Morgunblaðið - 11.09.1998, Síða 41

Morgunblaðið - 11.09.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 41 Treinum okkur góðærið adidas „rekstrarniðurstoður fyrri hluta árs 1998 valda vonbrigð- um... Þessu veldur einkum mikil og áframhaldandi verðsamkeppni, jafnt við innlenda sem erlenda framleiðendur. Sterk staða ís- lensku krónunnar og innlendar kostnaðarhækkanir, einkum launa- hækkanir, hafa skekkt samkeppn- isstöðuna gagnvart erlendum keppinautum," segir í nýlegri fréttatilkynningu iðnfyrirtækis vegna milliuppgjörs þess í ár. Versnandi afkoma í iðnaði Þótt afkoma og fjárhagsstaða séu að sönnu mjög mismunandi milli fyrirtækja í iðnaði fer vart milli mála að þegar á heildina er litið fer afkoma þeiira hraðversn- andi. Þetta sýna niðurstöður af- komukönnunar sem Samtök iðnað- arins gerðu nú á dögunum. Xönn- unin tók til fyrirtækja í iðnaði, utan stóriðju og byggingarstarfsemi, og voru þau samtals með rúmlega átta milljarða veltu á fyrstu sex mánuð- um ársins sem ætla má að sé um 15% af veltu í þessum hluta iðnað- arins. Helstu niðurstöður eru þær að rekstrargjöld vaxa svo mikið umfram veltu að tvær af hverjum þrem krónum sem fyrirtækin höfðu í hagnað í fyrra eru nú horfnar. Það, sem er að gerast, er vel þekkt: Hækkandi launakostnaður, hátt gengi íslensku krónunnar og háir vextir vega að samkeppnis- stöðu og markaðshlutdeild inn- lends samkeppnisiðnaðar. Fyrir- tækin róa lífróður á móti þessum straumi þenslunnar. Framleiðni hefur vaxið hratt en það dugir ekki til. Fyrirtækin taka á sig kostnað- arhækkanir eins og þau geta. Framlegð dregst saman og hagn- aður minnkar. Kostnaðarhækkanir og gengisþróun birtast í versnandi samkeppnisstöðu. Ósýnileg verðbólga Frá því í mars í fyrra hafa inn- lendar vörur í vísitölu neysluverðs hækkað um 5,1% en innfluttar vör- ur hafa lækkað í verði um 4,1%. Opinberar tölur um 2,4% verð- bólgu á þessu tímabili og spár um 2% verðbólgu milli ára 1997-1998 eru því villandi. I reynd er inn- lenda verðbólgan mun meiri en þar kemur fram. Hún er nefnilega greidd niður með lækkandi verði á innflutningi. Okkar fyrirtæki í iðn- aði og þjónustu, sem eiga í óheftri samkeppni, verða við þessar að- stæður undir og tapa markaðshlut- deild. Það er þenslan sem veldur þess- ari óheillaþróun. Erlend fjárfesting T I Staðgreiðsluverð: 9.800 kr. húsgögn Ármúla 44 • sími 553 2035 kyndir undir samhliða því að verð sjávaraf- urða á erlendum mörkuðum og auknar veiðiheimildir dæla fjármagni inn í hag- kerfið. Ljóst er að hagkerfið er að of- hitna. Seðlabankinn hækkar enn og aftur vexti til að sporna gegn þenslunni en slík hrossalækning dugar iðnaðinum skammt því að sterkari króna og hærri vextir gera ekk- ert annað en spilla enn frekar samkeppnis- skilyrðum hans. Aukinn sparnaður Hvað þarf að gera? Það er sam- dóma álit allra þeirra sem um mál- ið fjalla að til þess að takast á við þá miklu hættu sem stafar af Okkur liggur lífið á, segir Sveinn Hannes- son, að ná fram aukn- um sparnaði til að uppsveiflan endi ekki með efnahagslegri kollsteypu. þenslunni er brýnast að auka þjóð- hagslegan spamað. Aukinn sparn- aður leiðir til minni eftirspurnar sem aftur dregur úr spennu í hag- kerfinu og þar með úr kostnaðar- hækkunum. Aukinn sparnaður vinnur þannig gegn verðbólgu og skapar grundvöll fyrir lægri vexti og hagstæðara gengi fyrir atvinnu- reksturinn í landinu. Allt era þetta þættir sem hafa úrslitaáhrif á sam- keppnisstöðu og markaðshlutdeild iðnfyrirtækja. Þjóðhagsstofnun hefur áætlað að til þess að spamaður nægi til þess að fjármagna fjárfestingu lands- manna, sem er í mjög viðunandi ástandi um þessar mundir og svip- uð því sem gerist í okkar helstu viðskipta- löndum, þyrfti þjóð- hagslegur spamaður að aukast á þessu ári um 24 