Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 28

Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Dauðlegt málverk HUGINN og Muninn, eftir Bjarna Sigurbjörnsson. MYNPLIST Ilafnarborg SAMSÝNING VIÐ MÖRK MÁLVERKSINS JÓN ÓSKAR, GUÐJÓN BJARNASON, BJARNI SIGURBJÖRNSSON Opið alla daga nema þriðjudaga frá 10-18. Aðgangur 200 kr. Til 14. sept- ember. JÓN Óskar, Guðjón Bjarnason og Bjarni Sigurbjömsson eru listamenn sem maður hefði ekki að fyrra bragði sett undir sama hatt. Pað er ekki hægt að segja að þeir hafí svipaðan stíl, en samsýning þeiira í Hafnarborg sýnir þó að þeir eiga ágætlega saman og að myndlist þeirra á þrátt fyrir allt eitthvað sam- eiginlegt. Pó ekki væri annað þá eiga þeir það allir þrír sameiginlegt að hafa stundað nám í Bandaríkjunum og orðið fyiir sterkum áhrifum af myndlist úr Vesturheimi. Þótt verk þeirra séu innbyrðis ólík þá er samt sem áður ákveðið svipmót sem þau eiga sameiginlegt, sem maður freist- ast til að skýra með tilvísun í kynni þeirra af amerískri list. Stærðarhlut- follin í verkunum eiga til að vera allt að því mónúmental, eins og gjarnan er með amerískt málverk. Og maður kannast svo vel við stórkarlalegt lát- bragðið á bak við gerð myndanna, eins og verið sé að leita eftir áhrifa- miklu og dramatísku augnabliki, sem eigi að brjótast fram í myndinni og yfirgnæfa áhorfandann. Tæpast þarf að kynna Jón Óskar, enda hefur hann sýnt fjöldamörgum sinnum á fimmtán árum og nú síðast í hinu nýja Galleríi Sævars Karls fyrr á árinu. Nokkur verkanna era einmitt á þeirri sýningu. Stór mál- verk, grá og steinköld, með máðri ímynd hirðfíflsins. Þetta eru feiki- lega sterk verk, þó þau séu ekki aðlaðandi eða aðgengileg. Og þó það sé ekki langt síðan þau voru til sýnis þá er samt athyglisvert að sjá þau í þessu samhengi, þar sem þau standa vörð um sýninguna. Maður veit eiginlega aldrei hvar maður hefur Guðjón Bjarnason, því hann getur verið svo mikil óhemja í stílbrögðum og sveiflast milli and- stæðna. En það má vel vera að það sé einhver meining í látunum. Þetta kann að stafa af því sem mér sýnist vera eitt meginviðfangsefni Guðjóns, að reyna að höndla hið síhvikula ástand á mörkum reglu og óreiðu, strúktúrs og sundrungar. Það er eins og hann reyni að kort- leggja ferlið frá stöðugleika til upp- lausnar. Þannig skil ég gríðarstóra málmskúlptúra Guðjóns, sem byggðir eru upp á einföldum eining- um, krossi eða vinkli, sem hafa verið sprengdar í tætlur. Guðjón er einnig með myndraðir byggðar á ljósmynd- um, en ég man ekki eftir að hafa séð verk unnin á þennan hátt frá hans hendi áður. Aftur á móti hefur hann sleppt því að sýna málverk, eins og þau sem hann var með á einkasýn- ingu sinni í Norræna húsinu, sem kemur á óvart, þvi þau hefðu átt vel heima á þessari sýningu. Bjarni Sigurbjörnsson er yngstur af þeim og minnst þekktur, sem eðli- legt er, en þó hefur hann sýnt víða á þeim tveimur árum síðan hann snéri aftur frá vesturströnd Bandaríkj- anna. Það sem einkennir verk hans eru annars vegar plexígler eða hálf- gegnsæjar akrýlplötur, eins og á þessari sýningu, sem hann vinnur yfirleitt á í staðinn fyrir striga, og svo mjög óheft, expressjónísk tilþrif, sem eru algerlega óhlutbundin og formlaus. Málverkin hans hafa því tvær hliðar, þá sem snýr „út“, sem er sú hlið sem Bjarni hefur unnið verkið frá, og síðan bakhlið verks- ins, þar sem sést í gegnum plötuna inn í innviði málverksins. Glerið sneiðir í gegnum mitt málverkið og gegnumlýsir það. Gegnumlýsing er orð sem á sérlega vel við verk Bjarna á þessari sýningu því í þeim er einnig að finna röntgenmyndir af mannslíkamanum og málaðar plöt- urnar eru