Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 19
AKUREYRI
Olafsfjarðar-
kirkja endurvígð
á sunnudaginn
HERRA KARL Sigurbjörnsson,
biskup Islands, endurvígir Ólafs-
fjarðarkirkju næstkomandi sunnu-
dag, 13. september, kl. 14. Hinir
helgu gripir kirkjunnar verða
bornir inn og beðið fyrir húsi og
söfnuði. Auk biskups og sóknar-
prests aðstoða sóknarnefnd og
byggingarnefnd kirkjunnar, pró-
fastur og tveir fjmrverandi sóknar-
prestar Ólafsfjarðarkirkju við at-
höfnina. Eftir hátíðarmessuna er
kirkjugestum boðið í kaffi í félags-
heimilinu Tjarnarborg.
Ólafsfjarðarkirkja var vígð 4.
sunnudag í aðventu 1915 og var
hún síðasta verk Rögnvaldar
Ólafssonar arkitekts. Svo var
komið að kirkjan þarfnaðist mikils
viðhalds og var auk þess orðin
alltof lítil. Á þeim 83 árum sem
liðin eru frá vígslu hennar hefur
söfnuðurinn fjórfaldast og safnað-
arstarf breyst mikið.
Fyrir réttum tveimur árum var
hafist handa við að reisa safnaðar-
heimili við kirkjuna og varð það
Aksjón
Föstudagur 11. september
12.00>- Skjáfréttir
18.15^ Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endursýndur
kl. 18.45,19,15, 19.45, 20.15, 20.45
21.00^ Bæjarsjónvarp Frá opnu
húsi hjá Degi og Aksjón. (e)
fokhelt í ársbyrjun 1997. Þá var
byrjað á að útfæra breytingar á
gömlu kirkjunni. Nú hefur kirkjan
verið lengd um þrjú gluggabil,
skipt um glugga, þak, söngloft,
kirkjubekki og altari. Við þessar
miklu breytingar hefur verið
reynt að halda stíl Rögnvalds
Ólafsssonar eftir fremsta megni.
Að utan hefur kirkjan verið færð
til upprunalegs horfs. Jafnvel hef-
ur verið gengið lengra, því nú
birtist ýmislegt úr teikningum
sem aldrei náði fram að ganga við
byggingu kirkjunnar, s.s. tilhögun
turnglugga og múrskreytinga.
Hönnun kirkjunnar hefur verið
unnin í samráði við húsfriðunar-
nefnd ríkisins.
Tenging við
safnaðarheimilið
Kirkjan rúmar 100 til 130
manns, en við fjölmennar athafnir
gefst kostur á að opna inn í
safnaðarsalinn. Þar geta a.m.k.
120 manns setið og séð vel til
kirkju. Slík tenging kirkju og
safnaðarsalar er algeng í nýrri
kirkjum hér á landi, en er óvenju-
leg í svo gömlu guðshúsi.
Arkitekt hússins er Fanney
Hauksdóttir og hönnun í höndum
Arkitekta- og verkfræðistofu
Hauks á Akureyri. Verktaki er
Tréver hf. í Ólafsfirði. Nýr dúkur
hefur verið gefinn á altarið en
hann óf listakonan Guðrún Hadda
Bjarnadóttir á Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
GUNNAR Kristjánsson, framkvæmdastjóri Art-X, og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson ljúka við að ganga frá kassanum á bíl Aðalgeirs Sigur-
geirssonar. Kassinn er á gámalásum og því auðvelt að taka hann af
bflnum.
Framleiðsla flutningakassa á Akureyri
Fyrsti kassmn
til Húsavíkur
FYRIRTÆKIÐ Ai-t-X, sem var flutt
til Akureyrar í sumar og framleiðir
flutningakassa úr plasti á bíla, hefur
afhent fyrsta frystikassann sem
smíðaður er á Akureyri. Kaupandinn
er vöruflutningafyrirtækið Áðalgeir
Sigurgeii'sson hf. á Húsavík.
Art-X framleiðir flutningakassa
samkvæmt nýrri íslenskri hönnun og
sagði Gunnar Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri, að þeir væru mun
léttari en aðrir flutningakassar á '
markaðnum. Hann sagði að búið
væri að ganga frá samningum um
smíði á 6 kössum til viðbótar fyrir
innlenda aðila og því væri verk-
efnastaðan góð fram að áramótum.
Hjá fyrirtækinu starfa nú sjö manns.
