Morgunblaðið - 15.09.1998, Blaðsíða 1
Miðstöð fyrir
lagnakerfi
SAMVINNA um nýtt kennslu-
tæki lagnamanna er nú að
takast, segir Sigurður Grétar
Guðmundsson. Um er að ræða
laguakerfamiðstöð og er hug-
myndin að koma henni fyrir í
námunda við rannsóknastofn-
anirnar á Keldnaholti. /2 ►
Gagnleg
húsaleigulög
LOG um húsaleigu eru mikil-
væg leigutökum og seljendum
og gerir Sandra Baldvinsdóttir
nokkra grein fyrir þeim. Mikil-
vægt er aðilum að ganga skrif-
lega frá húsaleigu og öðrum at-
riðum sem varða samskipti
leigusala og leigjanda. /13 ►
Ú T T E K T
Ný lóð við
tíu fjöl-
býlishús
UMFAN GSMIKLAR lóða-
framkvæmdir hafa stað-
ið yfír í sumar við tíu
íj'ölbýlishús í vesturbænum í
Reykjavík. Eigendur húsanna,
sem eru við Rekagranda og
Seilugranda, tóku höndum
saman og ákváðu að endurnýja
lóðirnar við húsin og er um að
ræða framkvæmd uppá rúm-
lega 13 milljónir króna.
Þessi kostnaður skiptist nið-
ur á 129 íbúðir og er hann því
að meðaltali kringum 100 þús-
und á hveija ibúð. Hvert húsfé-
laganna tíu hefur sinn háttinn
á fjármögnun og áttu sum
þeirra talsvert í framkvæmda-
sjóði en önnur fengu lán eða
yfirdráttarheimild til að hægt
væri að hefja verkið. Jón Kal-
dal byggingafræðingur, sem
teiknaði húsin á sfnum tíma,
var fenginn til að hanna og
undirbúa framkvæmdir og
annast daglegt eftirlit með
verktaka sem er Hellu- og
varmalagnir.
Skipuð var framkvæmda-
nefnd íbúanna sem var
tengiliður við hönnuð og verk-
taka og fékk umboð til að
skrifa undir verksamning þeg-
ar allar áætlanir lágu fyrir.
Hana skipuðu þau Berglind
Sigurðardóttir, Halldór Borg-
þórsson og Árni Vésteinsson
og segja þau öll samskipti við
hönnuð og verktaka hafa verið
með ágætum, verkið gengið vel
og allt staðist áætlun.
Lóðin er nú skipulögð sem
ein heild sem skiptist f tvö torg
eða svæði. með leiktækjum og
„sælureituin". /16 ►
Rúmlega 22%
aukning
í sementssölu
SALA á sementi hefur aukist um-
talsvert á þessu ári miðað við sama
tíma í fyrra. Þannig höfðu fyrstu
átta mánuði ársins selst 78.600
tonn en 64.000 tonn á sama tíma í
fyrra. Er þetta rúmlega 22% aukn-
ing.
Gylfi Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Sementsverksmiðjunnar á
Aki-anesi, segir að sementssalan
detti að jafnaði nokkuð niður eftir
verslunai-mannahelgi, þá standi frí
enn sem hæst og hægist á öllum
framkvæmdum. Sala á sementi er
líka talsvert árstíðabundin, er 6 til
8 þúsund tonn á mánuði yfir vetur-
inn en fer í um og yfir 10 þúsund
tonn á sumrin.
Skýringin á mun meiri sements-
sölu nú er að nokkru leyti sú að í
ársbyrjun 1997, mánuðina janúar
til mars, var erfitt með steypu-
vinnu vegna þess hve veturinn var
harður og snjóalög mikil. Síðastlið-
inn vetur hafi aftur á móti verið
mildur og þægilegur og því hafi
salan verið allgóð. Hann segir stór-
framkvæmdir, t.d. vegna virkjana,
skipta minna máli nú en oft áður,
meira sé einfaldlega um almennar
byggingaframkvæmdir. Á þessu
ári er þó umtalsverð sala til Sultar-
tangavirkjunar, eða kringum 10
þúsund tonn og búist er við álíka
mikilli sölu þangað á næsta ári.
Á síðasta ári seldust alls 108
þúsund tonn af sementi og sagði
Gylfi áætlanir verksmiðjunnar
gera ráð fyrir um 115 til 120 þús-
und tonna sölu í ár. Sagði hann
allt útlit fyrir að þær myndu
standast.
Verðlag á sementi hefur verið
stöðugt og lítið sem ekkert sement
er flutt til landsins en ýmsh- hafa
þreifað fyrir sér með það.
Sementssala (tonn)
júlí 1995 til júlí 1998
120
Vísitala 1990=100
114,1
111,1
1996
i i i i i i i
1997
i i i i i
1998
i i i i i i i
JASONDJFMAMJJASONDJFMAMJJASONDJFMAMJJ
Heimild: Þjóðhagsstofnun, ágúst 1998
84,
Verið velkomin í afgreiðsluna að Ármúla 13A
eða hafið samband við ráðgjafa okkar f síma 515 1500.
Við höfum opið alla virka daga frá 9.00-16.00
KAUPÞING HF