Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 8

Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Gevalia, cappucino, 125 g Kavli kavíar, léttur 95 g Kavli kavíar, Túnfiskur íolíu léttur 150 g ogívatni Gevalia, instant, ■ | iSk kjötsúpo kjötsúpa ÐINni HEIM • UM LAND ALLT Dagur hafsins haldinn 12. september FRÉTTIR Opið hús í Sjáv- arútvegshúsinu við Skúlagötu Fyrsta áfanga í stækkun Kringlunnar miðar vel DAGUR hafsins verð- or haldinn á morg- un, laugardaginn 12. september. Sem kunnugt er ákváðu Sameinuðu þjóð- irnar að árið 1998 skyldi verða helgað hafínu og í til- efni af því setti ríkisstjórn- in upp starfshóp í lok síð- asta árs sem ætlað var að gera tillögur um það hvað Islendingar gætu gert til að minnast hafsins. „Starfs- hópurinn skilaði tillögum í byrjun ársins og var ein hugmyndin sú að helga einn dag ársins hafinu sér- staklega. Akveðið vai' að velja dag þegar skólastarf væri hafið og hjól þjóðfé- lagsins farin að snúast aft- ur eftir sumarfrí. Einnig lætur 12. september vel í eyrum margra tónlist- arunnenda," segir Kúistján Skarp- héðinsson formaður starfshópsins um ástæður þess að dag hafsins skuli bera upp á þennan dag mán- aðarins. - Hvað verður gert á degi hafs- ins? „Starfshópurinn hefur haldið utan um framkvæmdina og reynt að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að brydda upp á einhverju í tilefni dagsins. Nú er ýmislegt komið á daginn, þótt ekki sé um að ræða tæmandi yfirlit. Nefna má sem dæmi opið hús í Sjávarút- vegshúsinu við Skúlagötu 4 þar sem Hafrannsóknastofnun, Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins og Fiskistofa munu kynna starfsemi sína frá klukkan 10-17. Einnig verður við bryggju í Reykjavík hafrannsóknaskip þar sem al- menningi gefst kostur á því að fara um borð og kynna sér rann- sóknastarf. Landhelgisgæslan hyggst líka hafa varðskipið Tý til sýnis í höfninni og hleypa fólki um borð á sama tíma. Munu starfs- menn Gæslunnar leiða gesti í allan sannleik um starfsemi varðskipa. Einnig munu fulltrúar Hoilustu- verndar kynna fyrir fólki mengun- armælingar. Þá verða ýmis söfn opin, svo sem Fiska- og náttúrugripasafnið í Vestmannaeyjum, en þar verður meðal annars sýning á verkum ungs fólks í bænum sem unnin hafa verið í tilefni af ári hafsins. Útgerðarmenn í Eyjum ætla enn- fremur að hafa tvö sldp við höfn- ina, Guðrúnu VE og ísleif VE, og mun fólki gefast kostur á því að fara um borð og kynnast því sem þar fer fram. Fræðslumiðstöðin í Sandgerði verður líka opin þar sem sérstakt botndýraverkefni verður kynnt og margt margt fleira. Einnig veit ég til þess að út- gerðarmenn ætla að bjóða fólki í heimsókn í fiskiskip í höfnum víða um land í haust og von- ......... ast ég til þess að fískvinnslufyrir- tækin geri slíkt hið sama og leyfi almenningi að skoða hvað þar fer fram. Tilgangur dagsins er ekki einvörðungu að standa fyrir alls kyns uppákomum og skipuleggja atburði fyi-ir fólk að sækja, heldur líka að hvetja fólk til þess að hug- leiða hafið og mikilvægi þess fyrir okkur á íslandi í dag. Fólk getur gert það með hvaða hætti sem er, hugsað um hafið, farið í fjöruferð eða bara borðað fisk. Það hringdi hingað kona frá Hússtjórnarskól- anum á Hallormsstað um daginn og vildi láta mig vita af því að hún ætlaði að halda upp á daginn með því að bjóða hátt í 30 konum í sjáv- arréttahlaðborð. Svona getur hver Kristján Skarphéðinsson ► Kristján Skarphéðinsson fæddist í Reykjavík árið 1957. Hann lauk prófi frá framhalds- deild Samvinnuskólans árið 1978 og prófi í viðskiptafræði frá Há- skóla íslands árið 1983. Að því búnu stundaði hann nám við verslunarskóla í Bergen í Noregi frá 1985-1987 þegar hann hóf störf í sjávarútvegsráðuneytinu. Starfaði hann rúm þijú ár sem fulltrúi ráðuneytisins í sendiráði Islands í Brussel. Kristján er kvæntur Guðrúnu Björk Einars- dóttur kennara og eiga þau þrjú börn. Fólk hvatt til þess að hug- leiða hafið og þýðingu þess minnst dagsins með sínu lagi.