Morgunblaðið - 05.01.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svavar Gestsson læt-
ur af þingmennsku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SVAVAR tilkynnti ákvörðun sína á blaðamannafundi á sunnudag'.
SVAVAR Gestsson, þingflokksfor-
maður Alþýðubandalagsins,
hyggst ekki gefa kost á sér til
þingsetu í alþingiskosningum í vor.
Svavar tilkynnti þetta á blaða-
mannafundi á sunnudag en kvaðst
ekki hafa ákveðið á hvaða vett-
vangi hann hygðist starfa í fram-
tíðinni.
Svavar sagði niðurstöðu sína
ekki standa í sambandi við þróun
samfylkingarmála að undanförnu
að öðru leyti en því að tímabært
væri að hlutaðeigandi segðu af eða
á um framboð, nú þegar ákveðið
hefði verið í meginatriðum hvernig
framboðsmálum samfylkingar yrði
háttað í Reykjavík.
„Ég gef ekki kost á mér að
þessu sinni þótt ég hafí að undan-
förnu orðið var við mikinn stuðn-
ing frá fólki úr öllum samfylking-
arflokkunum, sérstaklega úr fylg-
ismannasveit Alþýðubandalags-
ins,“ sagði Svavar. „Ég er þakklát-
ur fyrir áskoranir sem mér hafa
borist um framboð, ekki sist frá
formanni flokksins og öðrum nán-
ustu samverkamönnum mínum í
pólitík. Andspænis slíkum áskor-
unum er að mörgu leyti erfitt að
taka þá ákvörðun að gefa ekki kost
á sér. En ég hef nánast verið á sól-
arhringsvakt í pólitík í þrjátíu ár
og kýs nú að sinna öðrum verkefn-
um.“
Ottast ekki um afdrif
samfylkingarinnar
Svavar sagði ákvörðun sína fyrst
og fremst byggjast á persónulegu
mati og hún væri ótengd því sem
hann kynni að taka sér fyrir hendur
í framtíðinni. Kvaðst hann myndu
sitja á þingi til vorsins en síðan fara
að líta í kringum sig eftir verkefn-
um þar sem fjölbreytt starfsreynsla
hans kunni að nýtast. „Um nokkurt
skeið hef ég setið við skriftir og
vonast til þess að koma á prent á ár-
inu minni persónulegu pólitísku
sögu sem nær allt til minna fyrstu
daga í æskulýðsfylkingu Alþýðu-
bandalagsins er ég var sautján ára
að aldri.“
Hefði Svavar ekki ákveðið að
hætta nú hefði hann að eigin sögn
leitt Alþýðubandalagsarm samfylk-
ingarinnar í kosningabaráttunni í
vor, en hann kveðst ekki óttast um
afdrif samfylkingarinnar án sín.
„Reyndar hef ég orðið var við það
upp á síðkastið að það eru ýmsir
sem sjá dálítið eftir mér og telja að
með mér hverfi þekktur - sumir
segja jafnvel öflugur - merkisberi
þeirrar stefnu sem Alþýðubanda-
lagið hefur haldið á lofti. Ég tel
sjálfur að samfylkingin þurfi á slík-
um merkisbera hugsjóna að halda
en það er ekki endilega tengt minni
persónu. Samfylkingin ber vonandi
gæfu til þess að kalla sem flesta
slíka merkisbera til liðs við sig,“
sagði Svavar en bætti við að ósætti
um framboðsmál fylkingarinnar
hefðu tafið að hann tilkynnti
ákvörðun sína. „Það hefði verið
óþægilegt að tilkynna þetta ef sam-
fylkingin hefði ekki verið komin
með sín mál á hreint. Þá hefði litið
út fyrir að ég væri að yfirgefa hana
í erfiðleikum en um slíkt er ekki að
ræða af minni hálfu. Ég styð sam-
fylkinguna og óska henni velfamað-
ar í þeim kosningaátökum sem
framundan eru.“
Sárt að sjá flokkinn
splundrast
Aðspurður kvaðst Svavar ekki
ætla að hætta störfum innan vé-
banda Alþýðubandalagsins enda
væri hann rammpólitískur að upp-
lagi og flokkurinn hluti af lífi hans.
„Auðvitað get ég ekki neitað því að
mér hefur þótt sárt að sjá hvernig
Alþýðubandalagið hefur verið leikið
á undanförnum mánuðum, frá því í
fyrrasumar. Þetta hefur að sumu
leyti splundrast fyrir augunum á
manni en við því er ekkert að gera
nema viðurkenna veruleikann og
reyna að bæta stöðuna. Bretta upp
ermarnar og fljúgast á við íhaldið,
eins og sagt var hér á árum áður.
