Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 42

Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SJALFSTÆÐU ATVINNU- LEIKHÚSIN, HÓPARNIR OG F JÁRVEITIN GAVALDIÐ Á SÍÐASTA þingi var lögð fram skýrsla sem menntamálaráðherra lét taka saman og fjallaði um „sam- keppnisstöðu frjálsra leikhópa gagnvart opinberum leikhúsum". Höfundur hennar er Magnús Árni Skúlason (MÁS) hagfræðingur og framkvæmdastjóri Islenska dans- flokksins. Skýrsla þessi er um margt athygli verð. Með henni fæst gott yf- irlit yfir rekstrarum- hverfi leiklistar í land- inu og það opinbera stuðningskerfi sem leiklistin býr við. Þar má og sjá að starfsemi sjálfstæðu leikhúsanna og leikhópanna nýtur ákaflega lítils stuðnings hins opinbera miðað við umfang starfsins sem þar er unnið. Hvernig þessi samantekt verður síðan notuð af alþingis- mönnum, ríkisstjórn og ráðherra á eftir að koma í ljós, en það er óskandi að skýrslan verði þeim hvatning til að kannast við þróun sem átt hefur sér stað á undanförn- um árum. Á ég þar við að vonandi mun fjárveitingarvaldið styðja enn frekar við leiklistina í landinu en þegar er gert og láta þann stuðning koma fram þar sem vöxtur greinar- innar er mestur; hjá sjálfstæðu leikhúsunum og leikhópunum. Starf leiklistarfólks utan opin- beru leikhúsanna hefur verið nefnt ýmsum nöfnum; „frjálsir leikhóp- ar“, „sjálfstæðir leikhópar", „leik- hóparnir“ og svo fram eftir götun- um. Þeir aðilar sem á þessum vett- vangi starfa hafa með sér samtök sem kallast „Bandalag sjálfstæðra atvinnuleikhúsa", skammstafað Ba- al, og hafa félagar innan banda- lagsins ýmist kallað starfsvettvang sinn leikhús eða leikhóp og gjarnan skeytt þar framan við orðunum frelsi og sjálfstæði. Menn hefur greint á hversu réttar eða viðeig- andi þessar nafngiftir eru. í gegn- um árin hafa hugtökin frelsi og sjálfstæði í þessu samhengi oft ekki þýtt annað en frelsi og sjálfstæði listamannanna til að steypa sér í skuldir og fjárhagslega ei’fiðleika. Þykir mörgum þessi hugtakanotk- un þá orðin heldur kaldhæðnisleg. Það breytir ekki hinu að þessi skil- greining á fullan rétt á sér þar sem hún á í upphafi auðvitað við um vinnubrögð og verkefnaval, þ.e.a.s. frelsi til að ákveða hvað skuli gert og hvernig skuli unnið. En víkjum aftur að þeirri þróun sem ég minnt- ist á hér á undan. Þegar litið er til síðustu ára má sjá mjög ákveðinn vöxt í starfi leikhópanna. Á árunum 1986 til 1992 voru frumsýningar að jafnaði um 9 talsins, flestar árin 1988 og ‘89 eða 11 og fæstar árið 1991 eða 7. Frá árinu 1993 hefur verið mikil aukning í starfi sjálf- stæðu leikhúsanna og hópanna, en það ár voru 13 frumsýningar á vegum þeirra, 1994 voru þær 20, 1995 voru þær 26 og árið 1996 voru þær 32 (saman- tekt fyrir árið 1997 er ekki lokið). Hér eru einnig taldar með þær sýningar sem hóparnir unnu í samvinnu við opinberu leikhúsin. Auk þessa fóru hóparnir í fjölda leikferða bæði inn- anlands og til útlanda á þessu tima- bili (hvað varðar þessar leikferðir mætti skrifa langt mál. Fróðlegt væri t.d. að athuga hvernig þessar leikferðir hafa komið tii, hverjir hafa fjármagnað þær, hverju þær hafa skilað í listrænu tilliti, hversu mikilvægt er fyrir hinar dreifðu byggðir að fá gestasýningar at- vinnufólks og einnig hversu oft hóparnir hafa verið formlegir full- trúar Islands á ferðalögum sínum erlendis. En þessi pæling bíður betri tíma). Eins og sjá má hefur vöxturinn í starfi leikhópanna verið mikill og ég held að margir, bæði innan leik- listargeirans og utan, horfi á þró- unina furðu lostnir. Því það merki- lega og ánægjulega er að vegna þessa aukna starfs Baal hópanna hefur áhugi almennings á sviðslist- um og aðsókn að leikhúsum aukist jafnt og stöðugt (MÁS, skýrsla bls. 17). Samkvæmt yfirliti Hagstof- unnar sækja 160-170 þúsund gestir sýningar opinberu leikhúsanna ár- lega. Með sýningum Baal hópanna hækkar þessi tala upp í liðlega 250 þúsund á ári á árunum 1994 til 1997. Því virðist sem starf hópanna hafi náð að svara kalli áhorfenda um aukið framboð á leiklist eða að hóparnir hafa beinlínis ræktað þann áhuga. Ástæða er til að staldra sérstaklega við þetta atriði, því á sama tíma og samkeppnin um frítíma og tómstundir almennings hefur aldrei verið harðari, eykst aðsókn að leikhúsum (hér er rétt að taka fram að með leiksýningum áhugaleikfélaganna um allt land er fjöldi leikhúsgesta á Islandi á fjórða hundrað þúsund (MÁS, Starf sjálfstæðu leik- húsanna skiptir veru- legu og vaxandi máli, að mati Þórarins Ey- fjörð, fyrir leiklistarlíf landsmanna. skýrsla bls. 17)). Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum á það flóð afþreyingarefnis frá útlöndum sem við búum við. En einu sýnileg viðbrögð almennings við því flóði eru þau að hann sækir leikhús af meiri þrótti nú en nokkru sinni fyrr. Ein helsta ástæða þessa er sú að í leikhúsinu hafa áhorfendur tækifæri til að hlýða á og sjá íslenska listsköpun, og á sviðinu íslenska leikara leika á íslensku. Þar á ofan bætist sér- staða leikhússins og leiklistarinnar; persónulegt og milliliðalaust sam: band áhorfenda við leikarann. I leikhúsinu gefst áhorfandanum tækifæri til að upplifa þá nautn að ferðast með leikaranum gegnum ólgusjó tilfinninga, gegnum _ gleði og sorg, sigra og erfiðleika. I leik- húsinu eru gerðar til hans vits- munalegar kröfur, hann verður að taka afstöðu og byggja þar á jafn ólíkum þáttum (stundum) eins og tilfinningum og skynsemi. Því er leikhúsið griðastaður þeirra sem vilja láta hreyfa við sér, vilja láta brjóta upp vanahugsunina. Vilja gráta og hlæja. Og hugsa. Og áhorfendur flykkjast í leikhús. Is- lenskt leikhús. Allir sem eitthvað hafa komið ná- lægt leiklistarstarfí vita að öflugur Þórarinn Eyfjörð opinber stuðningur er forsenda þess að leiklistin geti þrifist og dafnað. En hvernig er þeim málum háttað hvað Baal hópana varðar og hvernig hafa opinberir aðilar svar- að þessari þróun sem átt hefur sér stað? í fyrsta lagi ber að nefna að fjár- framlag ríkisvaldsins hefur hægt og hægt verið gð hækka á undan- fórnum árum. I kring um 1990 var leikhópunum úthlutað um 4 millj- ónum kr. af almennum lið („til starfsemi atvinnuleikhópa") og AI- þýðuleikhúsið vai' sérmerktur liður á fjárlögum, með um 8 milljónir kr. Samtals voru því á þessum tíma settar í þennan geira um 12 millj- ónir kr. Þetta er ekki nákvæm tala, því til viðbótar veitti ráðherra öðru hverju styrki utan þessara liða og þáverandi fjárveitinganefnd einnig. Aldrei var þó þar um verulegar upphæðir að ræða. Alþýðuleikhúsið var síðan tekið af fjárlögum sem nafngreindur liður og var sá styrk- ur sem það hafði fengið settur inn á almenna liðinn. Hann hækkaði og stóð í 14 milljónum kr. um tíma og hefur verið 16 milljónir nú um skeið. í fyrra stóð fjárlaganefnd Al- þingis fyrir því að bæta við liðinn 2 milljónum kr. og sýndi þar vilja í verki tO að bæta stöðu frjálsu leik- hópanna. Framkvæmdastjórn Leiklistarráðs menntamálaráðu- neytisins skilar tillögum til ráðu- neytisins um úthlutun þessa fjár. Tillögurnar byggjast á umsóknum frjálsu leikhúsanna og hópanna. í öðru lagi þá eiga þeir sem starfa á vettvangi hópanna kost á að sækja um listamannalaun úr Listasjóði, en sá sjóður er hluti af starfslaunum listamanna. Þar er um að ræða 100 mánaðarlaun ár- lega (af 300 sem Listasjóður hefur til úthlutunar), sem dreifist á all- margar hendur. Þeir listamenn sem slíkra launa njóta fá rétt um 100 þús. kr. verktakagreiðslur í til- tekinn mánaðafjölda. Stjórn lista- mannalauna ákveður hverjir fá þessi laun og í hve langan tíma, en framkvæmdastjórn Leiklistarráðs skilar tillögum tO stjórnar Lista- sjóðs þar um. Þær tillögur eru einnig byggðar á umsóknum sjálf- stæðu leikhúsanna og hópanna fyr- ir einstaka listamenn sem starfa á vegum þeirra (aðrir einstakir leik- húslistamenn geta sótt um lista- mannalaun til Listasjóðs af þeim 2/3 hlutum sjóðsins sem eftir eru). Að þessu samanlögðu má sjá að frá menntamálaráðuneytinu fær þessi geiri leiklistarinnar 26 millj- ónir á ári í styrki. Það gerir að meðaltali 812.500 kr. á sýningu