Morgunblaðið - 15.09.1998, Blaðsíða 16
16 C ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Golli
HITANN og' þungann af framkvæmdunura við Rekagranda og Seilugranda bera hönnuður, framkvæmdanefnd og verktakinn. Lengst til vinstri er
Jón Kaldal, fremst á myndinni er Ellert Jónsson verktaki og aftan við hann framkvæmdanefndarmennirnir Halldór Borgþórsson (t.v.) og Arni
Vésteinsson. Fjarstödd var Berglind Sigurðardóttir.
Á malbikuðu svæðunum verður
komið fyrir leiktækjum og malbik-
ið er gert örlítið ljósara með því að
strá í það hvítu graníti. Frágangur
á leiktækjum og annar búnaður
verður samkvæmt því sem krafist
er þegar leiksvæði barna eru ann-
ars vegar. „Þetta er gert sam-
kvæmt nýjum öryggisstöðlum en
það eru alltaf að flæða yfir okkur
alls kyns nýjar reglur og staðlar
sem berast okkur frá útlöndum og
stundum er það algjörlega háð til-
viljunum hvernig við komumst á
snoðir um ýmsar þessara reglna,"
skýtur Jón hér inn í.
Ein helsta breytingin snýr að
sjálfum inngöngum húsanna: „Við
ákváðum að brjóta niður tröppur
við inngangana og búa fremur til
skábrautir til að auðvelda umgang
og gera hann meira aðlaðandi. Ská-
brautirnar eru til hhðar en beint
fram af anddyrunum eru nokkur
þrep niður á lóðina sjálfa umlukt
sjávargrjóti. Skábrautirnar eru
með snjóbræðslukerfi enda má
segja að það sé orðið nánast regla í
dag í nýjum stéttum og þar sem
menn eru að endurnýja,“ segir Jón
og nefnir að slíkt kosti ekki ýkja
mikið. „Þarna eru menn að nýta yl-
volgt afgangsvatnið sem annars
rynni ónotað út úr húsunum. I
verstu frostaköflunum er það hins
vegar tæpast nógu heitt og þess
vegna er á þessu kerfi sjálfvirkur
búnaður sem skerpir svolítið á hit-
anum þegar kaldast er úti. Það
eykur hins vegar ekki rekstrar-
kostnaðinn svo neinu nemi.“
Grófu burt gömlu lóðina
og hönnuðu nýja
EIGENDUR 129 íbúða í tíu fjöl-
býlishúsum á Grandasvæðinu í
Reykjavík, nánar tiltekið við Reka-
granda og Seilugranda, sameinuð-
ust í sumar um gagngerar endur-
bætur á lóð við húsin sem brýnt
var orðið að ráðast í. Er það raunar
búið að vera alllengi í bígerð og áð-
ur hafa verið gerðar tilraunir til að
ráðast í verkið en ekki orðið úr fyrr
en í sumar. Er það nú á lokastigi
og lóðin hefur tekið stakkaskiptum.
Svæðið er næstum því eins og lítið
þorp því íbúafjöldinn í þessum lið-
lega 120 íbúðum er kringum 300
manns.
Undirbúning með verkinu hafði
sérstök lóðanefnd með höndum en
hún er tíu manna og skipuð fulltrú-
um stjórna allra húsfélaganna.
Kaus hún sér þriggja manna fram-
kvæmdastjórn sem annaðist yfir-
stjórn verksins. Þá starfaði sérstök
nefnd sem tók saman upplýsingar
um leiktæki og önnur hafði gróður-
málefnin á sinni könnu. Hönnuður
er Jón Kaldal byggingafræðingur.
Lóðin sem um er að ræða er
sameiginleg með húsunum öllum,
þ.e. við Seilugi-anda 1, 3, 5, 7 og 9
og Rekagranda 2, 4, 6, 8 og 10 en
þessi fjölbýlishús voru reist af
Byggung fyrir rúmum áratug. Jón
Kaldal teiknaði húsin og var því
eðlilegt að framkvæmdanefndin
leitaði til hans um verkið og segist
hann í raun hafa verið að ljúka því
sem til stóð því ýmsum atriðum í
lóðafrágangi hefði í raun aldrei
verið lokið.
Vikulegir fundir
Áður en verkið hófst hafði fram-
kvæmdanefnd íbúanna hist allt frá
því í apríl á síðasta ári, þegar málið
var að komast í gang, oft á vikuleg-
um fundum og hefur nefndin í raun
sinnt daglegri umsjón með verkinu
í samvinnu við Jón. Framkvæmda-
nefndina skipa þau Arni Vésteins-
son, Berglind Sigurðardóttir og
Halldór Borgþórsson.
„Þetta hefur verið heilmikil
vinna hjá okkur en við erum mjög
ánægð með hversu góð samstaða
hefur tekist með öllum íbúum því
það var strax samþykkt í öllum
húsfélagastjórnunum að fara í
þessar framkvæmdir. Menn voru
íbúar í litlu þorpi í vesturbæ Reykjavíkur,
um 300 íbúar í tíu f]ölbýlishúsum, tóku sig
saman síðastliðinn vetur og ákváðu að end-
urnýja stóra sameiginlega lóð sína.
Jóhannes Tómasson kynnti sér verkið hjá
þeim sem nú er aðkomast á lokastig.
MESTA breytingin var gerð við innganga húsanna. Tröppur við liúsin
voru fjarlægðar og settar skábrautir í þeirra stað en nýjar tröppur
liggja fram að Ióðinni sjálfri umluktar sjávargijóti.
