Morgunblaðið - 11.09.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.09.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 39 AÐSENDAR GREINAR Bindindi eða hófdrykkja MÉR FINNST að enn mætti teygja ögn úr umræðu okkar Skapta Hallgrímssonar um áfeng- ismál og úrræði á þeirra sviði. Þetta fínnst mér vegna þess að hvor um sig mælir fyrir fjölda skoðanabræðra og margt er enn ósagt. Varað við ofdrykkju í þijú þúsund ár? Skoðanaskipti okkar Skapta snú- ast um það hvort betur gefist í starfi gegn ofdrykkju, bindindi eða hófdrykkja. Ég held að meðal elstu heimilda um þá baráttu sé það sem skráð er í gamalli grafskrift í Eg- yptalandi og kallað hefur verið „speki Anis“. Þetta forna lesmál er talið nærri þrjú þúsund ára. Þar stendur m.a.: * Eg er í tölu þeirra, seg- ir Halldór Kristjáns- son, frá Kirkjubóli, sem telja meiri von um jákvæðan árangur af bindindi en uppgjöf. „Vogaðu þér ekki að drekka eina einustu könnu af öli.“ Þessi tilvitnun tekur af öll tví- mæli um það að spekingurinn Anis hefur talið nauðsyn að vara við hóf- drykkju. Astæða þess er hin sama og enn í dag. Hófsemdarmörkin - 2 til 3 glös af rauðvíni verða ekki haldin. Því ætti enginn að hætta á það að drekka eina einustu könnu af öli. Bindindissaga Vesturlanda Hér fmnst mér rétt að minna á sögu bindindismála í okkar heims- hluta. Það var í byrjun síðustu ald- ar að menn tóku að virkja félags- kraft manna til varnar gegn of- drykkju. Þá voru stofnuð félög til að vinna gegn ofdrykkju. Tak- markið var að gæta hófs. Þá sáu fá- ir eða engir ástæðu til að berjast fyrir bindindi. Það voi-u því hóf- semdarfélög sem menn stofnuðu, ekki bindindisfélög. Sú stefna var ráðandi um stund en þó snerust mál þannig að eftir fáa áratugi sýndist mönnum að ekki dygði annað en bindindi. Dag- ar hófsemdarfélaganna hófust á fyrstu árum 19. aldar. Um 1840 höfðu flestir gefist upp á þeim og menn stofnuðu bindindisfélög. Þessi hreyfing öll gegn skelfing- um áfengisins átti upphaf sitt í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Bindindishreyfingin breiddist fljótt út og þar ætti okkur að vera minn- isstætt Fjölnisbindindið í Kaup- mannahöfn um 1840 og viðleitni þeirra félaga að gera þjóð sína bindindissama. Það var upphaf bindindisstefnu á Islandi og glóð þeirra loga er þá kviknuðu hefur aldrei dáið að fullu, en lifnað við öðru hvoru með ýmsu móti. Besta tækifærið Mér er ljóst að breytt viðhorf til áfengis gæti skipt sköpum fyrir þjóðina. Ég sé ekki neitt sem gæti svo fljótt og verulega skipt um til bóta um þjóðarhag ef vakning yrði í bindindismálum. Og þetta held ég að almenningur láti sér skiljast. Væntanlega þurfum við ekki að bíða þess í mörg ár að vakning verði. En þar vænti ég fulltingis nýrrar kynslóðar öðru fremur. www.mbl.is Þegar menn átta sig á því hversu áhrifamikið bindindið getur verið breytast viðhorfin á Islandi. Þá efList bindindishreyfingin og leysir marga bundna krafta til blessunar komandi kynslóð. Hversu lengi geta svo einföld sannindi dulist svo gáfaðri þjóð? Upp á líf og dauða Það er næsta ljóst að framund- an er mikið stríð í sambandi við vímuefni. Undir forustu Samein- uðu þjóðanna er og verður reynt að minnka neyslu áfeng- is. Til þess eru reynd- ar ýmsar hömlur. Aðrir segja að það sé vonlaust mál. Stefna þeirra er sú að þeir sem verði háðir eitr- inu verði skráðir og síðan geti þeir sótt sér daglegan skammt á opinberan stað. Það sé miklu betra en að þeir afli sér fjár fyrir vímuefnum með ein- um og öðrum glæpum. Það er þetta ástand sem við eigum að kjósa um á næstu árum. Þetta eru ekki fjarlægir órar. Þessi tilhögun er að einhverju leyti komin á í Hollandi. Sum fylkin í Sviss hafa beygt sig fyrir ofurefli og lög- bundið slíkt hjálpar- starf. Bæði á Spáni og í Portúgal eru áhrifa- miklir stjórnmála- menn sem berjast fyr- ir slíkri lýðhjálp. Um þetta verður barist á fyrstu tugum tuttugustu aldarinnar. Það virðist liggja í augum uppi. Um hitt kann ég ekki að segja hve algengt það verð- ur að láta undan og bugast. En þessi er staðan. Þetta er bar- átta upp á líf og dauða. Ég er í tölu þeirra sem telja meiri von um jákvæðan árangur af bindindi en uppgjöf. Mér virðist enginn marktækur árangur nást með hófdrykkjukennslunni sem Skapti boðar og trúir á. Sú leið er þrautreynd og veldur enn sem fyrr vonbrigðum. Enn vantar þann hemil sem dugar. Enn er það staðreynd að sum- um verður ofraun að halda hófinu og virða takmörk þess. Þeirra vegna reynum við að mynda áfengislaust umhverfi sem verður þeim vernd og skjól. Sú viðleitni ber árangur og því meiri sem fleiri taka höndum saman um eflingu bindindis. Um áhrif bindindishreyfingar á samtíð okkar hér á landi má margt ræða þó að það bíði nú að sinni. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Til kl. 16 á laugardag seljum við 40 notaða bíla á frábæru verði. Noklcur dœmi úr söluskrd: MMC Lancer GLX 93 780.000 Hyundai Elantra '97 Í29C.GÚU VW Golf 4x4 station '97 1.200.000 ■ ffEI'TK'I'l Toyota Corolla 1600 XLi '97 1.34C.ÚU0 ■ lkJeMiI»I»» MMC Pajero 3000i V6 '93 2.100.U00 ■l:W»K.l.l»l VW Transporter '91 74C.U00 — 11 w ■ Daihatsu Feroza EL II '93 9*C.U00 ■EHaEEEI fyrstir lcoma -jyrstirfá ! Opnunartimi fimmtudagur og föstudagur kl. 9-20, laugardagur kl. 10-16. BÍLAÞINGHEKLU ISI O T A Ð I R ^ B í L A R LAUGAVEGI 174 • SÍMI 569 5660 • FAX 569 5662 Halldór Kristjánsson www.hekla.is Landsfrœgt úrval notaðra bíla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.