milljarða króna eða um nálega fjórð- ung. Draga saman í opin- berum rekstri - greiða niður skuldir Skólabækurnar segja að stjómvöld eigi við þessar aðstæð- ur að auka þjóðhags- legan sparnað með því að auka sparnað hins opinbera, halda út- gjöldum í skefjum en nýta auknar tekjur sem koma inn vegna góðær- isins til að greiða niður skuldir. Versnandi samkeppnis- og mark- aðsstaða ið nfyrirtækja segir okkur að stjórnvöld geri of lítið til þess að draga úr þenslunni. Aiþingiskosn- ingar eru framundan og reynslan sýnir að þá hættir stjórnvöldum sérstaklega til að taka hagstjórn- ina vettlingatökum. Utlitið er því ekki gott hvað þetta varðar næstu mánuði. Það fyrsta og oft eina, sem opin- berir aðilar gera til þess að sporna gegn þenslu, er að fresta opinber- um framkvæmdum. Slíkt getur skilað tímabundnum árangri en getur líka snúist upp í andhverfu sína þegar slík frestun verður ein- ungis til að stytta framkvæmda- tímann og gera framkvæmdir óhagkvæmari. Vandi okkar er ekki of mikil fjárfesting heldur of mikil neysla. Fjárfesting hér á landi er nú svipað hlutfall af þjóðartekjum og gerist og gengur meðal þróaðra þjóða eða um 20%. Ef við drög- umst aftur úr á þeim vettvangi, eins og við raunar gerðum á fyrri hluta þessa áratugar, kemur það niður á t-f ækniþróuninni og tekju- möguleikum framtíðarinnar. Sveinn Hannesson Sparnaður einkaaðila Við verðum að auka sparnaðinn Stjórnvöld verða að ýta eftir föng um undir spamað einkaaðila sam hliða því að auka eigin spamað eð; draga úr eigin umframeyðslu. bréfi, sem Samtök iðnaðarin. sendu ráðherram og raunar öllun þingmönnum í september í fyrra eru stjórnvöld hvött til þess að ýt; undir aukinn sparnað einkaaðila sem er hinn hluti þjóðhagsleg; sparnaðarins, með skattalegun hvötum. Þarna þarf að bjóðas sveigjanleiki og valfrelsi til þess a gera spamað að vænlegri kosti fyr ir einstaklinga, svo sem í form hlutabréfakaupa, viðbótarlífeyris sparnaðar og/eða greiðslna á hús næðissparnaðarreikninga upp ao ákveðinni fjárhæð árlega. Haldbærar rannsóknir skortii um það hvernig við getum helst ýt undir aukinn spamað sem við þurf um svo sárlega á að halda. Ein leið in era skattalegir hvatar. Önnur ei þvingaður sparnaður eða einhver: konar skyldusparnaður umfran núverandi lífeyrissparnað. Þriðjí leiðin er að hraða einkavæðingu Fjórða leiðin er að breyta skipt- ingu skattbyrðarinnar milli fyrir tækja og heimila og minnka milii færslur. Varla er hægt að hugsa sér verð ugra eða brýnna verkefni en a< skoða hvaða leið er vænlegust þessum efnum. Okkur liggur lífið : að ná fram auknum þjóðhagslegun spamaði til að þessi uppsveifl: endi ekki með efnahagslegri koll steypu eins og allar hinar í sögu ís lenska lýðveldisins. Slíkar koll steypur í samkeppnisstöðunni haft langtímaáhrif. Þeir vaxtarbroddai í iðnaði og þjónustu, sem við höfun séð vaxa upp á undanfömum áram. verða þá rifnir upp með rótum og reynslan sýnir að það tekur mörg ár að vinna upp það efnahagslega tjón sem af því hlýst. Góðir innanhúss Traustir í skólann Alhhða æfingaskór Nýir hlaupaskór Mersíunin Einstærsta sportvöruversl landsins JVý Armúla 40 - Símar 553 5320 - 568 8860 Höfundur er framkvæmdastjórí Samtaka iðnaðaríns. Heimilistæki hf TÆKNI-OG TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 SlMI 5691500 3 & & ! Silki-damask í metratali í úrvali Póstsendum Skólavördustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050. Lyst ehf.. FVIcDonald's á íslandi. þakkar viöskiptavinum góðar móttökur á undanfornum 5 árum. Á þessum tima höfum viö þjónaö u.þ.b. 4.5 milijón manns sem borðaö hafa 220 tonn af ísiensku nautakjöti og 500 tonn af kartöflum! IMcDonalds ■ Austurstraíti 20 Suðurbmlshraut 56 r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.