Morgunblaðið - 05.01.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs
Hljómsveitarsvítur og
fiðlukonsert eftir Bach
TVÆR hljómsveitarsvítur og
tvöfaldur fiðlukonsert eftir Jo-
hann Sebastian Bach eru á efnis-
skrá hátíðartónleika í Salnum í
Tónlistarhúsi Kópavogs í kvöld
kl. 20.30 en hann var vígður með
miklu tónaflóði síðastliðinn laug-
ardag.
Tónleikamir hefjast með
hljómsveitarsvítu númer 2 fyrir
flautu, strengi og fylgirödd í h-
moll, en hún mun vera eitt
þekktasta verk Bachs fyrir
hljómsveit. Einleikari á flautu
verður Martial Nardeau. I tvö-
fóldum fiðlukonsert leika einleik
fiðluleikararnir Sigrún Eðvalds-
dóttir og Sigurbjörn Bernharðs-
son og þau eru einnig einleikarar
í hljómsveitarsvítu númer 3 í D-
dúr, ásamt Martial Nardeau.
Síðastnefnda verkið er „ákaflega
glæsilegt verk fyrir trompeta,
pákur, tvö óbó, strengi og fylgi-
rödd“ að því er segir í fréttatil-
kynningu.
Hátíðarhljómsveitina skipa Sif
Tulinius og Una Sveinbjarnar-
dóttir, sem leika á fiðlu, Móeiður
Anna Sigurðardóttir á lágfiðlu,
Jón Ragnar Ömólfsson á selló,
Jóhannes Georgsson á kontra-
bassa, Peter Tompkins og Daði
Kolbeinsson á óbó, Asgeir H.
Steingrímsson, Eiríkur Örn Páls-
son og Láras Sveinsson á
trompet, Pétur Grétarsson á pák-
ur og Anna Magnúsdóttir á
sembal.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HÁTÍÐARHLJÓMSVEITIN á æfingu fyrir Bach-tónleikana sem haldnir verða
í Sainum í Kópavogi í kvöld.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SJÓN og Pétur Gunnarsson taka við viðurkenningurn Rithöfundasjóðs
RÚV úr hendi Inga Boga Bogasonar.
Arleg viðurkenning
RÚY til Sjóns og Péturs
HIN árlega viðurkenning Rithöf-
undasjóðs Ríkisútvarpsins var veitt
á gamlársdag við hátíðlega athöfn í
Útvarpshúsinu við Efstaleiti. Að
þessu sinni hlutu rithöfundarnir Pét-
ur Gunnarsson og Sjón (Sigurjón B.
Sigurðsson) viðurkenningu og féllu
500.000 kr. í hlut hvors.
I máli formanns sjóðsins, Inga
Boga Bogasonar, kom fram að skáld-
skapur Péturs einkennist af fágun,
natni, fyndni og naumhyggju en Sjón
sé þekktur fyrir yfirraunsæisleg
verk, gegnsýrð furðum, litum og
hljómum.
Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins
var stofnaðui- 1956 og starfar sam-
kvæmt sérstakri skipulagsskrá. Alls
hafa 79 höfundar hlotið viðurkenn-
ingu úr honum.
Kvikmyndaleikstjórar
og handritahöfundar
í ein samtök
SAMTÖK kvikmyndaleikstjóra og
Samtök höfunda kvikmyndahandrita
hafa sameinast.
Nafn félagsins er nú Samtök kvik-
myndaleikstjóra og kvikmyndahand-
ritahöfunda og segir í fréttatilkynn-
ingu, að rétt á aðild eigi þeir kvik-
myndaleikstjórar og kvikmynda-
stjórar sem vinna óumdeilanlega
sem kvikmyndahöfundar og uppfylla
ákveðin skilyrði um fjölda verkefna
sem þeir hafa leikstýrt, og þeir höf-
undar kvikmyndahandrita sem hafa
samið handrit einnar kvikmyndar í
fullri lengd sem hefur verið fram-
leidd fyrir kvikmyndatjald eða
tveggja leikinna sjónvarpsmynda
sem leikstýrt hefur verið af leik-
stjóra.
Tilgangur Samtakanna er að
standa vörð um höfundarrétt kvik-
myndaleikstjóra og kvikmyndahand-
ritahöfunda og vinna að hagsmuna-
málum þeiiTa, m. a. með því að
tryggja að hvers konar höfundarrétt-
argjöld af kvikmyndum og kvik-
myndahandritum renni í réttlátum
mæli til eigenda höfundarréttar.
Stjórnin er þannig skipuð: Hrafn
Gunnlaugsson formaður, Friðrik Þór
Friðriksson varaformaður, Óskar
Jónasson ritari, Hilmar Oddsson
gjaldkeri, Jón Tryggvason með-
stjórnandi.
Beint frá
hjartanu
LEIKLIST
Leikhóporinn
Á senunni í íslensku
6 p e r u n n i
HINN FULLKOMNI JAFNINGI
Höfundur: Felix Bergsson. Leikstjóri
og dramatúrg: Kolbrún Halldórsdótt-
ir. Leikmynd: Magnús Sigurðsson.
