Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 34

Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. LEIÐ UR SJÁLFHELDUNNI JEVGENI Prímakov, sem Borís Jeltsín forseti Rúss- lands tilnefndi í gær sem forsætisráðherraefni sitt, er varla sá stjórnmálamaður sem Vesturlönd hefðu helst kosið að tæki við völdum ef spurt hefði verið fyrir nokkrum vikum. En í Ijósi þess upplausnarástands er ríkt hefur í Rússlandi að undanförnu er hugsanlegt að Prímakov sé þegar upp er staðið einn af skárri kostunum í stöðunni. Að mörgu leyti er Prímakov óskrifað blað sem stjórn- málamaður. Hann komst til metorða innan Kommúnista- flokksins á tímum Sovétríkjanna og var náinn samstarfs- maður Míkhaíls Gorbatsjovs fyrrum Sovétleiðtoga. Eftir hina misheppnuðu valdaránstilraun haustið 1991 var hann skipaður yfirmaður rússnesku leyniþjónustunnar, KGB. I aðdraganda Persaflóastríðsins reyndi hann að ná samkomulagi við Iraka en þær tilraunir hans báru ekki árangur. Eftir að hann tók við embætti utanríkisráðherra hefur hann oftar en ekki verið á öndverðum meiði við Vestur- lönd í mikilvægum málum. Hann hefur barist gegn stækkun Atlantshafsbandalagsins og var andvígur íhlut- un í Bosníudeiluna. Prímakov hefur hins vegar á sama tíma aflað sér trausts og virðingar margra vestrænna stjórnmálaleiðtoga er telja hann raunsæjan stjórnmála- mann og áreiðanlegan í samskiptum. Minna hefur hins vegar farið fyrir skoðunum Príma- kovs á rússneskum málefnum, pólitískum jafnt sem efna- hagslegum. Haft var eftir honum í gær að hann hygðist halda áfram efnahagslegum umbótum í landinu. í raun veit hins vegar enginn hvaða stefnu Prímakov mun fram- fylgja eða hver hans sjónarmið eru. Hitt er hins vegar ljóst að með tilnefningu hans er búið að finna leið út úr þeirri pólitísku sjálfheldu er rússnesk stjórnmál hafa verið í frá því Jeltsín vék Sergej Kíri- jenkó úr embætti forsætisráðherra fyrir skömmu. Ljóst var orðið að Dúman myndi líklega ekki samþykkja Viktor Tsjernomyrdín sem forsætisráðherra ef Jeltsín hefði til- nefnt hann í þriðja sinn. Hins vegar hafa jafnt kommún- istar sem leiðtogar umbótasinna á hægri væng lýst því yfir að þeir geti sætt sig við Prímakov sem málamiðlun. Pau verkefni sem bíða Prímakovs eru ógnvænleg. Efnahagslíf Rússlands hefur verið að stöðvast og skortur er á helstu nauðsynjavörum, jafnvel í höfuðborginni, Moskvu. Verði það ástand viðvarandi gætu afleiðingarn- ar orðið ógnvænlegar. Forsenda þess að hægt sé að leysa þessi vandamál er að sæmilegur friður ríki um hina pólitísku forystu og að umheimurinn og alþjóðlegar peningastofnanir öðlist traust á Rússlandi að nýju. HVALREKI FYRIR ÍSLAND ÞVÍ verður ekki neitað, að heimkoma háhyrningsins Keikós frá Newport í Oregon er skemmtilegt ævin- týri. Segja má, að heimsbyggðin hafi fylgzt með flutningi háhyrningsins frá Bandaríkjunum til Islands, slíkur er áhuginn á örlögum hans. Hann fær samastað í gríðar- stórri og sérútbúinni kví í Klettsvík í Vestmannaeyjum, ,þar sem vísindamenn frá Frelsið Willy-Keiko stofnun- inni, ásamt íslenzkum starfsbræðrum, munu fylgjast með líðan og heilsufari háhyrningsins og meta, hvort unnt verði um síðir að sleppa honum lausum í úthafið. Ýmsum finnst nóg um tilstandið í tengslum við háhyrn- inginn, en hvort sem mönnum líkar betur eða verr við flutning hans til íslands þá má ganga út frá því sem vísu, að áhrifin verða jákvæð fyrir ferðaþjónustuna í landinu og þá sérstaklega í Vestmannaeyjum. Keikó mun vekja athygli ferðamanna og náttúruverndarsinna á landi og þjóð og væntanlega stórefla áhuga á hvalaskoðun. Flest bendir því til þess, að heimkoma Keikós verði hvalreki fyrir ísland. KEIKÓ var rólegur meðan hann var hífður yfir í kvína í Klettsvík eins og hann hafði verið alla leiðina yfir hafið. KRANINN hífði Keikó varlega yfir f kvína. Fjöldi frétta ig Keikó myndi bregðast við þegar hann kæmist í sm Heimildarþáttur í undirbúningi COUSTEAU á bát við kví Keikós með nokkrum krökkum. Morgunblaðið/Kristinn JEAN-Michel Cousteau, þekktur franskur hafrannsóknarmaður og kvikmyndagerðarmaður, einn stjórnenda Free Willy-Keiko Foundation, og sonur hins heims- þekkta hafrannsóknarmanns Jacques Cousteau, ætlar að gera klukkutíma langa heimildarmynd um flutning háhyrningsins frá Bandaríkjunum til Islands. At- burðurinn verður séður frá sjón- arhóli sjö barna. Þijú þeirra eru frá Bandarikjunum, eitt frá Frakklandi, Kína og Mexíkó og eitt þeirra er ellefu ára strákur úr Vestmannaeyjum, Örn Ólafsson. Börnin heimsóttu Keikó í Oregon og fengu að ræða við þjálfara hans, jafnframt fóru þau að skoða háhyrninga úti í náttúr- unni. „Þannig gátu þau áttað sig á muninum og skilið hvað Keikó hefur þurft að ganga í gegnum eftir að hann var fangaður og fluttur úr náttúrulegu umhverfi Ferð Keikós frá sjónarhóli barnanna sínu,“ segir Cousteau. „Þau átta sig þá einnig á því hvaða erfið- Ieikar eru í því fólgnir að sleppa honum aftur út í náttúruna. Sex barnanna fóru með Cou- steau í litlum bát að sjókvínni í Vestmannaeyjum þegar Keikó var sleppt. „Þetta var tilfinningarík stund fyrir þau, sérstaklega fyrir börnin frá Oregon. Keikó var orð- inn hluti af lífi þeirra heima. En þau voru öll mjög ánægð með það sem var að gerast." Cousteau og samstarfsmenn hans verða nokkra daga í viðbót í Vestmannaeyjum og mun Islend- ingurinn í hópnum verða eins konar gestgjafi útlendu barnanna og kynna þeim Iíf jafnaldra þeirra í Eyjum. Verður seldur um allan heim Þátturinn er gerður á vegum Free Willy-Keiko Foundation og verður síðan seldur út um allan heim. Cousteau segir að mikill áhugi sé þegar fyrir honum. Hann hefur þegar í bígerð annan þátt þar sem fylgst verður með aðlög- un Keikós að nýju umhverfi næstu mánuðina. Hann ætlar að koma aftur til Vestmannaeyja eins oft og þörf er til að fylgjast með þró- uninni, og ef vel gengur að lýsa því þegar hann verður leystur úr haldi og heldur út í náttúruna. Cousteau segist trúa því, að svo muni fara á endanum. KEl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.