Morgunblaðið - 15.09.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.09.1998, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Stakfell Fasteignasala Sudurlandsbrau! 6 568-7633 if Lögfræðingur Þórhildur Sandholt Sölumaður Gísli Sigurbjörnsson Það kemur öllum við hvort lagnakerfi eru rétt hönnuð, valin rétt efni og verkgæði, segir Signrður Grétar Guðmundsson og að það gildi um þá sem í húsum búa og starfa. Islendingum tekst oft, því miður, að drepa hinum bestu málum á dreif með argaþrasi eins og sjá má og virðist ætla að verða raunin með hið stórmerka frumvarp á Alþingi um gagnagrunn, þar sem saman yrði safnað á einum stað upplýsingum um heilsufar og móðursýki þjóðarinnar, en ekki látið nægja að þær liggi í kompum og hillum út um allan bæ. Þá tekst sömu þjóð mætavel að láta hafa sig að ginningarfíflum eins og sjá má af yfirstandandi Keikófári, þar sem meirihluti Vestmanneyinga er farinn á skytterí með eigin tær sem skotmark. Því er það meira en ánægjulegt að á sama tíma komi saman nær allir hagsmunaaðilar í lagnamálum og taki um það einróma ákvörðun að smíða kennslugagn fyrir lagnamenn sem lengi hefur vantað og enn sem komið er kallast Lagnakerfamiðstöð. Einhver kann að segja sem svo að óþarft sé að fjalla um Lagnakerfa- miðstöð á opinberum vettvangi, þetta sé sérhæft tæki fyrir lagna- menn og komi almenningi ekki við. En svo er aldeilis ekki. Lagnir í húsum koma öllum við sem í húsum búa og í húsum starfa, þess vegna koma lagnir öllum við. Ekki síður kemur það öllum við að lagnakerfi séu rétt hönnuð, í kerfin valin rétt lagnaefni, hvort sem það er venjulegt stál, plast, eir eða ryðfrítt stál, það verður á hverjum stað að velja rétt efni miðað við aðstæður. Öllum koma við gæði lagnarinnar og gæði vinnunnar við að leggja kerfi og þess vegna kemur öllum við þekk- ing þeirra sem hanna og leggja, þekking verkfræðinga, tækniíræð- inga, pípulagningamanna og blikk- smiða. Fyrh- þá verður Lagnakerfa- miðstöðin gerð að veruleika, þar verður þekldng þeirra aukin, þar verða efni rannsökuð, svo og lausnir í lagnamálum. Hvað er Lagnakerfamiðstöð? Hún er ekki skóli í eiginlegri merkingu, heldur geysistór verk- færakista. Þar verða sett upp lagna- kerfi með margvíslegum stýringum þar sem allir þeir lagnamenn sem fyrr voru taldir geta gert tilraunir og þjálfað sig í að ná sem bestum ár- angri í t.d. stillingu hitakerfa. Þar geta menn viljandi gert mistök til að læra af því hvað gerist ef það kemur fyrir í raunveruleikanum. Þar gæti verið þriggja hæða turn með margvíslegum frárennsliskerf- um, öll rör gagnsæ svo hægt sé að sjá hvað gerist þegar vatnið rennur úr baðkerinu eða þegar sturtað er úr klósettinu. Þar gæti verið svæði þar sem nemar í pípulögnum lærðu að leggja frárennsliskerfi í grunn eða að leggja snjóbræðslurör. Þetta er mjög fátækleg upptalning af því sem í slíkri kennslustöð kann að verða því eitt er víst; Lagnakerfa- miðstöð verður að veruleika. Þeir hópar sem standa að stofnun þessa kennslutækis koma víðs vegar að úr þjóðfélaginu. I kjarnanum verður vonandi gras- rótin, iðnaðarmennirnh’, og ganga þar með í fótspor fyrirrennara sinna sem byggðu Iðnó fyrir einni öld og stofnuðu Iðnskólann í Reykjavík í upphafi aldar. Þegar hugsað er til þessara stórvirkja ættum við nútíma iðnaðarmenn kannske ekki að hreykja okkur hátt af frumkvæði okkar í menntunarmálum, en vinna því betur að þeim í framtíðinni. Háskólarnir og Tækniskólinn, allir verkmenntaskólar og iðnskólar, Rannsóknastofnun byggingariðnað- arins, Iðntæknistofnun, Samband