Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 25
ERLENT
Ross fundar með leiðtogum ísraela og Palestínumanna
Lítil von um árangur
í friðarviðræðunum
Jerúsalem. Morgunblaðið.
Reuters
MÓTMÆLANDI liggur særður á götunni eftir að hafa orðið fyrir skoti
frá lögreglu í Plinom Penh í gær.
Fjöldamótmæli í höfuðborg Kambódíu
Vonir dvína um
stj órnar my ndun
Phnom Penh. Reuters.
DENNIS Ross, samningamaður
Bandaríkjastjórnar, átti fund með
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
herra ísraels, í gær. Netanyahu,
sem undanfarna daga hefur orðið að
aflýsa öllum áætlunum vegna veik-
inda, og nokkrir helstu samstarfs-
menn hans munu hitta Ross aftur í
dag.
Aður hafði Ross hitt Yasser Ara-
fat, leiðtoga Palestínumanna, að
máli í Ramallah á Vesturbakkanum
en samkvæmt upplýsingum The
Jerusalem Posthringdi Madeleine
Albright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, í Arafat skömmu fyrir
fundinn til að þrýsta á um að árang-
ur yrði af viðræðunum. Heimildar-
menn innan palestínsku sjálfstjórn-
arinnar segja að Albright stefni að
því að koma til ísrael til að tilkynna
að samningar hafi náðst að undh’-
lagi Bandaríkjastjórnar en tals-
menn Bandaríkjastjórnar, sem fyi’r
í sumar hafnaði beiðni Yitzhaks
Mordechais, varnarmálaráðherra
Israels, um að senda Ross til við-
ræðna á svæðinu, vöruðu hins vegar
við of mikilli bjartsýni fyi’ir viðræð-
urnar.
Ross, sem hefur litið viljað gefa upp
um fundi sína með leiðtogunum, sagði
áður en hann hitti þá að mikilvægt
væri að koma á gagnkvæmu trausti
milli deiluaðila. Saeb Erekat, einn af
samningamönnum Palestínumanna,
sagði eftir fundinn með Ross, að Pa-
lestínumenn biðu enn eftir jákvæðum
viðbrögðum Israela við málamiðlunar-
tillögu Bandaríkjamanna.
Palestínumenn segjast þegar hafa
gengið að málamiðlunartillögunni
sem kveður á um að Israelar kalli
herlið sitt frá 13,1% hernuminna
landssvæða á Vesturbakkanum. Þeir
geti hins vegar ekki fellt sig við
breytingartillögur Israela sem m.a.
kveða á um að 3% landsvæðanna
verði skilgreind sem þjóðgarðar þar
sem Palestínumenn hafí mjög tak-
mörkuð byggingarréttindi. Margh’
ísraelar telja hins vegar raunveru-
lega ástæðu þess að Palestínumenn
hafi hafnað tilboði þemra vera þá að
Arafat hyggist benda á samningsrof
ísraela í ávarpi sínu á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna síðar í mánuð-
inum.
Öfgamenn að ókyrrast
Á sama tíma og samningamenn
þjarka um skilyi’ði þess að Israelar
kalli herlið sitt heim frá 13%
hernumdu svæðanna gengur sam-
búð Israela og palestínsku sjálf-
stjórnarsvæðanna brösuglega. Pa-
lestínsk yfírvöld hafa hvað eftir ann-
að sakað ísraela um yfirgang en
ísraelsk yfh’völd saka yfirvöld á
sjálfstjórnarsvæðunum um skort á
samvinnu. Þá veldur áætlun palest-
ínskra yfii-valda um að lýsa yfir
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna í maí á næsta ári sívaxandi
spennu í samskiptum þjóðanna, og
ísraelskar öryggissveitir hafa varað
þjóðina við því að til ofbeldis geti
komið í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsing-
arinnar. Auk þess hefur hart verið
deilt um stöðu Jerúsalem.
Flestir ísraelar virðast því hafa
komist að sömu niðurstöðu og
Bandaríkjastjórn, þ.e. að lítill gi-und-
völlur sé til að ætla að róttækra
breytinga í átt til friðar sé að vænta
á næstunni. Það er helst að róttækir
andstæðingar friðarferlisins séu
farnh’ að ókyrrast enda bendir ferð
fulltrúa stjórnarinnar til Egypta-
lands og orðrómur um leynilega
fundi Netanyahus með Palestínu-
mönnum til þess að öfgamenn geti
ekki fullkomlega treyst stjórn Net-
anyahus til þess að sigla friðarferlinu
endanlega í strand.
