Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 48

Morgunblaðið - 11.09.1998, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KRISTÓFER PÁLL GUÐNASON + Kristófer Páll Guðnason var fæddur í Reykjavík 14. apríl 1975. Hann lést í Reykja- vík 30. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Helga Högnadóttir, f. 22.4. 1950, og Guðni Pálsson, f. 25.6. 1950. Þau slitu samvistir. Seinni kona Guðna er Fjóla Hilmars- dóttir. Systkini Kristófers sam- mæðra eru. 1) Kristinn Vignir Ólafsson, f. 17.8. 1967, kvæntur Ellen Elsu og eiga þau eina dóttur, Kristjönu Huld, f. 1994. Fyrir átti Kristinn Gunnar Inga, f. 1986. 2) Anna Bentína Hermansen, f. 18.9. 1969, í sambúð með Gretari Hostert Sofðu unga ástin mín, - úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, meðan hallar degi skjótt, að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Siguij.) Elsku Kisó bróðir. Einhvem veg- inn er ekkert orð sem getur útskýrt líðan mína núna, allt virðist svo inn- antómt og lítilvægt. Þrátt fyrir að ég mundi nota heilu setningarnar eða löng og vel skrifuð ljóð, þá duga þau ekki til. Orðið söknuður er líka svo innan- tómt orð því tengsl okkar voru svo sterk og náin. Ég næ því ekki heldur að hugsa um þig í þátíð og skrifa um þig í þá- tíð, mér finnst það skelfilegt, því ekki leið sá dagur að þú værir ekki í huga mínum, og að hugsa um þig í þátíð vekur upp einmanaleikann sem við tvö þekktum svo vel. Ég var systir þín, elskaði þig eins og barnið mitt og jafnframt vorum við bestu vinir. Samband okkar var þ.a.l. svo sér- stakt og fyrir okkur tvö var það svo dýrmætt, því við vorum stundum svo dæmalaust ein en höfðum alltaf hvort annað, hvort okkar var órjúf- anlegur hluti hins. Ég var rúmlega fimm ára þegar þú komst í heiminn og það var stór stund fyrir okkur öll, því við biðum í eftirvæntingu. Þú varst strax upp- áhald mömmu okkar, sólargeisli pabba þíns og engillinn minn. Þú varst eins og lítill engill með ljósu lokkana og sægrænu augun og bros _þitt lýsti upp svartasta myrkur. Eg var mjög ung þegar ég byrjaði að passa þig, og við hlógum mikið að því í gegnum tíðina, þegar ég lét reka barnapíuna af því mér fannst hún ekki hugsa nógu vel um þig- Við vorum nánast alltaf saman og ég varð fljótt svo háð þér og þú mér. Ég gleymi því aldrei þegar þú Formáli minn- ingargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útfór hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. og eiga þau tvö börn, Róbert Aron, f. 1991, og Rakel Sesselju, f. 1992. Systkini Kristófers samfeðra eru: Helga Rut, 27 ára, Aldís Asa, 13 ára, Guðný Margrét, níu ára, og Sigmundur Árni, þriggja ára. Kristófer lauk skyldunámi frá Réttarholtsskóla og hóf nám í Fjölbraut í Breiðholti. Hann æfði fótbolta með Víkingi í mörg ár. Hann starfaði í nokkur ár í skóbúð Steinars Waage í Kringlunni. Upp úr því fluttist hann til Spánar og bjó þar um nokkurt skeið. Útför Kristófers fór fram í kyrrþey. varst fjögurra ára, þá leyfðirðu mér að drösla þér í kerru og stinga upp í þig pela, þótt þú værir löngu vaxinn upp úr slíku, en þetta var mín leið til að vernda þig og hugsa um þig og ég var of ung til að skilja að þetta væri ekki alveg rétta leiðin. Kannski var þessi þörf að vernda þig svo rík í mér af því að þitt ynd- islega lundarfar kom snemma í ljós, þú máttir ekkert aumt sjá, þú grést yfir heiminum og barst hann alltaf á herðum þínum. Þú sagðir mér oft að þú skildir ekkert í þessum heimi, skildir ekki gildismat og forgangs- röð fólks á hlutunum, skildir ekki grimmdina og mannvonskuna og því meira sem þú lærðir og frædd- ist um þetta viðfangsefni, því minna skildir þú og því síður vildir þú til- heyra þessum þankagangi. Dýptin og greindin sem ein- kenndi þína persónu var nánast botnlaus, þú hafðir allt sem flestum er