Morgunblaðið - 11.09.1998, Síða 33

Morgunblaðið - 11.09.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 33 Máttur og menn- ing - sameining og samheldni Elísabet Gísladóttir ÞAÐ ER oft sagt að við Islendingar réttlætum tilveru okkar sem sjálfstæð þjóð með menningu okkar. En hvað er það sem við köllum menningu? Öll okkar saga er menningar- saga, saga um þróun mannsins og athafnir hans frá upphafi, um skoðun hans á sjálf- um sér og stöðu okk- ar í samfélaginu og heiminum. Fyrir ári síðan, þann 13. september 1997, var opnuð fjöl- skylduþjónustan Miðgarður í Grafarvogi. Eitt af hlutverkum Miðgarðs var að stofna í hverfinu Grafarvogsráð sem starfa Fjölskylduvæn hausthátíð verður haldin í Grafarvogi á morgun. Elísabet Gísladóttir og Guðrún Snorradóttir, segja hér frá aðdraganda hennar. á í samvinnu við hverfisnefnd Graf- ai’vogs, sem er stjórnamefnd Mið- garðs. Núverandi formaður hverfis- nefndannnar er Guðrún Agústs- dóttir. I ráðinu sitja fulltrúar frá öllum stofnunum og félagasamtök- um í hverfinu og er það hugsað sem sameiningartákn hvei’fisins sem kemur inn á sem flest svið sem koma Grafarvogsbúum til góða. Ráðið hefur starfað í litlum hópum auk þess að funda saman sem ein heild. Það hafa komið fram margar hugmyndir um gildi og starfsvett- vang ráðsins, s.s. menningar- og skólamál, forvarnir, umhverfismál, skipulags- og samgöngumál, örygg- ismál og slysavarnir og að halda sérstakan Grafarvogsdag. Síðast- nefnda hugmyndin var valin fyrsta viðfangsefnið. í upphafi undirbúningsins var leitast við að finna grundvöll þar sem íbúarnir gætu átt skemmtileg- an og uppbyggjandi dag. Með öðr- um orðum að njóta þess að vera til með það að leiðarljósi að maður er manns gaman og byggja með því sterkt samfélag í bænum í borginni. í samfélagi eins og er hér í Grafar- vogi höfum við alla möguleika að rækta allar manneskjur eins og góður garðyrkjumaður ræktar garðinn sinn. Mátturinn sem er því samfara að standa saman að góðu samfélagi þar sem allir eru fyrir einn, einn fyrir alla í starfi og leik er þema þessa dags. Til að minna okk- Fylgstu með nýjustu fréttum á fréttavef Morgunblaðsins Guðrún Snorradóttir ur á gildi og mikilvægi einstaklings- ins og hvernig við getum gert okkar til að skapa hér fyrirmyndarsamfé- lag þar sem við virðum alla og lát- um okkur annt um náungann verð- ur stofnaður Náungakærleikssjóður sem er bæði veraldlegur og andleg- ur fjársjóður sem hægt er grípa til í neyð. Þau fyrirtæki sem taka þátt í firmakeppni dagsins eru stofnendur þessa sjóðs. Sjóður þessi verður í höndum fulltrúa kirkjunnar og soroptimista hverfisins. Hátíðin á laugardaginn ber heitið Máttur og menning - sameining og samheldni í leik og starfi. Það verð- ur stanslaus dagskrá frá því kl. 10 um morguninn tíl kl. 23 um kvöldið. Það verður guðsþjónusta, þjóðsögu- og ævintýraganga, Grafarvogs- glíma, hlaup, sundlaugarpartý, menningardagskrá, varðeldm’, flug- eldasýning, tónleikar og ýmislegt fleira. Mælst er til að allir íbúar hverfisins grilli milli kl. 18 og 20, hver fýrir sig eða í hópum, og verði með í að mynda hverfisstemmn- ingu. Gaman væri að fólk flaggaði þar sem því væri við komið. Dag- skráin hangir uppi víðs vegar í Grafarvogi auk þess að vera borin út í hvert hús hverfisins. Öll skemmtun og sýningar eru í hönd- um íbúa hverfisins, stórra og smárra, þekktra og óþekktra. Það er eflaust ekki nema brot af öllum þeim listamönnum sem búa hér í hverfinu og vonumst við til að geta leitað í smiðju þeirra síðar. Allir sem leitað hefur verið til hafa lagst á eitt um að þessi dagur