sumar hverjar hálfgegn- sæjar, að því marki að þær hleypa birtu í gegnum sig. Það er svolítið erfitt að staðsetja hann og kannski of snemmt að gera slíkt. Eg átta mig t.d. ekki fyllilega á því hvaða ávinn- ing verkin hafa af plexí/akrýl plötun- um sem Bjarni vinnur með. Maður áttar sig ekki heldur á samhenginu á milli þess fonnleysis sem ríkir í meðferð á litefnum, á meðan plöt- urnar og röntgenmyndirnar lúta strangri og einfaldri formskipan. Yfirskrift sýningarinnar er eins og gáta, „Við mörk málverksins“ - hvaða mörk? Það gæti verið átt við mörkin milli málverks og einhvers annars, t.d. skúlptúrs. Þannig mætti túlka verk þeirra Guðjóns og Bjarna. Eða er um að ræða mörk í þeim skilningi að ekki verði farið lengra, þar sem málverkið hafi tæmt mögu- leika sína? Eða er hægt að skilja þetta sögulegum skilningi, að við sé- um komin að þeim tímamörkum þeg- ar málverkið hættir að skipta máli lengur? Þessar spumingar um endimörk eða takmörk hafa fylgt málaralistinni eins og skugginn langt fram eftir öldinni, en nú kveður við nýjan tón þegar h'ður að aldarlokum. Aður var litið á takmörk og endimörk miðilsins sem áskorun, að allar tak- markanir væru afleiðing af vana eða hugleysi, og þær biðu bara eftir því að einhver snillingurinn kæmi og bryti þær niður. En nú sýnist manni að það sé litið á endimörk sem fyrir- boða óumflýjanlegra örlaga, jafnvel feigðarboða. Listamaðurinn fær litlu áorkað, og verður að sitja hjá og verða vitni að því er fjarar undan sögulegu hlutverki málaralistarinnar. A sýningunni er þung undiralda og það er varla hægt að segja að það ríki bjartsýni eða heiðríkja í myndverkum þein-a þremenninga. En það er ekki þar með sagt að sýningin sé dmnga- leg eða niðurdrepandi. Þvert á móti, maður finnur vel fyrir því að það hgg- ur mikið við og hvergi slegið af. Þeir takast á við hlutina frekar en að víkja sér undan og sættast á ódýrar lausnir sem faha okkur kannski betur í geð. Gunnar J. Árnason SÖLT sjálfsskoðun (13), olía á léreft 1997-'98, eftir Helenu Guttormsdóttur. HÚS OG Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson SUNNUDAGSMORGUNN er vafalítið stemmningaríkasta mynd Sigríðar Ólafsdóttur. ANDLIT Sjónþing í Vestmanna- eyjum BJARNI H. Þórarinsson mynd- listarmaður heldur Sjónþing í Vestmannaeyjum í dag, föstu- dag, kl. 17. Þingið verður haldið í Listmiðjunni (sal gamla áhaldahússins) vestan við Lista- skólann á Vesturvegi. Það sem Sjónþingsgestum mun standa til boða er fyrirlest- ur Bjarna um Vísiakademíuna; Bendulist: myndlistarsýning, vísirósir. Þingleikar: ljóðlist og skáldskapur. Kokkur Kyrjan Kvæsir og séra Isleifur munu lesa upp úr verkum sínum, seg- ir í fréttatilkynningu. Sjónþing til þriðjudagsins 15. september. Opið er frá kl. 15-18 dagana sem Sjónþingið stend- ur. Aðgangur er ókeypis. Morgunblaðið/Kristinn BJARNI H. Þórarinsson myndlistarmaður. HEFUR ÞÚ KYNNT ÞÉR... ARBONNE INTERNATIONAL Jurtasnyrtivörur án ilmefna fyrir húð og hár. Útsölustaðir um land allt MYIVDLIST Listasaln ASÍ MÁLVERK SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR Opið alla dega nema mánudaga frá 14-18 til 13. september. Aðgangur 200 krónur. YFIRSKRIFT sýningar Sigríðar Ólafsdóttur í aðalsal er hin almenna spurning á förnum vegi: „Er ekki allt gott að frétta?