Morgunblaðið - 11.09.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.09.1998, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU NAFO fjallar um rækjuveiðar á Flæmingiiagrunni á ársfundi sfnum í Portúgal Afli á togtíma hefur tvöfaldast milli ára íslendingar munu eftir sem áður leggja til að veiðum á Flæmingjagrunni verði stjórnað með heildaraflamarki á hverja þjóð í stað sóknarstýringar, eins og hinar aðildarþjóðirnar hafa viljað. Ari Edwald, formaður íslensku sendinefndarinnar, sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að afli á sóknareiningu hefði aukist um 50-70% á einu ári og því væri eðlilegt að Islendingar færu fram á aukinn heildarafla til samræmis. TUTTUGASTI ársfundur NAFO, N orðvestur-Atlantshafsfiskveiðiráðs- ins, fer fram í Lissabon í Portúgal alla næstu viku, 14.-18. september, en fundur vísindanefndar NAFO hófst í síðustu viku og kemur til með að starfa þann tíma sem ársfundur- inn stendur. Sautján þjóðir eiga aðild að NAFO og má búast við að einkum tvö mál komi til með að varða Islend- inga sérstaklega, veiðistjórnun og eftirlitskerfi með veiðum á Flæm- ingjagrunni. „Ég geri ráð fyrir því að við eigum von á niðurstöðum og ráð- leggingum vísindanefndarinnar á fyrstu dögum ársfundarins, en á þessari stundu liggur hvorki fyrir mat á ástandi rækjustofnsins á Flæmingjagrunni né ráðleggingar um veiðar, en þær upplýsingar, sem við höfum af veiðum íslenskra skipa, eru þær að veiðamar hafa gengið mun betur í ár heldur en í fyrra og hefur afli á togtíma tvöfaldast,“ segir Ari Edwald, formaður íslensku sendinefndarinnar. Auk hans sitja í sendinefndinni Kiástján Ragnarsson, formaður LÍÚ, Kristján Skarphéð- insson, skrifstofustjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu, og Unnur Skúla- dóttir, fiskifræðingur á Hafrann- sóknastofnun, sem einnig á sæti í vís- indanefndinni. Aflinn næst með færri skipum „Vegna batnandi stöðu eigum við síður von á því að lagðar verði til frekari takmarkanir á veiðarnar frá því sem nú er. Eftir sem áður mun- um við þó leggja það til á fundinum að veiðunum verði stjórnað með heildaraflamarki, skipt niður á þjóð- ir, í stað sóknarstýringar, eins og aðrar þjóðir hafa sameinast um. Okkar rök fyrir því hafa verið bæði líffræðileg og hagræn, að það gangi betur að halda veiddum afla innan fyrirfram ákveðinna marka með þeirri aðferð og að hún gefi líka kost á meiri hagkvæmni í veiðunum. Við ákváðum að taka okkur 6.800 tonna heildarafla, en á sínum tíma með ákvörðun ársfundar NAFO 1995 um að tekin skyldi upp sóknarstýr- ing, sem Islendingar einh- þjóða mót- mæltu, hefði sóknarstýi’ingin gefið okkur yfir 1.000 veiðidaga. Þess ber þó að gæta að í fyrra nam meðalafli íslensku skipanna fjórum tonnum á dag, en er nú kominn í meira en átta tonn á dag á hvert skip. Og bara frá því í fyrra hefur aflaaukning ein- stakra skipa á sóknareiningu numið 50-70%. Þetta sýnir vel að ef menn hafa veiðidaga, hafa þeir enga stjórn á því hvað mikið er veitt þegar tækni- íramfarir eru jafnörar og þær hafa verið í þessum veiðum. Ein af okkar röksemdum á fundinum verður sú að ef menn hyggjast halda sig við óbreyttan sóknareiningafjölda, er eðlilegt að íslendingar auki sinn heildarafla til samræmis við þær breytingar, sem orðið hafa á afla á sóknareiningu. Af því er hagkvæmn- ina varðar, þá sýnir það sig mjög vel að eftir að við tókum upp kvóta- stjórnun í