Morgunblaðið - 01.11.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1998 B 13 t
MANNLÍFSSTRAUMAR
*
TÆKNI/Þurfa Islendingar að taka mið af samrunarannsókn-
um í orkuáætlunum?
Hœgar framfarir
hœga samrunans
RANNSÓKNIR í kjarnasamruna hafa haldið áfram áratug eftir áratug, og
oft hafa margir haldið að sú leið til nánast óendanlegrar mengunarlítillar
orkuöflunar sé ófær. T.d. var afar litlar framfarir að sjá allan áttunda og
jafnvel níunda áratuginn. En nú undir árþúsundamót er greinilega eitthvað
að gerast í framfaraátt. Reyndar eru fleiri en ein leið að markinu. Megin-
rannsóknirnar hafa farið fram í Bandaríkjunum, Bretlandi og Sovét-Rúss-
landi. Einn þeirra þröskulda sem þarf að yfirvinna er vantrú þeirra er leggja
til fé til rannsóknanna, en önnur tveggja megináætlananna nær yfír hálfa öld
fram á við í viðbót við þá hátt í hálfu sem er liðin þegar!
Hin mjög svo kunnari hinna
tveggja áætlana fjallar um að
hita „eldsneytið", þ.e. vetni, upp með
leysiljósi. Afar flókinn segulútbúnað
þarf til að loka efnið inni. Þessi að-
ferð hefur þegar
tekist nokkrum
sinnum í vissum
skilningi, eins og
yfirritaður hefur
gert grein fyrir í
þessum þáttum.
Mörgum sinnum
meira afl hefur
fengist frá kjarna-
sami-unanum en nemur afli þess
leysiljóss sem hitar efnið. En sá
hængur er enn á, að aðeins lítill hluti
þeúrar orku sem dælt er inn í leys-
ana sjálfa kemur úr þeim í formi
leysiljóss. Þannig er vöntun í dæm-
inu upp á þáttinn nokkur hundruð,
þ.e. að afar miklu meh-i orku þarf að
dæla inn í leysana en út úr samrun-
anum kemur. En þrátt fyrir framfar-
ir er eins og helsti þröskuldur þehra
sé trú þeirra er veita fé til hinna dýru
rannsókna.
Miklu óþekktari aðferð er kennd
við hina svokölluðu Z-vél. Nafnið er
fengið úr stærðfræðimáli, en upphaf-
lega var rafstraumur sendur efth'
stefnu setuássins, en vitaskuld var
allt hið fræðilega reiknað út hnita-
kerfi. Tilraunir þessarai- aðferðai'
hafa haldið áfram einnig í téðum
löndum áratug eftir áratug, en nú á
síðustu árum, þ.e. í ár og í fyrra, virð-
ast þær gefa æ betri árangur. Grunn-
aðferðin er einföld. Fjölmargir raf-
þéttar eru hlaðnir upp, og hleypt af
þeim hleðslunni á örskömmum tíma
inn í holrúm þar sem vetnið er geymt
í formi lítillai* kúlu, ekki öllu stærri
en piparkorn. Straumhöggið myndar
plasma er fellur inn á við og skellur á
eldsneytinu úr öllum áttum. Það sem
hitar eldsneytið er röntgengeislunin
er hinar hlöðnu agnir í plasmanu
senda frá sér. Sem stendur næst með
þessu um tveggja milljóna gráða hiti
í vetninu.
Áratugalangh- erfiðleikar aðferðar-
innar fólust í að gera atburðinn nægi-
lega „einsleitan", þ.e. að plasmað félli
nógu samtímis inn að eldsneytinu úr
öllum áttum, og hitaði vetniskúluna
jafnt upp frá öllum hliðum. Það er
ekki fyrr en nýlega að tókst að þróa
aðferðina er kallaði fram örar fram-
farir. Straumurinn frá þéttunum er
leiddur inn í hoh'úmið í afar mörgum
þráðum, er gufa upp og ganga í að
mynda plasmað, er síðan framkallar
röntgengeislunina. Tvöfalt kerfi
mörg hundruð platínuþráða virðist
tryggja þessa einsleitni nægilega vel.
