Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 31
LISTIR
Sungið fyrir
Sönghópurinn Hljómeyki ferðaðist til
—?------------------------
Italíu fyrr á árinu og tók þátt í Riva Del
Garda- kórakeppninni í samnefndum
smábæ. Jón Heiðar Þorsteinsson skráði
ferðasöguna eftir kórfélögum.
silfur og gull
FÉLAGAR úr Hljómeyki fyrir framan Swarovski- glerverksmiðjuna
sem er mitt á milli Innsbruck og bæjarins Schwaz í Austurríki.
GENGI kórsins í keppninni
var vel viðunandi en hann
tók þátt í tveimur keppn-
isflokkum, flokki kóra
sem flytja trúarlega tónlist og
flokki blandaðra kóra sem flytja
eitt krefjandi skylduverk, auk ann-
arra verka. I fyrri flokknum fékk
Hljómeyki silfui-viðurkenningu og
fannst kórmeðlimum að þar
minntu þeir helst á íþróttamenn
sem léku undir getu á stórmóti. I
þeim seinni gekk betur, þar náði
„kórinn okkar“ gullviðurkenningu.
Ferðalagið hófst í Lúxemborg.
Þaðan var ekið til Innsbruck í
Austurríki, þar sem kórfélagar
áttu síðar eftir að syngja við eftir-
minnilega messu. Þaðan hélt kór-
inn sem leið lá í gegnum Brenner-
skarð yfír til ítalska ferðamanna-
bæjarins Riva við Gardavatn, sem
er á að giska hundrað kílómetra
fjarlægð frá landamærum Austur-
ríkis og Italíu.
Þýskur agi á Ítalíu
Kórakeppnin í Riva var haldin á
vegum þýski-a aðila, Musica
Mundi, og var mönnum fljótt ljóst
að þýskur agi var viðhafður í þess-
um vinalega ítalska smábæ á með-
an keppnin var haldin. ítalskir
starfsmenn keppninnar gættu þess
til dæmis að allir kórarnir fengju
nákvæmlega sama tíma til æfinga
og mátti þar ekki skeika einni mín-
útu. Sama gilti þegar í keppnina
var komið, hver kór hafði einungis
tuttugu mínútur upp á sviði og var
dregið af stigum hans ef flutningur
tók lengri tíma. Annars voru fimm
dómarar í hverri dómnefnd, þeir
voni flestir evrópskir og virtir kór-
stjórar í sínu heimalandi. Þeir gáfu
hverjum kór stig fyrir atriði eins
og nákvæmni, hreinleika söngs og
taktskyn, svo eitthvað sé nefnt.
Að kvöldi 5. apríl, var keppnin
sett við hátíðlega athöfn en um
daginn um höfðu þúsund meðlimir
þeirra 70 kóra sem tóku þátt í
keppninni marserað um götur bæj-
arins, íklæddir skrautklæðum og
þjóðbúningum. Þar sem Hljómeyk-
is-fólk var frekar seint á ferðinni
missti það af þessari skrúðgöngu.
Um kvöldið voru kórfélagar við-
staddir opnunarhátíð keppninnar.
Alvaran tók við daginn eftir. Þá
tók Hljómeyki þátt í keppni í
kirkjulegri tónlist og flutti verk eft-
ir Antonio Lotti, Hjálmar H. Ragn-
arsson og Luca Mai'enzio. Þar að
auki fluttu karlarnir í kórnum
gregorssöng. Einhver titringur var
í mannskapnum og náði Hljómeyki
ekki nema silfurviðurkenningu í
þessari atrennu. Þó margir kórar
hafi ekki náð nægum stigafjölda til
að ná silfur- eða bronsviðurkenn-
ingu stóð metnaður kórfélaga
Hljómeykis til meiri afreka.
Um kvöldið hélt Hljómeyki vin-
áttutónleika með þremur öðrum
kórum. Þar vakti ítalskur madriga-
lakór sérstaka athygli íyrir frá-
bæran söng og leikræna tilburði.
Auk Italanna og Hljómeykis sungu
unglingakór frá Tækniháskólanum
í Moskvu og eistneskur kór á tón-
leikunum.
Náð í gull
Eftir strangar æfingar á þriðju-
deginum var komið að því að
Hljómeyki tæki þátt í seinni
keppni sinni. Og þá gekk betur en í
fyrra skiptið. I flokki blandaðra
kóra sem flutti eitt skylduverk náði
Hljómeyki nægilegum stigafjölda
til þess að fá gullviðurkenningu. Á
dagskrá Hljómeykis voi'u verk eft-
ir Hjálmar H. Ragnarsson, Debus-
sy, János Vajda og Amold Bax.