skammtað en þinn karakter gerði það að verkum að þú leist á það sem hégóma að trana þér fram. Einhvern veginn náðirðu aldrei fótfestunni sem við hin náum sem verðum samdauna þjóðfélaginu. Þú skarst þig alla tíð úr, í hugs- unum, framkomu og útliti, þess vegna kölluðum við mamma þig alltaf fallega engilinn okkar og þú varst eins og engill, komst inn í líf okkar sem engill og fórst eins og englar gera, því þeir tilheyra ekki heiminum, þess vegna fannstu þig aldrei hér. Samt sem áður hélstu alltaf í sak- leysið þitt og fallegar hugsanir, þrátt fyrir allan Ijótleikann sem til- veran kynnti þig fyrir. Þú umvafðir mig þeirri göfugu hjartagæsku sem ég hef aðeins fundið hjá þér, því hún var svo hrein, svo sönn og svo skilyrðislaus og hversu langt sem er á milli okk- ar nú og hversu mjög sem lífið hef- ur breytt okkur, þá eru tengsl okk- ar órjúfanleg. Þú verður alltaf sérstakur hluti af lífi mínu og munt alltaf eiga sér- stakan stað í hjarta mínu sem eng- inn annar hefur fengið aðgang að. Við áttum saman minningar sem engir aðrir vita um. Við deildum áhyggjum sem enginn gat skilið og geymdum gleðistundir sem leyndan fjársjóð. Það gerði líf okkar svo ná- tengt og þess vegna vorum við hvort öðru ómissandi. Mesta hræðsla mín er orðin að veruleika, að ég muni missa þig, en ég veit þér líður betur, einhver verndar þig betur en nokkurt mannlegt hefur getað gert og ekk- ert meiðir þig framar. Ég veit að þú fórst sáttur og að þér líður vel, elsku drengurinn minn, og þótt við hittumst ekki aft- ur hér, finnst mér sem allt ævintýri tilverunnar sé réttlætt með því að hafa þekkt þig svona vel, fengið ótakmarkaðan aðgang að hugsun- um þínum, fengið að ganga með þér í gegnum þessi 23 ár, halda í hönd- ina á þér, hugga þig, hlæja með þér, taka þátt í gleði þinni og sorg, í sigrum og vonbrigðum, góðum tím- um og slæmum og fengið að deila nánast öllu með þér. Tilvera mín verður ekki söm án þín en það huggar mig að vita af þér á stað sem þú vildir tilheyra, engillinn minn. Við sem söknum þín eigum botn- lausan brunn af minningum sem munu sefa sorgina og gefa okkur styrk til að halda áfram. Það er það sem þú hefðir viljað, því ást þín til okkar var ótakmörk- uð og án skilyrða, þú þráðir vellíðan okkur og sjálfum þér til handa. Þú ert búinn að finna þinn frið og við munum standa saman til að skilja, fyrirgefa og sakna. Elsku mamma. Guð geymi drenginn okkar og styrki þig á þessum erfiðu tímum. Kristófer elskaði þig út af lífinu og þráði að þú mundir finna fótfestu og vellíð- an. Elsku Guðni. Guð gefi þér styrk til að stríða. Núna líður syni þínum vel. Elsku Ami, þú varst eins og bróðir hans, andlegur síamstvíburi, enda voruð þið svo líkir. Guð mun þeira tár þín. Elsku Kristinn, nú erum við tvö eftir af börnunum hennar elsku mömmu. Guð gefi okkur styrk til að sameinast í sorg okkar og styrkja hana, þú hefur staðið eins og klettur við hlið henn- ar á þessum mesta áfallatíma í lífi hennar. Allir vinir hans sem stóðu með elsku bróður mínum, ég verð ykkur ævinlega þakklát. Kisó var ykkur svo þakklátur því þið voruð honum svo mikilvæg. Munum að Kisó gaf allt sem hann átti, en hann var þreyttur og vildi ekki ganga meir, hann skildi við okkur eins fallega og honum var unnt og skilaboðin til okkar voru að virða hann og hans ákvarðanir, að elska eins og hann þorði að elska, að vera við sjálf og vernda okkar persónuleika fyrir áhrifum ann- arra. I herberginu fann ég tákn sem hann hefur oft krotað niður, tákn sem er mjög táknrænt fyrir hann og það sem hann vildi segja okkur sem eftir stöndum. Táknið merkir samstöðu milli fólks. Það er það sem hann vildi, að við stæðum öll saman, hugguðum hvert annað. Elsku Kisó. Ég sakna þín óbæri- lega en ég veit að ég græt vegna þess sem var ein mesta gleði mín. Mig langar að kveðja þig með lag- inu okkar, vögguvísunni sem ég söng alltaf fyrir þig, söng þig í svefn. Nú sefurðu lengur og sefur vel. Takk fyrir allt, elsku bróðir og sofðu rótt. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, - hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáh við guð um þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? Hve öll sú gleði er fyrr naut hugur minn er orðin hljómlaus utangátta og tóm hjá undrinu að heyra þennan róm, hjá undri því að líta htinn fót í litlum skóm, og vita að heimsins grjót svo hart og sárt er honum fjarri enn, og heimsins ráð sem brugga vondir menn, já vita eitthvað anda hér á jörð er ofar standi minni þakkargjörð í stundareilífð eina sumamótt. Ó alheimsþós, ó, mynd sem hverfur skjótt. (Halldór Laxness.) Þín systir, Anna Bentína. Bærinn er grárri en í gær, göturnar bara þegja, blómin með björtu litina búa sig undir að deyja. Eg horfi í rökkrið. Haustið smeygir sér innst inn í huga minn. Eins og blómin sakna sólarinnar sakna ég þín. (Anna Bentína.) Elsku Kristófer. Við skiljum ekki alveg hvað það þýðir að vera dáinn en mamma er búin að segja okkur að Guð hafi tekið þig til sín og að núna líði þér vel. Þú varst alltaf svo góður og okk- ur fannst svo gaman að leika við þig- Mamma sagði okkur allt um þig, hvað þú varst góður í fótbolta og duglegur í skólanum, alveg sama hvað þú gerðir, þá gerðir þú það vel. Hún sagði okkur fyrir löngu frá brandaranum sem þú sagðir alltaf aftur og aftur þegar þú varst lítill, um manninn sem labbaði og labb- aði þangað til hann labbaði beint upp í loftið, svo hlóguð þið enda- laust. Okkur finnst þetta líka svo fyndið og vinum okkar líka, allir krakkarnir í hverfinu kunna þenn- an brandara sem þú bjóst til og við hlæjum öll endalaust og getum sagt hann aftur og aftur. Þú komst oft til okkar og okkur fannst svo fyndið að mamma rugl- aðist alltaf á nöfnunum okkar, kall- aði þig Róbert og mig Kristófer, hún hefur oft gert það vegna þess að hún sagðist elska þig svo mikið og hugsa svo oft um þig. Við elskum þig líka, Kristófer. Guð og englarnir verndi þig og hjálpi ömmu Helgu. Róbert Aron og Rakel Sesselja. Nú eru rúm fjögur ár síðan við kynntumst og hefur ótalmargt breyst á þeim tíma. Reyndar svo mikið, að í minningunni virðist þetta hafa verið annar heimur og við aðrar manneskjur. Þú varst svo fullur af lífsorku og alls kyns hugsunum sem drógu mig að þér á svo sterkan hátt að þér mun ég aldrei gleyma. Elsku Kisó, fyrir mér verður fyrsta ástin alltaf sérstök. Takk fyrir stundirnar sem munu fylgja mér ávallt. Sigríður. Þetta var áhrifaríkur tími, þar sem sterk bönd mynduðust. Sálir sem snertu strengi hver annarrar. Hvað var það sem gerði okkur svona sérstök hvert í augum ann- ars? Kannski var það forvitni eða tilhneiging okkar til að kafa djúpt í lífið ... kannski of djúpt. Tilfinningar okkar varðandi þennan tíma eru mjög blendnar en eitt af því sem lifir sterkast er tón- listin og ást Kisó á henni. Leiðir okkar lágu sín í hverja áttina, en sérhver endir er upphaf að einhverju nýju. I hjörtum okkar vitum við að þér líður betur og án efa munu sál- ir okkar mætast aftur. Við elskum þig á okkar sérstaka hátt. Sigríður og Björg. Ástin mín, elsku Kisó, af hverju? Af hverju þú? Af hverju skildirðu ekki hvað þú varst sérstakur? Ég ætla að reyna að kveðja þig hér, að votta þér virðingu mína, því ég fékk símtal áðan og ég missti af jarðarförinni þinni. Ég var sár og með trega í hjartanu að geta ekki verið þarna og vottað þér virðingu mína í seinasta skipti ... í bili. Svo ég reyni eins og ég get að gera það hér. Ég ætla að trúa ... vona, að þú heyrir í mér. Gull af manni varstu, gimsteinn sem skarst þig úr, einn af mestu áhrifavöldum í mínu lífi og verður það ávallt, kenndir mér marga góða og merkilega hluti, margt