Orsökin er ekki vel kunn, en það sem
starfar, - það starfar. Vísindamenn
Sandia-tilraunastofanna í Bandaríkj-
unum telja sig aðeins þurfa að ná
þrisvar sinnum meiri rafstraumi en
þeir ráða yfir nú þegar til að tryggja
að meiri orka fáist úr kerfinu en dælt
er inn í það! Slíkt er spurning um
tvennt: tíma og fjárveitingu.
Gerold Yonas við Sandia-tilrauna-
stofurnar virðist þeirrar skoðunar
að afar mikið gerist í framfaraátt
næsta áratuginn, en leggur jafn-
framt áherslu á að ekki sé verið að
búa til vél er framleiði nýtanlega
orku, heldm- hafi það er gerist spá-
sagnargildi um hvað gerist næstu
öldina. Það fer samt að verða afar
vert íhugunar okkur íslendingum,
sem stöndum á tímamótum hvað
varðar orkumálin (sbr. alla umræð-
una er fer fram um nýtingu hálend-
isorkunnar), hvort ekki þurfi að fara
að horfa til þess að líklegt er að
tuttugasta og fyrsta öldin bjóði upp
á allt annars konar orku en við nýt-
um sem stendur.
Húsgqgnqsýninq
- MMcoháseiSggD
HÚSGAGNADEILD
Faxafeni
OPIÐ SUNNUDAG
KL. 13.00 - 16.00
Jénj8hágf#fii - M«§c@!iáf§®§Li
íleffö
KRISTALL
HÚSGAGNADEILD
Faxafeni
OPIÐ SUNNUDAG
KL. 13.00 - 16.00
Ásmundur
, —%
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssynl.
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar veiön
leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi
lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga
nauðsynleg.
Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 10. nóv.
YOGA^
STUDIO
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560.
"N
I P R O
«■
Das Erste
TV5
C/RAi
A Breiðvarpinu eru nú fimm evrópskar stöðvar, tvær þýskar, bin
FRÖNSK, BIN ÍTÖLSK OG NÚ HEFUR BÆST VIÐ MJÖG SPENNANDI SPÆNSK
EVROPAI
MALI OG
MYN
I í
STOÐ MEÐ BLONDUÐU EFNI.
Breiðvarpið ER ÞVÍ FRÁBÆR
KOSTUR FYRIR ÞÁ SEM VIUA HALDA
VIÐ TUNGUMÁLAKUNNÁTTU OG
FVLGJAST VEL MEÐ FRÉTTUM OG ÖÐRU
EFNIFRÁ MEGENLANDIEVRÓPU.
A
TV5
Stöð sem býður upp á það besta úr
frönsku sjónvarpi. Mjög vandað og
áhugavert sjónvarpsefni.
Pro Sieben
Þýsk stöð með menningar-, skemmti- og
íþróttaefni.
ARD
Þýska ríkissjónvarpið sem sýnir fjölbreytilegt
efni, fréttir, íþróttir, fræðslu- og skemmtiefni.
í/nYni n u
Wr Mb m ws0r ftf ft Wrm
TVE INTERNACIONAL
Alþjóðleg útgáfa af spænska
ríkissjónvarpinu - mjög fjölbreytileg
og fræðandi sjónvarpsstöð.
RAIUNO
ítalska ríkissjónvarpið sýnir
margskonar áhugavert efni og býður
upp á góða íþróttaumfjöllun.
^ .-... ( . hvíaaþubiðuTum
Inrvan þnggí3 da®a ta t á lokaftágang
þa9, fætðu frftt ^ðnuasaroband í gjaldfrjálst
bíeÍðbanþjónurfunumer, 800 7474-
Hringdu strax
OG KYNNTU ÞER MÁLIÐ!
800
7474
Opið til kl. 22 á kvöldin og 17 um helgar
BREWVARPIÐ
s/öimKPswóNUsrariMAVs
20.000 HEIMIU EIGA ÞESS NU KOST AÐ TENGJAST BREIÐBANDINU OG MUNU
ÞÚSUNDIR HEIMILA BÆTAST VIÐ Á NÆSTU MÁNUÐUM.