“ - Hvað annað er efst á baugi þegar málefni hafsins eru annars vegar? „Það er auðvitað nýting lifandi auðlinda þess og markmiðið er að slíkt sé gert á sjálfbæran hátt. Meginverkefni ráðuneytisins er að vinna að því hvemig bæta megi nýtingu fiskistofnanna og skila þeim í góðu ásigkomulagi í hendur næstu kynslóða." - Hvernig miðar umhverfís- verndarsamtökum í áróðri sínum fyrir banni á nýtingu fískistofna? „Við verðum óneitanlega vör við ýmislegt sem bendir til þess að einhver umhverfisverndarsamtök hyggist berjast gegn fiskveiðum í framtíðinni. Mikið er um alls kyns alhæfingar í þessari umræðu, svo sem að 70% fiskistofna séu ofnýtt- ir og að fiskiskipafloti sé hvar- vetna í yfirstærð. Ríkisstjórnin varaði mjög við því í yfirlýsingu vegna árs hafsins fyrr á árinu að allir væru undh- sömu sök seldir í þessari umræðu. Mikilvægt væri að horfa til þess sem vel væri gert í fiskveiðistjórnun og draga lær- dóm af því. Okkur hef- ur tekist vel upp hér- lendis, enda koma sendinefndir hingað víða að til þess að kynna sér íslenska fisk- veiðistjórnun. Þessi vinna fer bæði fram hér heima og á alþjóðavettvangi." - Aróður umhverfisverndar- samtaka gengur mikið út á mann- gervingu dýra. Nú er stærsti tákngervingur slíks málflutnings, sjúlfur Keikó, fíuttur til Vest- mannaeyja. Þykir mönnum í sjáv- arútvegsráðuneytinu það ekki óþægileg nálægð? „Almennt séð hræðumst við manngervingu dýra í áróðurs- skyni. Það beinir umræðunni frá nýtingunni. Við lifum af fiskveið- um og ef menn taka að notfæra sér nálægð þessa dýrs, eða mann- gervingu sjávardýra almennt, til þess að breyta því - þá þarf að bregðast við.“ -790-7- ***** GfAUttO ■ HÁ dú jú læk Iceland mr. Keikó? STÆKKUN vesturbyggingar Kr- inglunnar miðar vel áfram að sögn Ragnars Atla Guðmundssonar framkvæmdastjóra, verkið er um viku á undan áætlun en áætlað er að byggingin verði tekin í notkun hinn 1. nóvember næstkomandi. Gert er ráð fyrir fimm verslun- um í þessari byggingu og verið er að semja við þá sem hyggjast opna þar verslanir. Verslanirnar eru frá því að vera um 90 fermetrar og upp í 300 að sögn Ragnars. Annan janúar verður hafist handa við byggingu torgs og tengi- byggingar milli Borgarleikhúss og Kringlunnar þar sem verða bóka- safn og leikhússalur en áætlað er að stækkunarframkvæmdum ljúki í september á næsta ári. Unnið er að teikningum að seinni hluta stækkunarinnar og í gær var haldinn fundur þar sem samræmd voru sjónarmið þeirra aðila sem að málinu koma, að sögn Guðmundar Kr. Guðmundssonar, arkitekts á Arkþing, sem sér um teikningar á leikhússal og bókasafni. Hann segir vandmeðfarið að skil- greina landamæri menningar og Morgunblaðið/Golli FRAMKVÆMDUM við vesturbyggingu Kringlunnar miðar vel og verður hún tekin í notkun í byrjun nóvember. verslunar sem þarna eiga að mæt- ast og mikið verk að samræma sjón- armið. Mikilvægt sé að fara yfir til- lögumar með öllum sem málið varð- ar áður en endanlega verður gengið frá teikningum og þær lagðar íyrir skipulagsnefnd en hann á von á að þær verði tilbúnar í næsta mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.