Morgunblaðið - 11.09.1998, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.09.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 55 BRÉF TIL BLAÐSINS Hvers vegna hlaut Jón Sigurðsson áheyrn? ■Frá Hallgrími Sveinssyni: „SAGA ykkar er raunar með ólíkind- um. Hin viðtekna hugmynd um hlut- verk Jóns Sigurðssonar er goðsögn, verk hans og sögu sjálfstæðisbarátt- unnar yfirleitt þarf að rannsaka bet- ur. Við getum til samanburðar ímyndað okkur Tasmaníubúa sem heldur yfir á meginland Asti-alíu og fer að halda ræður um að Tasmanía hljóti sjálfstæði. Þessi maður yrði varla tekinn mjög alvarlega, honum yrði hugsanlega boðið í kaffi hjá ein- hverjum embættismanni en flestir myndu bara brosa út í annað. En hvers vegna hlaut Jón Sigurðsson áheyrn? Hvers vegna var hann tek- inn alvarlega? Hann hafði ekkert bakland, samt gat hann skapað ís- lendingum framtíð. Þetta hefur aldrei verið skýi-t.“ Þennan skemmtilega texta mátti lesa í mjög athyglisverðu viðtali í Lesbók Morgunblaðsins hinn 29. ágúst sl. en þar ræðir Þröstur Helgason við ísraelskan menningar- fræðing, Itamar Even-Zohar. Raun- ar er viðtal þetta í heild með því merkilegasta sem birst hefur í blað- inu lengi og er þó af nógu að taka. Standmynd Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, steypt úr eir, er á góðri leið með að verða einhvers konar ímynd Islands, utanlands sem innan. Mjög oft er Jón hafður í baksýn þeg- ar talað er við stjórnmálamenn og aðra frammámenn í sjónvarpsfrétt- um og varla er tekin sú landkynning- armynd að hin ágæta stytta Einars Jónssonar sé ekki einhvers staðar sjáanleg. En sjaldan er talað um hina einstæðu sögu á bak við þessa styttu og má það merkilegt heita. Einn þáttur þeirrar sögu er spurn- ingin um það, hvers vegna Danir tóku Jóni Sigurðssyni eins og raun bar vitni á sínum tíma, manni með tvær hendur tómar, en sögu lands síns eina að vopni. Þær móttökur voru óþekkt fyrirbrigði hjá öðrum nýlendu- og herraþjóðum. Þeir út- veguðu honum vinnu, opnuðu fyrir honum skjalasöfn sín og gerðu hon- um í raun allt til hæfis, karlssynin- um, sem ekki hafði annað bakland en einstaka hæfileika í genum sínum og gott veganesti og nýja skó úr heima- húsum. Israelski menningarfræðingurinn hefur á skilmerkilegan hátt bent okkur Islendingum á að við höfum verk að vinna. Við þurfum að rifja upp og skilgreina fyrir okkur sjálf- um og öðrum þjóðum, í ofbeldisfull- um heimi, hvers vegna Jón Sigurðs- son hlaut áheyrn. Við eigum ekki að láta okkur nægja eirstyttuna, þótt góð sé. HALLGRÍMUR SVEINSSON, Hrafnseyri Okkur vantar ekki hræsni heldur siðferði Frá Vigfúsi Björnssyni: FYRIR nokkru gaf formaður hags- munafélags út yfirlýsingu varðandi hræðilega viðkvæma leyndardóma er fólgir væru í læknaskýrslum. Umræddur hagsmunahópur teldi það heilaga skyldu sína að halda fast utan um þessa óttalegu leynd- ardóma og stilla sér upp til varnar hinum fáfróða lýð sem þar ætti hagsmuna að gæta. Sjónvarpið átti viðtal við forgöngumann þessarar riddarareglu og leyndi sér hvorki musterissvipurinn né heiðarleikinn. En það vill nú bara svo til að á þessu landi býr upplýst þjóð sem er full fær um að taka ákvarðanir um sín persónulegu leyndarmál sjálf - og þegar betur er að gáð þá eru þessi óttalegu leyndarmál sameign allra og ekkert til að smjatta á í kristilega þenkjandi þjóðfélagi, hvað svo sem þau kunna að kallast á latínu musterisriddaranna. Þá sak- ar og ekki heldur að vera þess minnugur að margt ber á góma yfir gullnu glasi og að veggirnir hafa eyru. Það vantar ekki hræsni held- ur siðferðið. Óhjákvæmilega hlýtur nýtt endurbætt siðferði að fylgja nýjum hugmyndaheimi sem byggist á því að hið gamla er orðið úrelt og ónýtt en hið nýja er framtíðin. Gagnagrunnur Kára Stefánssonar er hið nýja. Ný veröld framfara og bræðralags öllum heiminum til fyr- irmyndar og hagsbóta. VIGFÚS BJÖRNSSON, Asabyggð 10, Akureyri. Rymingar- á golfvörum golffatna aðeins í örf áa daga Opið ■ laugardag kl. 10-16 ^a&ur við hðef. HREYSTI Fosshálsi 1 - S. 577-5858 MEÐ LAUGARDAGSBLAÐI MORGUNBLAÐSINS I 9. SEPTEMBER OG Á mbl.is MEÐAL EFNIS: • íslenskur hugbúnaðariðnaður Rætt við nokkraframmámenn helstu fyrirtækja í íslenskum tölvuiðnaði. • Dulritun Grein um dulritun m.a. með tilliti til fyrirhugaðs gagnagrunns íslenskrar erfðagreiningar. • ECTS-leikjaráðstefna Fjallað um ECTS-sýninguna I London, helstu leikjasýningu Evrópu. • SET Sagt frá nýjum öryggisstaðli vegna viðskipta yfir Netið. • MIDI-tækni Sagt frá framförum í tölvutaekni hvað varðar tónlist. • ADSL Ný tækni í gagnaflutningi um símalinur. • iMac Macintosh sækir í sig veðrið með nýrri tölvu. • Y2K Fjallað um vandamál tengd árinu 2000. • Lófatölvur Bornar saman ólíkar gerðir og gerð grein fyrir örri þróun á því sviði. • Diskabrennsla Geislabrennarar verða almenningseign, sagt frá tækninni og tækjunum. • O.fl. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 mánudaginn 14. september Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á söludeild auglýsinga í síma 569 I 139. piprgnttMfibib AUGLYSINGADEILD Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.