Á meðal þeirra sem farnh’ eru að
ókyrrast eru róttækir landnemar en
margir þeirra telja þjóðina þegar
hafa snúið baki við sér. Það eykur
síðan enn á reiði þeirra að palest-
ínskir öfgamenn hafa að undanförnu
beint spjótum sínum að landnemum.
Þetta hefur leitt til þess að róttækir
landnemar, sem segja palestínsk lög-
regluyfirvöld og jafnvel Israelsher
líta fram hjá ofbeldisverkum gegn
landnemum, gi’ípa æ oftar til eigin
aðgerða. Aðgerðir þeirra leiða síðan
til spennu milli róttækra og hóf-
samra landnema sem segja aðgerð-
h’nar varpa rýrð á ímynd allra land-
nema.
Þar sem spenna milli ólíkra hópa
ísraela virðist sífellt vera að aukast
er e.t.v. ekki furða að orðrómur um
að Netanyahu hyggist boða til kosn-
inga komi upp á nokkurra mánaða
fresti og að hugsanlegir mótfram-
bjóðendur hans séu farnir að undir-
búa kosningaslaginn.
ÞUSUNDIR manna hafa undan-
farna fjóra daga mótmælt á götum
Phnom Penh, höfuðborgar Kambó-
díu, en að sögn vestrænna sendi-
manna í borginni virðast mótmæl-
endurnir hvorki hafa leiðtoga né
skýra hugmynd um hvers þeir eigi
að krefjast.
Tahð er að um tíu þúsund manns
hafí tekið þátt í mótmælagöngum í
Phnom Penh í gær. Lögreglan lét
mótmælendurna fyrst í stað óá-
reitta en dreifði mannfjöldanum
síðdegis þegar gangan hafði borist
að konungshöllinni. Skotum var
hleypt af og nokkrir mótmælendur
særðust, en ekki hefur fengist
staðfest að neinn hafi látið lífið.
Þing Kambódíu kemur saman
24. september og þá lýkur jafn-
framt kjörtímabili núverandi
stjórnar forsætisráðherrans Huns
Sens. Flokkur hans hefur ekki
nægan meirihluta á þinginu til að
mynda nýja ríkisstjórn og hefur
hann boðið flokkum Norodoms
Ranariddhs og Sams Rainsys til
stjórnarsamstarfs. Ranariddh og
Rainsy saka hins vegar Hun Sen
um að hafa beitt ógnunum og
svindli í þingkosningunum í júlí
og hafa lýst því yfir að þeir muni
koma í veg fyrir myndun ríkis-
stjórnar þangað til orðið verði við
kröfum þeirra um rannsókn á
framkvæmd kosninganna.
Bðgglaberi
K Bretti
pukahlutir fy/g/a
Hilltopper
HJÓL Á TILBOÐI
Stell: Cro-Mo 100%
Framskiptir: Shimano Alivio
Afturskiptir: Shimano STX j
Skiptar: Shimano STX J
Bremsur: V jfl
Fullt verð með aukahlutum
kr. 44.509,- ,
Fjallahjólabúðin; stærsta og
glæsilegasta fjallahjólaverslun
landsins veitir nú einnig 30% afslátt
af Zero-G, Surge og Threshold
Threshold
Stell: Cro-Mo
Framskiptir: Shimano Altus
Afturskiptir: Shimano Cera-X u .
Skiptar: Grip Shift M- ■
Bremsur: V Fullt veri
Zero-G
Stell: Cro-Mo 100%
Framskiptir: Shimano STX-RC
Afturskiptir: Shimano LX u. o* tco
Skiptar: Shimano STX-RC !»■- 04./DU5“
Bremsur: V Fullt verð kr. 49.644
Surge
Stell: Ál
Framskiptir: Shimano Alivio
Afturskiptir: Shimano STX u
Skiptar: Shimano STX
Bremsur:V Fullt
Hðfuévfgi f|dlt€ah|ölsfv»s