“ en hér er vísað til styrjalda úti í heimi og frétta- flutnings heimspressunnar í sér- stakri myndaseríu, sem virkar þó sem ankannanlegt innlegg úr fortíð þá pólitísk myndlist var in. Hins vegar eru styrjaldir allstaðar í kringum okkur og virðist illa ganga að úrelda þær, myndefnið því full- gilt. Nær okkur í tíma og rúmi eru hins vegar ýmis hús og byggingar í borginni, samviskusamlega nafn- greindar í ljósritaðri skrá, sem inni- heldur einnig upplýsingar um gerð myndanna, ártöl, námsferil og sýn- ingar ásamt þökkum til aðstoð- arfólks. Hins vegar minna af því sem hefði verið meira en vel þegið sem er leiðsögn inn í myndheim þann er við blasir, hugsunina að baki. Hér er nefnilega um ákveðna hugmyndafræði að ræða og ekki alls kostar rétt að höfða alfarið til get- spekihæfni sýningargesta því ekki er um að ræða málverk sem skýra sig sjálf eða tala til skoðandans. Ekkert bemskt er við sýninguna nema kannski sjálf skráin, sem naumast er staðnum né fram- kvæmdinni samboðin. Málverkasýn- ing er ekki hálfkæringur, heldur grafalvarlegt mál sem þarfnast langs undirbúnings, einkum ef gjömingurinn fer fram í listasafni. Þetta em þó á íslenzkan mæli- kvarða vel máluð hús, mun betur en stríðstólin og hermennirnir, og í þessu tilviki trúlega stuðst við ljós- myndir og myndvarpa, því engin virðast stílfærð frávikin frá útliti þeirra, nema ef vera skyldi liturinn, sem hefur á stundum yfir sér upp- hafinn blæ. Og skyldi þetta ekki vera angi þeirrar áráttu ungra að yfir- færa alfarið hvunndaginn á dúka sína sem innsetningar, láta hann tala íyrir sig? Það er einkum þegar húsin virðast samlagast himinblámanum eða svífa í skýjakófi að málverkin hreyfa við hugarfluginu, nefna ber sem dæmi, Sunnudagsmorgunn, (1), Skógagerði 7, (6) og Engihjalli, (21) ásamt nöktum raunveruleikanum, Laugavegur, bakhús, (5). Að baki Sigríðar er fullgilt nám í listaskólum heima og erlendis frá ár- inu 1985 til 1992, þá verður átakalítið flipp og hópefli dagsins ráðandi ásamt hvers konar léttvægum gjöm- ingum. Þannig virðist ei heldur mik- ið af gerandanum sjálfum í þessum myndverkum, hugmyndafræðin óljós og stefnumörkin á reiki... HELENA GUTTORMSDÓTTIR Það er samræmi í yfirskrift sýn- ingar Helenu Guttormsdóttur í gyfj- unni, fólk í huga, því viðfangsefnið er fólk, og þó á stundum meira sálará- stand þess í tíma og rúmi. Aðallega er um að ræða andlit, sem ekki eni síður nostursamlega máluð en hús Sigríðar Ólafsdóttur. Skráin svipuð að gerð, en nú eru það enn fleiri sem fá þakkir fyrir veitta aðstoð. Helena, sem býr í Hvammi í Skorradal, útskrifaðist úr málara- deild MHÍ 1988 og lagði jafnframt stund á líffræði við Háskóla Islands síðasta árið. Hún hefur haldið eina einkasýningu í listhúsinu Úmbru hér í borg, 1993, einnig sýnt á Akra- nesi, hlaut önnur verðlaun í sam- keppni um útilistaverk á Akranesi 1994, styrk úr bamamenningarsjóði 1994 og starfslaun Akranesbæjar 1993. Hefur gert ýmsar mynd- skreytingar en að öðru leyti haldið sig til hlés. Sýningunni er fýlgt úr hlaði með einni setningu, sem er alveg nóg til að gesturinn taki við sér og að auk eru verkin þess eðlis að höfða meira til hugai-flugsins: „Verkin eru unnin með manninn í huga, manninn sem lífveru og félagsveru, hið marg- breytilega og óræða sem býr innra með hverjum og einum og gerir enga tvo eins.“ Ríkur þáttur í listsköpun Helenu er að tví og þrískipta myndheildun- um til að fá meira af tíma og rými inn í myndefnið, sem er afar kunn- uglegur leikur í myndlist yngri kynslóða, og svo aftur í trúarlegri list fyiTÍ alda. Þó eru það yfirleitt heilu myndirnar sem fela í sér sterkastar skírskotanir, svo sem, Dópistinn, lygin og lánleysið, (3) og, Sölt sjálfsskoðun (13). Fyrri myndin ber vott um að Helenu láti vel að stílfæra myndir og sleppa hugar- fluginu lausu innan ákveðinna marka, en hin seinni færir okkur áratugi aftur í tímann, helgast af því að vera vel máluð og búa yfir innri og framstreymandi kynngi. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.