Morgunblaðið - 01.11.1998, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ
18 B SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1998
j-------------------------------
DÆGURTÓNLIST
SIGURSÆLIR Liðsmenn X-ecutioners, Total Eclipse, Mista Sinista,
Roc Raida og Rob Swift.
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 5. nóvember
næstkomandi fer af stað tónleikaröð í
Kaffileikhúsinu undir yfirskriftinni 18/28.
Fyrst til að leika í þessari tónleikaröð
18/28 eru Magga Stína og hljómsveitin
Hringir en þau munu flytja stuðlög frá átt-
unda áratugnum. Hljómsveitina Hringi
skipa Kristinn Árnason sem leikur á gítar,
Hörður Bragason organisti og Kormákur
Geirharðsson trommuleikari. Tónleikarnir
hefjast kl. 21.
Spilagleðí
Liðsmenn
Nýdanskrar
snúðarí
heimskiassa
RAPPSVEITINA X-ecutioners
skipa þeir félagar Rob Swift, Mista
Sinista, Roe Raida og Total Eclipse,
sem jafnan eru taldir með björtustu
vonum plötusnúðarappsins í New
York. Þeir félagar fara og ótroðnar
slóðir í samstarfi sínu, notast ekki
við rappara, heldur láta þeir nægja
að setja saman tónlist úr verkum
annarra, klippa niður og blanda
saman frösum og stefjum úr ýmsum
áttum.
X-ecutioners hét áður X-Men, en
urðu að breyta nafninu af höf-
undarréttarástæðum. Þeir félagar
hópuðu sig saman 1989 þegar
Supeiman DJ Crew Clark Kent var
allsráðandi í plötusnúðakeppni vest-
an hafs. Ætlunin var að steypa gengi
Clarks Kents af stalli, en ekkert varð
af uppgjörinu. Þá voru liðsmenn
Steve D, Johnny Cash, Sean Cee og
Roc Riada og þeir sneru sér að því
að valta yfir minni spámenn í plötu-
snúðakeppnum um alla New York og
á landsvísu þegar fram leið. Þegar
þeir voru búnir að leggja Bandaríkin
að fótum sér var röðin komin að al-
þjóðlegum keppnum þar sem X-
ecutioners voru nánast einráðir ár-
um saman. Ein helsta brella þeirra
var það sem plötusnúðar kalla beat
juggling, sem gengur út á að taka
trommutakt af einni plötu og flétta
saman við aðra til að ná fram öðrum
andblæ, líkt og gert er með
hljóðsmala.
Meðfram því að keppa um heim
allan og troða upp sem víðast hafa
þeir félagar gefið sér tíma til að end-
urvinna lög fyrir ýmsa helstu rapp-
ara og framúrstefnumenn seinni
tíma, þar á meðal Jungle Brothers,
Showbiz & AG, Artifacts, Bill La-
swell, Large Professor, Beatnuts,
Fat Joe og Sadat X. Fyrsta breið-
skifan kom síðan út fyrir skemmstu,
heitir X-pressions, og þykir uppfylla
allar væntingar.
Morgunblaðið/Kristinn
B-hliða-
safn
Oasis
VINSÆLASTA hljómsveit Bret-
landseyja síðustu ára og jafnvel
áratuga er Manchester-sveitin Oas-
is. Hún hefur slegið öll sölumet þar
í landi og sent frá sér aragrúa laga
á breiðskífum. Eins og þeir vita
sem fylgst hafa með sveitinni hafa
ýmis lög þó aldrei ratað á breiðskíf-
ur þótt þau hafi hljómað sem auka-
lög á smáskífum. Ur því er bætt
með nýútkomnu B-hliðasafni.
B-hliðasafnið heitir Masterplan
og safnar á einn stað fjórtán
lögum af þeim 36 sem fylgt hafa
með á smáskífum. Lögin spanna all-
an feril sveitarinnar, frá fyrsta lag-
inu, sem tekið er upp áður en hljóm-
sveitin sló í gegn, fram í janúar á
<.þessu ári. Lögin sýna einnig vel
þróun sveitarinnar frá hressilegu
stuðrokki í íburðarmeiri útsetning-
ar og pælingar á síðustu brieðskíf-
unni. Meðal laga má nefna útgáfu
þeirra félaga á Bítlalaginu I am the
Walrus.
Lög á plötuna völdu gestir á
heimasíðu sveitarinnar, www.oasis-
net.com, úr B-hliðasafninu og upp-
haflega átti aðeins að gefa skífuna
út vestanhafs. Eftirspurnin eftir
Oasis-plötunni var aftur svo mildl
að platan verður gefin út um allan
heim, þar á meðal hér á landi.
LHOOQ-liðar,
Jóhann, Pétur,
og Sara.
- Útgáfutónleikar Lhooq
s
Anœgjulegt
HLJÓMSVEITIN Nýdönsk sló í
gegn fyrir síðustu jól með tvö-
faldri safnplötu af eldra efni. Á
þeirri plötu voru og þrjú ný lög
sem sýndi að sveitin var langt í
frá dauð úr öllum æðum þrátt
fyrir hlé frá starfsemi. í kjölfarið
tóku þen* Nýdanskrarfélagar, að
Daníel Ágúst frátöldum, að hitt-
ast aftur og ákváðu að taka upp
þraðinn og setja saman breiðskífu
með nýjum lögum. Platan sú kom
út fyrir skemmstu.