verði sem skemmtilegastur og eftirminnileg- astur og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að geta notið hans. Höfundar eru í framkvæmdanefnd Grafarvogshátíðar. Nýtt barna- sjúkrahús rís NÆSTA stórverk- efni í uppbyggingu heilbrigðisstofnana er bygging nýs Barna- spítala Hringsins. Er hér um mjög brýna framkvæmd að ræða þar sem núverandi að- staða Barnaspítala Hringsins á Landspít- alanum er ekki sér- hönnuð með sjúk börn í huga. AJmennur skilningur og vilji er bakvið þá ákvörðun stjórnvalda að byggja nýtt sérhæft barna- sjúkrahús. Hagsmuna- samtök og aðstandend- ur sjúkra barna hafa þrýst á um bygginguna. Einnig hafa stéttir innan Landspítalans sent stjórn- völdum sameiginlega undirskrifta- lista til að sýna verkinu samstöðu. Konur í Kvenfélaginu Hringnum hafa um árabil safnað fé til bygg- ingarinnar með sölu á ýmiskonar varningi, s.s. merkjum og jólakort- um. Er framlag þeirra og stuðn- ingur við barnaspítalann ómetan- legur. Sérhæfð hönnun bamaspítalans Hönnun nýja barnaspítalans er langt komin. Megindrættir og fyr- irkomulag byggingarinnar var val- ið í opinni hönnunarsamkeppni sem lauk á síðasta ári. Frá þeim tíma hafa arkitektar og verkfræð- ingar tekist á við það viðamikla Siv Friðleifsdóttir verkefni að hanna sér- hæfðan barnaspítala í náinni samvinnu við fagstéttir spítalans. Aðstandendur og hagsmunahópar sjúkra barna hafa komið með fjölmargar ábendingar sem reynt hefur verið að taka til- lit til. Það er því von okkar sem stöndum að byggingunni að nýr barnaspítali uppfylli sem best þarfir sjúkra bama, aðstandenda þeirra og starfsfólks bamaspítalans. Starfstengsl við fæðingardeild Hinn nýi barnaspítali mun rísa á samþykktum deiliskipulagsreit vestan við kvennadeild Landspítal- ans. Sú staðsetning hentar vel með tilliti til starfstengsla við fæðingar- deild þar sem vökudeild mun flytj- ast úr núverandi húsnæði yfir í nýja bamaspítalann. Hringbrautin, sem í dag liggur neðan við væntan- legan bamaspítala, verður flutt til suðurs. Með flutningi hennar ætti að skapast meiri ró á þessum hluta lóðarinnar en nú er. Flutningur Hringbrautar er mikil og dýr fram- kvæmd. Ráðgert er að flýta flutn- ingnum svo nýr barnaspítali þui’fi ekki að búa við hávaða frá Hring- brautinni nema til bráðabirgða um stuttan tíma. faerðu jpér, J 0 ^laðan _ nðpjns norciin. www.mbl.is Ráðgert er að hefja jarðvinnu strax og byggingarnefnd Reykjavíkur hefur gefið samþykki sitt fyrir framkvæmdinni, segir Siv Friðleifsdóttir, og jarðvinnuútboð hefur farið fram. Jarðvinna að hefjast Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að jarðvinna vegna nýja barnaspítalans hæfust snemma í sumar. Vegna samningaumleitana milli ríkis og Reykjavíkurborgar um flutning Hringbrautar hefur nokkur dráttur orðið á þeirri áætl- un. Ráðgert er að hefja jarðvinnu strax og byggingarnefnd Reykja- víkur hefur veitt samþykki sitt fyr- ir framkvæmdinni og jarðvinnuút- boð hefur farið fram. Samkvæmt áætlun á nýr barnaspítali að vera risinn árið 2000, en hann mun kosta um einn milljarð króna. Bygging nýs sérhæfðs bamaspítala er eitt stærsta framfaraspor sem við Is- lendingar eram að stíga innan heil- brigðiskerfisins um þessar mundir. Með honum verður unnt að flytja þjónustu við sjúk börn úr ófull- nægjandi húsnæði í sérhannað hús- næði sem hentar vel sjúkum böm- um, aðstandendum þeirra og starfsfólki bamaspítalans. Höfundur er alþingismaður og for- maður byggingamefndar Bania- spítalans ekki emhver skitíð faUegon Mómvmd? ÍSLENSK GARÐYRKÍA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.