SKIPTA þurfti um jarðveg í allri lóðinni og þegar farið var að grafa
komu í ljós sökklar undan gömlum skemmum Hafskips sem mokað
hafði verið yfir á sínum tíma. Tafði þetta verkið nokkuð en samt sem
áður tekst að ljúka því á réttum tíma.
sammála um að taka þyrfti til
hendinni á lóðinni hér og sam-
þykktu snemma á síðasta vori að
hefjast handa,“ segja þeir Árni og
Halldór. Framkvæmdir voru sam-
þykktar á fundum í öllum húsfélög-
unum og stjórn lóðanefndar var
veitt umboð til að ganga frá öllum
samningum við verktaka og slíkt.
Þeir sögðu að góð samstaða hefði
verið með íbúum allan tímann og
ekki væri annað að heyra en flest-
um litist vel á verkið. En hvernig
er verkið fjármagnað?
„Það er í raun hver og einn
stigagangur sem ákveður fyrir sig
hvaða hátt hann hefur á því,“ segir
Árni. „Kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á rúmar 13 milljónir sem þýðir
að meðaltali kringum 100 þúsund
krónur á íbúð, þær minnstu greiða
kringum 80 þúsund og þær stærstu
um 130 þúsund. Húsfélagið hjá
mér átti til dæmis talsverða upp-
hæð í framkvæmdasjóði. Önnur
húsfélög áttu minna eða fjármögn-
uðu sinn hlut í framkvæmdunum
með láni eða yfirdráttarheimild í
viðskiptabanka sínum. Við fengum
útibú SPRON á Seltjarnarnesi til
að sjá um greiðsluþjónustu vegna
lóðaframkvæmdanna. Húsfélögin
greiddu inn á reikning í SPRON
sem sá síðan um að greiða reikn-
inga eftir því sem þeir bárust."
Eftir athuganir, vangaveltur og
margs konar gagnaöflun fóru hug-
myndir um verkið að mótast og
var seint á síðasta ári haft sam-
band við Jón Kaldal sem teiknaði
húsin og hann var fenginn til liðs
við íbúa.
Sameiginleg lóð
tíu fjölbýlishúsa
„Lóðin er sameiginlegt svæði
allra fjölbýlishúsanna tíu og er
henni nú skipt upp í tvö torg með
nokkuð stóru malbikuðu svæði í
miðju en umhverfís eru gangstígar,
grasreitir og þrír sérstakir blettir
sem við köllum sælureiti. Þar eru
bæði grasflatir og hellulagðar
stéttir sem verða umluktar trjá-
gróðri og má ætla að þar geti menn
helst unað sér við grill og sólböð,“
segir Jón Kaldal þegar hann er
beðinn að lýsa lóðinni með
nokkrum orðum.
Skemmtileg tilbreyting
Stéttirnar á lóðinni eru lagðar
svonefndum kastalasteinum frá
BM Vallá en gangstígarnh- malbik-
aðir. En hvenær hóf Jón að undir-
búa verkið?
„Húseigendur höfðu samband
við mig skömmu fyrir síðustu ára-
mót og fljótlega upp úr því hóf ég
að leggja niður fyrir mér tillögur
sem framkvæmdanefndin skoðaði
og bar undir aðra íbúa og þannig
þokaðist málið áfram í nokkrum
skrefum. Auk þess að hanna gerði
ég kostnaðaráætlun og ýmsar
verðkannanir og síðan fengum við
nokkra verktaka til að gera sínar
áætlanir og völdum einn úr þeirra
hópi, Hellu- og varmalagnir. Við
sömdum við þá um allt verkið
nema hvað ég sá um hæðarmæling-
ar og síðan um allt eftirlit."
Af öðrum sem koma við sögu má
nefna Verkfræðistofu Þráins og
Benedikts ehf. en hún sá um allar
lagnateikningar.
Jón Kaldal sá einnig um að
teikna fjölbýlishús Byggung við
Austurströnd og í Víkurási og
Vallarási í Seláshverfi og hefur í
tengslum við þau hús einnig hann-
að lóðirnar. „En þetta verkefni er
skemmtileg tilbreyting og þarna sé
ég líka um daglegt eftirht og sam-
skipti við verktakann og þetta hef-
ur verið sérlega ánægjulegur tími í
alla staði,“ segir Jón.
Glannaleg hugmynd
„Sumum fannst kannski dálítið
glannaleg hugmynd hjá Jóni að
henda tröppunum við húsin alveg í
burt en þegar við sjáum útkomuna
er augljóst að ekki hefði verið hægt
að hafa þetta^ öðruvísi," segja þeir
Halldór og Árni. Þeir segja líka
fljótlega hafa orðið ljóst að þetta
yrði framkvæmd upp á 10 til 15
milljónir króna og menn hafi sætt
sig við það. „Enda erum við hér
nánast að henda gömlu lóðinni,
grafa hana burtu með öllu tilheyr-
andi og fá nýja lóð með frísklegu
og skemmtilegu yfirbragði."
Á malbikuðum flötunum vérður
komið fyrir sérstökum áttstrend-
ingum og settir í þá grenitré og
rafmagn lagt að þeim. Með þessu
verður hægt að koma fyrir jólaljós-
um þegar þar að kemur og segir
Halldór þetta enn eitt tækifærið til
að hafa uppákomur á lóðinni: „Við
getum haft okkar eigin litlujól
hérna og ég er alveg sannfærður
um að þessi endurnýjun á eftir að
laða fram alls konar skemmtilegar
hugmyndh- og tiltæki."
Þeir Árni og Halldór voru sam-
mála um að verktakinn, Hellu- og