og afslappað
angi að það vantar nokkuð á í
kímninni sem var aðal sveitarinn-
ar frá upphafi," bætir Jón við, „en
á nýju plötunni hefur okkur tekist
að endurvekja hana.“
Þeir félagar hafa spilað tvö lag-
anna nýju á skólaböllum undan-
farið, en í kjölfar útgáfutónleik-
anna í Óperunni næstkomandi
fimmtudag bætast væntanlega
fleiri lög við á dagskrána. Þeir
segja að vel hafi gengið að spila á
böllum og skemmtunum án Daní-
els, enda söng Björn í flestum
Iaganna hvort eð er og því þurfti
hann bara að bæta við sig
nokkrum hendingum. í sumum
laganna þarf svo að hafa fleiri en
eina rödd og þá kemur Jón inn
með sína „Ikea-rödd“ eins og
hann kallar hana. „Það er ótrú-
lega lítill munur að heyra lög sem
Daníel söng,“ segir Jón, „enda
eru þetta mörg lög eftir Björn og
því mjög eðlilegt hann sé að
syngja þau, lög eins og til að
mynda Nostradamus." „Við reyn-
um náttúrlega að leysa þetta,“
segir Björn, „en það verður aldrei
sami hluturinn, það verður eitt-
hvað nýtt. Það er gaman að sjá
þegar Bjössi tekur Horfðu til
himins og spilar á bassa og syng-
ur á fullu á sama tíma, þá er nóg
að gera hjá Bjössa og hann þarf
að vera í stuði líka,“ segir Jón og
kímir. „Eg hef barist fyrir því að
fá aukahlut vegna þess að ég þarf
að gera meira en þeir,“ segir
Björn og glottir, „en það er eng-
inn skilningur á því.“
Jón á tvö lög á plötunni, Björn
Jörundur sjö og Ólafur eitt og svo
eiga þeir eitt saman þrír. Text-
arnir eru úr smiðju Björns í sam-
vinnu við Jón, en Ken Thomas
upptökustjóri á textana í tveimur
laganna, en Björn Jörundur ís-
lenskaði þá. „Við náum svo vel
saman,“ segir Jón, „að það var
leikur að gera þessa plötu. Við
gætum okkar líka á því að hafa
þetta ánægjulegt og afslappað,
engir geggjaðir túrar um landið,"
segir Björn, „það er ekkert gefið
að það verði plata á næsta ári þó
að þessi gangi mjög vel, en við
eigum eftir að halda áfram; þetta
er hljómsveit sem getur haldið
áfram endalaust."
HLJÓMSVEITIN Lhooq hefur lítið látið á sér bera á tónleika-
sviðinu; líklega má telja á fingrum sér hversu oft sveitin hefur
haldið tónleika. Ekki á þeim eftir að fjölga umtalsvert á næst-
unni, en þó einir slíkri framundan, útgáfutónleikar í Loftkastal-
anum, þar sem leikin verða lög af plötunni Lhooq sem kom út
hjá Echo-útgáfunni bresku síðsumars.
Lhooq heldur tónleika
næstkomandi fimmtudag,
5. nóvember, með ýmsum
gestum. Pétur Hallgrímsson
segir að til standi að flytja
plötuna í heild ásamt nýjum
lögum, enda hefur sveitin ver-
ið að vinna að nýju efni af
krafti. Þó nokkuð sé liðið síð-
an platan kom út verði þetta
einskona útgáfukonsert, enda
enginn slíkur verið haldinn,
og að sögn Péturs verður
platan þannig leikin frá a til ö
og síðan verði nýjum lögum
bætt við og líka einu eldra að
minnsta kosti, Megasarlagið
svonefnda.
Ekki verður meira tónleika-
hald hjá Lhooq á næstunni,
þeir Pétur og Addi trymbill
eru á förumtil útlanda til að
spila með Möggu Stínu í
hljómsveit hennar. „Þetta
verða einu tónleikar okkar
hér heima á árinu, en við för-
um ekki af stað með tónleika
úti fyrr en eftir áramót." Á
tónleikunum verða þeir Jó-
hann og Pétur á sínum stað og
Sara syngur, en einnig eru í
sveitinni Addi og Guðni
Finnsson bassaleikari
Asafnplötunni voru þrjú ný lög
í bland við eldri lögin og þeir
Björn Jörundur Friðbjörnsson,
Jón Ólafsson og Ólafur Hólm
segja að þegar
þeir hittust til að
velja nýju lögin
hafi komið í ljós
að þeir áttu fullt
af efni sem beið
þess að vera tek-
ið upp. Þá kvikn-
aði sú hugmynd
að setja saman
nýja plötu og upp úr áramótum
var ákveðið láta vaða. „Við vor-
um alltaf ákveðnir í að gera
plötu,“ segir Jón, „en við þurft-
um aðeins að velta þessu fyrir
okkur með Daníel. Það hvarflaði
aldrei að okkur að fá inn nýjan
mann í stað Daníels og á endan-
um fannst okkur út í hött að það
að hann vildi ekki vera með
stoppaði okkar löngun til að gera
plötu. Við vorum famir að sakna
þess að vera í hljómsveit."
Upptökur hófust í sumar, átj-
ánda júní nánar tiltekið, og þeir
segja að það hafi gengið bráðvel,
þeir hafl uppgötvað spilagleðina
sem kom sveitinni af stað á sín-
um tíma en týndist á Hunangi.
„Við unnum plötuna öðruvísi en í
gamla daga. Þá vorum við alltaf
búnir að æfa lögin út í eitt, en
núna var hljóðverið leikvöllur og
við gerðum ýmsar tilraunir," seg-
ir Jón.
„Þegar Hunang var tekin upp
vorum við í raun að taka upp
tvær plötur samtímis á tveimur
stöðum og unnum í Þjóðleikhús-
inu á fullu,“ heldur Björn áfram.
„Við vorum einfaldlega að gera
of mikið.“ „Það má heyra á Hun-
eftir Árno
Matthíasson