AIls tóku 15 kórar þátt í þessari
keppni og fengu nokkrir þeirra
gullviðurkenningu.
Miðvikudagurinn 6. apríl var
lokadagur keppninnar. Þá gafst
stjórnendum kóranna sem tóku
þátt í keppninni færi á að ræða við
dómarana. Sumir þeirra undi-uðust
efnisval Hljómeykis, töldu að kór-
inn hefði verið að syngja of erfið
verk fyrir keppni sem þessa. Ann-
ars var einn bandaríski dómarinn
svo hrifinn af flutningi kórsins á
verki eftir Arnold Bax að hann
spurði Bemharð Wilkinson stjórn-
anda Hljómeykis hvort hann gæti
ekki útvegað faxnúmer tónskálds-
ins. Það reyndist ómögulegt enda
lést Bax árið 1953. Um kvöldið var.
sjálf lokakeppnin háð og áttust þá
við stigahæstu kórarnir úr hverj-
um flokki. Kór Tónlistarháskólans
í Moskvu stóð uppi sem sigurveg-
ari og er vel að þeim heiðri kominn,
enda söngur hans áhrifamikill og
magnaðm-
Meðal skemmtiatriða kvöldsins
var fjöldasöngur undir stjórn hins
virta danska kórstjóra og íslands-
vinar Steen Lindholm en hann er
kvæntur íslenskri konu, Sigríði
Pétursdóttur.
Enga kaþólsku takk
Á skírdag hélt Hljómeyki til
Austurríkis og söng í messu í
kirkju nokkurri í Innsbmck. Þar
var organistinn harður á því að
ekkert verk sem bæri nokkurn
minnsta keim af kaþólskum sið
yrði flutt við messuna og olli þetta
kórnum nokkmm vandræðum.
Niðurstaðan var sú að kórinn flutti
sálminn Heyr himnasmiður eftir
Kolbein Tumason en sá sálmur
slapp í gegnum eftirlit organistans
eftir að honum hafði verið tjáð að
lagið við sálminn væri eftir Þorkel
Sigurbjörnsson sem væri bróðir
núverandi biskups lútersku þjóð-
kirkjunnar á Islandi og sonur þess
íyrrverandi. Ennfremur flutti
Hljómeyki sálminn Ó Jesús orðin
séu þín eftir Hallgrím Pétursson
við lag Hildigunnar Rúnarsdóttur,
auk verka sem áður vom flutt í
kegpninni í Riva Del Garda.
Á föstudeginum langa héldu
Hljómeykismeðlimir til Swarovski
glerverksmiðjunnar sem er mitt á
milli Innsbruck og bæjarins
Schwaz og kynntu sér framleiðslu
hennar. Því næst var haldið til
fjalla og í um 2.300 metra hæð
skoðuðu menn sig um í austum'sku
ölpunum. Eftir að hafa gist í
Heidelberg í eina nótt héldu
Hljómeykisfélagar loks heim til ís-
lands, reynslunni ríkari og ánægðir
með árangurinn.
Með nýjum eigendum hafa bæst við nýjar tegundir.
Sölusýning á handunnum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hótel, Sigtúni.
Föstudaginn 11. september kl. 13 — 19
Laugardaginn 12. september ki. 12 — 19
Sunnudaginn 13. september kl. 13 — 19
HOTEL
REYKJAVÍK
Verðdæmi án afsláttar:
Indverskar Gabbeh 1,43 x 72 kr. 9.900
Pakistan 60x90 kr. 8.900
Pakistan „sófaborðsstærð“ 1,23x1,79 kr. 42.600
Balutch bænamottur kr. 10.300-16.800
Afghan Silk 1,48x1,17 kr. 78.800
Og margt fleira m.a. rauður Afghan, gömul Chachun og Gl. Afghan
Kurk á ótrúlegu verði.
fe
HOTEL
REYKJAVÍK
Þorbjörg Pálsdóttir myndhöggvari verður með sýningu á nokkrum verka sinnua
í tilefni lendingarinnar á sama stað.
VÍSA
RAÐGREIÐSLUR
EUROCARD
raðgreiðslur
20% lendingarafsláttur
um helgina