Frystikassinn sem seldur var til
Húsavíkur er aðeins 1.580 kg að sögn
Gunnars en burðarvirki hans, prófíl-
ar og vinklar, eru einnig úr plasti. Þá
er kassinn einangraður með
svokölluðu PVC einangrunarefni og
járnið sem í hann er notað er ryðfrítt.
Art-X keypti Vararhúsið við Ós-
eyri fyrr í sumar af Kaupfélagi
Eyfirðinga en fyrirtækið er í eigu
Flutningamiðstöðvar Norðurlands,
KEA og fleiri.
Dokkar-
degi frest-
að vegna
veðurs
DOKKARDEGINUM á Akureyri,
sem halda átti á morgun, laugardag-
inn 12. september, hefur verið
frestað um viku, til laugardagsins 19.
september vegna veðurs. Samkvæmt
veðurspá Veðurstofu íslands er útlit
fyrir leiðindaveður í dag, fóstudag,
og á morgun, norðanátt, kulda og úr-
hellisrigningu.
Kynning norskra matreiðslumanna á
hinu svokallaða „Arktisk Kj0kkcn“
verður flutt inn á veitingastaðinn Við
Pollinn og hefst kl. 15 á morgun,
laugardag.
Þar munu norskir og íslenskir
matreiðslumenn bjóða fólki að
bragða á gómsætum réttum úr
sjávarfangi auk þess sem boðið verð-
ur upp á lifandi tónlist.
------♦-♦-♦----
Kvennaþing-
á Akureyri
KVENNAÞING verður haldið í
Menntasmiðju kvenna 11. til 13.
september. Fyrir því stendur Sam-
band alþýðuflokkskvenna. „Kvenn-
arúta“ leggur af stað frá Reykjavík
eftir hádegi í dag, föstudag. Á
viðkomustöðum á leiðinni verða kon-
ur á landsbyggðinni, sem tilkynnt
hafa þátttöku sína, teknar upp.
Kvennaþingið hefst kl. 10 á laug-
ardag og stendur fram eftir degi.
Erindi flytja Ingi Rúnar Eðvarðs-
son um fjarnám við Háskólann á
Akureyri, Karólína Stefánsdóttir
um verkefnið „Nýja barnið“ og
Þórgnýr Dýifjörð um reynslusveit-
arfélagsverkefni Akureyrarbæjar.
Hvílíkur pakki!
Daihatsu Terios 4x4
Fjölhæfni og svakaseigla
Terios sameinar kosti sem nýtast við fjölbreyttar
aðstæður. Bíliinn er sprækur og lipur í daglegum
borgarakstri. Næmt vökvastýri, lítill beygjuradíus
og gott útsýni gera þrengstu svæði aðgengileg.
Vondir vegir eru Terios heldur engin hindrun.
Sítengt aldrif, læsanlegur millikassi og tregðu-
iæsing á afturöxli skila honum örugglega áfram
í þungri færð. Hæð undir lægsta punkt er 185 mm.
Brimborg-Þórshamar I Bíla!
Tryggvabraut 5 • Akureyri Hafr
Simi 462 2700 I Sfmi
Sportpakki á engu verði - bókstaflega
Terios er vel búinn og að auki býður Brimborg
takmarkaðan fjölda bíla með ókeypis sportpakka
að verðmæti um 120.000 kr. ( pakkanum eru
toppgrind, dráttarkúla, vetrardekk, vindhlífar á
glugga, Ijósahlífar, mottur og hlífðarmotta í
farangursrými. Allir bíiar frá Daihatsu eru með
þriggja ára ábyrgð og sex ára ryðvarnarábyrgð.
Beinskiptur frá kr. 1.598.000.-
Sjálfskiptur frá kr. 1.678.000.-
BRIMB0RG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
>ala Keflavíkur I Blley I Betri bílasalan
argötu 90 • Reykjanesbæ Búðareyri 33 • Reyðarfirði Hrísmýri 2a • Selfossi
4214444 | Sími 474 1453 | Sími 482 3100
Fjaðurmýkt og hörkuöryggi
Fjöðrunarbúnaðurinn í Terios sameinar mýkt í
borgarakstri og frábæra aksturseiginleika á
slæmum vegum. Terios erfáanlegur með öflugri
fjögurra gíra sjálfskiptingu sem gerir aksturinn
enn þægilegri. Daihatsu hefur einnig lagt mikla
áherslu á að gera Terios öruggan. Farþegarýmið
er sérstaklega styrkt og grindin dreifir vel höggi
við árekstur. Tveir loftpúðar eru staðalbúnaður.
3 ára ábyrgð
Tvisturinn
Faxastig 36 • Vestmannæyium
Sími 481 3141
DAIHATSU
fínn í rekstri