ísl. sveitarfélaga eru meðal stofnaðila og Rannsóknarráð og menntamálaráðu- neytið hafa heitið stuðningi. Lagnakerfamiðstöðin verður ekk- ert bákn í rekstri, þar mun starfa einn umsjónarmaður og einhver sér um ræstinguna. Þeir skólar sem nýta aðstöðuna senda eigin kennara með nemendum sínum, rannsóknai’- stofnanir senda rannsóknarmenn sína á vettvang. Lagnakerfamiðstöðin verður í raun steindauð verkfærakista, hún vaknar til lífsins þegar gesti ber að LAGNAHEIMURINN er stór og allir sem þar starfa þurfa að auka þekkingu sína. garði, þeir fara síðan á braut með þá þekkingu sem þeir afla þar og koma henni á framfæri til allra þeirra sem á henni þurfa að halda. Hvar og hvernig? Kjarninn í þessu víðtæka sam- starfi felur í sér mikla hagræðingu, það tryggir að aðeins ein sh'k kennslustöð verður byggð hér á landi og henni verður valinn staður á Keldnaholti í Reykjavík í námunda við rannsóknastofnanir sem þar eru. Með því er tryggt að stofnanir og skólar fara ekki hver fyrir sig að reyna að koma sér upp kennslutækj- um, vélum og verkfærum til sömu kennslu, þannig yrði kröftunum dreift og allt yrði í skötulíki. Strax hefur komið fram sú spurn- ing hvort þetta eigi að vera sjálfstæð eining, hversvegna hún verði ekki sett upp í skotinu hjá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins eða þá hjá Iðntæknistofnun. Þessu er auðvelt að svara, sú breiða samstaða skóla, hagsmunaað- ila og stofnana sem nauðsynlegt er að standi hér að baki, er einungis möguleg ef allir virða rétt annarra, til þess að þetta takist er höfuðatriði að enginn reyni að drottna yfir þess- ari kennslumiðstöð. Ef hún hefði verið sett í og undir stjóm einhvers skóla eða stofnunar hefði þróunin efalaust orðið sú að sá sem fékk Lagnakerfamiðstöðina í skotið hjá sér hefði einokað hana og þá er hætta á að aðrir hefðu dregið sig út úr samstarfinu. En málið er ekki enn endanlega í höfn, lokahnykkurinn er eftir og ekki er ástæða til að ætla annað en að hann takist vel. Til að svo verði þarf þó tvennt að vera tryggt; enginn má seilast til meiri áhrifa en annar í þessum stóra og mislita hópi sem að stofnuninni stendur og enginn má draga lappirn- ar í hálfvelgju, það er miklu ánægju- legra að taka þátt í getnaðinum en að sitja sem fúl yfirsetukona á rúm- stokknum við fæðinguna. Ef það gerist ekki erum við að stíga spor í iðnsögu Islands sem líkja má við það glæsilega framtak iðnað- armanna í lok síðustu aldai’ er byggðu Iðnó og í byrjun þessarar aldar við stofnun Iðnskólans í Reykjavík. FYRIR ELDRI BORGARA EFSTALEITI (BREIÐABLIK) Til sölu og laus nú þegar 128 fm glæsi- leg íbúð á 2. hæð í Breiðabliki. íbúðin er með stórum vestursvölum, parketi, nýj- um innréttingum og tækjum. Stakfell sýnir eignina. EINBYLISHUS HEGRANES Giæsiiegt einbýlis- hús á einni hæö 217,3 fm ásamt tvöföldum bílskúr 41,5 fm. Húsið er mjög vel staðsett á sunnanverðu nes- inu og allt í toppstandi. Stór og fallegur garður. Áhvílandi húsbréfalán 5,0 millj. NJÁLSGATA Lltið steypt einbýlis- hús á tveimur haeðum 88,9 fm með möguleika á stækkun í rísi. Laust strax. Verð 6,5 millj. SEFGARÐAR - SEL- TJARNARNESI Sérlega vandað og vel um gengið 212,4 fm einbýlishús á einni hæð með rúmgóð- um innbyggðum bílskúr. Skiptist í stóra stofu, 3 góð svefnherbergi, stórt eld- hús, sjónvarpshol, þvottaherbergi, baðherbergi og gestasnyrtingu. Húsið stendur á fallegri, gróðurríkri og vel skipulagðri lóð. Hitl í stóttum. Friðsæll staður. HÆÐIR ENGIHLÍÐ Efri hæð og ris, 164 fm. Sérinngangur. Á hæðinni er góð stofa, tvö herbergi, rúmgóð miðja. I risi er stofa, tvö herbergi, annað nýtt sem eldhús. Laus. Verð 11,9 millj. MIKLABRAUT Mjög góð efri sér- hæð 103,3 fm 2 samliggjandi stofur, tvö herbergi, eldhús og bað ásamt herbergi og þvottahúsi f risi. Mjög vel um gengin eign. Laus strax. 