflómetrar og markast af Laufa-
felli og Rauðufossafjöllum í vestri,
Landmannaleið í norðri og fjalla-
baksleið syðri að sunnanverðu, það
nær svo talsvert austur fyrir
Torfajökul.
Svæðið kortlagt
Jón Örn Bjarnason efnafræðing-
ur segir það tefja fyrir rannsókn-
unum hvað svæðið er erfitt yfir-
ferðar, skorið af dölum, gljúfrum
og gilum. Það er því mikið verk að
komast yfir það allt til að kanna
það og mæla en tíu sérfræðingar
Orkustofnunar hafa komið að rann-
sóknunum.
I rannsóknunum er jarðfræðin
skoðuð til að kynnast uppbyggingu
svæðisins, eldvirkni á því og sögu
þess. Viðnámsmælingar fara fram
og er þeim ætlað að veita upplýs-
iiigar um jarðhitakerfi undir yfir-
borðinu. Efnafræðin er könnuð og
sýni tekin og rannsökuð úr hverum
og laugum og þannig reynt að
finna út hitastig og rennslisleiðir.
Viðnámsmælingamar fara fi'am
þegar svæðið er undir snjó því þá
er hægara að komast um það. Mik-
ill útbúnaður og fyrirhöfn fylgir
mælingunum og er hvert úthald
um tvær vikur, á þeim tíma eru
gerðar 30 til 40 mælingar en þær
ná um allt svæðið. Búið er að fara í
þrjár ferðir til viðnámsmælinga en
eftir er að fara tvær enn.
Rannsóknirnar era langt komn-
ar, sýnatökum og greiningu er nær
lokið og úrvinnsla gagna hafin.
Þegar búið verður að vinna ur
gögnunum er eftir að leiða saman
upplýsingar úr efnafræði, eðlis-
fræði og jarðfræði svæðisins. Þa
verða unnin jarðfræði-, jarðeðlis-
fræði- og jarðhitakort en því verð-
ur ekki lokið fyiT en upp úr alda-
mótum, að sögn Rögnu.