Morgunblaðið - 11.09.1998, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.09.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 17 FRÉTTIR ISLENSKI og bandaríski fáninn blöktu víða við hún og algengt var að sjá smá- börn haldandi á fánum þjóðanna í kerr- um sínum. Ekki spillti fyrir að veður var með ágætasta móti þótt vindur hefði mátt vera stilltari. Kennslu í Hamarsskóla og Barnaskóla Vestmannaeyja var hætt kl. 10 og gengu kennarar með nemendum sínum út á götur til að taka þátt í stemmningunni. Má segja að hátíðarstemmninguna megi að miklu leyti þakka þeirri ákvörðun skólanna. Umferð gangandi vegfarenda var nokkur til og frá flugvellinum frá því að Keikó lentí, en engin óhöpp urðu að sögn lögreglu enda var umferð hæg á meðan Keikó var á ferðinni. Frá flug- vellinum niður að höfninni eru þrír kílómetr- ar, sem eknir voru á röskum gönguhraða á innan við hálfri klukkustund. Keikó hafði hjá sér nokkra þjálfara í búrinu, sem höfðu eftirlit með rakastigi hans og andardrætti. Siglt með Keikó frá höfninni Á slaginu kl. 13 var búr Keikós híft um borð í prammann sem flutti hann út í fiot- kvína og var áætlun hersins þá komin eina klukkustund fram yfir áætlun. Bæjarbúar létu það ekki á sig fá og biðu þolinmóðir og éftirvæntingarfullir við bryggjuna þar sem líkurnar á því að sjá Keikó berum augum jukust með hverju andartaki. Af því varð þó ekki því Keikó var mönnum enn hulinn sjónum þrátt fyrir ná- lægðina. Siglt var á hægu stími út í kvína í fylgd fjögurra skipa með fréttamönnum auk smærri báta. Ljósmyndarar um borð í skipunum börð- ust um besta plássið og nokkrir bandarísku fi-éttamannanna lýstu atburðum í beinni út- sendingu í gegnum farsíma. Skipum fréttamanna og gesta var haldið í nokkurri fjarlægð og var gefin út skipun um að drepa á vélum skipanna til að valda ekki titringi þeg- ar kom að því að taka lokaskrefið, sem var að hífa Keikó úr prammanum ofan í kvína. Spennan komst í hámark meðal við- staddra og óralöng stund virtist líða þang- að til háhymingurinn ástsæli birtist mönn- um á börum sínum. Stuttu síðar kom hann í ljós eins og tjaldur að vori með ugga sína út í loftið og sýndist ekki með lífsmarki. Þegar hann snerti yfirborð sjávarins brutust út mikil fagnaðarlæti er hann sýndi að hann væri við H átí ð ar stemmn- ing í Eyjum I Vestmannaeyjum ríkti hátíðarstemmning í gær. Hvarvetna höfðu heimamenn hengt upp skilti þar sem hinum nýja íbúa var fagnað með innilegum kveðjum og mest áberandi voru börnin sem sátu fyrir hersing- unni, sem kom akandi á gönguhraða frá flugvellinum. LÍTIL stúlka bíður spennt eftir því að Keikó fari hjá. góða heilsu og langt frá því allur. Eins og búist hafði verið við byrjaði Keikó á því að synda um kvína og kanna hana, en síðan fór hann að leita uppi þjálfara sína sem voru ýmist í flotbúning- um eða neðansjávar í kafarabúningum. Túlk- aði læknir Keikós, dr. Lanny Cornell, þessa hegðun á þann veg að Keikó væri að segja: „Halló, er einhver þama?“ Eftir nokkra stund í nýjum heimkynnum færði Keikó sig hægt og bítandi upp á skaftið og sýndi æ fjörmeiri hegðun. Gerði hann sér að góðu síld sem yfir- þjálfári hans fleygði til hans og fékk ennfrem- ur nudd frá öðrum þjálfara sínum, en borið hafði verið sérstakt rakakrem á húð hans til að koma í veg fyrir uppþomun á leiðinni yfir haf- ið. Fylgdarskipin sigldu til hafnar eftir um klukkustundarheimsókn út í kvína og höfðu fréttamenn í nógu að snúast við að vinna úr efni sínu. Aðeins fyrsta skrefíð stigið Við komu Keikós til Eyja