Ég er bjartsýnn á að sviptingarnar
geti jafnvel borið með sér jákvæð
tíðindi til frambúðar og vona að
menn fari á ný að talast við - í síð-
asta lagi 9. maí [daginn eftir kosn-
ingar].“
Svavar Gestsson var kosinn á Al-
þingi fyrir Alþýðubandalagið í
Reykjavík árið 1978 og varð þá við-
skiptaráðherra. Hann var félags-
málaráðherra og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra á árunum
1980-83 og menntamálaráðheri'a
frá 1988-1991. Hann var formaður
Alþýðubandalagsins í rétt sjö ár og
hefur verið formaður þingflokks Al-
þýðubandalagsins á þessu kjörtíma-
bili frá árinu 1995.
I
í dag kl. 11:00 mnn fara fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu rúdsins. Að þessu sinni
verður boðið upp á 2 V2 mánaða ríkisvíxil, RV99-0316.Að öðru leyti eru skihnálar
útboðsins í helstu atriðum þeir sömu og í síðustu útboðum.
í boði verður eftirfarandi flokkur ríkisvíxla í markflokkum:
Elokkur
RV99-0316
“ Milljónir króna.
Gjalddagi
16. mars 1999
Lánstími
l'Amánuðir
Núverandi
staða*
2.159
Áætlað hámark
tekinna tílboða*
1.500
Þús. kr.
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
Uppbygging markflokka ríkisvíxla
Staða ríkisvíxla 29. desember 15.439 milljónir.
Áæduð hámarksstærð og sala 5. og 13. og 18. janúar 1999.
6 mán
12 mán
..I...I.fl
Gjalddagar
'' Áætluð áfylling síðar
m Áæduð sala 18. janúar 1998
■I Áæduð sala 13. janúar 1999
Áæduð sala 5. janúar 1998
Staða 29. desember 1998
RV99-0118 RV99-0217 RV99-0316 RV99-0416 RV99-0618 RV99-0817 RV99-1019 RV99-1217
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvíxlamir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. ÖUum
er heimilt að bjóða í ríkisvíxla að því tilskyldu að
lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestingalána-
sjóðum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfasjóðum, lífeyris-
sjóðum og tryggingafélögum er heimilt að gera tilboð í
meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarki 500.000 krónur.
Öll tilboð í ríkisvíxla þuría að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 11:00 í dag, þriðjudaginn 5. janúar 1999. Útboðsskilmálar,
önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysia.is
Samkeppnisstofnun
Lyfja noti
ekki orðið
eðal
í BRÉFI Samkeppnisstofnun-
ar dagsettu 21. desember s.l.
er svarað málaleitan Samtaka
verslunarinnar frá því fyrr í
mánuðinum þar sem kvartað
er undan auglýsingum lyfja-
búðarinnar Lyfju á ginseng
sem fyrirtækið flytur inn frá
Þýskalandi.
I úrskurði Samkeppnisstofn-
unar beinir stofnunin þvi til
Lyfju að hætta notkun orðsins
„eðal“ í auglýsingum lyfjabúð-
arinnar á vörunni og tekur
skýrt fram að Lyfju beri að
láta koma fram í auglýsingum
og á umbúðum að ginseng frá
Gintec sé unnið úr rótarend-
um.
Netsíminn
16% lækkun á
símgjöldum
NETSÍMINN lækkaði hinn
30. desember sl. símgjöld til
Bandaríkjanna og Kanada um
16% og kostar mínútan til
Bandaríkjanna nú 32 krónur.
í fréttatilkynningu frá NET-
símanum segir að höfuðmark-
mið fyrirtækisins sé að bjóða
ódýrari millilandasímtöl með
hefðbundnum símtækjum. Frá
því NET-síminn var opnaður
hinn 1. desember sl. hafi sím-
gjöld til Bandaríkjanna lækkað
um tæp 32% og fyrirtækið hafi
boðið 20-30% ódýrari símgjöld
en þekkst hafi fram að þessu.
Bensínlækkun
hjá öllum
OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu öll
verðið á bensínlítranum um
2,40 krónur þann 1. janúar en
Olíufélagið hf. hafði tilkynnt
lækkun sína fyrir áramót.
Lægra birgðaverð er ástæða
lækkunarinnar.
Þjónustuverð á 98 oktana
bensínlítra lækkaði úr 77,30 kr.
í 74,90 kr. og lítrinn af 95 okt-
ana bensíni lækkaði í 70,30 kr.
úr 72,60 kr.