4RA-5 HERBERGJA BREIÐAVÍK Gullfalleg 4ra herbergja íbúð á 3. hæð, 94,8 fm. Sérinngangur. Fallegar innréttingar. Fullbúin án gólfefna. Tilbúin til afhendingar. Verð 8,7 millj. HÁALEITISBRAUT góö 5 her- bergja endaíbúð 131 fm á 1. hæð. Stórar suðursvalir. Parket. Vel staðsett eign. Verð 9,8 millj. HRAUNBÆR 4ra herbergja ibúð á 2. hæð ( fjölb. 100,8 fm. Suðursvalir. Sérþvottahús. Möguleg skipti á minni íbúð. KRÍUHÓLAR Gullfalleg 4ra herbergja (búð á 7. hæð ( lyftuhúsi. Nýlegt eldhús með viðarinnróttingu og graníti á borðum. Marmari á baði. Allt gler nýlegt. Glæsilegt útsýni. Bdskúr fylgir. Verð 8,8 millj. 3 HERBERGJA ENGIHLIÐ Góð 3ja herbergja íbúð, 85 fm í kjallara. FKsar á fremri forstofu og eldhúsi. Parket á gangi, stofu og barna- herbergi. Rúmgott eldhús, góð stofa, 2 svefnherbergi og bað með sturtu. EIÐISTORG Gullfalleg íbúð á tveim- ur hæðum 106 fm. Á neðri hæð er m.a. glæsileg stofa með suöursvölum og fal- legt eldhús. Á efri hæð eru tvö góð svefn- herbergi og fallegt fiísalagt bað. Parket á gólfum. Góð lán. GLAÐHEIMAR Faiieg og góð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð 78,6 fm í mjög góðu þríbýlishúsi. Sérinngangur. Fallegur garður. Góð eign og vel staðsett. Laus strax. BERJARIMI - NÝJAR ÍBÚÐ- IR Nýjar 2ja og 3ja herbergja íbúðir allar með sérinngangi og bílskýli. Til afhend- ingar fljótlega, fullbúnar án gólfefna. NÝBÝLAVEGUR + BÍLSKÚR Mjög góð 3ja herb. íbúð um 90 fm á efri hæð í fjórbýli. Ibúðin er öll mikiö endur- nýjuð. Sérþvottahús. gott útsýni. Nýleg sameign. Góður bílskúr. Malbikað bflastæði. Verð 8,5 mlllj. SELVOGSGRUNN 3ja herbergja Ibúð á jarðhæð með sérinngangi 78,2 fm. Ibúðin er stofa/borðstofa, tvö herbergi, forstofa og gangur. HRÍSRIMI Nýleg fullbúin 3ja her- bergja íbúð 104 fm á fyrstu hæð. Laus strax. Húsbréfalán 4,0 mlllj. LAUFBREKKA - KÓP Góð 3ja herbergja íbúð 76,6 fm með sérinngangi og sérbílastæði. Nýlegt eldhús, nýlegt gler og gluggar. Suðuríbúð. Verð 6.8 millj. 2 HERBERGJA FLYÐRUGRANDI Gullfalleg 2-3ja herbergja (búð 65,1 fm með sérverönd. Parket á gólfum. Góðar innréttingar. Verð 6.5mlllj. HRAUNBÆR Góð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð 57 fm. Ibúðin snýr öll f suð- ur með góðum suðursvölum. Áhvíl. 2,9 millj. Byggsj.rfk. og húsbr. Verð 5,3 millj. VANTAR EIGNIR A SKRA Vegna mikillar eftirspumar undanfariö vantar okkur allar gerðir eigna á skrá. Fasteignasölur í blaðinu í dag Agnar Gústafsson bls. 3 Ás bls. 3 Ásbyrgi bls. 3 Berg bls. 10 Bifröst bls. 21 Borgir bls. 27 Brynjólfur Jónsson bls. 11 Eignamiðlun bls. 15 Eignanaust bls. 30 Eignaval bls. 9 Fasteignamarkaður bls. 12 Fasteignamiðlunin bls. 11 Fasteignasala íslands bls. 22 Fasteignasala Mosfellsb. bls. 14 Fjárfesting bls. 14 Fold bls. 5 Frón bls. 10 Garður bls. 19 Gimli bls. 20 Hátún bls. 6 Hóll bls. 18-19 Hóll Hafnarfirði bls. 23 Hraunhamar bls. 4 Húsakaup bls. 8 Húsvangur bls. 28 Höfði bls. 25 Kjöreign bls. 24 Lundur bls. 26 Miðborg bls. 17 Óðal bls. 22 Skeifan bls. 13 Stakfell bls. 2 Valhöll bls. 7 Lagnafréttir Hjá SPR0N færð þú alhliða fjármálaráðgjöf og víðtæka þjónustu. Þjónustufulltrúar veita þér allar nánari upplýsingar og svara lánsumsóknum ÁRA 'tíí www.spron.is ♦ ♦ Víðtæk samvinna um nýtt kennslutæki lagnamanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.