sé miðað við árið 1996! Síkur meðal- talsreikningur segir ekki alla sög- una en hann er fróðlegur eigi að síður. Menn geta síðan borið þess- ar tölur saman við þá styrki sem opinberu leikhúsin njóta og kostn- að þeirra við hverja uppfærslu. Ástæða er til að velta fyrir sér hvers vegna starf leikhópanna hef- ur ekki verið hærra metið en raun ber vitni þegar kemur að opinber- um stuðningi (um kostnað opinberu leikhúsanna við uppsetningu leik- verka má lesa gi'ein Hávars Sigur- jónssonar, Mbl. 1. júlí 1998). Opin- beru leikhúsin starfa í ákveðnu og fastmótuðu umhverfi. Þau þurfa að fara eftir kjarasamningum og þau verða að greiða fyrir öll sín aðfóng. Þetta gerir það að verkum að kostnaður þeirra við hverja leik- sýningu er raunhæfur, þ.e.a.s. leik- húsin greiða lágmarkslaun til lista- manna sinna og borga reikninga vegna efniskaupa. Raunkostnaður leikhópanna við hverja uppfærslu er ekki minni en hjá opinberu leik- húsunum. En í flestum tilvikum verða listamennirnir sem að upp- færslunni koma að gefa hluta eða jafnvel öll sín laun og síðan er betl- að og sníkt á öllum öðrum vígstöðv- um. Með ærinni fyrirhöfn. Vissu- lega eru þess dæmi að sýningar sjálfstæðu leikhúsanna og hópanna hafa staðið undir sér og vel það og er það hið besta mál. Gott er að nefna hér hluta af raunhæfum kostnaði við uppfærslu leikrita til þess að hægt sé að glöggva sig á hvað um er að ræða. Tökum leikhús sem bundið er af kjarasamningum og ræður til sín hóp listamanna. Verkefnið sem vinna á er nýtt íslenskt leikrit ætl- að fullorðnu fólki og þykir víst að verkið taki liðlega tvær klukku- stundir í sýningu. Við verkið á að semja nýja íslenska tónlist. Ein- ungis við það eitt að ákveða að taka slíkt verk til sýninga er viðkomandi leikhús búið að skuldbinda sig til að greiða 3-4 milljónir kr. í lágmarks- laun til listrænna stjórnenda sam- kvæmt kjarasamningum og eru þau laun ekki há þegar miðað er við vinnuframlag og vinnutíma. Þá er eftir að greiða fyrir allan annan mannafla sem nauðsynlegur er við verkefnið og greiða allan annan kostnað. Eftir stendur spurningin: Hvers vegna ætti hið opinbera að styðja frekar við starf sjálfstæðu leikhús- anna en nú er gert? I mínum huga, og ég hygg í huga þeirra sem sækja sýningar hópanna, er svarið augljóst. Starf hópanna skiptir orð- ið veralegu máli í leiklistarlífi landsins, áhorfendur flykkjast á sýningar þein'a og í listrænu tilliti hafa hóparnir mikilvægu hlutverki að gegna. Þeir hafa gegnum tíðina verið gróðurhús nýrra viðhorfa, til- raunastofur og aflvaki ferskra hug- mynda. Þessir þættir eru ekki ein- ungis mikilvægir fyrir leiklistina í sjálfu sér, heldur sýnir það sig að þetta kunna áhorfendur að meta. í fyiTnefndri skýrslu ráðuneytis- ins má sjá að á árunum 1994 til 1997 sóttu 39% leikhúsgesta á ís- landi sýningar hópanna (MÁS, skýrsla bls. 20, áhugamannasýn- ingar ekki taldar með). Þar má einnig lesa að stuðningur ríkis- valdsins við hópana nemur um það bil 4 til 5% af heildarfjárveitingum ríkis og sveitarfélaga til sviðslista! Það hljóta allir réttsýnir menn að sjá að þetta er fjarri öllu lagi. Nú er það ekki svo að Baal vilji að fjár- munir verði teknir frá opinbera leikhúsunum og þeir fluttir til hópanna. Opinbera leikhúsin eru í viðvarandi fjárhagsörðugleikum og era ekki of sæl af því sem þau hafa úr að spila. Þess utan búa þau við ákveðna skilgreinda ábyrgð sem þau verða að standa undir. Baal vill hinsvegar að viðurkennd verði sú þróun sem átt hefur sér stað á und- anförnum árum og leiklistarstarf utan opinberu leikhúsanna fái þá sanngjörnu viðurkenningu í fjár- veitingum sem eðlileg getur talist. Listamennirnir hafa á afgerandi hátt lagt lóð sín á vogarskálar þess- arar þróunar, áhorfendur sömu- leiðis og nú er bara að vona að fjár- veitingavaldið taki á ákveðinn hátt við sér og „búi leiklistinni þroska- vænleg skilyrði" svo notað sé orða- lag úr gildandi leiklistarlögum. Höfundur er leikhúsmaður og formaður Baal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.