Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 60

Morgunblaðið - 11.09.1998, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM KVIK-MYNDIR/Háskólabíó og Kringlubíó sýna stríðsmyndina Björgun óbreytts Ryans, Saving Private Ryan, sem er nýjasta mynd leikstjórans Stevens Spielbergs. Sögusviðið í myndinni er innrás bandamanna í Normandí árið 1944 og með helstu hlut- verk fara Tom Hanks, Tom Sizemore, Edward Burns, Matt Damon og Ted Danson. Stríðið með aug- um Spielbergs Frumsýning SEINNI heimsstyrjöldin setti mark sitt á alla þá sem lifðu hana af og auk þess mótaði hún komandi kynslóðir. Þegar bandamenn gerðu innrásina í Normandí í Frakklandi árið 1944 vissu her- mennirnir sem þátt tóku í henni ekkert hvað þeir áttu í vændum, og ekkert hefði getað búið band- arísku hermennina sem stigu á land á Omaha-ströndinni undir þá orrustu sem beið þeirra. Þeir voru fullir vonar og einbeitni en enginn þeirra vissi hvort hann myndi lifa það af að komast upp strandlengj- una framundan. Þegar kafteinn John Miller (Tom Hanks) virti fyr- ir sér ströndina var hann sann- færður um að erfiðasta verkefni hans i stríðinu til þessa væri að koma sér og herflokki sínum fram- hjá víggirðingunum, en staðreynd- in var sú að erfiðasta verkefnið var ennþá framundan. Rétt í þann mund sem bandamenn voru að ná fótfestu á ströndinni er Miller skipað að fara með flokk sinn að baki vfglínunnar í þeim tilgangi að finna þar einn mann og koma með hann til baka. Sá maður er hinn óbreytti hermaður James Ryan (Matt Damon), en hann er yngstur tjögurra bræðra og hafa allir bræður hans týnt lífinu í stríðinu með aðeins nokkurra daga milli- bili. Eftir því sem herflokkur Mill- ers heldur lengra inn á yfirráða- svæði óvinanna byrja kafteinn Miller og menn hans að velta fyrir sér fyrirskipununum og því hvers vegna einn maður er þess virði að tefla lífi átta manna í tvísýnu; hvers vegna líf hins óbreytta her- manns sé meira vii’ði en þeirra eig- in. Höfundur handritsins að Saving Private Ryan er Robert Rodat og eins og Steven Speilberg segir hann myndina fjalla um sómatil- 9s(ctfurgaGmi Smiðjuvegi 14, %ppavojji, sími 587 6080 Föstudags- og laugardagskvöld leika hinir síungu og eldhressu Lúdó og Stefán Næturgalinn þar sem stuðið er finningu og það hvernig ættjarð- arást tengist ábyrgð manna í garð fjölskyldu sinnar, nági’anna og þeirra sem berjast við hlið manns í hernaði. Rodat fór með upphaflegu hugmynd sína að sögunni til kvik- myndaframleiðandans Mark Gor- don og vann Rodat að þróun hand- ritsins með Gordon og Gary Levinsohn félaga hans. Þeir höfðu áhuga á að fá Tom Hanks í aðal- hlutverkið og kættust mjög þegar hann lýsti áhuga sínum, en Hanks segist ætíð hafa verið heillaður af seinni heimsstyrjöldinni. Handrit- ið barst svo til Stevens Spielbergs sem einnig er áhugasamur um þetta tímabil í mannkynssögunni. Hanks og hann eru miklir vinir en EKKERT hefði getað búið bandarísku hermennina sem stigu á land á Omaha-ströndinni undir þá orrustu sem beið þeirra. MATT Damon í hlutverki dbreytts Ryans sem her- flokkur Millers (Tom Hanks) er sendur til að finna. þeir höfðu hins vegar aldrei áður starfað saman við gerð kvikmynd- ar. I fyrstu voru þeir svolítið ragir við að vinna saman en ótti þeirra reyndist vera með öllu ástæðu- laus og Spielberg segist fagna því ákaflega að þeir hafi getað unnið saman að mynd- inni. Meðal leikar- anna í myndinni eru þeir Ted Danson, Tom Sizemore og Ed- ward Burns sem sjálfur hefur gert þrjár kvikmyndir, en hann hlaut mikla frægð og margvísleg verð- laun fyrir íyrstu mynd sína, The Brothers McMul- len. Annars eru flestir helstu leik- ararnir í mynd- inni ungir menn sem hafa verið að skapa sér nafn sem leikarar eða kvikmyndagerð- armenn og þeirra á meðal er Matt Damon sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir handrit sitt að Good Will Hunting, auk þess sem hann var tilnefndur til verðlaunanna fyrir leik sinn í myndinni. Leikararnir þurftu að eyða tíu dögum í æfinga- búðum þar sem þeim var kennd meðferð skotvopna og bar- dagatækni af öllu tagi, auk þess sem þeir lærðu merkjamál og orðfæri sem bandarískir hermenn í seinni heimsstyrjöldinni notuðu. Stór hluti myndarinnar lýsir innrásinni í Normandí og var hún sett á ^svið á strandlengju á Ir- landi. I þetta atriði myndarinnar voru fengnir 750 aukaleikarar úr írska hernum og höfðu margir þeirra unnið með Mel Gibson við gerð Bravéheart. Spielberg myndaði innrásaratriðið að miklu leyti með handmyndavél og fékk þá áhrif líkt og tökumaður frétta- mynda sem fylgir herflokki á leið í stríð. Atriði þetta krafðist gífur- legs undirbúnings á allan hátt og Tom Hanks segir að hann hafí aldrei kynnst öðru eins adrenalín- flæði og á meðan á tökunni stóð. „Þetta var ringulreið um leið og maður steig á sviðið, menn féllu og sprengjur sprungu allt í kring- um mann, og það var ekki erfitt að ímynda sér að þetta blóðbað væri raunverulegt og af völdum kúlna, sprengjuvarpa og fall- byssuskota. Það er skelfing- arglampi í augum okkar í sumum atriðanna og hann er raunveru- legur því við vorum hræddir og samt vissum við að þetta var allt saman tilbúningur.“ VINIRNIR Steven Spielberg og Tom Hanks fara yfir málin við tökur á Saving Private Ryan. www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.