sem þú sagðir. Og líka bara að fylgjast með þér var ómeðvituð kennsla af þinni hálfu, því þú vissir ekki hversu mikill og magnaður maður þú varst. Verst að ég sagði þér það aldrei, en auðvitað hefði ég átt að gera það. Ég veit það núna og segi það hér, elsku Kisó minn. Það er áfall fyrir svo marga að þú sért dáinn, ungur strákur. Slá- andi fjarlægt. Veraldlegir hlutir minnka ennþá meira, hverfa. Og maður áttar sig á að maður hefur gleymt sér í þeim, einmitt það sem maður hét að gera aldrei. Manstu? Ég og þú inni í stofu hjá þér í Hjaltabakkanum, þú einmitt seg- andi það! Ég við hliðina á þér ung (yngri) og sagði ekki neitt, en Kisó, ég skildi þig og var sammála þér. Strákur eins og þú dáinn og þá þarf maður að átta sig á hvað það er hér í lífinu sem skiptir máli. Við töluðum ekki reglulega saman seinustu ár, ég hitti þig stundum, talaði við þig, oft varstu svo lítill, ég sá að þér leið ekki vel, ég reyndi að hjálpa þér, gefa þér ráð, en þorði ekki að nálgast þig meira en mér fannst við hæfi. Ef ég samt hitti þig varstu fastur í hausnum á mér vikum saman á eftir, ég hugs- andi hvað ég gæti gert, ég var alltaf að hugsa til þín og biðja fyrir þér. Þegar þú varst uppi á Klepps- vegi var ég alltaf á leiðinni til þín, þó ekki væri nema bara til að gefa þér superdós og sígó og láta þig vita á minn hátt að mér væri ekki sama, ástin mín. Hverjum gat ver- ið sama um strák eins og þig? En ég flækti mig í hausnum á mér og þorði það ekki, fannst við ekki lengur þekkjast nóg til að það væri við hæfi. Vitlausa ég. Ég mun hér eftir alltaf hlusta á hjartað í mér og flæki mig ekki aftur í svoleiðis ef svipaðar aðstæður koma upp, það er víst seinasta lexían sem þú hefur kennt mér á þennan ömur- lega hátt. Mig dreymdi þig um daginn, þú varst heilbrigður, brosandi prins með kórónu, svo ég áttaði mig á því að það var það sem þú varst, ókrýndur. Ég kýs að muna þig þannig. Ég var heima hjá þér, yngst. Bara Hrefna með Jónsa og ykkur strákunum, þegjandi, ég vildi alltaf að þú vissir hversu mik- ið ég skildi þig. Stundum finnst mér að þú hafir vitað það, ég var bara 14-15 ára stelpa sem átti þá eitthvað alveg ferlega bágt með að tjá mig. Þetta tímabil var ekki án mórals þegar t.d. við Jónsi hættum saman, en aldrei dæmdir þú mig, komst alltaf vel fram við mig. Stóðst sannur og sjálfstæður í þinni sannfæringu. Það er virðing- arvert. Það er nefnilega miklu auð- veldara að vera þröngsýnn og dómharður, en að horfa á hlutina í hlutlausu ljósi. Manstu þegar þú labbaðir upp á fjall á Uxa, komst niður og varst svo hamingjusamur, áttir upplifun. Þú settist niður og virkilega talað- ir við mig, þakka þér fyrir það sem þú sagðir, ég geymi það og passa í hjartanu mínu, ávallt. Eftir að ég frétti af andláti þínu hef ég stanslaust beðið fyrir þér og fólkinu í kringum þig. Bænin er sterk, ég vona að það hjálpi þér að þú komist heim í ljósið, þú yndis- legi engillinn minn. Ég vona að þú finnir Guð í hjartanu þínu, að minnsta kosti veit ég að þar er nóg pláss, því þú varst strákur með stórt hjarta og í hjartanu hans Kisó á bara að vera kærleikur. Þakka þér, Guð, fyrir að hafa leyft mér að hafa átt smá hlutdeild í lífi Kristófers og þakka þér fyrir, Kisó, að hafa verið til. Ég votta ykkur ættingjum mína dýpstu samúð og ykkur krökkun- um! þið vitið hver þið eruð, ástirn- ar mínar. Ég sendi smá ljóð fyrir þig- Horfi á þig viskan í augunum sagði að þú myndir deyja ungur en samt gamall, vitur því þín leið var þung en ekki löng enn þá sporin þín hér djúp í sálum okkar skilmerkileg eins og þú þú ert Ijós í þjartanu minningin lukt í sálinni hér í leit okkar, leik okkar svokölluðu lífi takk, Kisó, fyrir að hafa verið til. Kisó við sjáumst. Þín saknandi, Hrefna Björt Þórarinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.