Ljós: Jóhann Bjarni Pálmason. Bún-
ingar: Marfa Ólafsdóttir. Gervi: Ásta
Hafþórsdóttir. Kvikmynd: Kristófer
Dignus Pétursson. Myndvinnsla:
Hreyfimyndasmiðjan, Bragi Þór Hin-
riksson. Hljóð: Mark Eldred og Páll
S. Guðmundsson. Tónlist: Karl 01-
geirsson. Ljóðaþýðingar: Felix
Bergsson og Jón Ásgeir Sigurvins-
son. Leikari: Felix Bergsson. Auka-
leikarar: Alan Suri, Elísabet Þor-
geirsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir,
Magnús Sigurðsson, Margrét. Vil-
hjálmsdóttir, Orri Huginn Ágústsson,
Sigvaldi Júlíusson, Stefán Jónsson,
Þórhallur Vilhjálmsson og Þröstur
Brynjarsson. Sunnudagur 3. janúar.
FELIX Bergsson er kominn aftur
til landsins eftir að hafa aflað sér fi'ek-
ari menntunar í leiklist í London. I
farteskinu er hann með leikrit um efni
sem stendur honum næst hjarta og
hefur nú sviðsett með aðstoð Kolbrún-
ar Halldórsdóttur. Leikritið íjallar um
fimm persónur sem eiga það sameig-
inlegt að vera samkynhneigðir karl-
menn og leikur Felix þá alla.
Vinsældir einleikja aukast stöðugt
meðal leikhúsfólks. Helsti kosturinn
er augsýnilega sá að hægt er að
halda kostnaði hvers sýningarkvölds
í lágmarki og ef vel tekst til er ein-
leikur gott tækifæri til að koma sér á
framfæri. En einleikurinn er vand-
meðfarið form, sem krefst mikillar
fjölhæfni og úthalds af leikaranum,
auk styrki-ar og útsjónarsamrar leik-
stjórnar til að forðast þá hættu sem
felst í forminu og ber helst að forðast
einhæfnina.
Uppsetningin á þessu verki er gott
dæmi um hvernig setja má einleik á
svið svo úr verði heilsteypt og spenn-
andi sýning. Fyrst ber að nefna að
persónur leikritsins era fimm, fjórar
sem Felix leikur á sviðinu og sú
fimmta í kvikmynd. Sérhver þessara
persóna hefur mjög ákveðin einkenni
og persónusköpunin er til fyrir-
myndar. Eitt það skemmtilegasta
við sýninguna er þegar þær leika
hver á móti annarri, á hvíta tjaldinu,
í hljóðmynd eða ímyndaðar á sviði og
í síma. Einnig þegar þær vitna hver í
aðra með viðeigandi töktum. Búning-
arnir era notaðir til aðgreiningar en
farði og gervi einungis í mynd. Þetta
er í fyrstu eilítið raglingslegt fyrir
áhorfendur en kemur ekki að sök
þegar þeir kynnast persónunum bet-
ur. Draga verður þá ályktun að þetta
sé gert af ásettu ráði til að undir-
strika hvað persónumar eiga sameig-
inlegt og að sýna hve leikaranum er í
lófa lagið að gera skýran greinarmun
á þeim.
I annan stað vekur athygli hvað
hljóð- og kvikmynd eru vandvirknis-
lega unnar og hve vel þessi þáttur er
samofinn sviðsleiknum. Að stór hluti
leiksýningar sé í þessu formi og að
ein af fimm persónum birtist einung-
is á tjaldi verður að teljast nýstár-
legt. Dæmin af IRC-inu, samskipti í
gegnum síma og dyrasíma auk
ágengs kynningarstefs úr útvarpi og
stýfðra lagbúta skapa ákveðið and-
rúmsloft í anda síðustu verka Guð-
mundar Steinssonar. Auðar hillur,
hvít skilrúm og nákvæmnisleg ljósa-
vinna ýta enn undir þessa hráu nú-
tímatilfinningu.
í þriðja lagi hefui- Kolbrúnu Hall-
dórsdóttur, dramatúrg og leikstjóra,
tekist í samvinnu við leikai-ann að
skapa mjög þétta og hraða sýningu
þar sem leikur, mynd og hljóð taka
hvert við af öðra og hverri persónu
er skapað sérstakt umhverfi, orðfæri,
hreyfingar og hrynjandi. Felix hefur
greinilega notað vel tímann úti og
kemur hér tvíefldur til leiks. ’
í fjórða og síðasta lagi er Felix
sem höfundui- að fjalla hér um efni
sem honum liggur mjög á hjarta og
er úthugsað. Hérna er ekki verið að
fegra heim samkynhneigðra á neinn
hátt heldur segir Felix hreinskilnis-
lega jafnt frá því jákvæða og nei-
kvæða sem gerist í litlum kunningja-
hópi og í þessu liggur höfuðstyrkur
verksins. Sýningin er svo gersamlega
sett upp á forsendum samkyn-
hneigðra að ætla má að gagnkyn-
hneigðum áhorfendum komi ýmislegt
spánskt fyrir sjónir, kannski það
helst hve veigalitlu hlutverki gagn-
kynhneigðar persónur og þeirra
hefðbundnu gildi gegna í frásögninni.
Þess vegna er sérstök ástæða til að
hvetja þá til að fara á sýninguna,
þarna gefst tækifæri til að sjá inn í
menningarkima sem flestum er hul-
inn.
Sveinn Haraldsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FELIX Bergsson tvíefldur í hlutverki sínu,