Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 18

Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Skipstjórinn á Hákoni ÞH segir ástandið á rækjumiðunum skelfílegt Morgunblaðið/Kristján GUÐJÓN Jóhannsson, skipstjóri á Hákoni ÞH, við skip sitt á Akureyri í gær. Smárækjan fór til vinnslu hjá Strýtu en stærri rækjan fer á er- lenda markaði. Skera þarf kvótann niður um HÁKON ÞH kom til hafnar á Akur- eyri í gærmorgun úr rúmlega þriggja vikna rækjuveiðitúr fyrir austan og norðan land. Afli skipsins var um 100 tonn og aflaverðmætið um 15 milljónir króna. Að sögn Guðjóns Jóhannssonar, skipstjóra á Hákoni, hefur rækjuveiðin gengið illa. Hann segir ástandið á miðun- um skelfilegt og að ekkert bendi til annars en að um ofveiði hafi verið að ræða. „Slysið varð þegar rækjukvótinn var aukinn úr 30.000 tonnum í 70.000 tonn á síðasta ári. Það eina sem hægt er að gera í stöðunni er að minnka kvótann um helming, allt annað er rugl. Það þýðir ekkert að loka einhveijum svæðum, því um leið eykst ásóknin á önnur svæði. Þá eru skipin sem stunda þessar veiðar helmingi of mörg.“ Rækjan minni og minni Guðjón sagði að fundist hefði smátorfa út af Strandagrunni og hefðu um 20 skip verið þar við veið- ar á örlitlu svæði. „Það hafa ekki verið margar rækjur lifandi þar á eftir. Og þaimig er ástandið á mið- unum, ef einhvers staðar finnst rækja, hópast allur flotinn þangaö." Rækjan sem skipin eru að fá verður alltaf minni og minni, að sögn Guðjóns, og um leið minnkar helming aflaverðmæti hemiar. Hann nefndi sem dæmi að hlutfallið af stórri rækju í þessum túr, þ.e. af Japans- rækju, væri 6,5% en hlutfallið hefði að jafnaði verið um 40% áður. Hlut- fallið af millistærð hefði verið um 20-25% en wæri aðeins um 15% nú. „Hlutfallið sem fer í pakkningar er því aðeins um 21% en algengt var að það væri um 70%. Þetta ger- ist þrátt fyrir að við erum nú að pakka smærri rækju í pakkningar á erlendan markað." Þrýstingur frá verksmiðjuin í landi Guðjón sagði menn hafa byijað að vara við þessu ástandi fyrir tveimur árum en þá hafí verið farið í að efja mömium í smárækjuna. Þrýstingurinn kæmi frá verksmiðj- unum í landi sem vantaði hráefni og því væri djöflast í smárækjunni. „Við sjómenn erum mjög óánægðir með hversu lítið mark er tekið á okkur og allar okkar hugmyndir eru kæfðar.“ Rækjukvótinn á yfirstandandi fiskveiðiári er 60 þúsund tonn, að sögn Guðjóns, og til viðbótar hafa útgerðirnar geymt 12 þúsund tonn frá síðasta kvótaári. „Það stefnir því í rúmlega 70 þús- und tonna veiði á þessu ári, sem er hreinn glæpur." Vinnulyftur ehf.-Útleiga og sala Erum fluttir í ný og glæsileg húsahynni i Smiðsbúð 12, Garðabæ Vinnulyftur ehf. Smiðsbúð 12, Garðabæ, sími 544 8444, fax 544 8440 Umboðsaðili: SKYJACK, NIFTYLIFT, TEREX AERIALS OG MEC. Lyftusýning laugardaginn 12. september kl. 10—16 Eigum til úrvai af nýjum og notuðum vinnulyftum til leigu og sölu vinnuhæð 22 metrar vinnuhæð 17 metrar STJÓRNKERFI AKUREYRARBÆJAR 1998 Bæjarráð Bæjarstjóri j hH Bæjartðgmaður"] Fjármálasvið Þjónustusvið Félagssvið Tæknisvið Hagsýsla Bókhald Launavinnsla Aðalskrifstofa Heislugæsla Skipulagsmál Tölvuþjónusta Fjölskylduþjónusta Umhverfi Upplýsingar Búsetuúrræði Byggingaeftirlit Starfsmannahald Skólaþjónusta Menning Tómstundir Slökkvistöð Strætisvagnar Rafveita Hita- og vatnsveita r Húsnæðisskrifsstofa Framkvæmdir Sjóðir TILLAGA að nýju stjórnkerfi Akureyrarbæjar. Tillögur að breytingum á stjórnkerfí Akureyrarbæjar Starfsemi bæjarins verði skilvirkari Morgunblaðið/Kristján SIGRÉÐUR Stefánsdóttir, framkvæmdasfjóri þjónustusviðs Akureyrar- bæjar, Ásgeir Magnússon, formaður bæjarráðs, og Kristján Þór Júlíus- son bæjarsljóri kynntu tillögur að brejitu stjórnkerfi Akureyi'arbæjai’. TILLÖGUR að breytingum á stjórnkerfi Akureyrarbæjar voru samþykktar á fundi bæjarráðs í gær en þær verða afgreiddar á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. „Stjórnkerfi bæjarins á að vera síbreytilegt þannig að það geti mætt þeim þörfum sem fyrir hendi eru í bæjarfélaginu á hverjum tíma,“ sagði Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á fundi þar sem stjórn- kerfisbreytingarnar voru kynntar. Megintilgangur með tillögunum er að gera starfsemi