rækjuveiðunum, ná menn leyfilegum afla með miklu færri skip- um en áður,“ segir Ari. Útgerðir leita í hagkvæmni íslendingar hófu fyrst rækjuveiðar á Flæmingjagrunni árið 1993 og voru þær óheftar fyrstu þrjú árin. Arið 1995 var ákveðið að taka upp veiði- stjórnun fyrir árið 1996, en þá mót- mæltu íslendingar þeirri ákvörðun og veiddu einir þjóða óheft. AUs stundaði 41 íslenskt skip rækjuveiðar á Flæmingjagrunni árið 1996 og nam heildarafli þeirra yfir 20 þúsund tonnum, en hafði mest verið áður 7.600 tonn. í fyrra, árið 1997, stund- uðu veiðarnar 13 skip og 7 íslensk skip liafa verið við veiðarnar í ár. ís- lendingar ákváðu að taka sér 6.800 tonna aflamarkskvóta hvort árið. „Það er ótvíræð þróun eftir að við tókum upp kvótastýringu að útgerð- irnar hafa sjálfar leitað leiða til þess að auka hagkvæmnina í þessum veið- um sem var ekki raunin áður,“ segir Ari. Samkvæmt reglum NAFO, þurfa mótmæli við samþykktum árs- iundarins að berast eigi síðar en 60 dögum eftir að fundinum lýkur og á þeim tíma hafa Islendingar sömuleið- is tilkynnt hver heildarafli þeirra verður. Ari gerir ekki ráð fyrir að ákvörðun um heildarafla Islendinga verði tekin á fundinum. „Dæmin sýna á hinn bóginn að sú veiðistjórnun, sem við erum að berjast fyrir þarna, er bæði skilvirkari gagnvart veiðun- um og hagkvæmari og þess vegna munum við ekki hvika frá því henni.“ Líkur á óbreyttri stöðu Ari segir að búast megi við fjörug- um umræðum um framhald eftirlits- þáttarins, sem er mjög viðkvæmt mál innan NAFO, en í því samhengi hafa Islendingar gagnrýnt hvað mest það fyrirkomulag að eftirlits- mann þui’fi um borð í hvert veiði- skip. Nær væri að hafa þá færri og beita öðrum eftirlitstækjum með- fram. „Ég geri mér þó fyrirfram ekki miklar vonir um að þetta náist fram á þessum fundi og þó við berj- umst fyrir kvótastýringu, tel ég meiri líkur en minni á að veiðistjórn- unin verði óbreytt áfram þó búast megi við að reynt verði að hafa ein- hvem hemil á þeirri þróun, sem orð- ið hefur til bættrar sóknar. Hugsan- leg mótmæli íslendinga vegna eftir- litsmannakerfisins myndu án efa vekja hörð viðbrögð í Kanada sér- staklega og vekja úlfuð á fundinum ef það lægi í loftinu að við hygðum á mótmæli til að vera óbundin af því. Um þetta gætu hæglega orðið átök.“ Ari segir að ekki liggi fyrir nein ákvörðun um mótmæli. Hinsvegar hefðum við ákveðið að tala gegn eft- irlitsmannakerfinu. Rækjan mikilvægust Að sögn Ara er rækjan sú tegund, sem er einna mikilvægasta veiðiteg- undin eins og er vegna þess að ástand fiskistofna á NAFO-svæðinu er þannig að veiðar úr flestum stofn- um, sem hafa verið mikilvægastir, eru mjög litlar eða bannaðar. Af veiðum íslensku skipanna þetta árið sé óhætt að draga þá ályktun að bjartara sé yfir rækjuveiðunum nú en á undanfórnum árum þó ekki sé hægt að fullyrða nokkuð um það fyrr en að fundinum sjálfum kemur og niðurstöðum vísindanefndarinnar. „Það hefur mjög dregið úr átökum um okkar meginstefnumál, sem er kvótastjómun veiðanna, vegna þess að þó að menn hafi ekki tekið það skref að söðla um sjálfir, þá hafa þeir áttað sig á því að það gengur eftir það sem við höfum sagt um reynsl- una af því fyrirkomulagi.“ . ' Guðrún Hálfdánardóttir blaðamaður og Ásdís Ásgeirsdóttir Ijósmyndari heimsækja Albaníu. í blaðinu á sunnudaginn. rJU'^íJJjr nJjrJE)/ oz CJ fju^sjorjjjr r<\ pejr íiklrór
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.