mælti Sigrún Sig- urgeirsdóttir, forseti bæjarstjórnar, fyrir munn heimamanna á fjölmennum blaðamanna- fundi og sagði að hér væri aðeins stígið fyrsta ski'efið í ferli sem enginn gætí séð fyi'ir end- ann á. Sagði hún að lokatakmarkið væri að Keikó yrði sleppt út í hafið til að kynnast öðr- um háhymingum á sínum heimaslóðum. „Þangað til verður hann mikið rannsóknarefni vísindamanna Frelsum Willy-samtakanna og okkar eigin vísindamanna,“ sagði Sigrún. Á vegum rannsóknarset- urs Háskólans í Vest- mannaeyjum er m.a. unnið að verkefnum í sjávarlíffræði og sagði Sigrún ennfremur að koma Keikós yrði því starfi mikil lyftistöng og myndi einnig hafa áhrif í þá átt að hindra atgervisflótta ungs vísindafólks til út- landa. „Að lokum langar okkur til að bjóða Keikó, nýjasta þegninn í samfélagi okkar, velkominn til Vestmannaeyja með þeirri von að hann megi einhvern daginn njóta fullkomins frels- is,“ sagði Sigi'ún að lokum. Rólegt á vaktinni Þrír lögreglumenn voru sendir úr Reykjavík til að að- stoða 14-15 lögreglu- þjóna frá Vestmanna- eyjum við öryggis- gæslu og alls voru 40 bj örgunarsveitarmenn sem lögðu til aðstoð vegna gæslunnar. Lögð var áhersla á að fólk héldi sig innan þeirra marka sem sett voru af lögreglu og björgunarsveitum ekki síst vegna hótana sem umboðsmanni Keikós hafa borist. Ekkert bólaði þó á óvini Keikós. Að kveldi hins viðburða- ríka gærdags var bæj- arlífið komið í eðlilegt horf að sögn lögreglunn- ar, en einn lögreglumaður var settur á vakt til þess að gæta flutningavélar Keikós, sem stendur biluð við enda flugbrautarinnar og hindrar alla umferð. Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Halldór Frí í skólum vegna komu Keikós FRÍ var gefíð í skólum víða um land í tilefni komu háhyrnings- ins Keikós til Iandsins, jafnt grunnskólum sem framhalds- skólum. Nemendur söfnuðust víða saman í skólunum og horfðu á beina sjónvarpsútsend- ingu frá komu hvalsins til Vest- mannaeyja. í sumum skólum var koma Keikós fléttuð saman við kennslu. Myndin var tekin í Menntaskólanum við Sund þar sem nemendur fylgdust áhuga- samir með ferðalagi Keikós. Draumur orðinn að veruleika DRAUMUR Maríönu Savietto, átján ára stúlku frá Argentínu, varð að veruleika í gær þegar hún fylgdist með Keikó synda af stað í nýjum heimkynnum sínum í sjókvínni í Klettsvík við Vestmannaeyjar. Hún kom til landsins í fylgd argentínskra sjónvarpsmanna sem vinna að vinsælasta sjónvarpsþætti landsins, „Draumar fólksins", en gleðitár hennar yfír atburð- unum voru fest á fílmu af helstu fréttastofum heiins. Maríana var valin úr hópi umsækjenda sem lýsa helstu óskum sínum í bréfum til þátt- arins Sorpresa y sem sýndur er á sjónvarpsrásinni Canal 12 í Argentínu. Henni og móður hennar var í kjölfarið boðið til Oregon í Bandaríkjunum og síðan til íslands til að fylgjast Morgunblaðið/Kristinn MARIANA með tárin í augunum með móður sinni. með ferðum Keikós. Hún og sjónvarpsmennirnir komu með öðrum bátanna sem fluttu fjöl- miðlafólk að kvínni. Þegar Maríana sá Keikó synda af stað gat hún ekki tára bundist. Fréttafólkið um borð tók eftir þessu og sumir mynduðu hana með tárin í augunum. Þegar hún síðan hágrét í faðmi móður sinnar á bryggjunni í Vest- mannaeyjum að bátsferðinni lokinni hópuðust tökumennirn- ir í kringum hana og ótal fréttamenn vildu viðtal. Því miður gátu þeir lítið skilið hana, því hún talar ekkert nema spænsku, en gleðitár Maríönu frá Argentínu er engu að síður orðin heimsfræg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.