bæjarfélagsins sem skilvirkasta og að þjónusta þess við bæjarbúa og aðra við- skiptamenn verði sem best og hag- kvæmust og taki mið af þörfum þeirra sem þjónustunnar eiga að njóta. Við breytingarnar var haft að leiðarljósi að deildir og stofnanir verði sjálfstæðari og forstöðumenn ábyrgari fyrir rekstri þeirra. Verk- efni allra stjómenda breytast þar með, m.a. munu ákvarðanir færast í þeirra hendur en hugmyndavinna verður á borði yfirstjórnenda, sem og stefnumörkun og útfærsla á stefnu bæjarstjórnar ásamt vinnu að gæðaþróun. Starfsmannastefna verður endur- skoðuð með það fyrir augum að gefa starfsmönnum bæjarins aukin tæki- færi til sí- og endurmenntunar og verður þeim umbunað fyrir góða frammistöðu og frumkvæði að bættri þjónustu. Stjórnkerflnu skipt í fjögur svið Samkvæmt tillögunum verður stjórnkerfi bæjar skipt upp í fjögur svið: fjármálasvið, þjónustusvið, fé- lagssvið og tæknisvið. Tvö þau fyrst töldu vora áður í einu; stjórnsýslu- sviði og er gert ráð fyrir að þau ÚTILISTAVERKIÐ „Yggdrasill“ sem bandaríski listamaðurinn Dav- id Hebb hefur gert verður af- hjúpað í Hrísey næstkomandi laug- ardag, 12. september. Af því tilefni býður hann öllum sem það vilja að koma og skoða verkið, hitta sig að máli og njóta hressingar við útilistaverkið sem staðsett er úti í náttúrunni. Verkið er um fjórir metrar í þvermál og þriggja metra hátt og nýtur sín vel á góðum stað í náttúru Hríseyjar. Eiginleikar þess fela í sér að það muni geta fallið og hrömað, jafnvel horfið á vit náttúrunnar innan nokkurra ára, en efniviður þess er verði sameinuð að nýju þegar frá líður. Þeim er skipt upp til að að- greina ólík verksvið sem áður voru í umsjá bæjarritara á meðan verið er að brjóta upp skipulag og vinnu- brögð. í febrúar í fyn-a var félags- málasviði skipt upp í félags- og heilsugæslusvið annars vegar og fræðslu- og frístundasvið hins vegar vegna aukinna verkefna á vegum reynslusveitarfélagsins. Þau verða nú sameinuð í eitt félagssvið til að stuðla að þvi að betri yfirsýn og samhæfing sé innbyggð í stjórn þessa umfangsmikla málaflokks. Nokkrar breytingar verða á fé- lagssviði, m.a. mun Akureyrarbær taka við verkefnum sem voru hjá Skólaþjónustu Eyþings haustið 1999, þá verður öll einstaklingráð- gjöf færð undir eina yfirstjórn hjá fjölskyldudeild og leikskóladeild stál, grjót, steypa og gull ásamt öðrum jarðefnum, en á hnjúki verksins er hrísla. David dvaldi í Gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri fyrr á ár- inu og hélt hann áfangasýningu á verkinu í Ketilhúsinu og ljós- myndasýningu í Ljósmyndakomp- unni. Hann fékk Fulbrigth-styrk á síðasta ári til listsköpunar í Hrísey, en hún átti á einhvern hátt að tengjast norrænni goðafræði eða ásatrú andspænis nútímaiðnaði. David sem er kvikmyndagerða- maður að mennt mun kenna við Myndlistarskólann á Akureyri í haust. verður sameinuð skóladeild. Hvað tæknisvið varðar er til skoðunar að til verði sérstök Hús- næðisstofnun sem sjái um allt íbúð- arhúsnæði í eigu bæjarins auk þess að hafa m.a. umsjón með bygginga- framkvæmdum, verkefnisstjórnum og kostnaðareftirliti. Þá má nefna að fyrirtæki bæjarins, Raíveita Akureyrar og Hita- og vatnsveita Akureyrar verða flutt frá tæknisviði og munu heyra beint undir bæjar- stjóra. Nú standa yfir breytingar á ráð- húsi bæjarins í Geislagötu 9 og verða afgreiðsluhættir Akureyrar- bæjar endurskipulagðir að þeim loknum. Miðar hún að því að á 1. hæð hússins verði nokkurs konar upplýsingaanddyri bæjarins þar sem allar bæjarstofnanir eigi full- trúa eða aðsetur. Tvö golfmót TVÖ golfmót verða haldin á Jaðarsvelli um helgina. Á morg- un, laugardag, verður Ariel Open í boði Islensk-ameríska, en þar verður keppt í karla-, kvenna- og unglingaflokkum. Á sunnudag verður opið kvenna- mót en það er styrkt af líkams- ræktarstöðinni World Class. Bæði mótin hefjast kl. 9. Undanrásir atskákmóts UNDANRÁSIR atskákmóts ís- lands á Akureyri fara fram í skákheimilinu að Þingvalla- stræti 18 laugardag og sunnu- dag, 12. og 13. september og hefst taflið kl. 14.00 fyrri dag- inn. Sigurvegari í þessu móti öðlast þátttökurétt í úrslitum í Reykjavík síðar. Yggdrasill af- hjúpaður í Hrísey f

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.